Morgunblaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 1
64 SIÐUR
148. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Islenzku
gjafahúsin
í Portúgal
Eins og fram hefur komið
í fréttum gaf Rauði kross-
in íslenzki mózambískum
flóttamönnum í Portúgal
tvö íbúðarhús fyrir
skemmstu. Afhending hús-
anna fór fram í gær, en
það var Kirsten Thorberg
Sa Machado, hin íslenzka
eiginkona fyrrverandi
utanríkisráðherra Portú-
gals, sem fyrir hönd Rauða
krossins afhenti gjöfina.
Húsin eru eins og sjá má
hin myndarlegustu, en
jafnframt því sem afhend-
ingin fór fram var fáni
dreginn að húni. (AP-síma-
myndir)
F erðamenn eru teknir
að streyma frá Spáni
Sprengja sprakk nærri
Marbella og einn særðist
Madrid, 30. júnf - AP, Reuter
SPRENGJA sprakk skammt frá
Marbella á Costa del Sol og
fyrstu fréttir hermdu að einn
hefði slasast. Lögregla þusti til,
tæmdi hótel í nágrenninu,
skammt frá Puret Banus Marina.
Yfirvöld á Spáni tilkynntu að
sérstakar sveitir þjálfaðar gegn
skæruliðum mundu fylgjast með
hótelum og sólarströndum á
Spáni til að koma í veg fyrir
hermdarverk Baska. ETA,
skæruliðasamtök Baska hafa lýst
ábyrgð á hendur sér að sex
sprengjur sem sprungu á Beni-
dorm, Fuengirolla og Marbella á
Costa del Sol. Engin meiðsli urðu
í þeim sprengingum. ETA krefst
þess, að Baskar f fangelsum f
Madrid og bfða þar dóma verði
fluttir til Baskahéraðanna.
Hótelstjórar á Costa del Sol
sögðu að í kjölfar sprengjanna þá
hafi fjöldi ferðamanna yfirgefið
hótel á ströndinni og halda heim,
að hundruð evrópskra ferðamanna
hafa þegar afpantað bókanir.
í Murcia á s-austur Spáni var
um 500 hótelgestum, flestir Þjóð-
verjar, gert að yfirgefa Cavanna
hótelið í skyndi þegar tilkynnt var
um sprengju í hótelinu. Engin
sprengja fannst en ferðamennirn-
ir urðu að gista á öðrum hótelum
yfir nóttina.
Þá hermdu fréttir að fimm
Baskar hefðu verið teknir fastir og
færðir til yfirheyrslu í Malaga.
Þetta hefur ekki verið staðfest en
fréttir herma að Baskarnir hafi
haft á sér hálfa milljón peseta og
verið með fimm bílaleigubíla. Þeir
hafi haft í undirbúningi sprengju-
tilræði.
Sló Brueghel við
Lundúnum - jafnvirði 450 milljóna íslenzkra
30. Júní - ap króna. Aldrei hefur hærra verð
KAUPIN ganga glatt fyrir sig verið greitt fyrir málverk, svo
á listaverkauppboðum í vitað sé, en fyrra sölumet átti
Lundúnum þessa dagana, en mynd eftir Brueghel eldri, sem
þar seldist í gærkvöldi mynd Sotheby’s seldi fyrr um daginn
eftir hollenzka 17. aldar málar- 0g var hún slegin á 275 milljón-
ann Jan van de Cappelle á ir.
S-Afríka aðili
að Thorpemáli?
Lundúnum — 30. júní — AP
BLAÐAMAÐUR að nafni Gordon
Winter, sem kveðst hafa stundað
njósnir í þágu Öryggisþjónustu
S-Afríku, lýsti því yfir í sjónvarpi
í Bretlandi í gær, að stofnunin
hefði reynt að nota mál Jeremy
Thorpe til að hafa áhrif á úrslit
þingkosninga í Bretlandi árið
1974. Winter, sem er brezkur
þegn, segir tilgang stofnunarinn-
ar hafa verið þann að tryggja
sigur íhaldsflokksins í kosning-
unum, þar eð sá stjórnmálaflokk-
ur hafi verið lfklegri til að sýna
stjórn S-Afríku umburðarlyndi.
