Morgunblaðið - 17.06.1979, Page 27

Morgunblaðið - 17.06.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JUNI1979 27 Halldóra Samúelsdótt■ ir — Minningarorð Fædd 9. október 1897. Dáin 10. maí 1979. Að fjölga árum fylgir gjarnan sú lífsins kvöð að horfa á æ fleiri vini kveðja og hverfa sjónum handan við tjald tímans, sjá æ fleiri dyr lokast, sem áður stóðu opnar, og mörg kunn og kær salarkynni, sem áður voru full af yl og birtu lífsins, skyndilega standa fátæk og tóm og kveldhúmi földuð líkt og sól væri nýgengin af gluggum. Á þessa kvöð var ég áþreifanlega minnt þegar mér barst andlátsfregn Halldóru Sam- úelsdóttur. Veit þó vel að fyrir hana sjálfa mun þetta þó hafa verið fagnaðar- og lausnarstund og langþráð hvíld eftir langan og oft ekki erfiðslítinn dag, einkum þegar á hann leið og vanheilsa gerði hann grýttan og þungfæran. Seinast er ég leit inn til hennar á sjúkrahúsið sá ég hvað að fór og óskaði henni í huganum góðrar ferðar, sem ekki var heldur langt að bíða. Og vissulega samgladdist ég henni, er ég frétti umskiptin. En þrátt fyrir ómetanlegt gildi bjartra minninga og öruggrar vonar er ekki svo auðvelt sem ætla mætti að hlaupa frá mannlegum tilfinningum. Hið auða skarð og tóma rúm, sem farinn vinur óumflýjanlega skilur eftir, fyllist ekki á örskotsstund heldur hefur sinn eigin tíma. Halldóra var einn af þeim Reykvíkingum, sem lifðu sinn bernskumorgun á litlum bæ í íslenzkri sveit. Fæddist að Stökk- um á Rauðasandi 9. október 1897, en flyzt árið 1909 11 ára gömul með foreldrum sínum til Reykja- víkur, þar sem hennar lífs- og starfssvið var upp frá því. Næsta ólíkt mér, sem alltaf var þar, sem „förukona" utan nú síðustu árin. En oft lá leið mín þangað af ýmsum ástæðum allt frá því að ég var þar við nám tvo vetur fyrir meir en 50 árum. Og marga góða vini eignaðist ég þar, sem ég er guði og gæfunni þakklát fyrir. Meðal þeirra var Halldóra Sam- úelsdóttir. Ræturnar að okkar vinskap var þó fyrst og fremst gróin vinátta foreldra okkar. Feður okkar voru gamlir skólabræður frá Ólafsdal, innilegir vinir og frændur að auki, báðir breiðfirzkrar ættar. Samúel var Eggertsson Jochumssonar frá Skógum í Reykhólasveit, Marta Elísabet Stefánsdóttir kona hans hins vegar ættuð af Snæfellsnesi og Mýrum. Þegar ég í fyrsta sinn kom til dvalar í höfuðstaðinn — ung og lítt veraldarvön — varð heimili þessa mikilhæfu mann kostahjóna mér sem skjólrík og yndisleg gróðurvin mitt í köldu og framandlegu umhverfi stein- steypu og bárujárns, staður hvar ég alltaf mátti leita athvarfs þegar ég vildi, og hvar flest var til boða, sem unglingi mátti vera til þroska og sálubóta. Greiðasemi og hjálpfýsi var þessu heimili inn- gróin og nær ósjálfráð, enda margur, sem taldi sig eiga þangað erindi. Hins vegar hafði hinn veraldlegi auður sjaldan lengi viðdvöl þar í garði. Samúel var enginn hálaunamaður. Hélt Afmœlis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar vcrða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Grcinar mcga ekki vera í sendibréfsíormi eða bundnu máli. Þær þurfa að vcra vélritaðar og með góðu línubili. barnaskóla heima hjá sér á vet- urna og skrautritaði í hjáverkum. Gekk líka almennt undir nafninu Samúel skrautritari. Hann var einnig landskunnur fyrir land- mælingar sínar og ýmiss