Morgunblaðið - 17.08.1979, Síða 3

Morgunblaðið - 17.08.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST1979 3 „MfldU þrýstíngur úr báðum áttum” segir Eivind Bolle, sjávarútvegsráðherra Noregs, í samtali við Morgunblaðið, en neitar að kalla deiluna loðnustríð Jóhannes Tómasson blaóamaður Morgunblaðsins skrlfar frá Osló — AF REYNSLUNNI af þeim viðræðum. sem við áttum við íslendinKa í lok júní að dæma, fer ekki hjá þvf að þær viðræður. sem nú fara í hönd, verða erfiðar, sagði Eyvind Bolle sjávarútvegsráðherra Noregs í samtali við Morgunbiaðið í Osló f dag. Viðræðurnar hefjast 29. ágúst og sagðist Bolle reikna með að þeim lyki 1. september. — Best væri að embættismenn undirbyggju umræðugrundvöll áður en til kasta stjórnmálamanna kemur og reikna má með því aö tíminn til mánaðamóta verði notaður til þess, sagði Boile. Hann var f upphafi samtalsins spurður að þvf á hvað Norðmenn myndu leggja mesta áherzlu í samningaviðræðunum. — Við leggjum áherzlu á, að (slendingar skilji hversu mikla þýðingu 200 mflna lögsaga hefur fyrir bæði löndin og aö nauðsynlegt sé að hafa fulla stjórn á notkun auðlinda innan þeirrar lögsögu. Með því á ég við, að höfð verði stjórn á því hvort þriðja landið kemur til sögunnar eða ekki, en að sjálfsögðu hafa Norðmenn og íslendingar forgang. sízt mikilvægt fyrir íslendinga. — Hvað vilt þú segja um gagn- rýni „Noregs Fiskarlag" á veiði- banninu núna? — Það er álit „Norges Fiskarlag", að við ættum að veiða ótakmarkað, en veiðarnar eru nú stöðvaðar eink- um af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi af verndunarástæðum og í öðru lagi viljum við koma til móts við óskir íslendinga um að ekki séu stundaðar veiðar þegar viðræður fara fram. — Gagnrýnt er að fresturinn hafi verið of stuttur. — Já, það hefur verið gagnrýnt og víst er hann stuttur, en þó gerum — Við hvers konar skiptingu á fiskveiðiréttindum munu Norð- menn sætta sig? — Það er útilokað fyrir mig að segja nokkuð um það nú, því um það munu viðræðurnar við íslendinga snúast. Ég get þó sagt að meðal Norðmanna ríkir fullur skilningur á því hvaða þýðingu loðnan hefur fyrir íslendinga, en hins vegar verður að taka það með í reikning- inn að við erum undir miklum þrýstingi frá norskum sjómönnum um að þeir fái að halda því, sem þeir hafa. — Hvað með ráðleggingar fiski- fræðinga? — Já, þar kemur til enn eitt atriðið, sem fjalla þarf um, en þeir hafa í nýrri skýrslu lagt til, að aflinn fari ekki yfir 600 þúsund tonn. Við verðum að taka fullt tillit til skýrslu þeirra. Það er mikilvægt að fara mjög varlega þegar ákveða skal leyfilegt magn og er það ekki Oddvar Nordli forsætisráðherra Noregs kom f opinbera heimsókn til fslands í ágústmánuði 1976 og var þessi mynd þá tekin við Gullfoss af Geir Ilallgrímssyni þáverandi forsætisráðherra, Eivind Bolle og Oddvar Nordii. Frá viðræðum íslendinga og Norðmanna í Ráðherrabústaönum í Reykjavík í júnímánuði sl. Frá vinstri Eivind Bolle, Knut Frydenlund, Benedikt Gröndal og Kjartan Jóhannsson. (Ljósm.: ól. K. Mag.) við ráð fyrir, að þeir bátar, sem voru á leið á miðin, fái tækifæri til að ná fullfermi áður en þeir halda til lands, í síðasta