Morgunblaðið - 17.08.1979, Side 1
32 SÍÐUR
187. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stjarna Indiru
fer hækkandi
Nýju Delhi, 16. áfcust. Reuter.
STJARNA Indiru Ghandi fer nú ört hækkandi á Indlandi. í
skoðanakönnun, sem birt var í dag í vikuritinu „Indland í dag* kom
fram að Indira nýtur nú mun meiri vinsælda en Charan Singh
forsætisráðherra.
Aðeins 29% þeirra er spurðir
voru studdu Singh en hins vegar
naut Indira stuðnings 48% þeirra
er spurðir voru. Jagjivan Ram
hlaut enn verri útreið en Singh, en
hann hefur stefnt að forsætis-
raáðherraembætti — hann hlaut
stuðning aðeins 14% þeirra er
spurðir voru. Kosningar eiga að
fara fram á Indlandi 1982 en
flokkur Indiru hefur undanfarið
sýnt því aukinn áhuga að kosning-
ar fari fram þegar á næsta ári.
Hinn mikli stuðningur við
Indiru Ghandi kom á óvart því í
skoðanakönnun, sem fram fór í
apríl, hlaut hún stuðning aðeins
22% þeirra er spurðir voru. Þá
virðast Indverjar hafa fyrirgefið
Indiru er hún lýsti yfir neyðar-
ástandi í landinu. Af þeim er
spurðir voru sögðu 64% að stjórn
Indiru á því tímabili hefði verið
betri en er Janatabandalagið var
við völd.
Möguleikar Charan Singhs á að
mynda stjórn jukust í dag þegar
marxistar (cpi-m) ákváðu að
styðja stjórn hans. Flokkur Indiru
hefur enn ekki gefið svar um það
hvort hann muni styðja stjórn
Charan Singhs.
Færeyjar:
Útvarpa
„poppi
og klámi”
Moskvu. 16. ígúst — Rcuter.
ÓLÖGLEGAR útvarpsstöðvar
eru víða starfandi og útvarpa
poppi og klámi. að þvf er
sovéska kvöldblaðið Vecher-
naya Moskva skýrði frá í dag.
Blaðið varaði þá við, sem senda
út, og sagði þá eiga á hættu að
hljóta fangelsisdóm fyrir. Blað-
ið vitnaði til 24 ára verka-
manns, sem dæmdur var f 2 ára
fangelsi fyrir að útvarpa slfku
efni.
Utsendingarskilyrðum mikil-
vægra stöðva, eins og flug-
stjórnar er hætt vegna hinna
ólöglegu útsendinga, að því er
blaðið sagði. Jafnframt hvatti
blaðið foreldra til að banna
sonum sínum að setja upp sjó-
ræningjastöðvar, og kalla þær
nöfnum eins og Satan, Troika og
Júpíter.
Gamla stjórnin
var endurvakin
Frí fréttaritara Mbl. í Þúrahðfn. 16. ágúst.
NÝ STJÓRN hefur verið mynduð í Færeyjum. Sósíaldemókratar
Fólkaflokkurinn og Rcpúblikanar hafa komið sér saman um, að
endurvekja stjórnarsamstarfið, en samstarf þessara þriggja flokka
flosnaði upp í sumar. Skrifað var undir nýjan stjórnarsáttmála sfðdegis í
dag og þar lýsa flokkarnir því yfir að þeir muni starfa á sama grundvelli.
Málamiðlun var náð um ferjumál-
ið svonefnda. í stjórnarsáttmála
flokkanna segir að „flokkarnir séu
einhuga um að kanna möguleika á
smíði nýrrar ferju í færeyskri skipa-
smíðastöð". Stefnt skuli að því að
ferjar verði tekin í notkun 1983.
Samþykkt var að festa kaup á ferju
á stærð við Smyril.
forsætisráðherra. Sjaldgæft er að þau sjáist saman en Singh stendur nú mjög í skugga
Indiru. Líf stjórnar hans hvílir á stuðningi hennar og nú nýtur hún mun meiri vinsælda
en hann. Símamynd AP.
Henning Christophersen, utanríkisráðherra Dana:
Hagsmuna Græn-
lands verði gætt
Frá fréttaritara Mbl. f Kaupmannahöfn. 16. ágúst.
