Morgunblaðið - 17.08.1979, Page 2

Morgunblaðið - 17.08.1979, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 VÍSISRALLIÐ hólst í Kær. en það er lengsta bflarall sem fram hefur farið hér á landi. Þátttakendur eru 21 0« eru tveir keppendur í hverjum bfl. Fyrsti bfllinn var ræstur af stað kl. 16:00 í gær og var ekið norður í land til Sauðárkróks þar sem bflarnir voru í nótt. f dajf li«>fur leið þeirra til Húsavíkur þar sem þeir verða í nótt. Þaðan aka þeir sfðan f fyrramálið suður Sprenxisand ojí um Suðurland, gista aðfararnótt sunnudagsins á Laugarvatni og koma til Reykjavfkur á sunnudag. Það eru dagblaðið Vísir og Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavfkur sem standa fyrir keppninni. segir forsætisráðherra um friðun Torfunnar Á FUNDI ríkisstiórnarinnar í gærmorgun gerði Olafur Jóhann- esson bókun um Bernhöftstorfu- málið. í samtali við Mbl. f gær vildi hann ekki greina nákvæm- lega frá bókun sinni, en fram hefur komið að forsætisráðherra „Til að geta unnið aftur næsta sumar” SIGURBÁTURINN í sjórallinu frá f sumar hefur nú verið augiýstur til sölu. Við spurðum Bjarna Sveinsson, eiganda Ingu, hvers vegna hann vildi losa sig við gripinn. — Það er einfalt, sagði Bjarni. — Það er til að geta unnið örugglega aftur næsta sumar. — Ég er að fá mér nýjan Flugfiskbát, sem verður meira styrktur og með kraftmeiri vél. Sá á að ganga allt að 54 mílum og þá mega þeir fara að vara sig. Ingan er í toppstandi og í alla staði frábær bátur, en mann langar alltaf í eitthvað stærra. Ég reikna með að fá 6 milljónir fyrir Inguna, en býst við að sá nýi leggi sig á ekki undir 15 milljónir með vél og öllum tækjum, sagði Bjarni Sveinsson og sagðist vera einn þeirra 12, sem þegar hefðu tilkynnt þátt- töku í sjóralli næsta sumar. telur að Alþingi eigi að fjalla um þetta mál og einnig telur hann að f ríkisstjórninni hafi ekki verið meirihluti fyrir ákvörðun menntamálaráðherra um friðun Torfunnar. — Kjarninn í þessari deilu, ef deilu skyldi kalla, er hvort það sé Alþingi sem eigi að taka ákvörðun- ina, sagði Ólafur í gær. — Ég held því fram, að bíða eigi ákvörðunar Alþingis. — Það ákvað á sínum tíma, 1954, að þarna skyldu staðsettar skrifstofur Stjórnarráðsins. í til- efni af 50 ára afmæli Stjórnar- ráðsins var gefin út fréttatilkynn- ing um það efni frá ríkisstjórninni og síðan voru í fjárlögum allar götur frá 1954 til 1968 fjárveiting- ar til þessa, að einu ári undan- skildu. — Með fyrirspurn, sem Þórar- inn Þórarinsson gerði 1968, spurð; ist hann fyrir um bygginguna. í svari þáverandi forsætisráðherra kom ekkert fram, sem andmælti henni og þá kom engin rödd fram í aðra átt. Síðan hafa ekki fengizt samþykktar á Alþingi ályktanir, sem ætlað er að breyta þessari staðsetningu skrifstofa Stjórnar- ráðs. Þetta er í rauninni mergur- inn málsins, sagði forsætisráð- herra að lokum. Reknetaveiðarn- ar mega hefjast annan laugardag ÁKVEÐIÐ hefur verið að sfldveiðar í reknet megi hefjast 25. ágúst næstkomandi, en um 65 bátar hafa sótt um leyfi til veiðanna. Sfldveið- ar í hringnót hefjast væntanlega 