Morgunblaðið - 17.08.1979, Page 15

Morgunblaðið - 17.08.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 15 SAS kaupir Boeing 747 SAS flugfélagið hefur nýverið gert samninga við Boeingflug- vélaverksmiðjurnar um kaup á tveimur Boeing 747 Júmbóþot- um. Vélarnar verða afhentar fél- aginu í október 1980 og í ársbyrj- un 1981. Auk þess hefur félagið gert óformlegan samning um kaup á fimm vélum til viðbótar af sömu tegund til afhendingar 1982— 1984. Sá samningur hefur ekki verið staðfestur ennþá. Að sögn talsmanna félagsins munu hinar nýju þotur einkum ætlaðar til flugs milli Skandinavíu og Norður-Ameríku. Diefenbaker lézt í gœr Ottawa 16. ágúst. AP. JOHN Diefnbaker fyrrver- andi leiðtogi kanadíska íhaldsflokksins og forsætis- ráðherra lézt í Ottawa í dag 83 ára gamall. Banamein Dief- enbakers er talið hafa verið hjartaáfall. Diefenbaker var fyrst kjör- inn á þing árið 1940 og hefur verið endurkjörinn allar götur síðan. Hann var leiðtogi flokksins í rúman áratug og flokkurinn náði meirihluta á þingi 1957 eftir nær tveggja áratuga stjórn Frjálslynda flokksins. í þau fimm ár sem Diefen- baker var forsætisráðherra vann hann það sér helzt til ágætis að reisa efnahag ríkis- ins við eftir mikla óáran. Nýr forseti Nígeríu London, 16. ágúst. AP. ALHAJI Shehu Shagari fyrrver- andi fjármálaráðherra Nígeríu var í dag kosinn forseti landsins, sem er hið fjölmennasta í Afríku að því er fréttir þaðan herma. Shagari, sem er 54 ára gamall kennari, var yngstur þeirra sem sóttust eftir embættinu, en þeir voru fimm. Veður hamlar leit 17 lík þegar fundin Playmuuth, Englandi. 16. ágúst. AP. MIKIÐ óveður gekk yfir suð- vesturhluta Englands og ír- lands í dag svo að hætta varð frekari leit að siglingamönn- um, sem enn er saknað frá því fyrr í vikunni þegar mikill stormur gekk yfir svæðið. begar hafa fundist 17 lík, en áhafna níu báta er ennþá saknað. Þrettán þeirra sem fundist hafa eru Bretar, einn er Bandaríkjamður og einn Hol- lendingur. Tveir hafa ekki þekkst. Allir siglingamennirn- ir sem fórust voru þátttakend- ur í mikilli siglingakeppni sem fer fram annað hvert ár á þessum slóðum. Þegar veður fór að breytast til hins verra um miðjan dag í dag var öllum skipum og flug- vélum þegar skipað að halda heim á leið og yfirmaður björg- unarsveita hersins sagði það mildi, að ekki skyldu verða óhöpp hjá flugvélum, sem margar hverjar eru engan veg- inn undir það búnar að fljúga í stormi eins og skall á í dag. Veður víða um heim Akureyri 10 léttskýjað Amsterdam 18 skýjaó AÞena 30 heiÓ8kírt Barcelona 25 léttskýjaó Berlín 30 heiðskirt BrUssel 22 heiðskírt Chicago 20 skýjað Frankfurt 22 rigning Genf 21 rigning Helsínkí 24 heiðskírt Jerúsalem 28 skýjað Jóh.borg 16 skýjað Kaupm.höfn 23 heiðakírt Lissabon 23 heiðskirt Las Palmas 22 skýjað London 21 heiðskírt Loe Angeles 26 heiðskirt Madríd 27 heiðakirt Malaga 27 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Miami 31 skýjað Moskva 23 heiðskirt New York 22 heiðskírt Ósló 17 skýjað Paris 19 heiöskirt Reykjavík 10 léttskýjað Rio de Janeiro 31 skýjað Rómaborg 32 heiðsktrt Stokkhólmur 22 heiðskírt Tel Aviv 29 akýjað Tókýó 33 skýjað Vancouver 20 skýjað Vinarborg 28 heiðskírt „Y oung trúði á tilveru- rétt Palestínumanna” New York, Beirut, Tel Aviv, 16. ágúst. AP. Reuter. „ANDREW Young sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum var neyddur til að segja af sér einfaldlega vegna þess að hann trúði á tilverurétt Palestínumanna,“ sagði Yasser Arafat í tilkynningu sem PLO-skæruliðasamtökin sendu frá sér í kjölfar afsagnar Youngs í gær. í tilkynningunni segir ennfrem- ur að sú aðferð sem beitt var við að neyða Young til að segja af sér, jafnist við verstu aðferðir nazista og væru „ljótt dæmi“ andlegra hryðjuverka. Síðar í tilkynning- unni var Young mjög hælt fyrir afstöðu hans í málefnum Pale- stínuaraba. Talsmaður Hvíta hússins sagði í dag, að eftirmaður Youngs yrði valinn að vel yfirlögðu ráði, en ekki í neinum flýti, þannig að ljóst er að hann mun verða fulltrúi Bandaríkjanna þegar málefni Palestínumanna verða til sér- stakrar umfjöllunar hjá