Morgunblaðið - 17.08.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979
11
Framleiðsla OPEC-
ríkjanna mun ekki
aukast fram til 1985
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig olíuframleiðslan í
heiminum skiptist milli hinna einstöku framleiðslulanda.
Nær línuritið allt fram til ársins 1985. Athyglisvert er að
samdrætti OPEC-ríkjanna 1973—77 hefur ekki verið
mætt meö aukinni framleiðslu annarra þjóða en þær
munu þó samkvæmt línuritinu framleiða þá aukningu
sem verður á heimsframleiðslunni fram til ársins 1985.
Heimild Business Week.
Ahrifa þorskastríðs-
ins gætir enn
Aldrei fór það svo að erlendir aðilar gætu ekki hagnast
eitthvað á þorskastríðinu síðasta. Um þessar mundir er
Fredrikshavnskipasmíðastöðin í Danmörku að vinna að
smíði varðskips sem hannað hefur verið með tilliti til
þeirrar reynslu sem fékkst í þorskastríðinu. Er hér um
335 tonna skip að ræða, hannaö af breskum aðila,
Thorycroft, og hefur salan gengið allvel.
Staða pundsins
síf ellt sterkari
Ef dæma má af myndinni þá hefur pundið sífellt
verið að bæta stöðu sína gagnvart dollar á þessu ári.
Sú sterka staða sem þýska markið, yenið og
svissneski frankinn höfðu gagnvart dollar í lok
síðasta árs hefur hins vegar veikst nokkuð.
Myndin sýnir hlutfallslegar breytingar ýmissa
gjaldmiðla gagnvart dollar og er miðað við 4. janúar
1978.
RALL
Fjölskylduskemmtanir
í Sýningarhöllinni —
Ártúnshöfða
í kvöld föstudag kl. 20.30
LÍÓSÍn Óðals — diskó dans og tízkusýning
J Vilhjálmur Ástráðsson plötuþeytir
f Bænum Edda Andrésdóttir kynnir.
ANNAÐ KVÖLD
Óöals disco stuö
Ljósin í Bænum
Magnús og Jóhann leika og syngja
Video
Tískusýning — Model ’79
Óöals — Disco — dans
Plötuþeytir Vilhjálmur Ástráösson
Kynnir Edda Andrésdóttir
Strætisvagnaferðir frá Hlemmi bæði
kvöldin. Fyrsta ferð kl. 20.10.
Ýmislegt til skemmtunar bæöi kvöldin og um helgina m.a. Sýning á
nýjum og fornum bílum — vélhjólum — flugmodelum o.fl.o.fl.
Leiktæki fyrir yngstu kynslóöina. Veitingar.