Morgunblaðið - 17.06.1979, Side 24

Morgunblaðið - 17.06.1979, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17.-JÚNÍ 1979 Pétur Pétursson þulur — Hveragerðispistill: Sumarblóm og sólbekkir Það er blómlegt líf í Hvera- gerði, ekki verður því neitað. Náttúran hefir líka lagt sitt af mörkum til þess að svo sé. Bullandi hveravatn vellur úr jörðu og það í svo ríkum mæli að á frumbýlingsárum þorpsbúa varð að sýna ítrustu varúð ef sest var á salerni, að ekki gysi nýr hver, sem leitaði útrásar úr skauti jarðar. Hvergerðingar hafa fært sér auðlegð sína í nyt með ýmsum hætti. Garðyrkjubændur búa rausnarbúi, margir hverjir. Komumönnum með glöggt gests- auga finnst þó að heimamenn hafi eigi launað náttúrunni í þeim mæli sem vert væri gnótt þeirra gæða, er þeir njóta um- fram marga aðra landsmenn. Eigi mun það ofmælt að drjúgur hluti þeirra blóma er koma á sölumarkað í Reykjavík og til annarra staða í nágrenninu reki ættir til Hveragerðis. Á göngu um plássið verður þó lítt vart að gróður prýði staðinn, umfram aðra bæi eða þorp á Islandi. Ef frá er talinn Fagrihvammur Ingimars Sigurðssonar, garð- yrkjumanns, og Breiðihvammur Magnúsar Ágústssonar fyrrum héraðslæknis koma fáir garðar í hugann. Skylt er þó að geta snyrtilegrar umgengni á lóð Náttúrulækningahælisins og Elliheimilisins Áss, en á báðum stöðum er nostrað við gróður að því er séð verður og hefir þó Elliheimilið vinninginn hvað það snertir — á þeirri hlið er að vegfarendum snýr. Þegar kemur að því er veit sameiginlega að þorpsbúum, sem og gestum er vitja staðarins, verður allt annað uppi á ten- ingnum. Ógróin flög og moldar- bingir við aðaltorg staðarins. Óhrjálegar girðingar, örfáar götur eru malbikaðar, flestar hnökróttar og rykfallnar á þurrkdögum, en forarpollar í rigningatíð. Göngumóðir geta hvergi tyllt sér á bekk, né leitað athvarfs, nema þá á veitinga- stöðum eða heimilum. Þó er Hveragerði sá staður er flestir ferðamenn heimsækja, ef frá er talin höfuðborgin. Ferðaskrif- stofur og félög er hafa atvinnu af flutningi ferðamanna er heimsækja Island munu hafa á skrá sinni heimsókn til Hvera- gerðis. Eru þá heimsótt gróður- hús og garðyrkjustöðvar, en síðan höfð viðdvöl í Eden, þeim mikla aldingarði, veitingastofu og minjagripasölu. Er þar oft þröng á þingi. Um hvítasunnu- hátíðina skiptu gestir þúsundum er þangað komu. Þeir koma akandi á gljáfægðum bensínfák- um og þyrla upp ryki er þeir aka utan malbikaðra vega. Fótgang- andi furðufuglar eiga fótum fjör að launa úr rykmekki á þurrk- dögum eða undan pollaslettum í votviðri. Áður en lengra er haldið er best að víkja að því sem var raunverulega ætlunin með þessu greinarkorni. Það er í stuttu máli sagt að vekja athygli á því hve tilfinnanlega skortir bekki er fótlúnir geti tyllt sér á til hvíldar á vegferð sinni þegar veður leyfir útivist. í Hveragerði dveljast hundruð vistmanna á Elli- og dvalarheimilinu Ási. Það stendur í fögru umhverfi á brekkubrún. Flestir sem þar dveljast eiga örðugt um langar gönguferðir