Morgunblaðið - 17.08.1979, Síða 16

Morgunblaðið - 17.08.1979, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiðsla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjðrn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aðalstrieti 6, sími 22480. Sfmi 83033 Áskriftargja ild 3500.00 kr. é ménuöi innanlands. lausasölu 180 kr. eintakið. Victor Korchnoi Markaðshy ggj an í Bandaríkjunum Sama óróa og ópols vegna aukinna ríkisafskipta hefur gætt á sfðustu árum í Bandaríkjunum og í ríkjum Vestur-Evrópu. Skattborg- arar hafa risiö upp, neitaö aö greiöa kostnaöinn af „félagslegri" Þjónustu, sem sé bæöi dýr og slæm, og er skemmst að minnast sigurs peirra í Kaliforníu. Margir hagfræðingar hafa einnig gagnrýnt „velferöarríkiö“ bandaríska, segja, aö allar opinberu herferðirnar gegn fátækt og misrétti, sem farnar voru á sjöunda áratugnum í Bandaríkjunum, hafi veriö tilgangslausar, alls ekki bætt kjör fátæklinga eöa rétt hlut peirra, heldur aöeins aukiö vald skriffinna og skömmtunarstjóra ríkisins. Þeir segja, aö markaösöflin séu miklu skjótvirkari og mikilvirkari til kjarabóta alls almennings en ríkiö. Landflótta Sovétmaður, Victor Korchnoi, stórmeistari í skák, var staddur í Reykjavík sl. miðvikudag þeirra erinda að ræða við Friðrik Ólafsson, forseta FIDE. Leiða má að því líkur, að umræðuefni þeirra hafi fyrst og fremst verið þvinganir stjórnvalda í Sovétríkjunum gagnvart þessum landflótta skáksnillingi og tilraunir hans til að fá fjölskyldu sína frá Sovétríkjunum, en um þau mál hefur Friðrik Ólafsson fjallað sem forseti FIDE. Korchnoi sagði í viðtali við Mbl. í gær, að hann hefði miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni í Sovétríkjunum, sérstaklega þó syni sínum, sem hann sagði ofsóttan af stjórnvöldum þar í landi og hefði þess vegna farið huldu höfði í tæpt ár. „Ég vona samt, að allt fari vel og bind vonir við það, að Friðrik Ólafsson muni koma hér góðu til leiðar,“ sagði Korchnoi í samtalinu. Það er rétt að staldra við tvö mannréttindaatriði í þeirri fréttafrásögn, sem hér hefur verið vitnað til. í landi eins og okkar, þar sem allt að þriðjungur þjóðarinnar fer utan árlega, og ferðafrelsi er flokkað með frumréttindum hverrar manneskju, kemur það undarlega fyrir sjónir, að hægt skuli að halda fjölskyldu sundraðri gegn vilja hennar, og meina eiginkonu og börnum að fylgja maka og föður, ef hugur þeirra stendur til. Þvílíkir persónufjötrar falla ekki að íslenzkum hugsunarhætti eða þjóðareðli, þótt hluti séu af annars konar þjóðfélagsgerð en okkar. Hitt atriðið sker þó ekki síður í augu, að ungur maður fer huldu höfði í heimalandi vegna ofsókna stjórnvalda, sem eiga rætur í því einu, að almenn viðhorf föður hans og valdhafa fara ekki saman. Slíkt getur ekki gerzt nema í harðsvíruðum lögregluríkjum. Þessar staðreyndir, sem heimsókn Korchnoi til íslenzks forseta FIDE draga fram í dagsljósið, minna okkur á, að minnihluti mannkyns og þjóða býr við lýðræði og mannréttindi í vestrænum skilningi þeirra hugtaka. Þær hljóta einnig að hvetja til að lýðræðisþjóðirnar varðveiti sameiginlega þjóðfélagsgerð þegnréttinda og mannhelgi. Þjóðfélagsgerð okkar