Morgunblaðið - 01.07.1979, Side 5

Morgunblaðið - 01.07.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ1979 5 Útvarp kl. 13.20: „Hrafn- hetta” í DAG hefur göngu sína í útvarpinu nýtt framhalds- leikrit í fjórum þáttum og er það eftir Guðmund Daníels- son. Leikritið heitir „Hrafn- hetta“ og er gert eftir sam- nefndri sögu, sem út kom árið 1958. Fyrsti þátturinn nefn- ist „Svart blóm í glugga“. Leikstjóri er Klemenz Jóns- son, en með særstu hlutverk- in fara Arnar Jónsson, Þor- steinn Gunnarsson, Helga Bachmann og Guðrún Þ. Stephensen. Söguþráðurinn er í stuttu máli sá að árið 1710 hittast á knæpu í Kaupmannahöfn þeir Niels Fuhrmann, skrifari Schesteds sjóliðsforingja og Þorleifur Arason háskóla- Guðmundur Klemenz Arnar Helga Guðrún Þ. Þorsteinn stúdent frá Reykhólum. Þeir hafa verið perluvinir, en nú er Þorleifur á förum heim til Islands. Honum verður ljóst að Fuhrmann er öðruvísi en hann á að sér og kemst brátt að því að hann er orðinn ástfanginn af Appollóníu Schwarzkopf, sem Þorleifur kallar raunar Hrafnhettu. Hvorugan grunar þó þær örlagaríku afleiðingar sem það hefur í för með sér. Guðmundur Daníelsson er löngu orðinn landskunnur rit- höfundar. Hann er fæddur í Guttormshaga í Holtum árið 1910. Guðmundur lauk kenn- araprófi 1934 og stundaði síð- an kennslu á ýmsum stöðum, lengst á Eyrarbakka, en þar var hann kennari og skóla- stjóri 1943-1968. Nú er Guð- mundur búsettur á Selfossi. Fyrsta skáldsaga hans, „Bræð- urnir í Grashaga", kom út árið 1935 en síðan hafa komið eftir hann mörg ritverk, bæði ferðabækur, viðtalsbækur, og greinasöfn og auk þess þrjú rit um veiðiskap. Þá hefur Guð- mundur sent frá sér ljóð, smásögur og leikrit, en auk þess hefur hann samið leik- gerð nokkurra sagna sinna. Áeíginbíl umEvrópu Aö ferðast um á eigin bíl stóreykur möguleikana: — þú ert fullkomlega frjáls hvert þú vilt fara; — þú skipuleggur ferðina sjálfur; — þú gistir þar sem þú vilt; — þú kynnist þjóðunum betur; — þú getur fylgt góða veðrinu eftir; — og þú gerir það sem þér dettur í hug. Eins og síðustu sumur hefur Úrval umboð fyrir ferðir með ferjunni Smyrli til Noregs og Skot- lands. Feröirnar verða sífellt vinsælli, svo það er eins gott aö panta í tíma. FERDASKRIFSTOFAN URVAL VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900 Stllllflf3 32tltíÍ1 f%MVRTT5> isLAND/FÆREYJAR/SKOTLAND/NOREGURuv. Koma Brottf. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 j Seyðisfj. Laugard. 20:00 2/6 9/6 16/6 23/6 30/6 7/7 14/7 21/7 28/7 4/8 11/8 18/8 25/8 1/9 8/9 15/9 \ Þórshöfn Sunnud. 14:00 23:00 3/6 10/6 17/6 24/6 1/7 8/7 15/7 22/7 29/7 5/8 12/8 19/8 26/8 2/9 9/9 16/9 % Scrabster Mánud 13:00 16:00 4/6 11/6 18/6 25/6 2/7 9/7 16/7 23/7 30/7 6/8 13/8 20/8 27/8 3/9 10/9 17/9 Þórshöfn Þriðjud. 06:00 5/6 12/6 19/6 26/6 3/7 10/7 17/7 24/7 31/7 7/8 14/8 21/8 28/8 4/9 11/9 18/9 Þórshöfn Miðvikud. 13:00 6/6 13/6 20/6 27/6 4/7 11/7 18/7 25/7 1/8 8/8 15/8 22/8 29/8 5/9 12/9 19/9 í Bergen Fimmtud. 12:00 15:00 7/6 14/6 21/6 28/6 5/7 12/7 19/7 26/7 2/8 9/8 16/8 23/8 30/8 6/9 13/9 20/9 Þórshöfn Föstud. 16:00 23:59 1/6 8/6 15/6 22/6 29/6 6/7 13/7 20/7 27/7 3/8 10/8 17/8 24/8 31/8 7/9 14/9 21-/9 Seyðisfj. Laugard. 18:00 2/6 9/6 16/6 23/6 30/6 7/7 14/7 21/7 28/7 4/8 11/8 18/8 25/8 1/9 8/9 15/9 .... ..... 1 1 - . —--------------------------------------- Til Parísar á þjóð- hátíðardegi Frakka, 14. júlí og kynnist heimsborg líffsgleð- innar. PARIS er af mörgum talin ein fegursta borg veraldar, með breiðstrætum sínum og höllum, torgum og trjágöngum, sem ekki eiga sinn líka. París er borg lífsgleði og lista og hefur upp á flest að bjóða, sem hugurinn girnist; undurfagrar og mikilfenglegar byggingar, merk söfn, leikhús og óperuhús — hún er borg sælkerans — borg næturlífsins — borg, sem allir ættu að heimsækja a.m.k. einu sinni á ævinni — ekki sem hlutlaus áhorfandi, heldur sem þátttakandi í lífi Parísarbúans — ganga undir laufi kastaníutrjánna á breiðstrætunum — um bugðóttar götur úthverfanna, sitja á götu-kaffihúsunum og drekka í sig andrúmsloft þessa fornfræga, síunga staðar Góð hótel miðsvæðis, íslenskur fararstjóri. Aðrir brottfarardagar 28. júlí, 11. og 25. ágúst Pantiö strax. Feröaskrifstofan Útsýn F&röaskrifstofan Úrval Flugleiöir h.f. VANTAR ÞIG VINNU (n VANTAR ÞIG FÓLK { ÞL' Al'GLÝSIR l M ALLT LAND ÞEGAR Þl ALG- LYSIR I MORGL'NBLAÐIM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.