konar kortagerð. Fágætur maður, sem sameinaði sinni opnu og síungu barnslund merkilega listhneigð og víðtækt fræðimannseðli. Ekki að undra, þótt hrifnæmu, ungu fólki þætti gott í návist hans. Þá skemmdi hin ágæta, fjölhæfa húsfreyja ekki fyrir svo greind, skemmtin og margfróð sem hún var. Ólík þó bónda sínum en þannig, að hvert öðru var til bóta. Auk Halldóru áttu þau Samúel og Marta Margréti fyrir dóttur, lítiö eitt yngri. Hún var þá heima og vann í Marteinsbúð á Lauga- veginum. En Halldóra var farin að heiman og gift Pétri Guðmunds- syni, er síðar var kunnastur undir nafninu Pétur í málaranum. Um áratugi var hann einn þekktasti atorku- og framkvæmdamaður Reykjavíkur. Svo sem algengast var í þá daga byrjaði Pétur með tvær hendur tómar, en vann sig upp í góð efni á fáum árum. Árið 1931 fluttust þau hjónin í hið nýja hús sitt Sjafnargötu 3, sem þá og enn í dag má telja til glæsilegustu íbúðarhúsa borgarinnar. I þessu húsi átti Halldóra æ síðan heima, líka þau 25 árin eftir að þau Pétur slitu samvistum og hún varð ein. Þá voru börn þeirra líka uppkomin og farin að heiman, en þau voru þessi eftir aldursröð: Kristín, gift Baldvin Einarssyni forstjóra; Marta, gift Birni Halldórssyni forstjóra; Kolbeinn fyrrv. forstj., dáinn 16. ág. 1978, eftirlifandi kona Guðrún Elísabet Halldórs- dóttir, Gunnar deildarstj., kvænt- ur Sigrúnu Guðbjarnardóttur. Öll vel gefin og kunnir borgarar. Kolbeinn einn eldri sonurinn andaðist sem fyrr segir sl. sumar. Fór snögglega úr hjartaáfalli. Var það mikið áfall sjúkri og aldraðri móður-að missa í blóma lífsins svo ágætan og drengilegan mann og elskulegan son sem hann var. En þessari raun tók Halldóra af fágætri stillingu. Má vera að hálf dulinn grunur um að skammt yrði til endurfunda hafi lagt þar að sefandi hönd. Ég kynntist Halldóru lítið á aðal starfsskeiði hennar meðan börnin voru að vaxa upp heima og maður hennar stóð í miðjum straumi verklegra athafna og um- svifa. Veit þó að húsfreyjan á þessu ríkmannlega heimili lá ekki að jafnaði í neinum traföskjum. Því að innan dyra var einnig oft margt um manninn og umsvifa- mikið, og margvíslegar þær skyld- ur, sem hvíldu á herðum þessarar fasléttu, smávöxnu og fíngerðu konu, skyldur er kröfðust jafnt eftirlits, röskleika og framtaks sem umhyggju og góðvildar, kröf- ur er höfðuðu í senn til húsmóður- innar og móðurinnar. Og í þessu tvöfalda hlutverki var Halldóra meira en meðal stór. Um það vitna best þau sterku, innilegu tengsl, sem ávallt ríktu frá upphafi til þess síðasta milli hennar og ann- arra í fjölskyldunni. Á hverjum jólum og við mörg önnur hátíðleg tækifæri höfðu stóru börnin henn- ar aðal hátíðastundina heima „hjá mömmu“ til að gleðja hana og gleðjast með henni á gamla heim- ilinu, enda þótt þau sjálf hefðu góðan og velbúinn húsakost. Svo sem margir munu minnast heimsótti á sínum tíma hinn frægi, danski lífsspekingur Mart- inus, okkur íslendinga nokkrum sinnum. Bjó hann þá þrívegis hjá Halldóru á Sjafnargötu 3. Mun hvorttveggja hafa verið, að dvölin þar hafi ekki valdið Guðspekifé- laginu, en á þess vegum kom hann, miklum útbornum kostnaði. Hitt þó vegið mest að innra sem ytra mun sá staður hafa betur hæft hinum góða gesti en nokkurt glæsihótel, enda sjálfur er hann kynntist, látið þar um ákveðna ósk í