en mega þó heita rólfærir. Snyrti- legt ytra umhverfi einkennir staðinn. Húsbúnaður hinn besti og myndarskapur í híbýlagerð. Snotrir garðar með gróðri bera staðnum gott vitni. En þegar því sleppir og þaðan er leitað til þorpsins þá eru vistmönnum er ganga vilja sér til hressingar og heilsubótar allar bjargir bann- aðar. Hvergi er bekk eða sæti að sjá sem hægt væri að tylla sér stundarkorn og láta þreytuna líða úr gömlum og lúnum bein- um. Segja má að það sé ekki svo tilfinnanlegt þá er gengið er niður í plássið, en strax og haldið er heim þá er á fótinn að sækja og brekkan drjúg þeim sem kominn er til ára sinna og orðinn ellimóður. Á vetrardegi er brekkan oft með klakabrynju og má þá geta nærri að oft vill skripla á skötu og erfitt er að fóta sig. Frá Elliheimilinu blasir kirkj- an við. Engan bekk er þar að sjá utan dyra. Ekki einu sinni krók- bekk, hvað þó kórbekk. Ég er að hugsa um að hafa með mér gamlan píanóbekk svo ég geti tyllt mér á hann undir kirkju- veggnum næst þegar vinur minn Einar Markússon píanóleikari spilar tilbrigði sín við lag Inga T. Lárussonar: Ó, blessuð vertu sumarsól. En m.a.o. Hvenær skyldum við geta sagt: Ó, komdu blessuð og sæl sumarsól. Gaman að sjá þig aftur. Já, vel á minnst, kirkjan. Á blómaskeiði skáldanna hér í Umsjón: SIGRUN DAVÍÐSDÓTTIR HVÍTLAUKUR er jurt sem er betra að hafa en vera án, að dómi hvítlauksaðdáenda. Hann fæst nú hér í heilu lagi allt árið um kring. Að vísu fæst einnig ýmiss konar hvítlauksduft og -salt, en hvítlauksaðdáendum finnst lítið koma til slíkra af- urða og líta aðeins við lauknum sjálfum. Hvítlaukur í fisk- og kjötrétti og heita og kalda græn- metisrétti bætir réttina ótrúlega mikið. En '/2 —1 rif hrekkur langt, einkum fyrir óvana. Stundum er látið nægja að nudda matarílátin að innan með hvítlauk, til að gefa matnum keim. Olían í lauknum er mjög lyktsterk og þess vegna leggur oft hvítlauksangan úr munni þeirra, sem hafa borðað laukinn. Þetta fellur þeim illa, sem hafa ekki fengið sinn skammt af lauknum. Til að hamla á móti lyktinni eru til ýmis húsráð, og eitt mjög áhrifaríkt ráð er að japla á negulnagla eftir máltíð- ina, auk þess að bursta tennur (sem ætti reyndar að vera sjálf- sagður fylgifiskur máltíða). h^tlAukuh cjz HOÖer /iH-ð Pcrk-KTUIZ. ; f>yn HAÍOW ee. ■iSTTUZ. ÓAMAiO ^••2- HoiötUK diíjun fc?ö4 öei tbuM . &ei<z.LAu.vM<í- ££y<ojy\g. ó-zvmaltt i'ó - L£<oZA7~ H&ri A HUTlAu t. Ég hef nú nefnt nokkrar kryddtegundir og svo kryddjurt- ir (en þær eru grænar). Ékkert af þessu eru kryddblöndur. Ég mæli ekki með því að þið kaupið blandað krydd, nema þá að það sé blanda af kryddjurtum eða kryddi eingöngu, án salts eða þurrkaðs sítrónubarkar eða ein- hvers slíks. Krydd með salti er dýrt, því í slíkum blöndum er gjarnan ríflegur skammtur af ódýru salti, en minna af raun- verulegu og dýrara kryddinu. Auk þess eru oft í slíkum blönd- uni efni, sem draga fram bragð, án þess að vera sjálf bragðbæt- andi. Slík efni (t.d. MSG eða 3. kryddið) eru ekki talin sérlega