lagi á mánudags- kvöld. Við skiljum vel að dýrt sé að halda á miðin og fá svo kannski aðeins lítið af loðnu í skipin. Með þessu reynum við að gera ráðstafan- ir til að útgerðirnar verði ekki fyrir tapi í síðustu veiðiferðinni. — Nú hefur verið upplýst að Jens Evensen eigi m.a. að rseða við Sovétmenn um Jan Mayen-málið, hvaða þáttur þess snýr að þeim? — Það er rétt að Evensen á að ræða við Sovétmenn, en þó er ekki rétt að kalla það viðræður. Hlutverk hans er að upplýsa þá og Efnahags- bandalagslöndin um hverjar séu fyrirætlanir okkar við Jan Mayen og í fiskveiðilögsögumálum. Þessi vinnubrögð höfum við viðhaft áður, reynt að gefa þessum þjóðum tæki- færi á að fylgjast með gangi mála og heyra álit þeirra. — Er norska ríkisstjórnin undir miklum þrýstingi, annars vegar frá fslandi og hins vegar frá norskum sjómönnum? — Því er ekki að neita að þrýst- ingurinn er mikill úr báðum áttum og auðvitað hefði verið æskilegast að ná samkomulagi í fyrri viðræðun- um í Reykjavík. Þá hefði verið auðveldara að stjórna veiðunum við Jan Mayen í sumar og þessi vandi ekki verið fyrir hendi. En nú er enn brýnna fyrir okkur að semja, ekki sízt með tilliti til veiða þriðju þjóðarinnar og ég vona að skynsam- leg lausn fáist eftir fyrirhugaðar viðræður. — Ertu bjartsýnn á að það tak- ist? — Já ég er bjartsýnn á að viðræð- urnar leiði til lausnar, sem báðar þjóðir megi vel við una, sagði Eivind Bolle. í lok samtalsins var aðeins slegið á aðra strengi og Bolle spurð- ur að því hvort ekki væri erfitt og tímafrekt að þurfa sífellt að svara spurningum úr öllum áttum um þessi málefni. — Nei ekki svo mjög, svaraði Bolle og brosti. — Það er mjög mikilvægt að svara og greina frá gangi mála, upplýsa fólk um afstöðu okkar og útskýra málin. Norskir fjölmiðlar hafa mjög mikið fjallað um Jan Mayen-málið og gert því nokkuð góð skil, þó að loðnustríð sé fullmikið notað orð og of sterkt. Fólk verður forviða þegar það heyrir talað um svo alvarlegan hlut eins og stríð og í þessu tilfelli teljum við alls ekki að um neitt stríð sé að ræða, sagði sjávarútvegsráðherra Noregs, Eivind Bolle, að lokum. GRUNDIG 20" 4613 Loekkun kr.70.500. Nú d kr.485.700. % Útborgun: Mánaðargr.: 20% kr. 97.000 2 X kr. 195.000 30% kr. 146.000 3 X kr. 113.000 40% kr. 195.000 4 X kr. 73.000 50% kr. 243.000 5 X kr. 49.000 60% kr. 292.000 Frjálst innan árs 100% kr. 461.400 (5% staðgr.afsl.) VEXTIR OG KOSTNAÐLIR EKKI INNIFALIÐ. • Línumyndlampi. („Black-stripe inline“). Ný og mjög fullkomin gerð. • Einingaverk. Einfaldar allar viðgerðir og gerir þær mögulegar í heimahúsum. • AFC (sjálfvirk tíðnistilling) og AGC (sjálfvirk mögnunarstilling). Þessi atriði tryggja bestu viðtöku hljóðs og myndar. • Kalt kerfi. Straumnotkun aðeins lOOw. (Tækið hitnar minna og endist lengur). • Framvísandi hátalari. (Superphon). Gefur betri hljómburð en hátalari á hlið. • Tónstillir fyrir bassa og diskant. • Valhnotukassi. Stærð 64 X 42 X 45. Þriggja ára myndlampaábyrgð og sjö daga skilaréttur á öllum tækjum. Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps útvarps og hljómtækja Þrostur Magnússon VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.