20. september nk. Bíða ákvörð- unar Alþingis Þungur róð- ur hjá skák- mönnunum ÞEIM Guðmundi Sigurjónssyni og Margeir Péturssyni vegnaði báðum heldur illa í skákum sínum á mótinu í Gausdal í gær. Margeir tapaði fyrir Ravikumar frá Indlandi í skák þar sem Margeir var með unnið tafl á tíma, en lék illa af sér og tapaði skákinni. Á heims- meistaramóti unglinga á dögunum vann Margeir Indverjann örugglega. Guðmundur tefldi við Kaiszauri frá Svíþjóð og hafði heldur verri stöðu þegar skákin fór í Dið. Efstir og jafnir með 4 vinninga eru þeir Romanishin, Karlsson frá Svíþjóð og Indverjinn Ravikumar. Rainbow Warrior enn í rólegheitum RAINBOW Warrior lét í gærdag reka rétt undan Hvalfirði. Önnur kvennanna, sem hraðbátur frá Warrior lét í land í Reykjavík í fyrradag, hélt af landi brott í gær. Voru báðar konurnar skráðar í áhöfn skipsins, en til að fá afskrán- ingu af erlendu skipi hér þarf sérstakt leyfi frá Dómsmálaráðu- neytinu. Önnur konan var sögð veik, en við rannsókn aðstoðarborgar- læknis fannst engin óeðlilegur krankleiki. Sú sem sögð var sjúk hélt af landi brott í gærmorgun, en hin konan, blaðamaður að atvinnu, er gnn í Reykjavík. Vegagerð ríkisins: Unnið að lagningu varan- legs slitlags á þjóðvegi víða um land í sumar UNNIÐ er að lagningu varanlegs slitlags eða „klæðningar“ á þjóðvegi og vegarkafla víða um land í sumar, að því er Jón Birgir Jónsson yfirverkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins sagði í samtali við Morgun- blaðið. Meðai annars er nú unnið að lagningu slitlags í Tíðaskarði, og var veginum þar lokað um tfma af þeim sökum. Af öðrum framkvæmdum af þessu tagi sagði Jón Birgir að mætti nefna slitlagslagningu á veginn á Garðsskaga milli Sand- gerðis og Garðs, og þá Eyrar- bakkaveg niður frá Selfossi, um það bil tveir km. Enn má nefna Suðurlandsveg frá Landvegamót- um austur að Rauðalæk, en einnig hefur verið lagt nokkuð af til- raunaköflum, svo sem á Þingvöll- um, á Hafnarveg og á veginn til Ólafsfjarðar og Dalvíkur, frá vega- mótunum á Þelamörk, um það bil 7 1 kílómetra. Einnig verða tilrauna- kaflar lagðir í Borgarfirði og á Snæfellsnesi og einnig í Grímsnesi og undir Eyjafjöllum ef tíðarfar í haust leyfir. Þessir vegarkaflar eru að sögn Jón Birgis lagðir með svonefndu „ottadekk" slitlagi, sem kennt er við stað í Noregi þar sem það var fyrst reynt, eins konar ódýr klæðning. Sagði Jón Birgir þetta efni hvorki vera olíumöl né malbik, en ef setja ætti þessi efni upp í gæðaröð, þá væri hún sú að dýrasti og besti vegurinn væri steyptur vegur, þá kæmi malbik, olíumöl og loks „ottadekk" klæðn- ingin. Auk framantaldra verkefna sagði Jón Birgir að unnið væri að brúarsmíði á Holtavörðuheiði, byggingu Borgarfjarðarbrúarinn- ar og svo yrði vegalagning á norðausturlandi eitt stærsta verk- efni Vegagerðarinnar eftir að sam- þykkt var að verja 600 milljónum króna til vegagerðar þar vegna hafíss. Tveir nýir prófessor- ar við Lagadeildina TVEIR prófcssorar hafa nýlega verið skipaðir við Lagadeild Iláskóla íslands. en það eru þeir Björn Þ. Guðmundsson og Stelán Már