holl, og vafasöm sú trú, að með þeim sé hægt að stytta sér leið yfir grasflöt matargerðarinnar. Önnur efni éru gjarnan í svona blöndum, t.d. efni til að koma í veg fyrir kögglamyndun. Én það þarf að gæta að fleiru við kryddkaup en nöfnunum eingöngu. Grænar kryddjurtir eru auðvitað beztar nýjar, en svoleiðis hnossgæti er sjaldgæft, nema þið ræktið þær sjálf, sem Vegvísir um krydd- hilluna II oft er auðvelt. Og ekki fást frystar jurtir heldur. Þá eru aðeins þurrkaðar eftir. Gætið þess að jurtirnar séu sem heillegastar, það er að blöðin séu nokkurn veginn heil eða gróf- mulin, en að þær séu ekki fin- malaðar í duft. Það er aldrei nógsamlega undirstrikað og endurtekið að duft missir öll bragðefni fljótlega út í veður og vind. Jurtirnar eiga heldur ekki að vera gráar og guggnar, heldur sæmilega grænleitar. Kaupið ekki kryddjurtir, sem eru á áberandi gömlu verði, því þær eru þá líklega of gamlar, til þess að þið gerið góð kaup. Éf þið notið krydd eitthvað að ráði, er mortél ómissandi hjálpartæki. Þá getið þið alltaf steytt hæfilega mikið fyrir hverja máltíð, og kryddið verður þá drýgra og endingarbetra. Mortél fáið þið t.d. í sumum apótekum. Krydd geymist bezt á myrkum stað og þurrum, svo að skraut- legar kryddhillur geta verið hæpnar, nema þið notið svo mikið krydd, að það staldri stutt við í slíkum hillum. Hellið ekki úr kryddkrukkunum beint út í rjúkandi potta, svo að ekki fari nú ótæpilega mikið af kryddinu í pottinn, og eins til þess að gufan komist ekki að kryddinu. Nú hef ég rætt um nokkrar helztu kryddtegundir. En einnig eru til mörg önnur krydd, sem við rekumst ekki á daglega. Eitt þeirra er stjörnuanís, eða kín- verskur anís, sem svo er kallaður til aðgreiningar frá venjulegum anís, sem vex við Miðjarðarhafið og er allt önnur jurt. Af báðum þessum jurtum er svolítið lakkrísbragð, en annars eru þær ekki mjög líkar. Stjörnuanís er upprunninn í Suðvestur-Kína, og er mikið notaður í þarlendan mat. Stjörnuanís er ótrúlega góður í hvers kyns kjötrétti, einkum í rétti með sojasósu (sjá uppskrift hér á eftir). Stjörnu- anís fæst í ýmsum apótekum, heill eða steyttur eftir óskum ykkar, en eins og venjulega er betra að eiga mortél og steyta sjálfur. Hann er ekki dýrt krydd og af honum þarf lítið í hvern rétt. Bragðið af honum er ekki brennandi sterkt, en er mjög áberandi í mat. Kjöt í sojakryddlegi (handa 4) Þið getið notað hvaða kjöt sem er t.d. lambakjöt, nautakjöt, eða kjúklinga. Ef þið hafið ekki teina handbæra, getið þið glóðarsteikt kjötið teinalaust. Með þessum rétti er bezt að bera fram soðin, ókrydduð hýðishrísgrjón. Ef þið viljið auka enn á kínverskan andblæ við borðið, er tilvalið að bera fram aðskiljanlegt meðlæti í litlum skálum, t.d. banana- sneiðar, eplabita, gúrkustöngla, ristaö kókosmjöl (sem þið ristið sjálf á þurri pönnu eða í ofnin- um, en varið ykkur að það ristast fljótt við háan hita) og svo t.d. mangósultu (chutney). Þetta er að minni reynslu matur, sem fellur mjög vel í kramið hjá stálpaðri börnum