Morgunblaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.07.1979, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. JÚLÍ1979 Foreldrar — hjálpumokkur sjálfir Nokkrir foreldrar barna sem ekki fá inni á dagheimilum á vegum Reykjavíkurborgar eru aö kanna áhuga og grundvöll fyrir stofnun og starfrækslu sjálfstæös dagheimilis í Reykjavík fyrir börn á aldrinum 6 mánaöa til 5 ára, þ.e. dagheimilis sem rekiö yröi án opinberra styrkja. Foreldrar sem áhuga heföu á aö vera með eru beönir um aö leggja umslag meö upplýsing- um um nöfn sín og símanúmer og aldur viökomandi barna inn á auglýsingadeild Morgunblaösins merkt: „Foreldrar — hjálp- um okkur sjálfir — 3410“ í síöasta lagi föstudaginn 6. júlí n.k. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Innlauanarverð 1. júlí 1979 Seölabankans Kaupgengi m.v. 1 árs Yfir- pr. kr. 100.- tímabil frá: gengi 1968 1. flokkur 3.520.09 25/1 ‘79 2.855.21 23.3% 1968 2. flokkur 3.310.01 25/2 '79 2.700.42 22.6% 1969 1. flokkur 2.459.46 20/2 '79 2.006.26 22.6% 1970 1. flokkur 2.2fc 42 15/9 '78 1.509.83 49.4% 1970 2. flokkur 1.627.77 5/2 ‘79 1.331.38 22.3% 1971 1. flokkur 1.523.77 15/9 ‘78 1.032.28 47.6% 1972 1. flokkur 1.328.44 25/1 ‘79 1.087.25 22.2% 1972 2. flokkur 1.136.70 15/9 ‘78 770.03 47.6% 1973 1. flokkur A 859.79 15/9 ‘78 586.70 46.5% 1973 2. flokkur 791.88 25/1 ‘79 650.72 21.7% 1974 1. flokkur 547.52 1975 1. flokkur 447.70 1975 2. flokkur 341.69 1976 1. flokkur 324.53 1976 2. flokkur 263.54 1977 1. flokkur 244.75 1977 2. flokkur 250.01 1978 1. flokkur 167.08 1978 2. flokkur 131.86 1979 1. flokkur 111.51 VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100.- 1 ár Nafnvextir: 28'/2% 83 2 ár Nafnvextir: 281/2% 74 3 ár Nafnvextir: 281/2% 66 4 ár Nafnvextir: 281/2% 62 5 ár Nafnvextir: 281/2% *) Miöaö er viö auöaeljanlega fasteign 57 Tökum ennfremur í umboössölu veöskulda- bréf til 1 — 3 ára meö 12—281/2% nafnvöxt- um. Höfum seljendur aö eftirtöldum verðbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS: Sölugengi pr. kr. 100 B — 1973 714.10 (10% afföll) C — 1973 622.29 (10% afföll) D — 1974 540.00 (10% afföll) G — 1975 266.15 (10% afföll) H — 1976 257.75 (10% afföll) J — 1977 191.61 («o% afföll) VEÐSKULDABRÉF: Sölugengi pr. kr. 100 1 ár 10 m Nafnvextir 14% 62.74 (Áfallnir vextir) 2 ár 6 m Nafnvextir 16% 73.21 (Áfallnir vextir) 4 ár 4 m Nafnvextir 12% 53.26 (Áfallnir vextir) 5 ár Nafnvextir 15% 37.82 5 ár 3 m Nafnvextir 14% 59.20 (Áfallnir vextir) 5 ár 4 m Nafnvextir 12% 51.81 (Áfallnir vextir) 5 ár 5 m Nafnvextir 13% 51.09 (Áfallnir vextir) 6 ár 10 m Nafnvextir 13% 37.07 (Áfallnir vextir) 6 ár Nafnvextir 14% 40.66 fjéRFErnnCARPÉIAG iflADDf Hfl VERÐBRÉFAMARKAÐUR LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaðarbankahúsinu). Sími 2 05 80. Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al'íiLYSINGA- SÍMFNN KR: 22480 Lauren Bacall sendi fyr- ir fáeinum mánuðum frá sér ævisögu sína og komst hún fljótlega í tölu metsölubóka í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þessi bók er um margt ólík aðskiljanlegum ævi- sögum stjarna og frægra per- sóna, sem eru sjaldnast mjög merkilegar, þótt þær geti verið afþreyingarlestur góður. Nokk- urn veginn er þó öruggt að allar bækur af þeirri gerð ná mikilli sölu, svo óseðjandi er þörf al- mennings á að fá að vita sem allra mest um allt sem viðkemur frægum persónum. Áður töldust bækur þessarar gerðar til tíð- inda en nú fer að verða leitun á frægu fólki sem ekki hefur skrif- að, er að skrifa eða ætlar að skrifa endurminningar sínar á einkar „djarfan og opinskáan" hátt. Fæstir þessara höfunda viðurkenna aðrar forsendur en að bækurnar séu út gefnar vegna þess „félagslega gildis" sem þær hafi. Ekki kemur til mála að viðurkenna að fyrst og fremst ræður þörfin til að bera sjálfan sig á torg, þessi knýjandi þörf til að segja umheiminum allt af létta og í sem