Stefánsson. Aðalkennslugreinar Björns Þ. Guðmundssonar verða á sviði persónu-. erfða- og sifjaréttar. en Stefáns Más Stefánssonar á sviði réttarfars. Undanfarið ár hefur Björn Þ. Guðmundsson verið settur prófessor við Lagadeildina í stað Gauks Jörundssonar sem verið hefur í leyfi. Aðrir umsækjendur auk Björns voru þau Guðrún Erlendsdóttir lektor og dr. Páll Sigurðsson dóscnt. Einnig sótti um það embætti Stefán Már Stcfánsson sem dró umsókn sína til baka þegar hann var skipaður í prófessorscmbætti á sviði réttarfars. En um það embætti sóttu auk Stefáns þeir Björn Þ. Guðmundsson og dr. Páll Sigurðsson. Stefán Már Stefánsson er fæddur 19. október 1938 í Reykjavík. Hann er sonur hjónanna Stefáns Jakobssonar og Guðrúnar Guðjónsdóttur. Stefán varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1958 og lauk embætt- isprófi frá Lagadeild Háskóla íslands árið 1964. Framhaldsnám stundaði hann í Noregi, Þýskalandi og ísrael. Stefán Már Stefánsson hefur verið borgardómari í Reykjavík síðan 1970. Hann er kvæntur Kristínu Ragnars- dóttur og eiga þau þrjú börn. Björn Þ. Guðmundsson er fæddur 13. júlí 1939 á Akranesi, sonur hjón- anna Guðmundar Björnssonar og Pálínu Þorsteinsdóttur. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akur- eyri árið 1959 og lauk embættisprófi frá Lagadeild Háskóla Islands árið 1965. Hann starfaði sem fulltrúi yfirborgardómarans í Reykjavík 1966—1972, en það ár var hann skipaður borgardómari í Reykja'vík. Björn Þ. Guðmundsson er kvæntur Þórunni Bragadóttur og eiga þau tvö börn. ÁRNI Snævarr fyrrverandi ráðu- neytisstjóri í Iðnaðarráðuneytinu lést af hjartabilun á sjúkrahúsi f Kaupmannahöfn sfðastliðinn mið- vikudag. Árni var fæddur 27. aprfl 1909 á Húsavfk og var því sjötugur að aldri er hann lést. Árni varð stúdent frá Menntaskól- anum á Akureyri 1930 og lauk prófi í byggingaverkfræði í Dresden 1935. Árið 1941 stofnaði Árni, ásamt öðrum, Almenna byggingafélagið í Reykjavík. Árni vann að undirbún- ingi að og framkvæmdum við ýmis mannvirki og má þar nefna virkjun Irafoss í Sogi, Andakílsvirkjun, Aburðaverksmiðjuna í Gufunesi og Sementsverksmiðjuna á Akranesi. Árni Snævarr sat um langt skeið í stjórn Verkfræðingafélags íslands, var formaður Skáksambands íslands 1947—52 auk fjölmargra annarra trúnaðarstarfa, sem hann gegndi. Eftirlifandi kona Árna er Laufey Bjarnadóttir Snævarr. Stefán Már Stefánsson Árni Snœvarr látinn Mjög góð sala hjá Snorra Sturlusyni SKUTTOGARINN Snorri Sturluson frá Reykjavík seldi afla sinn í Hull í gær og fyrradag og fékkst mjög gott verð fyrir afl- ann, sem var að mestu leyti þorskur, en einnig nokkur ufsi. Samtals seldi Snorri 217.8 tonn og fengust rösklega 92 milljónir króna fyrir aflann. Meðalverð var því 424 krónur og er mjög gott miðað við hversu miklum afla var land- að. Skipstjóri á Snorra Sturlu- syni er Ólafur Örn Jónsson. Skuttogarinn Erlingur úr Garði selur afla sinn í Þýzka- landi á mánudag, aðallega karfa og ufsa. Verður Erlingur fyrsti togarinn til að selja á þessum markaði í nokkurn tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.