hefur að vísu ýmsa annmarka, en þann höfuðkost að geta þróazt frá þeim og til fegurra mannlífs á friðsaman hátt fyrir meirihlutaáhrif á vettvangi frjálsrar skoðanamyndunar, tjáningarfrelsis og almennra, leynilegra kosninga. Sérstaða Islands í skákheiminum, sem ekki þarf að orðlengja um, veldur því, að hingaðkoma og erindi Victors Korchnois hljóta að vekja alþjóðarathygli og almanna- viðbrögð. Heilbrigð réttlætiskennd getur ekki unað því, að hann fari erindisleysu í liðsbón í slíku mannréttindamáli. Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, heldur að sjálfsögðu þann veg á þessu máli, sem staða hans og aðstæður segja til um. Hann hefur hvarvetna komið fram til góðs í skákheimin- um. En til þess verður jafnframt að ætlast, að íslenzk stjórnvöld láti málið til sín taka eftir tilætluðum leiðum, og fylgi því eftir sem verða má. I þessu sambandi er rétt að minna á baráttu hérlendra aðila, m.a. stjórnvalda fyrir því, að píanósnillingurinn Ashkenazy fengi föður sinn í heimsókn til íslands. Sovézk stjórnvöld þráuðust lengi vel við þeim manneskjulegu tilmælum en létu um síðir undan. Ekki er minnsti vafi á því, að þrýstingur utan frá hefur haft margháttuð holl áhrif í Sovétríkjunum þegar málefni einstaklinga, sem þar hafa átt undir högg að sækja, hafa fengið nógu víðtækan utanaðkomandi stuðning. Ef mannréttindamál Korchnoi- fjölskyldunnar, sem nú hefur leitað stuðnings hér á landi, verða tekin upp með hliðstæðum hætti og krafti, höfum við a.m.k. lagt okkar lóð á vogarskálina, mannúðarmegin. Almenningur í landinu þarf að sjá svo um, að íslenzk stjórnvöld komist ekki hjá því að leggja sinn skerf af mörkum til þess að leysa vanda þessa iandflótta skáksnillings. Ný skoðun: markaðshyggja Sumir Bandaríkjamenn hafa misst trúna á það, að ríkið geti gegnt einhverju hlutverki betur en einstaklingar á frjálsum markaði, og segja jafnvel, að ríkið sé ónauðsynlegt! Þannig hefur kom- izt á óvænt bandalag með róttæk- um séreignarsinnum og stjórn- leysingjum, orðið til ný skoðun á stjórnmálum — að stjórnmál séu til einskis — sem nefna má „markaðshyggju". (Bandaríkja- menn nefna þessa skoðun „radical capitalism" eða „anarcho-capital- ism“.) Einn þessara markaðs- hyggjumanna er dr. David Fried- man. aðstoðarprófessor við Vir- ginia Polytechnic Institute and State University og höfur bókar- innar The Machinery of Freedom, sem kom út 1973 og aftur 1978. Hann er málshefjandi á málþingi Félags frjálshyggjumanna laug- ardaginn 18. ágúst í Leifsbúð Hótel Loftleiða, en það verður haldið frá kl. 10—18. Markaðshyggjumenn eru ekki á sama máli og frjálshyggjumenn, sem telja, að ríkið sé nauðsynlegt til þess að gæta öryggis borgar- anna, bæði réttaröryggis og ör- yggis um lágmarksafkomu, og að einstaklingsfrelsið verði að vera innan takmarka laga og velsæmis. Fremstu frjálshyggjumenn tutt- ugustu aldarinnar í Bandaríkjun- um eru sennilega Austurríkis- mennirnir Ludwig von Mises og Friedrich A. Hayek, sem báðir flúðu nazismann í Evrópu, og Milton Friedman (faðir Davids), en allir voru þeir prófessorar í hagfræði. (Hayek og Friedman eru hættir háskólakennslu vegna aldurs, en von