Morgunblaðið - 17.06.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979
25
Fagrihvammur í Hveragerði, fyrirmyndargarður
Hveragerði var sjálfur sóknar-
presturinn einn í hópi þeirra.
Séra Helgi Sveinsson var, auk
þess að vera kunnur kennimað-
ur, frægur fyrir ferskeytlur og
annan kveðskap er flaug lands-
horna milli. Hér skal aðeins
rifjuð upp vísa er hann kvað þá
er hann ávarpaði samkennara
sína í skólanum í Hveragerði, þá
er heyrst hafði að fjölgunar væri
von í plássinu. Maður er nefndur
Oddgeir Ottesen. Hann er sveit-
arstjóri í Hveragerði. Þau hjón
Oddgeir og kona hans hafa eign-
ast 8 börn svo segja má að fullt
tilefni væri þá er séra Helgi
ávarpaði samkennara sína, þá
Gunnar Benediktsson rithöfund
og Bjarna Eirík Sigurðsson,
þessum orðum:
Góðan daginn Gunnar Ben,
góðan daginn Bjarni.
Er það satt að Ottesen
eigi von á barni?
Ástæða væri til að nefna fleiri
ljóð eða vísur séra Helga. Má
vera að seinna verði tækifæri til
þess. Bræður Helga, kunnir
menn og ljúfir, eru Magnús og
Jakob, báðir þekktir kennarar,
virtir og velmetnir, og Þorsteinn
lögmaður, formaður Þjóðleik-
hússkórsins og eilífur áhuga-
maður um söngmennt og óperu-
tónlist.
En það er Hveragerði sem um
er rætt.
Rauð pelargónía brosir úr
stofuglugga. Hún hvílist á sól-
bekk og unir hag sínum vel.
Hærugrá fótlúin kona haltrar
eftir þorpsgötunni og svipast um
eftir sæti. Það er hvergi að sjá.
Þrekvaxnir stælgæar bruna hjá í
Broncó með dúnmjúkum leður-
sætum. Þeir auka hraðann.
Gamla konan hikar áður en hún
heldur leiðar sinnar.
Hælisstjórn NLFÍ ætti að gefa
dvalargestum kost á því að
gróðursetja trjáplöntur á hælis-
lóðinni. Með því móti verður þar
fagur trjálundur og skjólsæll
áður en langt um líður. Má ætla
að margur dvalargestur legði
leið sína þangað til þess að
fylgjast með framförum og
þroska staðnæmdist við sína
plöntu og segði: Þetta er tréð
sem ég gróðursetti um árið
þegar giktin ætlaði mig lifandi
að drepa. Það dafnar ennþá og
tekur daglegum framförum, en
ég finn ekki til giktar, þökk sé
dvöl minni hér.
Gestir Náttúrulækninga-
heimilisins sækja tíðum í kaup-
staðinn til verzlunarferða.
„Syndaselir“, sem eru margir í
þeim hójji, eiga þangað mörg
erindi. A leið sinni blása þeir
tíðum sem smiðjubelgir. Ekki
svo að skilja að þeim sé vorkunn
þótt þeir mæðist í sjálfskapar-
vítum sínum. En það eru einnig
hannyrðakonur og heilsuræktar-
fólk sem tæki því með þökkum
að tylla sér niður stundarkorn.
Sem sagt: Niðurstaðan er.
Trésmiðjur í Hveragerði (þær
eru a.m.k. 2) eiga að setja niður
bekki svo unnt sé að njóta
hvíldar stutta stund. Michelsen
má setja brúðarbekk við blóma-
skála sinn.
Við hótelið má einnig koma
bekkur. Ég veit að gamall góð-
kunningi, hótelhaldarinn og tón-
skáldið Eiríkur Bjarnason, skil-
ur það.
í ljóði við lag hans Ljósbrá,
segir:
Ljósbrá, þá varsífellt
sumar,
með sól í hjarta, þú
komst til mín.
Ennþá fyllist sál mín sælu,
er sit ég þögull og
minnist þín.
Eins og við sjáum þá sat
höfundurinn er hann rifjaði upp
ljúfar minningar.
Við vonum að „Ottesen eigi
von á“ bekkjum, áður en langt
líður.
Svo þarf að prýða og snyrta
umhverfið þannig að það verði
blómabæ íslands til sóma. Fjöldi
vaskra unglinga í Hveragerði og
nágrenni er tiltækur, blóma-
drottningar og burknakóngar, er
bíða þess með óþreyju að breyta
moldarflögum í grænan gróður
og unaðsreiti. Vormanna Islands
bíða enn „eyðiflákar, heiðalönd"
og það í sjálfum blómabænum
miðjum.
