Morgunblaðið - 17.06.1979, Síða 29

Morgunblaðið - 17.06.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ1979 29 lenzkum verkum hefur örvað ís- lenzka leikritahöfunda til dáða, því meira er skrifað fyrir leikhús á íslandi nú en nokkru sinni áður. Og þar eru kunnáttumenn að verki.“ Ég er fyrst og fremst uppástungu- kona Hver er staða leikhússtjórans í Leikfélagi Reykjavíkur? „Vald mitt felst í því að sitja í leikhúsráði", segir Vigdís, „ég er fyrst og fremst uppástungukona, sem reynir að finna hentug verk og leggja þau fyrir leikhúsráð, sem hefur úrslitaáhrif um allt sem sýnt er. Það er síðan í mínum verkahring að sjá um daglegan rekstur leikhússins ásamt fram- kvæmdastjóra og koma fram opin- berlega fyrir hönd þess.“ Er þessi staða leikhússtjóra heilladrjúg fyrir listræna stefnu- mótun? „Það eru allir sammála um það mikla lýðræði sem eigi að vera í leikhúsi og að listamennirnir sjálfir eigi að hafa sem mest áhrif á listræna stefnu. Hitt er annað mál, að einhver verður að halda saman þráðunum og verður þá að hafa einhver yfirráð með höndum. Reynsla mín er sú eftir þessi ár, að mikið lýðræði er ákaflega þungt í vöfum, og ég hef stundum óskað þess að ég hefði ekki tekið þá stefnu sem ég valdi mér sjálf; að gera enga tilraun til að ráðsk- ast með leikhúsið." LR er stofnana- leikhús sem er of lítið til að vera það Telurðu að staða Leikfélagsins f íslenzku leikhúsi, miðað við t.d. bæði Þjóðleikhúsið og áhugaleik- félögin, hafi tekið einhverjum breytingum í þinni leikhús- stjórnartíð? „Ef eitthvað er, hefur staða leikfélagsins færzt í þá átt að taka til sýninga fleiri íslenzk verk. Mín skoðun er sú, að í svona litlu þjóðfélagi eigi hvert leikhús að hafa sína sérhæfingu. En því miður getur Leikfélagið ekki ein- beitt sér að slíku.“ En hver er þá staða L.R. gagnvart t.d. Alþýðuleikhúsinu? „Alþýðuleikhúsið, sem ég dáist að, hefur sérstöðu sem ég vildi óska að við hefðum í Iðnó. Leikfé- lag Reykjavíkur er komið í þá aðstöðu að vera stofnanaleikhús sem er of lítið til að vera stofnana- leikhús og standa í öllum þeim samningum sem því fylgja. Öll leikstarfsemi okkar er njörvuð niður í samninga, þar sem hvergi má skerða greiðslur til aðstand- enda. Alþýðuleikhúsið getur hins vegar beðið fólk að inna af hendi alla þá vinnu, sem leikhúsið dreymir um í sjálfboðavinnu. Það er að sjálfsögðu í svelti eins og við, en það er þó líka í þessari drauma- aðstöðu." Getur Leikfélagið ekki starf- rækt lítið tilraunasvið jafnhliða aðalstarfseminni, t.d. í Tjarnar- bíó? „Nei, það yrði of viðamikið, — samningarnir eru þannig. Ef við færum að reka lítið útibússvið við hliðina á aðalleikhúsinu, gætum við hvorki beðið leikstjóra, leik- myndateiknara né einn einasta lærðan leikara (og við myndum kappkosta að nota lært fólk) að slá af launakröfum sínum. Það er hvergi hægt að draga úr þeim til „Ég var fallhlífar- hermaður fyrsta ár- ið að leika sér, sem væri óskaplega mikils virði. Ég harma það.