Mises er látinn.) Kenning þeirra þriggja um hlut- verk ríkisins er svipuð kenningu frjálslyndra manna (líberalista) nítjándu aldarinnar, þótt mörg rökin fyrir henni hafi breytzt og hún verið löguð að nýjum tíma. Segja má, að markaðshyggjumenn taki undir rök von Misess, Hayeks og Friedmans fyrir markaðskerf- inu og gegn miðstjórnarkerfinu, en noti þau miklu víðar, gangi miklu lengra í átt að einstak- lingsfrelsinu. í hópi markaðshyggjumanna er dr. Murray Rothbard, prófessor við New York-háskóla, sennilega þekktastur, en í þeirri kennslubók í hagfræði, sem kennd er í Við- skiptadeild Háskóla íslands, segir: „Margur efasemdamaðurinn, sem hefur eytt nokkrum stundum í að lesa markaðshyggjurit eins og For á New Liberty eftir Murray Rothbard, hefur sannfærzt um það, að lögmál einkarekstursins má nota miklu víðar en honum hafði áður komið í hug.“ Þessi bók Rothbards kom út 1973. Hagfrœðiprófessorinn Ludwig von Mises færöi rök fyrir frjáls- hyggju og gegn sósíalisma í tveimur meginritum sínum, SOCIALISM (1936) og HUMAN ACTION (1949). Skoðun Davids Friedmans Markaðshyggjumenn eru mjög afdráttarlausir. David Friedman segir í bók sinni: „Meginhugmynd okkar er sú, að menn megi lifa því lífi, sem þeir kjósa. Við höfnum með öllu þeirri hugmynd, að menn verði að vernda fyrir sjálfum sér með valdi. í óskalandi okkar eru engin lög til gegn fíkniefnum, fjárhættuspili eða klámi og menn ekki skyldaðir til þess að nota öryggisbelti við bifreiðaakstur. Við höfnum einnig þeirri hug- mynd, að einn maður eigi heimt- ingu á einhverju frá öðrum — öðru en því að fá að vera í friði. í óskalandi okkar eru engar ríkis- reknar tryggingar. Menn, sem kjósa að hjálpa öðrum, gera það sjálfir, en afla ekki fjár til þess frá skattborgurunum með hótun- um. Menn, sem kjósa afkomu- öryggi í ellinni, kaupa ellitrygg- ingar af einkafyrirtækjum." Flestir telja þessar skoðanir markaðshyggjumanna sennilega ómannúðlegar, en David leiðir rök að því í bókinni, að einstakling- arnir — ekki sízt fátæklingar — geti miklu betur sinnt óskum sínum í séreignarkerfi en sam- eignarkerfi og það sé því í raun- inni mannúðlegra. Hann gagnrýn- ir tilraunir bandaríska ríkisins til tekjujöfnunar og segir, að þær nái síður en svo tilgangi sínum, hafi jafnvel þveröfugar afleiðingar. Hann notast við rannsóknir sagn- fræðinga og hagfræðinga eins og T.S. Ashton, Yale Brozen, George Stigler og Milton Friedman, en þær sýna, að kjör almennings bötnuðu við iðnbyltinguna, að heimskreppan um 1930 var fremur vegna of miklar hagstjórnar en of lítillar og að flestar eða allar Nóbelsverðlaunahafinn og frjálshyggjumaðurinn Friedrich A. Hayek samdi bókina THE ROAD TO SERFDOM (1944), en útdráttur hennar hefur komið út á íslenzku: LEIÐIN TIL ÁNAUÐAR (1946 og 1978). „félagslegar" aðgerðir hafa mis- tekizt. Hann er jafnákafur stuðn- ingsmaður frjálss atvinnulífs og frjálss einkalífs. Friedman deilir á sósíalismann í bók sinni. Hann segir: „Flestar MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 17 tegundir sósialisma fela það i sér, að fullt samkomulag sé um eitt markmið. Allir eiga að vinna saman að dýrð þjóðarinnar, heill almennings eða einhverju öðru, og allir eiga að vera sammála um það, hvert þetta markmið sé. Vandi hagfræðinnar, sem er venjulega sagður sá að ráðstafa takmörkuðum lífsgæðum í þágu ólíkra markmiða, er ekki til. Hagfræðin er einungis talin glíma við þann tæknilega vanda, hvernig bezt megi nota ráðstöfunargæðin í þágu hins eina markmiðs. En í skipulagi einkarekstursins er gert ráð fyrir því, að menn setji sér ólík markmið og að stofnanir verði að taka tillit til þess.