Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 7 Aðhlátursefni landsmanna Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Verkamannasambands- ins, sendir Þeim Þjóð- viljamönnum heldur bet- ur kveðjuna í gær í bréf- korni til Úlfars Þormóðs- sonar. Orðrótt segir hann: „Kæri Úlfar Þormóðs- sonl Það var aldeilis upp á Þér tippið í Þjóðviljanum á fimmtudaginn var. Þú reiðir par refsivöndinn jafnt yfir réttláta sem rangláta svo hvín í. Hitt er svo annað mál, Úlfar minn, hvort pú hittir alltaf í mark. Á ég aö segja Þér Það í trúnaði, vinur, að Þegar ég las reiðipistil Þinn, datt mér í hug slagari eftir Ómar Ragnarsson sem ég heyri oft sunginn í útvarpið. Þessi slagari heitir „Jói útherji". Við- lagið er: „Það var Þrumu- skot“. Úlfar minn, — láttu krakkana Þína kenna Þér textann um Jóa útherja. Ég er ekki viss um að ég kunni hann alveg, en ef óg man rétt vildu Þrumu- skotin hans Jóa útherja gjarnan geiga illilega. Mér líkar stórum illa við Þig, Þegar Þú flokkar Þig undir naflaskoðara í grein Þinni. Ég harðneita að viðurkenna að Þú sért í Þeim flokki. Ekki með Þeim stofukommúnistum sem verið hafa aö skrifa að undanförnu í Þjóðvilj- ann með einkarétt á rót- tækni. Það er yfirleitt fólk sem aldrei er hægt að reiða sig á Þegar mikið liggur við, hvað þá að Þú kynnist Því í hinu daglega stríðandi lífi eða önn dagsins. Þá er Það í naflaskoöun. Ekki ert Þú á kynlífs- síðu Þjóðviljans sem lengi er búin að vera aðhlátursefni lands- manna og hefur haft mál- gagn sósíalista aö fífli, allt of lengi. Meira að segja er svo langt gengið aö kynvilla er orðin bar- áttumál. — Nú, ekki ertu heldur í Þeim flokkinum, Þar sem bóhemar og hassistar í Kaupmanna- höfn, sem flestir lifa á atvinnuleysisstyrkjum sem greiddir eru af danskri verkalýðshreyf- ingu, eru dýrkaðir sem dæmi um fagurt sósíal- ískt mannlíf með Þeim endemum að mesta furða er að unnendur Þjóövilj- ans skuli ekki ýmist vera búnir að segja blaðinu upp eða lagstir í allsherj- arfyllerí út af Þeim trakt- eringum sem blaðið hef- ur boðið lesendum sínum upp á. Er Þó fátt eitt nefnt.“ „Fullur vilji“, en lítil geta Forsíða Tímans var helguð Tómasi Árnasyni í gær af Því tilefni, að hann haföi fundið lönd, Þar sem skattheimtan væri meiri en hér. Og eins og Þar kemur fram er fjár- málaráöherrann mjög hugsandi yfir Þessu eins og honum finnist hann ekki hafa staðið sig nógu vel í skattheimtunni, enda segir hann: „Ég get vel skiliö að fólki Þyki verra (sic) að Þurfa að greiða háa skatta en í Því sambandi vaknar sú spurning, hvað eru háir skattar eöa hvort íslend- ingum er yfirleitt gert að greiða háa skatta." Nú veit Tómas Það allra manna bezt, að síö- an hann tók viö lykli ríkiskassans hefur skatt- heimtan aukizt verulega frá því sem áður var og um leið hefur staða ríkis- sjóðs farið versnandi. Og við því sér hann ekki nema eitt ráö, enda snú- ast ríkisstjórnarfundirnir um Það núna, hvernig hægt sé að komast dýpra ofan í vasa skattborgar- anna, pví að um sparnaö í ríkisrekstrinum er vita- skuld ekki að ræða. Tómas segir að vísu, að „mikil áherzla" sé á Það lögð af „hálfu ráðuneytis síns“ að halda sparlega á ríkisútgjöldunum og aö „fullvíst" sé að ráðherrar hafi „fullan vilja á aöhaldi í Þessum efnum. Þó gætti óneitanlega tregðu í kerf- inu,“ segir hann. Og Þaö Þýöir á mæltu máli, að ráðherrarnir hafa skellt skollaeyrum við Þeim niðurskurði á útgjöldum ríkisíns, sem AlÞingi fól Þeim að gera í vetur. Brldge Bikarkeppni Bridgesambandsins DREGIÐ hefur verið í 3. umferð bikarkeppninnar og eiga þessar sveitir að spila saman, fyrri sveit á heimaleik. Sveit Páls Bergssonar, Rvk. — Sveit Vigfúsar Pálssonar, Rvk. Sveit Hjalta Elíassonar, Rvk. — Sveit Ingimundar Árnasonar, Tryggva Bjarnasonar, Rvk. Sveit Oðals, Rvk. — Sveit Sævars Þorbjörnss., Rvk. Sveit Sig. B. Þorsteinss., Rvk. — Sveit Þórarins Sigþórss., Rvk. Einum leik úr 2 umferð er enn ekki lokið, leik sveitar Ingimundar Árnasonar, AK. við sveit Tryggva Bjarnasonar, Rvk. 3. umferð skal lokið 26. ágúst n.k. Fyrirliðar sveita, munið að greiða keppnisgjald- ið. Fyrsta ljóða- bók ungs skálds „KERTALOG í fjarska11 nefnist ný ljóðabók eftir nítján ára Akureyring sem nefnir sig Pétur Svarfaðar- dal. Þetta er fyrsta ljóða- bók höfundar. Bókin er 73 blaðsíður og inniheldur rúmlega 50 ljóð. „Kertalog í fjarska“ er búin til prent- unar og gefin út af höfundi sjálfum. BIL _ TÆKIN SEM FARA SIGURFÖR Útvarp Segulband UM HEIMINN ROA RS-2B50 Með hagstæðum samningum við verksmiðjurnar getum við boðið betta tæki fyrst um sinn á mjög hagstæðu verði: 109.680 DSTAR ísetning á staðnum. Hátalarar og bílloftnet í úrvali BUÐIN 29800. Skipholti 19 Allt í einu tæki vött sínus 24 PÍERRE RobERT Beauty Care — Skin Care NÝJU SNYRTIVÖRURNAR FRÁ PIERRE ROBERT. Andlitssnyrtivörur og fullkomlega ofnæmisprófuð húðkrem í hæsta gæðaflokki. Komið og kynnist þessum frábæru snyrtivörum 16. og 17. ágúst kl. 1—6 í Verzluninni Bonny Laugavegi 35. Ragnhildur Björnsson verður stödd þar, og leið- beinir um val og notkun Pierre Robert snyrtivara. Komið, kynnist og sannfærist. '""'cl&meriókci" TunguhálsiH, R. Sími 82700 (T PORTISA 29800 Skipholti19 rennur út. Hremmið tæki á lága veröinu. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐENU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.