Morgunblaðið - 25.11.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.11.1979, Blaðsíða 48
IWrttatlfllfofrÍfr SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979 Ungir bílþjóf- ar á Akureyri Akureyri, 24. nóv. BÍLAÞJÓFAR gerðust að- sópsmiklir á Akureyri siðasta sólarhringinn og voru ekki allir háir i loftinu. Alls var stolið 4 bílum, en allir fundust Svíar senda fíkniefnasala hingað til afpjánunar NÝLEGA barst dóms- málaráðuneytinu ósk frá sænskum dómsmálayfir- völdum um að tveir íslendingar, sem nýlega hlutu dóma í Gautaborg fyrir fíkniefnasölu af- filáni refsingu sína á slandi. Að sögn Þorsteins Jónssonar fulltrúa í dómsmálaráðuneytinu hefur beiðni Svíanna ver- ið svarað jákvætt. Má búast við því að íslend- ingarnir verði sendir hingað til lands á næst- unni. Umræddir menn til- heyra íslenzkum fíkni- efnasöluhring, sem af- hjúpaður var í Gautaborg fyrr á árinu en alls hlutu sjö Islendingar dóma fyrir þátttöku í því máli. þeir aftur lítið eða ekki skemmdir. Fyrsta bílnum var stolið frá Hrísalundi snemma í gærmorg- un og höfðu lyklar verið skildir eftir í honum. Sá bíll fannst síðar í gær í nánd við flugvöli- inn og hafði þá verið ekið út af veginum. Um kl. 13 var næsta bíl stolið frá Strandgötu, en eigandinn hafði þá brugðið sér inn á verkstæði örstutta stund og skilið bílinn eftir í gangi. Eftir þessa þjófnaði voru 4, 11 og 12 ára drengir handsamaðir og teknir til yfirheyrslu enda játuðu þeir að hafa verið að verki í bæði skiptin. Eftir að hafa verið áminntir stranglega var þeim sleppt, — en ekki leið á löngu þar til þeir stálu 3. bílnum fyrir utan heimili eig- andans við Espilund, en sá hafði skroppið inn í kaffi og ekki gætt þess að taka lyklana með. Fjórða bílnum var svo stolið á 2. tímanum í nótt frá Hrísa- lundi. Maður nokkur sá til þjófsins og gat tilkynnt lögregl- unni þjófnaðinn og ökuleið bílsins. Eltingarleikur hófst bráðlega og barst norður í Glerárhverfi, en þar hafnaði bíllinn að lokum inni í blóma- garði. Þjófurinn sem í þetta sinn var fullorðinn maður tók til fótanna en var handsamaður skömmu síðar og var þá nokkuð við skál. Lögreglumanni tókst að komast inn í bílinn í garðin- um og stöðva hann til fulls sem annars hefði farið fram af háum bakka og stórskemmst. Sv.P. Mikil fækkun umferð- arslysa á öllu landinu UMTALSVERÐ fækkun hefur orðið á slysum í umferð hér á landi 10 fyrstu mánuði ársins miðað við sömu mánuði í fyrra. 10 fyrstu mánuðina í ár slösuðust 499 manns en 629 í fyrra eða 130 fleiri. Hins vegar hafa fleiri látið lífið í umferðarslysum nú eða 20 en 19 létu lífið í umferðarslysum fyrstu 10 mánuðina í fyrra. í yfirliti frá Umferðarráði kem- ur fram að þeim sem hljóta meiri háttar meiðsli í umferðarslysum hefur fækkað um 56 frá í fyrra og þeim sem hljóta minni háttar meiðsl hefur fækkað um 75 frá í fyrra. Langmest 'fækkun slysa hefur orðið meðal ökumanna og farþega bifreiða en 113 færri slösuðust 10 fyrstu mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra. Sumum skiðamönnum nægir að stunda iþrótt sina innan borgarmarkanna þegar færi gefst. Þessir garpar voru á ferð við Miklatúnið i gærmorgun. Fyrir þá sem vilja halda í brekkurnar og líða upp þær með lyftum er t.d. Bláfjallasvæðið opið frá morgni til kvölds og ferðir þangað frá BSÍ kl. 10 og 13:30 i dag ef færð leyfir. Ljósm. Emiiía. Qlíuviðskiptanefnd á förum til London: Fáum við helming gas- olíu hagstæðara verði? OLÍUVIÐSKIPTANEFND mun vera á förum til London um miðja vikuna, þar sem hún mun eiga viðræður við BNOC, British Na- tional Oil Corporation, um kaup á 100 til 150 þúsund tonnum af gasoliu á verði, sem er allmiklu lægra en markaðsverð i Rotter- dam, sem er viðmiðun olíuvið- skiptasamningsins við Sovétrik- Húsbruni í Borgarnesi ÍBÚÐARHÚS i Borgarnesi skemmdist talsvert af eldi í fyrri- nótt. íhúar hússins vöknuðu þeg- ar allt var orðið fullt af reyk og tókst þeim að komast út og sakaði ekki, en tjón er töluvert m.a. af vatni og reyk. Elds varð vart um kl. 4:30 aðfararnótt laugardags og gekk slökkvistarf greiðlega, en húsið er tvílyft, neðri hæð steypt en timb- urgólf og efri hæð úr timbri. