Morgunblaðið - 17.08.1979, Qupperneq 32
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979
á ritstjórn og skrifstofuí
10100
Sími á afgreiöslu:
83033
JW*r0unb!nl>il)
Viðræðurnar hefjast i Reykjavík 29. ágúst:
Loðnuafiinn gæti
náð 120 þúsund 1.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að formleííar samningaviðræður íslendinga og
Norðmanna um Jan Mayen haldi áfram í Reykjavík 29. ágúst næstkom-
andi. Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra sagði í gær að verið væri
að athuga möguleika á því. að Hans G. Andersen hafréttarfræðingur yrði í
Reykjavík meðan viðræðurnar við Norðmenn færu fram.
Eins og fram hefur komið verður Matthías Bjarnason fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í viðræðunefndinni. Af hálfu Alþýðubandalagsins
tekur ólafur Ragnar Grímsson þátt í viðræðunum og líklegt er að
ráðherrarnir Bcnedikt Gröndal og Kjartan Jóhannsson taki báðir þátt í
þeim. Ekki hefur verið ákveðið hver verður fulltrúi Framsóknarflokksins,
en í gær var talið að það yrði Þórarinn Þórarinsson, svo fremi sem fundi
Hafréttarráðstefnunnar 1' New York yrði iokið.
Kjartan Jóhannsson var spurður
að því í gær hvort íslenzk stjórnvöld
myndu greina öðrum þjóðum frá
viðhorfum íslendinga áður en við-
ræðurnar hefjast, eins og Jens Even-
sen hefur verið falið að kynna
Sovétmönnum og ríkisstjórnum
Efnahagsbandalagslanda af hálfu
Norðmanna. — Eg tel ekki að við
þurfum að hlaupa til annarra þjóða
til að spyrja þær ráða í þessum
efnum eða til að tilkynna þeim
áform okkar. Málið verður undirbúið
með venjulegum hætti af hálfu
Utanríkis- og Sjávarútvegsráðuneyt-
anna, sagði Kjartan Jóhannsson.
í Noregi hafa bæði Norges Fiskar-
lag og Samtök útgerðamanna beint
þeim tilmælum til sjómanna við Jan
Mayen, að þeir virði reglugerðir, sem
stjórnvöld ákveði. Um leið vinna
þessi samtök að því, að fá stjórnvöld
til að breyta ákvörðun sinni þannig,
að þeir bátar, sem látið hafa úr höfn
á hádegi á laugardag, megi fá
fullfermi í skip sín áður en þeir
halda heim á leið. Norsk stjórnvöld
hafa hins vegar tilkynnt íslending-
um að loðnuveiðarnar verði endan-
lega stöðvaðar á Jan Mayen-svæðinu
frá og með næstkomandi mánudegi.
í gærkvöldi hafði verið tilkynnt
um 76 þúsund tonna loðnuafla við
Jan Mayen. Ef norsk stjórnvöld
leyfa að bátarnir taki fullfermi gæti
loðnuaflinn samtals orðið 120 þús-
und tonn. Reiknað er með, að um
helgina verði ákveðið hvort breyting
verður á fyrri tilkynningum stjórn-
valda.
N epalkonungur
gistir ísland um
næstu mánaðamót
BIRENDRA Bir Bikram konung-
ur Himalajaríkisins Nepal mun
koma til íslands þann 31. ágúst
næstkomandi á leið sinni til Hav-
ana á Kúbu. Mun konungurinn
gista hér eina nótt ásamt föruneyti
sfnu, en með honum í förinni verða
milli 40 til 50 manns, að þvf er
Pétur Thorsteinsson sendiherra
tjáði blaðamanni Morgunblaðsins
í gærkvöldi.