“ Og hann bendir á eitt umhugsunarefni fyrir sósíalista. „Menn, sem dreymir um sósíalisma, leiða sjaldan hugann að þeim mögu- leika, að allir hinir neyði fremur dreymendurna til að fylgja sér að markmiðum sínum en öfugt. hvað sem er. En ef matarbirgðun- um er dreift til hundrað manna, getur enginn þeirra fengið mig til þess að gera mjög mikið. Ef einn þeirra reynir það, get ég náð betri samningum við einhvern annan þeirra." Friedman gerir greinarmun á því, sem sé framkvæmanlegt nú til þess að takmarka ríkisvaldið og virkja markaðsöflin, og hinu, sem sé hugsanlegt í framtíðinni. Og að sögn hans er margt hugsanlegt í framtíðinni, sem öðrum en mark- aðshyggjumönnum kemur senni- lega á óvart, svo sem að allir skólar, vegir og sjúkrahús verði í einkaeign og að lögregla og her verði rekin af einkafyrirtækjum, en ekki af ríkinu, menn kaupi sér vernd, en séu ekki skattlagðir hennar vegna! (Athuga ber, að hann segir, að þetta sé hugsan- legt, en ekki, að það sé fram- kvæmanlegt.) Segja má, að mark- aðshyggjumönnum sé ekkert það heilagt, sem ríkið gerir nú. Gagnrýni frjálshyggjumanna Frjálshyggjumenn í Bandaríkj- unum hafa margir deilt á mark- aðshyggjumenn, segja, að þeir séu blindir hatursmenn alls ríkisvaids og gangi allt of langt í áttina að einstaklingsfrelsinu, leggi of mikla áherzlu á frjálslyndi, en of litla á heilbrigða íhaldssemi. Þeir telja markað'shyggjumenn ekki skilja nægilega vel þá hættu, sem sé af glæpamönnum, hryðjuverka- mönnum og kommúnistum — ekki skilja lífsnauðsyn sterkra varna, bæði innanlands og utan. (Mark- aðshyggjumenn hafa efazt um þessa nauðsyn varna og eru sumir jafnvel einangrunarsinnar, á móti afskiptum Bandaríkjamanna af þessarar greinar. Þær eru til marks um það, að nýtt líf hefur hlaupið í stjórnspekina í Banda- ríkjunum. Og rökræðurnar hafa færzt af vettvangi ríkisafskipta- sinna á vettvang einkaframtaks- manna: Ekki er lengur spurt, hvort. heldur hvernig á að draga úr valdi ríkisins. Grein Friedmans um íslenzka þjóðveldið íslendingar hafa þó sennilega mestan áhuga á því, sem David Friedman hefur ritað um íslenzka þjóðveldið 930—1262. Hann reit greinina Private Creation and Enforcement of Law: a Historical Case í marzhefti tímaritsins The Journal of Legal Studies 1979, sem lagadeild Chicago háskóla gefur út. í þessari grein ræðir hann um réttarkerfi þjóðveldisins og segir: „Þjóðskipulag Islendinga Nóbelsverðlaunahafinn og frjálshyggjumaðurinn Milton Friedman samdi bókina CAPI- TALISM AND FREEDOM (1962). Hann hefur rannsakað rækilega misheppnaöa hagstjórn banda- ríska ríkisins. George Orwell er eina undantekn- ingin, sem ég man eftir." Og hann segir: „Valdið minnkar, þegar