“ Breytir bygging Borgarleik- húss eitthvað þessari stöðu? „Það verður, held ég, rekið á svipuðum grundvelli. Nema þar verður aðstaða til tilrauna í litla salnum. Ég spái því að hann verði frjór vettvangur í leikhúsinu." Sárast að geta ekki nýtt þetta unga hæfíleikafólk „Bæði slæm fjárhagsstaða og smæð sviðsins í Iðnó setja leikfé- laginu listrænar skorður. Félagið verður að afla 50% rekstrarfjár- ins sjálft, en borgin greiðir 50% þess. Ríkisstyrkurinn fer allur og meira til í söluskatt. „Menn göptu af undrun um daginn á leikhús- stjórafundi í Árósum yfir því, að leikhúsið skyldi geta starfað með aðeins 50% styrk, svo lítið hús og lágt miðaverð," segir Vigdís. „Leikfélagið ber talsverðan skuldabagga um þessar mundir. þar er ekki um að kenna minnk- andi aðsókn, þótt hún hafi að vísu verið minni undanfarið en áður, heldur því, að miðaverð hefur dregizt svo aftur úr móti öllum vaxandi kostnaði." Hefur fjárhagssjónarniiðið þá ekki svo mikil áhrif á verkefna- valið? „Nei, en við reynum auðvitað að beita fjárhagslegu aðhaldi í verk- efnavali annars færi allt í kalda- kol. Þar finnst mer sárast að geta ekki nýtt betur allt það unga hæfileikafólk sem streymir inn á markaðinn eftir langt og gott nám. þar standa samningarnir og fjársveltið í veginum. Afleiðingin er sú að við höfum færra fólk á leiksviði hjá okkur en við vildum hafa. Verkefnaval verður oftar en ella að miðast við að sýningar séu fámennar.“ Frjálsir hópar séu hugmynda- bankar nýsköpunar „Ég held það sé orðum aukið að tala um klofning innan Leikfé- lagsins," segir Vigdís. „Hugmyndaágreiningur er ekki slíkur að hægt sé að kalla hann því nafni. Það væri dauði hvers listamanns að vera alltaf ánægður með allt og alla í svo stórri stofnun. Ég held að óánægjuradd- ir með stefnu hússins séu einkum tengdar því að fólk sakni ein- hverra nýjunga hjá Leikfélaginu og lítur þar t.d. til þess frelsis, sem Alþýðuleikhúsið hefur og Leikfélagið hafði áður. En nú skortir okkur fjármagn til slíks. Ég held við séum líka sammála um það að vilja fá miklu fleira fólk inn í húsið. Þar er sami þröskuldur. En varðandi nýsköpun í leikhúsinu, finnst mer að þar eigi einmitt frjálsir hópar eins og Alþýðuleikhúsið að vera hug- myndabanki, fara nýjar leiðir og hafa þannig áhrif á stefnu stofn- analeikhúsanna." Nú er útlit fyrir mikia fjöigun ungs, leikhúsmenntaðs fólks hér á næstu árum. Heldurðu að það hafi mikil áhrif á leikhús hér og uppbyggingu þess, eða lagar það sig aðallega að því sem fyrir er? „Nei, því trúi ég ekki. Ég held að þessi hópur hljóti að lífga mikið upp leikhúslífið." Hvernig má það verða? „Spurðu yfirvöld að því! Ef ég hefði sand af peningum nú, vildi ég fá leikhús með starfandi dramaturgum, sérfróðum og frjóum mönnum, sem leikhópar annarra húsa gætu kallað á til ráðgjafar og álits, eða bara til að skrifa í leikskrá og fleira í þeim dúr. Nú hefurðu reynt að fá hingað erlenda leikhópa með sýningar. Má eitthvað ráða af aðferðum þeirra um óskir þínar um ís- lenzkt leikhús? „Að vissu leyti, já. Ég hef reynt að fá hingað þrjá hópa úr ólíkum heimshornum, en aðeins einn þeirra gat komist hingað, stultu- flokkurinn þýzki í fyrra. Þessir hópar hafa allir verið mjög óvenjulegir og verið að gera eitthvað allt annað en við hér heima. Ég hefði viljað sjá þá alla hér til að reyna að breikka smekk okkar á leikhúsi og sjá eitthvað af þeim ýmsu meðulum sem slíkir hópar erlendis taka í þjónufetu leiklistarinnar. Því er ekki að neita, að leiklist hjá okkur er dálítið einhliða. Við erum ekkert sérstaklega umbreytingasamt fólk, íslendingar, eða ginnkeyptir fyrir nýjungum. Þó ekki væri nema einhverjar breytingar á þeim tíma þegar fólk fer í leikhús, eins og einföld dagskrá kl. 5 sem fólk gæti sótt eftir vinnu í stað þess að fara í bíó.