mestum smáatrið- um. Eitt dæmi um þetta er bók sem heitir „Mommy Dearest" og er „átakanleg" lýsing kjördóttur leikkonunnar Joan Crawford á móður sinni og kemur þar nú heldur betur fram önnur hlið á þessari gæðakonu en sú sem fjölmiðlar og kvikmyndir bjuggu til af henni. Önnur er bók Margaret Trudeau, þar sem mál- ið snýst um hversu mikla þörf hún hefur fyrir að vernda einka- líf sitt og gat ekki afborið að vera eiginkona forsætisráðherra Kanada vegna þess hvílík raun það var að vera stöðugt í sviðs- ljósinu, en bókin er vitanlega ekki til annars gerð en velta sér upp úr umtalinu um sjálfa sig og draga upp þá mynd sem henni finnst snjallast að menn hafi af henni. Þessar verur býsnast oft mjög yfir því að þær geti ekki um frjálst höfuð strokið og eru ósköp sárar yfir þeirri maka- lausu hnýsni sem lýðurinn sýnir á högum þeirra. Bók sú sem í upphafi var að vikið er með þekkilegri bókum af þessu tagi. Ög ýmsir gagnrýn- endur hafa farið um hana lof- samlegum orðum. Fyrst og fremst vegna þess að frásagnar- mátinn er fjarska blátt áfram, Lauren Bacall er skemmtilega raunsæ á sjálfa sig og þótt hispurslaust sé talað er hvergi reynt að ofbjóða né hneyksla bara ofboðsins eða hneykslunar- innar vegna. Bókin vakti auðvit- að fyrst og fremst athygli vegna þess, að Lauren Bacall var gift Humhrey Bogart, sem bæði í lifanda lífi og þó ekki síður eftir dauða sinn hefur orðið goðsögn. Og þó að lífið með Bogart sé fyrirferðarmikið er þó ýmislegt annað sem forvitnilegt er að lesa um. Bókin er að vísu þriðjungi of löng og alltof nákvæm og ítarleg, svo mjög að smáatriðalýsingar hennar verða stundum verulega þreytandi. Ef Lauren Bacall hefði þjappað efni meira saman hefði það stóraukið gildi bókar- innar, fyrir nú utan hvað hún hefði orðið læsilegri. Frásögn hennar af æsku og uppvexti er skemmtileg og fróðleg í hvívetna og lýsingar hennar á hjónabandi hennar og Humphrey Bogarts sömuleiðis þótt þarna komi málalengingar og nákvæmni sem annars staðar til sögu og dragi oft úr áhuga lesandans en kaflarnir um erfið veikindi Humphrey Bogarts og andlát hans eru verulega vel skrifaðir og áhrifamiklir. Þessi bók hefur þema og það hefur hana yfir ýmsar „stjörnu- bækur". Efnalítil Gyðingastúlka fær kornung áhuga á leiklist, hún kemst í fyrirsætustörf og er „uppgötvuð". Fer til Hollywood og verður ástfangin af stórleik- aranum Humphrey Bogart, sem er 25 árum eldri en hún og eftir mikið japl og jaml og fuður — hann þarf sem sé að herða sig upp í að skilja við drykkjusjúka eiginkonu — giftast þau og lifa í góðu og gegnu hjónabandi í tíu ár rétt eins og í ævintýrunum. En svo veikist hann og deyr og þá er komið að því að hún verði að lifa af harmleikinn. Hún tekur upp samskipti við Frank Sinatra, sem verða ósköp mis- lukkuð og síðan giftist hún leikaranum Jason Robarts og það verður líka mislukkað. Loks skilur hún við Robarts og snýr sér að því að fullum krafti að geta sér orðstír sem listamaður, en ferill hennar sjálfrar hafði mikið til fallið í skuggann meðan hún var gift Bogart og lengi eftir. Með stórbrotnum leiksigri á Broadway slær hún loks í gegn. Þá er hún komin á miðjan aldur, en laus undan ímynd Bogarts, að minnsta kosti ríkir goðsögnin ekki lengur yfir henni. Hún getur staðið fyrir sínu, ein og óstudd, þótt kvíðin og öryggis- leysi geri vart við sig. Hún er að minnsta kosti ánægðari en áður og getur horft til þess sem framundan er með nokkurri eft- irvæntingu. Allt er þetta sann- færandi og einlægt og í heild er bókin saga hugrakkrar konu, geðfelldrar og staðfastrar sem hefur á sextugsaldrinum fundið sinn stað í tilverunni eftir að hafa kannski fengið sinn skerf af of miklu og of fljótt. h.k. NYKOMNAR VÖRtJR s.s. stofuborö, teborö, kúlubarir, taflborö, taflmenn og marmaraborö ww OPIÐ Á LAIM Havana OPIÐA LAUGARDÖGUM Goóheimum 9 Sími 34023

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.