því er dreift. Ef einn maður á allar matarbirgðirnar, getur hann feng- ið mig til þess að gera næstum því Dr. Murray Rothbard, prófessor við New York-háskóla, er mjög umdeildur, enda róttækur markaðshyggjumaöur, sem gengur miklu lengra en frjáls- hyggjumenn í átt að einstakl- ingsfrelsi. David Friedman, sem er máls- hefjandi á málpingi Félags frjálshyggjumanna á morgun, laugardag, hefur samið bókina THE MACHINERY OF FREE- DOM og grein um íslenzka pjóðveldið. Dr. David Friedman, aöstoðar- prófessor við Virginia Poly- technic Institute and State Uni- versity og sonur Miltons Fried- mans, er fremur markaös- hyggjumaöur en frjálshyggju- maður í hefðbundnum skiln- ingi. stjórnmálum í öðrum löndum.) Frjálshyggjumenn segja einnig, að markaðshyggjan sé óraunhæf og að hið hreina markaðskerfi sé einungis líkan eða viðmið, en eigi ekki að vera skurðgoð. ^ Um það efast frjálshyggumenn þó ekki, að spurning markaðs- hyggumanna: „Er ríkið nauðsyn- legt?“ — kemur að kjarnanum og að henni ber að svara með rökum. Ári eftir útkomu bóka Davids Friedmans og Murrays Rothbards kom út bókin Anarchy, State and Utopia eftir frjálshyggjumanninn Robert Nozick, prófessor í heim- speki við Harvardháskóla. Nozick leiðir rök að því í henni, að lágmarksríkið — réttarríkið í skilningi frjálshyggjumanna — brjóti ekki þann sjálfsákvörðun- arrétt einstaklinganna, sem stjórnleysingjar og markaðs- hyggjumenn hafi áhyggjur af. Hann segir, að Friedman verji markaðshyggjuna af „miklum þrótti", þótt hann sé ekki sam- mála honum. Að dómi margra fræðimanna svarar Nozick mark- aðshyggjumönnum mjög vel, en bók Nozicks hefur líklega vakið meiri athygli en nokkur önnur um stjórnspeki síðustu árin. Fridreich A. Hayek segir (í formála hinnar þýzku útgáfu bókar Nozicks), að hún og tvær aðrar bækur, A Theory of Justice eftir John Rawls og On Human Conduct eftir Michael Oakeshott, séu merkustu nýjungar í stjórnspeki í áratugi. Allar þessar rökræður eru að minnsta kosti til marks um þann óróa vegna aukinna ríkisafskipta sem minnzt var á í upphafi Frjálshyggjumaðurinn Robert Nozick, prófessor í heimspeki við Harvard-háskóla, svarar markaðshyggjumönnum mjög vel í bók sinni, ANARCHY, STATE, AND UTOPIA (1974). á miðöld hefur nokkur mjög sterk sérkenni. Það er næstum því eins og það hafi verið reist af einhverj- um brjáluðum hagfræðingi til þess að láta á það reyna, hvar einstaklingarnir sjálfir gætu gegnt frumskyldum ríkis. Mann- víg var einkamál og kostaði gjald, sem goldið var ættingjum hins vegna. Lög voru sett af þingi, þar sem þingsætin (goðorðin) voru markaðsvara. Framkvæmd laga var í einu og öllu mál einstakling- anna. Og þó stóð þetta sérkenni- lega þjóðskipulag í þrjár aldir, og þjóðlífið var, að því er virðist, í mörgu til fyrirmyndar. Borgar- arnir voru frjálsari og stöðumun- ur minni vegna kyns og ættar en í öðrum löndum á miðöld, og bók- menntasköpun íslendinga hefur, þegar miðað er við mannfjölda, með nokkrum rökum verið borin saman við sköpun Aþenubúa í fornöld." Friedman segir, að eitt skilyrði fyrir þessu þjóðskipulagi hafi ver- ið, að valdinu var dreift, goðorðin í eign margra. Hann bendir