og unglingum, sem eru oft spennt fyrir krydduðum mat. Hvernig væri að hafa þennan mat í næsta afmæli í staðinn fyrir pylsur! Krakkarnir geta auðveldlega eldað hann sjálf. Látið ekki villa um fyrir ykkur, þó það standi soja stórum stöfum á flöskunni, því oft er innihald flöskunnar síðan rakið með smáu letri, og það getur verið t.d. karamella, gerfibragð- efni og litur. Slíkt samsull á lítið skylt við góða sojasósu. Sojasósa er búin til úr sojabaunum, sem eru látnar gerjast í saltpækli og síðan er saltpækilinn notaður í sósuna. Sósan er mjög sölt og bragðmikil og því þarf aðeins lítið af henni til bragðbætis, og yfirleitt er salt ónauðsynlegt í sojarétti. Þegar sojasósa barst til Englands austan að á 17. öld varð hún fljótt tízkuvara, eins og aðrar austurlandavörur, og hefur síðan verið vinsæl þar í landi. Soja er t.d. eitt undir- stöðuhráefnið í enska sósu eða Worcestersheiresósu. 1 hluti púðursykur og 2 hlutar sojasósa blandað saman og sett utan á heilan kjúkling, skinku eða ham- borgarhrygg, áður en kötið er bakað í ofni, gefur kjötinu sér- kennilegt og gott bragð. 800 gr beinlaust kjöt 1 dl soja 1 gulur laukur 1 hvítlauksrif V2 tsk steyttur stjörnuanís 1—2 msk hunang 1. Skerið kjötið niður í hæfi- lega bita, ca 3x3 cm að stærð, Saxið laukinn og hvítlaukinn. Blandið öllu saman, nema hun- anginu, og látið standa í a.m.k. klst., eða allt upp i 1 sólarhring. 2. Setjið ofninn á 200° eða útbúið glóðir, ef þið notið úti- glóðir. 3. Þræðið kjötið upp á teina, eða raðið því á fat, gjarnan á rist. Penslið kjötið með kryddlegin- um, svo sem minnst af honum fari til spillis. Kjötið þarf nú að stikna í um 10—15 mín. eftir hita ofnsins og stærð kjötbitanna. 4. Bræðið hunangið, ef það er þykkt, og penslið kjötið með því undir lokin og setjið það nú inn í ofn, svo hunangið glerjist svo- lítið, þ.e. að sykurinn hlaupi saman. En gætið ykkar, því hunangið brennur mjög fljótt. Listin að nota krydd felst í því að hafa einhverja hugmynd um í hvers konar rétti hinar einstöku kryddtegundir fara bezt, og fikra sig svo áfram og þá gjarnan eigin götur. Það er betra að láta lítið fyrst, en vera ólatur að bragða á og þreifa fyrir sér. Það er auðvelt að bæta við en verra að taka af. Oftast fer betur á því, að kryddið undirstriki bragðið af hráefnunum, fremur en að það yfirgnæfi allt. Ég vona að þetta komi sem flestum á kryddsporið, því það er ekki ofsagt að hæfileg kryddnotkun er stórt skref i áttina að góðum mat, skemmti- legri mat og fjölbreyttari. Kryddnotkun hleypir eipnig fjöri í sjálfa matargerðiná, og hún verður meira spennandi, eins og allt sem er fjölbreytt. Og það er með kryddnotkun eins og matargerðina yfirleitt, að það er sjálfsagt að vekja athygli og áhuga allra fjöl- skyldunnar á kryddi, í stað þess að einhver einn fjölskyldumeð- limur sé að paufast með til- raunastarfsemi. Ilmurinn úr kryddkrukkunum er bæði indæl^, og heillandi, jafnt fyrir unga sem aldna. Góða skemmtun!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.