Samein- uðu þjóðunum í næstu viku. — Þá var haft eftir Young í morgun að hann teldi fráleitt að friður kæm- ist nokkurn tíma á í Mið-austur- löndum án samráðs við Palestínu- menn. og þurfti þess vegna að segja af sér segir Yasser Arafat leið- togi PLO-skæruliða- hreyfingarinnar Viðbrögðin vegna afsagnar Youngs hafa mjög skipst í tvö horn, ýmist er lýst mikilli óánægju með hana eða menn lýsa ánægju sinni og telja hana jafnvel koma of seint. Flest ríki Afríku, að Suður-Afríku undanskilinni, hafa lýst óánægju sinni, enda hefur Young jafnan tekið upp hanskann fyrir þau á opinberum vettvangi. I Israel var lýst mikilli ánægju með afsögnina og sagt að hún hefði mátt koma fyrr. Þá er því sérstaklega lýst yfir í tilkynn- ingu ísraelsku stjórnarinnar að þetta mál muni ekki hafa nein áhrif á sambúð ísraelsmanna og Bandaríkjamanna. I óstaðfestum fréttum banda- ríska blaðsins Atlanta Constituti- on segir, að ísraelskir leynilög- reglumenn hafi undir höndum alla meginþætti samtals Youngs og PLO-manna, sem leiddi til afsagn- ar Youngs. kjarnorkustríði Hótaði Hanover, Vestur-Þýzkalandi, 16. ágúst. Reuter. NIKITA Kruschev fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna hótaði Vesturveldunum kjarnorku- strfði, aðeins mánuði áður en Berlínarmúrinn var reistur 13. ágúst 1961, að því er segir í nýútkomnu sagnfræðiriti eftir bandaríska sagnfræðinginn Catudal. Að sögn Catudals bar Krusch- ev fram þessa hótun við breska sendiherrann í Moskvu 2. júlí 1961. Hið nýútkomna sagnfræði- rit sem nefnist „Kennedy og Berlínarmúrinn", var styrkt af Volkswagensjóðnum og unnið í samvinnu við hann. Catudal segir að ummæli bandaríska þingmannsins Will- iam Fulbright hafi leitt til þess að múrinn var reistur. — Úm- mælin sem voru höfð eftir Fulbright í sjónvarpi voru: „Ég skil alls ekki hvers vegna Austur-Þjóðverjar loka ekki landamærum sínum, eins og þeir hafa fullan rétt til.“ Hugmyndir þess efnis að Ber- lín yrði skipt í tvennt með múr voru til umræðu hjá Vesturveld- unum allt frá árinu 1958 að sögn Catudals en menn trúðu því einfaldlega ekki að til þess þyrfti að koma. Þó hafði sá kvittur borist til Vesturlanda að Kruschev hefði þegar teiknað og látið hanna slíkan múr árið 1960. Þá segir í ritinu að þremur dögum eftir að Kruschev bar fram hótunina hafi einn aðal- ráðgjafi Kennedys, Arthur Schlesinger, átt viðræður við sovéskan diplómat, sem aðeins var nefndur Kornienko. Enn- fremur segir Catudal í riti sínu að Kennedy forseti hefði verið reiðubúinn til að hætta á stríð til að verja hagsmuni Vesturveld- anna í Berlín. Þetta gerðist 17. ágúst 1978 — Lýkur fyrstu loftbelgs- ferðinni yfir Atlantshaf er þrír Bandaríkjamenn lenda við París. 1976 — Um átta þúsund Filippseyingar farast í jarð- skjálfta og flóðbylgju sem kom í kjölfar hans. 1970 — Suleiman Franjieh tek- úr við af Charles Helous sem forseti Líbanons. 1969 — Philip Blaiberg, sá hjartaþegi sem lengst lifði, deyr í Höfðaborg. 1952 — Kínversk sendinefnd úndir forsæti Chou En-lais kem- ur til Moskvu. 1945 — Hollendingar neita að viðurkenna sjálfstæði Indónesíu. 1926 — Grikkir undirrita vin- áttusamning við Júgóslavíu. 1912 — Bretar senda frá sér órðsendingu þar sem þeir biðja Kínverja að senda ekki herlið í könnunarferð til Tíbets. 1815 — Napoleon Bonaparte kemur til St. Helenu. 1786 — Friðrik miklu Prússa- kóngur andast og við tekur Friðrik Vilhjálmur II. Afmæli: William Carey, brezkur trúboði — Mae West, bandarískt kyntákn á fyrstu árum aldarinn- ar — Joseph Dobrovsky, tékk- neskur spekingur. Andlát: Robert Blake, sjóliðsfor- íngi, 1657 — Friðrik mikli Prússakonungur 1786 — Honoré de Balzac, rithöfundur, 1850. Innlent: Bráðabirgðaúrskurður Álþóðadómstólsins um óbreytt ástand varðandi fiskveiðar Breta við ísland 1972 — d. Sveinbjörn Egilsson 1852 — f. Jón Árnason bókavörður 1819 — C.S. Klein (fyrsti íslandsráðgjafi) 1824 — Fjárnám í búi Skúla fógeta 1774 — Dómur í þriðja málinu gegn Sölva Helgasyni sem flyzt til Hafnar 1852 — f. Knud Ziemsen borgarstjóri 1875 — Gísli Jóns- son alþm. 1889.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.