Með sumargrænni kveðju
frá grasbýlinu á Gull-
ströndinni, herbergi 106.
Stjórnar Herbert
Soudant hljómleik-
um Pólýfónkórsins?
Auglýst eftir vitn-
um að ákeyrslum
Pólýfónkórinn efnir nú til
skyndihappdrættis til fjáröflun-
ar fyrir starf kórsins næsta
vetur.
Meðal vinninga má nefna far-
seðla fyrir tvo til Lúxemborgar,
sólarlandaferðir til Ítalíu, Búlg-
aríu og Ibiza. Ennfremur há-
lendisferð með Úlfari Jakobsen
auk smærri vinninga. Dregið
verður 3. júlí og er verð miða 800
kr. en upplag aðeins 6400. Allir
kórfélagar Pólýfónkórsins, 150
talsins munu annast sölu mið-
anna.
Kórfélagar Pólýfónkórsins
líta nú með eftirvæntingu til
vetrarstarfsins, en fyrirhugað
er að reka bæði söngskóla og
raddþjálfun. Þá virðist vera að
rætast úr húsnæðismálum kórs-
ins fyrir velvilja menntamála-
ráðherra og fræðsluyfirvalda.
Þess má einnig geta að Pólý-
fónkórnum hafa borist áhuga-
verð tilboð, m.a. hefur hinn
heimsfrægi hljómsvetiarstjóri
Hubert Soudant látið í ljós
áhuga á að stjórna tónleikum
hérlendis á næsta ári með þátt-
töku kórsins. Soudant hefur
stjórnað sem gestur öllum fræg-
ustu hljómsveitum Evrópu, m.a.
London Pilharmohic Orchestra,
sinfóníuhljómsveitinni í París,
fílharmóníusveitum Berlínar og
Vínarborgar og mun á næsta ári
stjórna Ríkishljómsveitinni í
Moskvu.
Þá hefur sú hugmynd komið
upp að Pólýfónkórinn komi
fram á hljómleikum með ein-
hverri af stórhljómsveitum álf-
unnar fyrir milligöngu Soudants
og þá undir hans stjórn, en frá
því hefur þó ekki enn verið
gengið.
(Fréttatilk.)
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar í Reykjavík hefur beðið Mbl.
að auglýsa eftir vitnum að eftirtöld-
um ákeyrslum. Sími deildarinnar
er 10200.
Þriðjudaginn 5. júní var tilkynnt
að ekið hefði verið á bifreiðina
R-42611, þar sem bifreiðin hefði
verið á bifr.stæði við Austurver,
Háaleitisbraut 68. Bifreiðin er V.W.
rauð að lit. Varð á tímabilinu frá því
á laugardag þann 2.6. og fram á
þriðjudag kl. 09.00 f.h. Skemmd á
bifreiðinni, hægra afturaurbretti og
afturljós dældað. Hæð í skemmd 50
cm. Á staðnum fundust grænsanser-
aðar málningarflögur úr bifreið
þeirri sem tjóninu olli.
Mánudaginn 4. júní var ekið á
bifreiðina P-1793, þar sem bifreiðin
var á Grettisgötu við hús nr. 20A.
Bifreiðin er af Lada station gerð.
Vinstri afturhurð skemmd. Varð á
tímabilinu frá kl. 15.30 til 17.30.
Tjónvaldur hefur verið á drappiit-
aðri bifreið eftir lit í skemmd.
Föstudaginn 8. júní var ekið á
bifreiðina G-6596 sem er Ford Es-
cort gul að lit, þar sem bifreiðin var
á bifr.stæði við Arnarhvol. Varð frá
kl. 13.45 til 14.20. Skemmd á bifreið-
inni, vinstra framaurbretti skemmt.
Mánudaginn 11. júní var tilkynnt
að ekið hefði verið á bifreiðina
R-108, sem er Mazda 929, silfurgrá
að lit, þar sem bifreiðin var við
Tjarnarból 4 Seltjarnarnesi. Tjónið
varð sunnudaginn 10.6. á milli kl.
14.30 og 16.00. Afturhöggvari og
farangursgeymslulok skemmt.
! ALANTSIGMA
A
MITSUBISHI
Fyrstu 3 sendingar uppseldar.
Eigum bílatil afgreiðslu í ágúst.
Gormafjöðrun að framan og aftan sem gerir
bílinn sérstaklega mjúkan í akstri.
Mjög sparneytin vél með jafnvægisásum,
sem gera gang vélarinnar einstaklega þýðan
og auka endingu hennar.
P. STEFANSSON HF.
SIÐUMULA 33 — SIMI 83104 - 83105
Ljósm. Sig. Þorgei