Morgunblaðið - 17.06.1979, Side 32

Morgunblaðið - 17.06.1979, Side 32
(íIÁSINGASÍMINN ER: 22480 ALGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JRorjjunJjIaöili SUNNUDAGUR 17. JtJNÍ 1979 Landshlaup FRI hefst í dag: 3000 hlauparar hlaupa 2500 km LANDSHLAUP Frjálsíþrótta- sambands íslands hefst á Laug- ardalsveli í dag, 17. júní. Síðan verður hiaupið stanzlaust hring- inn í kringum landið og endað þriðjudaginn 26. júní á sama stað og hlaupið hófst. Laugar- dalsvellinum. Reiknast fram- kvæmdaaðilum hlaupsins til að þá verði 3000 hlauparar búnir að hlaupa samtals 2500 kíló- metra þá rúmu viku sem hlaupið stendur yfir. Steningarathöfn hefst klukkan 13,50 með ávarpi Arnar Eiðsson- ar formanns FRÍ. Að því loknu afhendir Örn forseta ISÍ, Gísla Halldórssyni, keflið sem hlaupið verður með en það er skorið út af Halldóri Sigurðssyni tréskurð- armeistara á Egilsstöðum. Gísli heldur stutta ræðu en að því búnu tekur Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri við keflinu og hleyp- ur fyrsta sprettinn. Síðan taka Boðhlaupskeflið sem hlaupið verður með. Það er skorið úr íslenzku birki. hlaupararnir við hver af öðrum en hlaupið verður út á Reykjanes til að byrja með, til Grindavíkur, þaðan til Hveragerðis og Selfoss og haldið áfram hringinn í kring- um landið rangsælis. Hlaupinu lýkur þriðjudaginn 26. júní klukkan 8,20. Mikill undirbúningsvinna ligg- ur að baki þessu Landshlaupi FRÍ og margir hafa þar lagt hönd á plóginn. Verður mikið um dýrðir víða á þeim stöðum þar sem hlaupið er um, lúðrablástur, kór- ipöngur og fleira. Friðrik. Sjöfn og Víð- ir loka vegna hráefnisskorts ÞAÐ ERU nær allar iðngrcinar að komast í mikinn vanda út af hráefnisskorti og þó einstök fyrirtæki séu að sjálfsögðu misvel birg af hráefni er ljóst að mikill fjöldi fyrirtækja er nánast orðinn hráefnislaus eða verða það alveg á næstu dögum,“ sagði Þórður Friðjónsson hjá Félagi íslenskra iðnrekenda. Ýmis fyrirtæki í efnaiðnaði hafa þegar stöðvast eða gera það í næstu viku og má þar nefna Eínagerðina Sjöfn á Akureyri og fleiri málningarverksmiðjur. Trésmiðjan Víðir í Kópavogi er að verða verkcfnalaus vcgna skorts á lími til spónlagningar og hefur verið ákveðið að loka vcrkstæðinu seinni hluta næstu viku og missa þá um 60 manns atvinnuna. Þá hefur fyrirtækið ísaga, sem framleiðir gas til logsuðu og skurðar ekki fengið undanþágu til að skipa upp hráefni til fram- leiðslu sinnar, en birgðir fyrir- tækisins af gasi duga rétt fyrstu daga í næstu viku. Aðalsteinn Jónsson, verk- smiðjustjóri hjá Efnaverksmiðj- unni Sjöfn á Akureyri, sagði að komið væri á aðra viku síðan þeir í verksmiðjunni urðu að hætta framleiðslu á hreinlætisvörum vegna hráefnisskorts og nú um helgina yrði málningar- og lím- Frímann Jónsson, fram- kvæmdastjóri hjá Isaga sagði að framleiðsla á logsuðugasi hefði legið niðri hjá þeim frá því á miðvikudag vegna skorts á karbid en ekki hefði fengist undanþága hjá farmönnum til að skipa upp birgðum af þvi, sem væri í skipi í Reykjavíkurhöfn eftir helgi. „Birgðir hjá okkur eru sáralitlar og það gætu orðið erfiðleikar með afgreiðslu á gasi eftir helgina en það gæti fljótlega sagt til sin í járniðnaðinum," sagöi Frímann. tramieiosiu nætt en svampur yroi framleiddur fram eftir næstu viku. Vegna lokunar verksmiðj- unnar missa nær 40 manns at- vinnu sína. Stefán J. Guðjohnsen, framkvæmdastjóri hjá Málningu h.f. sagði að þeir væru að sigla inn í vandræði vegna hráefnisskorts og þeir gætu vart haldið verk- smiðjunni gangandi nema i viku til 10 daga enn. Og þó verkfall