ljós. Á þessum árum bar fundum okkar Halldóru oft saman, og marga nóttina gisti ég hjá henni. Kynntist því vel gerð hennar og mannkostum. Þótt segja mætti að hún sæti einvöld í fínni höll í laufskrýddum lystigarði, líktist hún sjálf lítið stoltri og hnakka- kertri hallarfrú. Nei, miklu frekar var þar á ferð, sem hún fór, alþýðukonan eilítið hlédræg, hógvær, umhyggjusöm og hlý, valkvendið, sem lagði ávallt gott til allra mála, rak aldrei sitt áfram með arnsúg valkyrjunnar en hugsaði samt sitt. Halldóra gekk í Verzlunarskól- ann í Reykjavík, er hún var ung. Tók einnig námskeið í matreiðslu til viðbótar þeirri góðu kennslu, sem hún hlaut heima hjá móður sinni í þeirri grein. Þótti þetta til samans allgóð skólaganga hjá ungri stúlku í þá daga. Og ásamt þeim dýrmæta menningararfi, sem hún hafði að heiman, hafði hún áreiðanlega hlotið góða menntun, — hagnýta og þó fyrst og fremst manneskjulega og heilbrigða. Halldóra var bókhneigð kona og hafði þann smekk að lesa nær eingöngu góðar bækur, þ.e. á einhvern hátt fræðandi eða mannbætandi. Kirkju sótti hún í hófi en hugsaði og las mikið um andleg mál. Félagslynd var hún og um áratugi ein af virkustu Hrings-konum í Reykjavík. Styrkti þau merku samtök á margan hátt, ekki sízt með sinni miklu og góðu handavinnu. En Halldóra var mjög hög í höndum, smekkvís og listræn, og handa- vinna hennar kærasta viðfangs- efni á efri árum. Halldóra var einnig traustur og tryggur guð- spekifélagi, sótti fundi er hún gat og heilsan leyfði og vann þeim félagsskap af sama heillyndi og öðru, sem hún lagði hönd eða hug að og horfði til líknar eða menn- ingarbóta. Hún var í fám orðum sagt þannig gerð, að hún kastaði hvorki málefni eða manneskju, sem hún hafði bundið tr.vggðir við, af sér eins og hvunndagsflík, sem skipt er um á viku hverri. Segja má að ófáir vinia hennar væru hennar ævivinir svo sem vinkon- urnar frá skóladögunum í æsku, og óþarft er að nefna að milli hennar og systurinnar, Margrétar, var alla tíð sérlega kært. Ég tel það eitt af mínu láni að hafa fyrirhitt Halldóru á lífsleiðinni. Henni var gott að kynnast, og mannbætandi að heimsækja hana á hennar fagra og kyrrláta heim- ili, njóta gestrisni hennar og vinsemdar og sitja til borðs með henni og hennar trygga og góða húsfélaga, Hólmfríði, sem leigði á loftinu hjá henni tvo seinustu áratugina og betur þó og var hennar trausta stoð og styrkur, þegar heilsa og kraftar fóru að þverra. Já, margra góðra og friðsælla stunda má ég minnast, sem aldrei verða þakkaðar sem skyldi. Nú mun hennar mörgu ástvin- um og vinum þó sannarlega finn- ast þar „sól af gluggum“. En einhvern tíma og annars staðar — þar sem sól hverfur aldrei af gluggum -— mun aftur verða dyra kvatt og feginsdyrum upplokið. í því trausti sendi ég Halldóru frænku minni hjartans kveðju og þökk. Ingibjörg Þorgeirsdóttir. Útboraun í PHíIíds ■■4 ■ m * ■ ■ 8!lS|Pilw3ipSi^i%5 frá 150 þús. ^ f PHILIPS 1 ■aa Öjjí ...mestsekla — sjónvarpstækið 1 — í Evrópu. ■ í-r#, ■■■ — / Þaö er sitt hvaö aö sjá hlutina í lit eöa svart/hvítu. Nú hefur þú tækifæri til aö láta langþráöan draum um litsjónvarpstæki rætast. Philips svíkur ekki lit. heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 — SÆTÚN 8 - 1 5655

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.