„VIÐ HÖFUM fylgst náið með deilu íslendinga og Norðmanna um Jan
Mayen og ég lagði sérstaka áherzlu á það við Benedikt Gröndal,
utanrfkisráðherra, að Danir mundu f hvfvetna gæta hagsmuna
Grænlendinga og þess að þeir yrðu ekki hlunnfarnir,“ sagði Henning
Christophersen, utanrfkisráðherra Dana eftir viðræður við Benedikt
Gröndal f Kaupmannahöfn f gær. Benedikt er nú í opinberri heimsókn f
Danmörku og ræddi hann við Christophersen f gær.
Benedikt skýrði Christophersen
frá afstöðu Islendinga til Jan
Mayen málsins og áhyggjum ís-
lendinga af loðnustofninum við Jan
Mayen. Loðnuveiðar Norðmanna
hefðu gengið mjög vel og ofveiði
stofnsins væri íslendingum
áhyggjuefni.
Á fundi með fréttamönnum í
Kaupmannahöfn í dag sagði Bene-
dikt að stefna íslenzku ríkisstjórn-
arinnar væri lítt sveigjanleg. Hann
sagði að Islendingar hefðu neitað
að deila hinu umdeilda svæði með
Norðmönnum, annað væri „póli-
tískt sjálfsmorð hverjum
stjórn málamanni á íslandi".
Á fundinum sagði Benedikt, að
hann ætti ekki von á deilum við
Færeyinga, og að þeir þyrftu ekki
að óttast það að þeir yrðu hlunn-
farnir. Benedikt sagði að íslending-
ar hefðu ekki á móti því að aðrar
þjóðir tækju sér 200 mílna efna-
hagslögsögu og deilan við Norð-
menn snerist um hvað íslendingar
fengju í staðinn. Rétturinn til
nýtingar hafsbotnsins er eitt
þeirra atriða, sem Benedikt Grön-
dal nefndi á fundinum með frétta-
mönnum í Kaupmannahöfn.
Ó1 áttbura
3 drengi og 5 stúlkur
en ein þeirra er látin
Napólí, 16. ágúst — Reuter, AP.
KONa í Napólf, Pasqualina Chianese Anatrella, ól í morgun áttbura
í Napólí — fimm sflkur og þrjá drengi. Börnin fæddust tveimur
mánuðum fyrir tfmann. Stúlkuharn. minnsta barnið, lést tæpum 10
klukkustundum eftir fæðinguna. Hún vó aðeins 450 grömm og hjarta
hennar hætti að slá áður en tókst að koma henni f súrefnistjald.
Þetta er í fyrsta sinn í sögunni öll. Nú finn ég fremur til sársauka
að áttburar fæðast, en móðirin tók
hormónalyf svo hún gæti orðið
þunguð. Aður höfðu flest fæðst
sex börn — og Pasqualina ól sjálf
sexbura fyrir þremur árum en öll
dóu.
„Við þráum að eignast barn,“
fagði maður hennar. „Þegar
Pasqualina átti sexburana þá
fylltist ég fögnuði — en þau dóu
en gleði. En þið megið ekki mis-
skilja mig — ég er svo hræddur
um að þau deyi einnig,“ bætti
hann við og átti erfitt með að
hemja tilfinningar sínar.
Fæðingin í Napólí stóð í aðeins
tuttugu mínútur. Fyrirfram hafði
aðeins verið búist við fjórburum
og fæðingin undirbúin í samræmi
Fjögur barnanna í súrefnistjaldi. Sfmamynd ap.
við það. „Fæðingin gekk vel og það
var auðvelt að taka á móti þeim
vegna þess hve lítil þau voru,“
sagði Salvatore Scala, sem tók á
móti börnunum. Þyngsta barnið
vó aðeins 1.1 kíló en stúlkan sem
dó var léttust, aðeins 450 grömm.
Nicola Bertolini, einn læknanna,
sagði við fréttamenn, að móðirin
væri vel á sig komin líkamlega en
bætti við: „henni líður mjög illa
andlega þar sem hun er svo hrædd
um að missa þessi einnig.“ Hann
sagði að tvö þyngstu börnin ættu
„nokkra möguleika" á að lifa.
Árið 1974 fæddust sexburar í
S-Afríku og eru þeir einu sexbur-
arnir, sem hafa lifað. Tvívegis
áður hafa sexburar fæðst á Italíu
en í bæði skiptin hafa öll dáið —
Pasqualina átti sexbura fyrir
þremur árum og á Sardiníu fædd-
ust í fyrra sexburar en öll börnin
létust.