Birendra Bir Bikram konungur
millilendir hér á leið sinni á ráð-
stefnu í Havana, en hana sækja
fulltrúar ríkja sem standa utan
bandalaga. Hingað kemur konung-
ur á einkaþotu sinni frá Amster-
dam í Hollandi, og heldur héðan
áleiðis til Kúbu með millilendingu í
Kanada. Að sögn Péturs Thor-
steinssonar hafa þegar verið gerðar
ráðstafanir með að útvega konungi
gistirými, og mun hann dvelja á
Hótel Sögu og Hótel Holti ásamt
föruneyti sínu. Konungur mun síð-
an aftur gista ísland á leið sinni
heim frá Kúbu, tíu dögum síðar.
Ekki er gert ráð fyrir að Nepals-
konungur hitti neina íslenska ráða-
menn á för sinni, og hann greiðir
sjálfur allan kostnað vegna dvalar
sinnar hér á landi.
Þau voru hin spökustu. folöldin tvö, þegar Ragnar Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa hlýlegu
mynd, enda sólskin f haga og prútt á völlum.
Einn helzti áhrifamað-
ur S-Arabíu í leyfi hér
FAISAL prins af Saudi-Arabíu
kemur til íslands f sumarleyfi í
byrjun september. Mun hann dvelja
hér að minnsta kosti 2—3 vikur, að
sögn starfsmanns úr konungshirð-
inni í Saudi-Arabíu, Salim A.
Yones, sem verið hefur hér undan-
farna dega að undirbúa komu
Faisals.
Yones sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að Faisal prins myndi
koma hingað ásamt eiginkonu sinni
og fjórum börnum. Með í förinni
verða ritari hans og barnfóstrur, auk
öryggisvarða. Hann sagði að Faisal
hygðist nota tímann vel, ferðast um
landið og njóta fegurðar þess og
hreinleika. „Við reyndum að fá
einbýlishús undir prinsinn og fylgd-
arlið hans, en því miður virðist
ekkert liggja á lausu á þessum
árstíma," sagöi Yones. „Ég hef rætt
við yfirmenn Hótels Sögu og Hótels
Loftleiða og mun prinsinn að öllum
líkindum verða á öðru hvoru þessara
hótela, þann tíma sem hann dvelur
hér, en frá því er ekki að fullu
gengið.“
Yones sagðist hafa ferðast nokkuð
um til að skoða, meðal annars farið í
flugferð yfir Reykjavík og nágrenni.
Hann sagðist hafa sagt prinsinum
að landið væri eins fallegt og
Reykjavík eins hrein og þeir hefðu
heyrt. Faisal hlakkaði því mjög til
komunnar. Hann sagði að Ingólfur
Guðbrandsson væri honum til ráðu-
neytis um skipulag dvalar Faisals
prins.
Faisal er 47 ára gamall og sonur
Faisals fyrrverandi konungs sem
myrtur var af frænda þeirra fyrir
nokkrum árum. Khalid konungur í
Saudi-Arabíu er náfrændi hans, og
Saud bróðir hans er utanríkisráð-
herra. Sjáifur er prinsinn einn
virtasti og valdamesti meðlimur
konungsfjölskyldunnar og ekki ólík-
legur erfingi krúnunnar. En í
Saudi-Arabíu velur konungurinn
arftaka sinn úr röðum konungsfjöl-
skyldunnar. Faisal er lögfræðingur
að mennt og sérfræðingur á sviði
þjóðaréttar, hann stundaði nám sitt
í Cambridge.
Fyrstu skipin á leið á loðnumiðin:
Ekkert ákveðið með
vemdunaraðgerðir
FYRSTU loðnubátarnir halda í
dag á loðnumiðin, en loðnuveiðar
mega hefjast á mánudaginn.
Reiknað er með að 50—60 skip
fari á loðnuveiðarnar, en fyrstu
Bonny slapp naumlega úr Ermarsundsóveðrinu:
Hjátrú skipverja bjargaði þeim
„HEFÐUM við ekki verið svona
hjátrúarfull og beðið með að
leggja upp þar til að morgni 13.
