Morgunblaðið - 17.06.1979, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 17.06.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979 23 Hönnun í hópvinnu — Þið nefnduð áðan nauðsyn þess að flíkurnar væru hannaðar eftir kröfum þess markaðar, sem þær eiga að fara til. Hvernig farið þið að að kynnast þeim kröfum? — Við fengum hingað danska stúlku, fatahönnuð, sérmenntaða í prjónafatnaði, til að leiðbeina okkur fyrir síðustu kaupstefnu erlendis og hér starfar tæknifólk sem getur útfært þetta. Hönnun- ina vinnum við aöallega í hóp- vinnu. Þegar eitthvert okkar fær hugmynd, veltum við henni fyrir okkur og ræðum hana. Ef okkur lýst vel á er gerð prufa og þannig þróast þetta þangað til ný flík er tilbúin. Eitt aðalatriðið er að skipta nógu oft um. Mörgum hættir til að stæla flík, sem hefur gengið vel hjá þeim og eru raun- verulega með sömu slíkina í örlítið breyttri mynd, kannski í tvö til þrjú ár. Þetta verður að varast, því annars er hætt við að í stað ferskleika komi útþynning. — Hvað seljið þið til margra landa? — Aðallega seljum við til Norð- urlanda og svo smávegis til Eng- lands og Irlands og lítils háttar til Bandaríkjanna og Kanada. En ég álít að mest spennandi markaður- inn sé í Þýzkalandi núna. En ég álít að mesti markaðurinn sé í Þýzkalandi núna. Þangað höfum við ekki selt ennþá, en ég hef trú á að við ættum að geta það. Þjóð- verjar flytja inn um 80% af sinni prjónavöru. „Hún segir þér nefnilega satt“ Nú þarf Njáll að bregða sér frá og sinna viðskiptavini. Hann biður Lovísu um að svara spurningunum eina á meðan og segir mér um leið: Þér gengur miklu betur með hana, hún segir þér nefnilega satt. Við röbbum nokkra stund á víð og dreif um framleiðsluna og Lovísa segir að þau eigi m.a. sex prjónavélar af fullkomnari gerð en önnur íslenzk fyrirtæki noti. Þessar vélar þyki hæggengar og séu lítið notaðar erlendis nema í Bandaríkjuum. Aðallega séu þær notaðar til að framleiða vandaðar og dýrar flíkur. Framleiðnin er minni, þegar svona vélar eru notaðar, segir hún, og verður reyndar alltaf minni hér en hjá risafyrirtækjunum erlendis. En aftur á móti skapar það meiri sveigjanleika og auðveldara verð- ur að breyta eftir kröfum markað- arins. „Við getum ekki keppt við þessi stóru fjöldaframleiðslufyrir- tæki um stórmarkaðina og reyn- um það ekki, en seljum í tízku- verzlanir, sem bjóða dýrari vöru.“ Á síðasta ári var flutt út um 10% af framleiðslu Iðunnar og Lovísa hefur hug á að fjórfalda útflutn- inginn í ár, og telur ekki fjarri lagi að áætla að svo verði. Og hún segist „vera svo frek“ að ætla sér að halda sama hlutfalli og hún hefur haft á innanlandsmarkaðn- um. „Við reyndum einu sinni.. í umræðum um starfsmanna- hald upplýsir Lovísa að af opin- berri hálfu er lítið gert til að sérmennta starfsfólk í þessum iðnaði. Hún telur þar þörf, vegna þess að eiginleikar prjónaðrar voðar séu aðrir en ofinnar og það sé allt annað að sníöa hana og sauma. Njáll er kominn aftur og vill koma athugasemd um verðlagn- ingu að áður en við slítum samtal- inu. Hann segir nauðsyn að versl- unarálagning á islenska fram- leiðslu verði gefin frjáls. Það sé hagsmunamál bæði framleiðslu og seljenda, vegna þess að eins og er hafi kaupmenn meira upp úr að selja innflutta prjónavöru og velji því eðlilega þann kostinn. S.V. íslandsferðir inn á japanskan ferðamarkað Ferðamálaráð Evrópu (ETC) heldur nú um þessar mundir vorþing sitt hér á landi, en ráðið heldur fundi sína tvisvar á ári hverju. Er þetta í fyrsta skipti sem þing ráðsins er haldið hér á landi. Ferðamálaráð Evrópu er samband 23ja Evrópuríkja og var stofnað árið 1948. Ráðið hefur það að meginmarkmiði að efla ferðir innan og til Evrópulanda, en þá sérstaklega frá Bandaríkjunum, Kanada og Japan. í raun má segja að ETC reyni að koma á framfæri markaðsupplýsingum, alls kyns auglýsingum og þeirri útgáfustarf- semi sem aðildarlöndin