“ „Við höfum reynt hjá Leikfélag- inu að nota brúður í leik við höfum reynt síðdegisstundir með upp- lestri, söng og einföldum flutningi bókmennta, við fluttum líka sög- una af dátanum með látbragðsleik og tónlist. Ekkert af þessu bar sig. Aðeins það að brjóta upp þessa fastskorðuðu tímasetningu leik- sýninga næst ekki nema með fjárútlátum á meðan fólk er að átta sig á nýjunginni. Og við höfum ekki penmga til að gefa fólki tækifæri til að venjast ein- hverju öðru. — Það er furðulegt að þjóð, sem hefur upplifað jafn- mikla þjóðlífsumbyltingu á skömmum tíma, skuli vera svona vanaföst." Og í lokin, Vigdís, er það rétt að þú sért að hætta leikhússtjóra- starfinu hjá Iðnó? „Já, það er alveg ákveðið að staða mín er laus að loknu næsta leikári." Og hvað tekur þá við? „Kannski fæ ég vinnu einhvers staðar í leikhúsi. Ég veit þó a.m.k. hvernig ég á að umgangast leik- þússtjóra...“ HHH. „Eg veit þó a.m.k. hvernig á að um- gangast leikhús- stjóra.“ Firtna- keppni Haröar HESTAMANNAFÉLAGIÐ Hörð- ur hélt nýverið firmakeppni sína á nýjum velli við Varmárlaug í Mosfellssveit. Er þetta 300 metra hringvöllur og var hann vígður mcð. þessari keppni. Til leiks voru skráð 68 hross, þar af voru 20 í unglingakeppni. Urslit í keppninni urðu þau að í unglingaflokki sigraði Mjólkurfé- lag Reykjavíkur en fyrir það keppti Ljúfur, knapi og eigandi Garðar Hreinsson, Helgadal, í öðru sæti varð Bílaverkstæði Guð- varðar Hákonarsonar, keppandi Hörður frá Hala, Rang., knapi og eigandi Kolbrún Jónsdóttir, Víði- nesi, og þriðji Steindórsprent, keppandi Neisti, knapi Kristinn Hestar Sveinsson og eigandi Sveinn Guðmundsson. I flokki fullorðinna sigraði Blossi h.f., keppandi Stjarni frá Bjóluhjáleigu, knapi Kristján Birgisson, eigandi Stefán Jónsson. Þess má geta að Stjarni er skyld- leikaræktaður út af Stjarna 610 frá Bjóluhjáleigu þ.e.a.s. að hann er sonur Stjarna 610 og hálfbróðir. I öðru sæti varð Álafoss, keppandi Blakkur, eigandi og knapi Hreinn Ólafsson í Helgadal, í þriðja sæti varð Túnþökusala Guðjóns Bjarnasonar, keppandi Vopni, Sigurvegarar í flokki fullorð- inna. Lengst til hægri er Stjarni, knapi Kristján Birgisson, þá Blakkur, knapi Hreinn Ólafsson, og Vopni, knapi Páll Kristjáns- son. Ljósm. Gunnbjörn. knapi Páll Kristjánsson, eigandi Lárus Sveinsson. Því miður reyndist völlurinn ekki vel í þessari vígslukeppni. Reyndist hann vera alltof laus í sér á köflum. Kom þetta sér illa fyrir vekringana þar sem illmögu- legt reyndist að láta hesta skeiða þannig að þeim væri akkur í því. Að öðru leyti heppnaðist keppnin vel, enda blíðskaparveður. Harðarfélagar halda sínar ár- legu kappreiðar að Arnarhamri þann 23. júní n.k. og að loknum kappreiðunum fara þeir í árlega Jónsmessureið kringum Esju. V.K. Leyfa aftur humarveiði HINN 29. maí s.l. voru humar- veiðar bannaðar á svæði í Breiða- merkurdýpi þar sem þá var vart við verulegt magn af smáýsu í afla humarbáta. Athuganir, sem fram hafa farið í Breiðamerkurdýpi undanfarna daga, hafa leitt í ljós, að smáýsa virðist vera horfin af svæðinu og hefur ráðuneytið því fellt niður áðurgreint bann frá kl. 12 á hádegi 14. júní.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.