ágúst, þá hefðum við verið á
miðju Ermarsundinu, þegar
óveðrið skall á og efast ég um, að
ég væri þá að tala við ykkur
núna,“ sagði Gunnar Þórðarson
skipstjóri á Bonny í samtali við
Mbl. í gær, en hann og eiginkona
hans Kristín Hálfdánsdóttir voru
hætt komin úti fyrir strönd
Frakklands f mannskaðaveðrinu
er gerði þar s.I. mánudag.
„Þetta var önnur tilraun okkar
til að komast yfir Ermarsundið",
sagði Gunnar. „í fyrra skiptið
lögðum við upp eftir hádegi þ. 8.
ágúst, en urðum að snúa við vegna
haugasjós og storms, og komust þá
til baka til Englands við illan leik
og biðum þar síðan eftir góðri spá.
Að kvöldi 12. ágúst var spáð
blíðviðri daginn eftir. En þar sem
við erum hjátrúarfull, að hætti
sjómanna, vildum við ekki leggja
upp á mánudegi og því síður þar
sem það var 13. dagur mánaðarins.
Við lögðum því upp strax á sunnu-
s
Þessi mynd er tekin af Kristínu og Gunnari um borð í Bonny skömmu
áður en þau lögðu upp frá Reykjavíkurhöfn í Miðjarðarhafsferð sína.
- Ljósm. Mbl. Ól.K.M.
dagskvöldinu og gekk allt vel þar
til á mánudeginum er við áttum
eftir 15 mílur ófarnar til Frakk-
lands. Þá skall óveðrið á. Það er
erfitt að lýsa í orðum hvernig þetta
var, en ölduhæðin var 40 fet og
öskrandi rok og allt eftir því. I
kringum okkur var aragrúi skerja,
við misstum einnig út siglingaljós-
in og urðum að snúa frá landi til að
lenda ekki á skerjunum, sem varla
voru nema 100 metrar á milli.
Okkur tókst að koma ljósunum í
Iag og komast til hafnar, og hafa
áreiðanlega góðar vættir verið
okkur innan handar á þeirri
stundu."
Gunnar sagði að þau hefðu dag-
inn eftir komið að skútu á hvolfi og
séð 400—500 tonna bát, sem
strandað hafði á skeri skammt frá
þeim stað, er þau hefðu verið á, er
óveðrið skall á. Hann sagði í lok
samtalsins: „Við leggjum yfirleitt
alltaf af stað að morgni, bæði til að
vera úthvíld og eins til að nýta
dagsbirtuna. Hjátrúin bjargaði
okkur — hún er e.t.v. ekki eintóm
bábilja."
dagana má reikna með að skipin
verði við loðnuleit. Eins og fram
hefur komið í fréttum hafa fiski-
fræðingar lagt til að á haustvertíð-
inni í ár og næstu vetrarvertíð fari
aflinn ekki yfir 600 þúsund tonn
úr íslenska loðnustofninum.
Kjartan Jóhannsson sjávarút-
vegsráðherra var spurður að því í
gær hvort gripið verði til einhverra
takmarkana á haustloðnuveiðunum
í ljósi niðurstaðna nýjustu rann-
sókna fiskifræðinga.
— Fiskifræðingar taka það sér-
staklega fram í nýjustu skýrslu
sinni, að nauðsynlegt sé að halda
áfram rannsóknum og tala um að
það verði gert í september, sagði
Kjartan. — Ég hef áhuga á að það
verði gert og held að það gildi um
þetta, kannski frekar en margt
annað, að ákvarðanir verða ekki
teknar langt fram í tímann. Ef um
einhverjar takmarkanir verður að
ræða á haustvertíðinni, þá geri ég
ekki ráð fyrir að það verði fyrr en
að loknum rannsóknum í september
og október, sagði sjávarútvegsráð-
herra.
Darmstadt á
Dohmbanka
SJÖ þýzkir togarar voru í gær að
veiðum á Dohrnbanka, rétt utan
miðlínu milli íslands og Græn-
lands.
Þeirra á meðal var togarinn
Darmstadt, sem staðinn var að
meintum ólöglegum veiðum fyrr í
vikunni.