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagnsofni. Húsið var vátryggt, en hluti innbús óvátryggður og tjón íbúa hússins því tilfinnanlegt. in. Er þess vænzt að þessi olíu- viðskipti geti orðið til frambúðar við þetta fyrirtæki, sem vinnur olíu af botni Norðursjávar. Til samanburðar má geta þess að olíuþörf íslendinga á gasolíu á árinu 1980 er áætluð um 280 þúsund tonn. Samningarnir við Sovétríkin gera ráð fyrir 200 þúsund tonnum + eða + 10%, en að auki hafa olíufélögin keypt undan- farin ár um 60 þúsund tonn á Vesturlöndum. Fáist betri kjör annars staðar en hjá Rússum er uppsagnarákvæði í þeim samning- um. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun BNOC hafa gefið vilyrði fyrir 100 þúsund tonnum af gasolíu á árinu 1980, en jafnframt mun hafa verið rætt um að hugsanlega sé unnt að selja Islendingum 50 þúsund tonn til viðbótar. Þá eru verð- og greiðslu- skilmálar enn ekki fyllilega ljósir og mun það vera ætlun nefndar- innar að fá botn í þau atriði í þessari ferð til London. í olíuviðskiptanefnd eru: dr. Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, formaður, Björgvin Vil- mundarson, Landsbankastjóri, Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, Ingi R. Helgason, hæstarétt- arlögmaður og Valur Arnórsson, kaupfélagsstjóri KEA. Ritari nefndarinnar er Geir Haarde, hagfræðingur. Fulltrúi olíufélag- anna, sem valinn hefur verið til ferðarinnar til London er Vil- hjálmur Jónsson, forstjóri Olíufé- lagsins h.f. Búvöruverðshækkun 1. desember: 6-mannanefnd kannar gögn Allt í óvissu um vaxta- hækkunina 1. desember ÓVISSA ríkir nú mikil um það. hve vaxtahækkun verður mikil samkvæmt lögum um stjórn efna- hagsmála, sem vinstri stjórnin setti um mitt árið. í vaxtaákvörð- un á að taka tillit til verðbólgu- stigs síðustu 3 mánuði, en það var eins og kunnugt er 15,86%, en einnig á að taka tillit til áætlaðrar efnahagslegrar þróun- ar næstu 6 mánuði. Þar liggur mesta óvissan með tiliiti til þess að allt er enn á huldu um stjórnmálaframvinduna vegna kosninganna. Málið er enn til skoðunar í Seðlabankanum, en þó mun bank- inn hafa sent ríkisstjórninni fyrstu álitsgerð um málið, sem þó er ekki endanleg. Kjartan Jó- hannsson, viðskiptaráðherra, sem einnig er bankamálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann myndi skoða þetta mál á mánudag, en þar til gæti hann ekkert tjáð sig um málið. Þá mun ríkisstjórnin enn ekki hafa fjallað um málið, en næsti reglu- legi ríkisstjórnarfundur er á þriðjudagsmorgun. Vextir hækkuðu síðast hinn 1. september um 4,5 prósentustig á vaxtaaukalánum og 3% á víxlum í kjölfar 13,6% hækkunar fram- færsluvísitölu. Hækkun fram- færlsuvísitölu nú er hins vegar 2,3 prósentustigum hærri eða 15,86% eins og áður sagði. SEXMANNANEFND sat í gær á öðrum fundi sinum vegna verð- ákvörðunar búvara nú um næstu mánaðamót. Samkvæmt upplýs- ingum Guðmundar Sigþórssonar, ritara nefndarinnar er rétt verið að byrja með að yfirfara gögn, sem nefndinni hafa borizt frá Hagstofu íslands og Mjólkur- samsölunni. Því kvað hann allt of snemmt að spá með nokkurri vissu um stærð búvöruhækkunar- innar að þessu sinni. Það, sem áhrif hefur á búvöru- verðshækkun nú er m.a. 13,21% verðbótahækkun launa, en þau vega misþungt í grundvellinum á hverja vörutegund. Einnig hefur gengissig undanfarna 3 mánuði áhrif á verðákvörðunina. Þess má geta, að við síðustu verðákvörðun varð gífurleg hækkun á búvörum, I sem að meðaltali varð um og yfir I 20%. Rússneskir verksmiðju- togarar undan Austurlandi RÚSSNESKIR verksmiðjutog- arar hafa að undanförnu verið að veiðum rétt utan 200 mílna markanna austur af Glett- inganesi. Flugvél Landhelgis- gæzlunnar flaug nýlega yfir þetta svæði í eftirlitsflugi og voru þá 16 stórir verksmiðju- togarar þar að veiðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.