á það að líklega hafi ekki fleiri verið vegnir hlutfallslega á íslandi á þjóðveldisöld en nú í Bandaríkjun- um, og ræðir galla kerfisins ræki- lega, svo sem þann að þeir voru varnarlitlir, sem lítið áttu undir sér. Hann segir í greinarlokin: „Hvað sem segja má annað um réttarkerfið íslenzka, vitum við eitt: Það stóðst í þrjú hundruð ár. Og til þess að það stæðist, varð að leysa innan þess þau vandamál, sem felast í kerfi, þar sem fram- kvæmd laganna er mál einstak- linganna. Verið getur, að þær jausnir sé nú ekki hægt að nota, en þær eru þó enn áhugaverðar." Frá Minn- ingarsjóði dr. Victors Urbancic STJÓRN Minningarsjóðs dr. Victors Urbancic hefur beðið Mbl. að birta eftirfarandi: Minningarsjóði dr. Victors Ur- bancic hefur frá upphafi verið ætlað það hlutverk að stuðla að bættri þjónustu við sjúklinga á sviði tauga- og heilaskurðlækn- inga. Hefur hann á umliðnunr árum m.a. styrkt lækna eða hjúkr- unarfólk til sérnáms á þessu sviði, veitt fé til kaupa á sérfræðiritum o.fl., en í fyrra ákvað stjórn sjóðsins að veita fjárhæð sem fyrsta stofnframlag til kaupa á rannsóknartæki, sem á íslensku hefur verið nefnt tölvusneið- myndatæki og grein var gerð fyrir í fréttauka ríkisútvarpsins nú fyrir nokkrum dögum með viðtali við sérfróðan lækni um þessi tæki, Örn Smára Arnaldsson. Eins og þar kom fram hafa tæki þessi valdið byltingu í rannsókn- um á heila og raunar fleiri líffær- um og rutt sér mjög til rúms erlendis, t.d. í nágrannalöndum okkar. Tæki þessi eru mjög af- kastamikil, en hins vegar afar dýr, og hefur af þessum sökum ekki verið keypt slíkt tæki hingað til lands enn sem komið er, en sjúkl- ingar, sem rannsaka hefur þurft, orðið að sæta ófullkomnari rann- sóknum hér heima eða fara til útlanda til rannsókna, sem er bæði kostnaðarsamt og mikið álag á sjúklinginn, sem kunnugt er. Sjóðurinn setti sér það mark í fyrra að hefja herferð með fjár- söfnun til að flýta fyrir því, að þetta þjóðþrifamál komist í höfn svo fljótt sem kostur er. í því Dr. Victor Urbancic. skyni veitti stjórn sjóðsins fyrsta framlag í fyrra, svo sem áður er rakið, kr. 160.000, en auk þess söfnuðust kr. 100.000 til viðbótar þegar í stað meðal velunnara sjóðsins og almennings. Eru fram- lög enn að berast, og má þar fyrst og fremst nefna myndarlegt fram- lag Þjóðleikhússkórsins, sem dr. Urbancic stjórnaði áður fyrr, enda er kórinn stofnaðili að sjóðnum. Nú í ár hefur enn verið veitt framlag af fé sjóðsins til þessa máls, kr. 100.000. En betur má, ef duga skal. Hugmyndin með þessu framlagi er fyrst og fremst sú að ýta við bæði stjórnvöldum og almenningi í þessu þarfa máli, eins og fram kom í áðurnefndu fréttaviðtali. Menn skyldu minnast þess, að það, sem þeir leggja af mörkum fyrir aðra í þessu skyni nú, getur komið þeim sjálfum til góða síðar. — Framlögum er veitt móttaka í Bókaverslun ísafoldar, Austur- stræti 10, og Bókaverslun Snæ- bjarnar, Hafnarstræti 4. Geta má þess, að framlög til sjóðsins eru nú frádráttarbær til skatts, enda sé framvísað kvittun fyrir framlag- inu. F.h. stjórnar MinninnarsjiWins: Þorateinn Sveinsaon formaAnr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.