annast. Bandaríkj amarkaður hefur allt til þessa dags verið mikilvægastur hvað varðar ferðalög til Evrópulanda, en ETC er nú með í gangi mikið starf til að stækka markaðinn og hefur i þeim tilgangi staðið fyrir kynningarstarfi um Evrópu og ferðir til Evrópu. Er nú svo komið að þjóðir Kanada og Japans eru nú báðar orðnar stór hluti af þeim ferðamönnum, sem koma til Evrópu. Má til glöggvunar geta þess, að áætlað er að auka fjölda japanskra ferðamanna í Evrópu úr 330 þúsund eins og nú er, og upp í 400 þúsund árið 1980. Nú í fyrsta skipti eru ferðir til íslands komnar inn á Japansmarkað, sem er bæði stór og ört vaxandi markaður, og var af því tilefni nú fyrir skömmu sýnd landkynningarmynd um Island í japanska sjónvarpinu og er talið að um 20 milljónir manna hafi horft á hana. Er það nú ætlun ETC að reyna að auka- ferðalög fólks frá S-Ameríku, Ástralíu og Mið-Austurlöndum til Evrópu. Hefur talsmönnum ETC verið boðið að koma til Amman í Jórdaníu til skrafs og ráðagerða við frömuði ferðamála í Arbalöndum varðandi þessi mál. Á ráðstefnu ETC hér á íslandi hafa mörg mál borið á góma, og nægir þar að nefna markaðsmál í ferðaiðnaðinum og umhverfismál. Ennfremur liggur fyrir fundinum tillaga um ferðafrelsi sem mun verða afhent ríkisstjórnum allra ríkja í heiminum. Fulltrúar Islands á ráðstefnu þessari eru Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs íslands, sem jafnframt er varaformaður ETC, og Birgir Þorgilsson, sem er fulltrúi Flugleiða í Ferðamálaráði. Lögðu þeir áherzlu á þann ávinning sem íslandi er í því að taka þátt í samstarfi þar sem allar þjóðir, stórar sem smáar, eru jafn réttháar og við höfum aðgang að aðstöðu og reynslu annarra ríkja í ferðamálum. Forseti ETC er Georges Hausemer frá Luxemboeg en framkvæmda- stjóri er Timothy O’Driscoll frá írlandi. Að loknum fundarhöldum er ætlunin að ráðstefnugestir ferðist eitthvað um landið. Á þingi Ferðamálaþings eiga sæti íulltrúar frá 23 þjóðlöndum Evrópu. Frá þingi Ferðamálaráðs Evrópu. talið f.v.: O' Driscoil, íramkvæmda- stjóri, Hausemer, forseti rúðsins og Heimir Hanncsson, formaður Ferðamálaráðs íslands. Evrópusamband alþjóðlegra verktaka: Iðnaðurinn sem slíkur er ekki á neinn hátt ver ðbólguhvetj andi FORMAÐUR og fram- kvæmdastjóri Verktaka- sambandsins sóttu alls- herjarþing Evrópusam- bands alþjóðlegra verk- taka (International European Lonstruction Federation, FIEC) sem haldið var í Feneyjum 6.—10. maí s.l. en alls- herjarþing eru haldin ann- að hvert ár. Á þinginu kom það fram hjá forvígismönnum iðnaðarins að iðnaðurinn sem slíkur væri ekki verðbólguhvetjandi á neinn hátt og er nú verið að rannsaka það enn nánar. Einnig var rætt um það, að í öllum löndum Evrópu skorti sér- hæft starfsfólk. Þá kom það fram, að á Ítalíu hafa opinber fyrirtæki tekið þátt í verklegum fram- kvæmdum og hafa þau þá fylgt að mestu ieikreglum hins frjálsa markaðar. Vegna hins fjölmenna mannafla og vegna margföldunaráhrifa iðn- aðarins var hann talinn geta haft afgerandi áhrif á að leysa vanda- mál atvinnuleysisins og nauðsyn- legt talið að opna augu almenn- ings og stjórnvalda fyrir sannan- legu mikilvægi verktakaiðnaðar- ins. Að lokum hafnaði Evrópusam- bandið ríkisafskiptum af fyrir- tækjum ef það leiddi til afnáms allrar raunábyrgðar, ósanngjarnr- ar samkeppni og tilkomu forrétt- indamarkaða. Taldi sambandið að verklegar framkvæmdir hefðu í för með sér meiri háttar áhættu, sem einkarekstur einn er fær um að annast með framtakssemi og dug forráðamanna og starfs- manna fyrirtækja. Fyrstu 3 sendingar uppseldar. Eigum bíla til afgreiöslu í ágúst SIOUMULA 33 — SIMl 83104 ■ 83105 MITSUBISHI Mjög sparneytin vél meö jafnvægisásum, sem gera gang vélarinnar einstaklega þýóan og auka endingu hennar. Gormafjöörun aó framan og aftan sem gerir bílinn sérstaklega mjúkan í akstri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.