farmanna leystist gæti liðiö allt að hálfur mánuður þar til verk- smiðjan gæti hafið fulla starfsemi á ný. Slökkviliðið í Reykjavík var í gærmorgun kvatt að Slippnum í Reykjavík þar sem glóð hafði komist í einangrun togarans Heiðrúnar írá Bolungarvík er unnið var að logsuðu í skipinu. Litlar sem engar skemmdir urðu, en talsverður reykur gaus upp um tíma. Ljósm: ól. K. Mag. Góð byr jun Farmannadeilan: Aðilar höfnuðu fyrstu kauptölum sáttanefndar Lögbindur ríkisstjórnin sáttahugmyndina? SÁTTASEMJARI ríkisins og sáttanefnd lögðu fram á sátta- fundi með yfirmönnum snemma í gærmorgun tölur inn í þann ramma, sem aðilar höfðu áður náð samkomulagi um. Þessum tölum var hafnað af báðum aðil- um, en þcir höfðu í gær verið kallaðir saman til fundar klukk- an 17 og átti þar að íreista þess að reyna að þróa málin eitthvað áfram. Tækist það ekki, var jafnvel gert ráð fyrir því að ríkisstjórnin lögbyndi þessa hug- mynd sáttanefndarinnar. Sáttafundurinn, sem hófst klukkan 14 á föstudag stóð fram undir morgun í gær og lauk um klukkan 08. Boðaður var nýr fund- ur í gær klukkan 17, eftir að Morgunblaðið fór í prentun. Mjög erfitt var í gær að afla frétta af stöðu mála, þar sem samningsað- ilar hvíldust allir eftir langan og strangan samningafund. Áður, eins og kunnugt er, höfðu aðilar orðið sammála um ákveðinn ramma, þar sem launum far- manna var skipt í grunnlaun og sjóferðaálag, sem er algjör nýjung í kjarasamningi farmanna. Tölur sáttanefndar fjölluðu um hlutfall milli álagsins og grunnkaupsins og hve hátt hvort um sig skyldi vera. Báðir aðilar höfnuðu hug- myndinni. Samkvæmt heimildum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, mun enn langt í land að samkomu- lagi í farmannadeilunní- Enginn fundur hefúr verið boð- aður með undirmönnum á farskip- um. 19hvaJir ÞEGAR Mbl. hafði samband við Hvalstöðina um hádcgisbilið í gær höfðu 19 hvalir veiðst, 18 langreið- ar og einn búrhvalur. Tveir hval- bátar, Hvalur 6 og Hvalur 7 voru að koma inn með samtals 4 hvali en á miðunum voru Hvalur 8 og Hvalur 9 í leiðindaveðri. hjáFriðriki TVEIMUR umferðum er lokið í alþjóðalega skákmótinu í Manila á Filippscyjum og hefur Friðrik Ólafsson forscti Fide tekið örugga forystu. Friðrik vann tvær fyrstu skákir sínar, fyrst alþjóðlega meistarann Ruben Rodrigues frá Filippseyjum og í 2. umferð Jacobus Sampouw frá Indónesíu. Aðrar skákir í mótinu hafa endað með jafntefli eða farið í bið og hefur Friðrik heilum vinningi meira en næstu menn. veiddir Viskísjúss- inn 630 krón- um dýrari en rauð- vínsflaska TVÖFALDUR viskí í sóda- vatni kostar nú á vínveit- ingahúsi 2.080 krónur glasið, eins og getið var í Morgun- blaðinu í gær. Er það 30 krónum dýrara en heil flaska af frönsku rauðvíni kostar í útsölu ÁTVR. Ein flaska af Beaujolais Cruse, sem er Burgundarvín, kostar í ríkinu 2.050 krónur. Þess má geta að hér er þó ekki um ódýrustu tegund af frönsku rauðvíni að ræða. Ódýrasta franska rauðvínið er Chevalier de France og kostar heilflaska af því 1.700 krónur og þyrfti sú flaska að hækka um 22,4% til þess að ná viskísjússinum á veitinga- húsinu. Flaskan er raunar 10 krónum ódýrari en tvöfaldur brennivínssjúss í gosdrykk, sem kostar á vínveitingahúsi nú 1.710 krónur. Ódýrasta rauðvínið í ríkinu er búlgarskt og kostar heil- flaskan af því 1.450 krónur. Flaskan þyrfti því að hækka um 43,4% til að hafa í fullu tré við verð viskísjússins og um 17,9% til að ná brenni- vínssjússinum. Sams konar samanburð má gera á verðskrá yfir hvítvín.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.