Winter kveðst sjálfur hafa
kannað hvað hæft væri í því að
Jeremy Thorpe, þáverandi leiðtogi
Frjálslynda flokksins, hefði staðið
í rómantísku sambandi við Norm-
an Scott. Hafi hann siðan reynt að
fá brezk blöð til að segja frá
orðrómunum um kynvillu Thorpes
meðan á kosningabaráttunni stóð,
þannig að atkvæði Frjálslynda
flokksins færu yfir til íhaldsflokk-
sins.
Forstöðumaður Öryggisþjón-
ustu S-Afríku, Hendrik van den
Bergh, hefur vísað þessum stað-
hæfingum Winters á bug, og segir
að Winter hafi aldrei starfað sem
njósnari á vegum stofnunarinnar.
Skutu að tveim
þýzkum skipum
Singapore. 30. júní. Reuter.
VÍETNÖMSK herskip skutu að tveimur v-þýzkum
flutningaskipum, þar sem þau voru með báta víet-
namsks flóttafólks í togi undan strönd Víetnam. Um 300
flóttamenn voru um borð í bátunum og þegar herskipin
gerðu sig líkleg til að sigla bátana í kaf þá hjuggu
skipverjar á v-þýzku skipunum á tógin. Annað v-þýzku
skipanna, Alexanderturm var gert að sigla inn í
víetnamska höfn í Mekong óshólmunum. Flóttamenn-
irnir voru einnig teknir til baka.
Fréttir voru enn nokkuð óljós-
ar, en skipstjórar á skipunum
sendu fréttir af atburðunum til
Singapore. Svo virðist þó, sem
víetnömsk stjórnvöld hafi nú
tekið upp harðari aðgerðir gegn
hinum mikla flótta frá landinu.
Ekki hermdu fréttir hvort skip-
in hefðu orðið fyrir skotum.
V-þýzka sendiráðið í Hanoi
Carter fagnað
Sooul - 30. júní.
UM en milljón manna
fagnaði Jimmy Carter Banda-
ríkjaforseta er hann kom íil
Seoul í Suður-Kóreu í dag, en
erindi hans er að ræða við
stjórn landsins um hernað og
mannréttindi. Suður-Kóreu-
stjórn hefur sætt ámæli fyrir
að vanvirða mannréttindi, en í
landinu er einræðisstjórn, vin-
veitt Bandaríkjunum.
Park S-Kóreuforseti hefur
lagt mjög að Carter að hætta
við fyrirætlanir Bandaríkja-
stjórnar um að flytja herlið
sitt brott frá S-Kóreu í áföng-
um, en í liðinu eru um 31
þúsund hermenn.
krafðist þess að Alexanderturm
yrði leyft að fara ferða sinna.
V-þýzki utanríkisráðherrann,
Hans Dietrich Genscher sagði í
Bangkok að V-Þýzkaland mundi
veita flóttafólki af olíuborpöll-
um undan strönd Víetnam hæli í
landinu. Fólkið, sem v-þýzku
skipin höfðu tekið í tog voru á
olíuborpallinum, sem v-þýzkt
fyrirtæki rekur og voru v-þýzku '
skipin að fara frá olíuborpallin-
um eftir að hafa lestað vistir.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, sem nú er í
Astralíu gagnrýndi Víetnam
harðlega í dag fyrir flótta-
mannastrauminn frá landinu.
„Við megum ekki gleyma ástæð-
um fyrir hörmungum fólksins.
Það er að í Víetnam er kommún-
ísk stjórn," sagði Thatcher við
blaðamenn.
Ivaffið
hækkar
Rio de Janeiro, 30. júní. AP.
ÚTFLUTNINGSVERÐ á kaffi frá
Brazilíu hefur hækkað um nær
tuttugu sent hvert pund, þannig
að pundið kostar nú tvo banda-
ríkjadali, eða sem nemur um 690
krónum íslenzkum. Brazilía er
mesta kaffiútflutningsríki verald-
ar, en ástæðan fyrir hækkuninni
er sögð vera ótíð þar í landi, svo og
ótryggt stjórnmálaástand í
Nicaragua og Úganda, sem bæði
eru mikil kaffiræktarlönd.