Morgunblaðið - 02.12.1979, Síða 12

Morgunblaðið - 02.12.1979, Síða 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979 Um þessar mundir er verið að sýna á Litla sviði Þjóöleikhússins leikrit eftir Nínu Björk Árnadóttur, Hvað sögðu englarnir? Er það sjötta leikrit höfundar og hafa Leikfélag Reykja- víkur, Litla leikfélagið og sjónvarpið fært upp verk hennar, en í fyrsta skipti er leikrit eftir Nínu nú hjá Þjóðleik- húsinu. Nína Björk hefur sent frá sér fimm Ijóða- bækur og kom hin fyrsta út árið 1965. Leiklistargagnrýn- endur hafa verið mjög ósammála um verkið Hvað sögðu englarnir? og má segja að það hafi fallið í hálfgrýttan jarðveg hjá þeim. Mbl. ræddi á dögunum við Nínu Björk um verkið, gagnrýnendur og leik- ritaskríf og var hún í upphafi spurð hvers vegna þetta efni hefði orðið fyrir valinu hjá henni í verkinu Hvað sögðu englarnir? „Vegna þess að vandamál Steins snertir mig, brennur á mér, er mér vel kunnugt,“ sagði Nína Björk. „Steinn kom tyrst til mín og sagöi mér allt, sem hann gat sagt mér. Sumar persónur hata meira aö segja manni en aðrar — eru mótaðri, opnari. Steinn er ekki orðinn mótaðri en hann er í leikritinu, hann hefur ýmislegt á hréinu eins og krakkar sem alast upp við svona aðstæöur eins og hann. Hann veit t.d., aö til þess er ætlast af honum að hann breyti sér þannig aö hann veröi þægilegri viöfangs, en því neitar hann. Steinn er óvenjulegur eins og móöir hans. Reyndar er engin manneskja venjuleg í þeim skiln- ingi. Ég hélt einu sinni að ég þekkti bara sérkennilegt fólk, en þaö er ekki rétt. Það hefur bara allt fólk sérkenni, er óvenjulegt. Og ég býst við aö ég sé næm fyrir því sérkennilega í fari mann- eskjunnar. Okkur hættir til aö setja fólk á bása. T.d. er móöir Steins lág- launamanneskja sem bylurinn hefur bugað — hún er draum- lynd og Ijóöræn — hefur lesiö margt meöan hún haföi krafta og tækifæri til. Konur eins og hún eru yfirleitt settar á bás sem fremur tilfinningasnauöar og vitgrannar verur, sem eiga ekki aö finna til í innihaldslausu puöi sfnu. Móöir Brynju á Ifka að vera á sínum krystalsbás — ein hinna mörgu kvenna, sem vita ekki á hverju þær lifa. Hún finnur sárt til þess aö lífshægindin eru illa fengin, en hún er oröin óhæf til aö finna maðkana og tína þá burt eöa rífa sig lausa. Hún hefur hallaö sér aö flöskunni og er oröin dagdrykkjukona. Báðar mæöurnar eru kynferðislega kúgaöar — þær búa viö gjörólík kjör, en hafa veriö lagöar ræki- lega til á þjónkunarbási karl- mannsins, eins og algengt er um konur af þessari kynslóö. Brynja er hins vegar ung og sterk og getur því rifiö sig burt frá maðkagerinu og kannski á hún eftir að tína þá burt, en þaö veröur í ööru leikriti. Hún er ástfangin af Steini sem auövitað lendir inni, því þannig eru regl- urnar. En hvernig sem fer um Brynju veröur þetta alltaf stór þáttur í lífi hennar og kannski á hún eftir aö verja lífi sínu til aö berjast gegn þessu vandamáli. Brynja á áreiöanlega eftir að segja mér frá lífi sínu í fram- tíðinni. Ég held aö Sjöfn og Danni eigi líka eftir að gera þaö. Þegar viö skiljum viö þau í leikhúsinu eru þau orðin hrædd við básinn sem þeim er ætlaöur." Nína Björk Árnadóttir skáld „Verst hvað gagn- rýnendur vita lítið um vinnubrögð í leikhusi' Spjallaö viö Nínu Björk Árnadóttur um verkiö „Hvaö sögðu englarnir" Verkið sjálft ákveður leiðina „Mér veröur tíörætt um bása. Veistu, sumir vilja jafnvel setja listaverk á bás. Þaö er alveg voðalegt. Listaverk er alltaf sjálfstætt, eins og líf — líf barns. Og maður veröur að hlúa aö því á sama hátt og aö barni. Ef maður leyfir verkinu sjálfu aö ákveöa leiöina, hjálpar því áfram, en passar aö þaö fari aldrei út af þeirri leiö sem þaö sjálft vill fara — þá er þaö satt. Og sannleikur- inn kemur alltaf til skila og kemur alltaf mörgum viö.“ Allir bjarga sér Getur þú tjáö þig um hvaö þú vilt segja, er höfundur aö deila á lífsgæöakapphlaupið, stétta- skiptingu og fleiri atriöi í þeim dúr? „Þetta er adeila sem oft hefur veriö fjallaö um áöur, en þessir hlutir breytast ekki — eru orönir svo sjálfsagöir aö pólitíkusarnir tala varla um þá fyrir kosningar — hema einstaka gjammarar — ég meina dómsmálin — þetta meö „smákrimmana" og þá stóru. Veröbólgan „grasserar" og sþillingin. ísland er eins og fanganýlenda. Hér bjarga allir sér eins og þeir geta, duldar tekjur veröa ýmsum lífsnauösyn og þeir sem hafa bestu aöstöö- una og eru slóttugastir sleppa best. Varöandi fangelsun sér allt heilbrigt fóik aö þaö eru til ótal aörar mannúölegri ieiöir. Fólk eins og Katrín í leikritinu á aö fá aö njóta sín. Ég veit aö viö eigum fullt af ráögjöfum og félagsfræö- Ingum sem ættu aö fá aö njóta þekkingar sinnar og eldmóðs og gera skurk í þessum málum.“ Mikil samvinna Hvernig er þetta leikrit unnið? Er þínu hlutverki lokiö strax og handrit liggur fyrir eöa starfar þú meö leikhúsfólkinu meöan á æf- ingum stendur? „Þaö er misjafnt hvernig höf- undar og leikhúsfólk vill vinna og vinnur. I þessu tilfelli skrifaöi ég fyrst grind að leikritinu og sýndi Sveini Einarssyni. Hann benti mér á ýmis atriöi sem ég gæti nýtt og sþunniö út frá. Eg fór svona þrisvar sinnum til hans meö leikritlö áöur en þaö þótti nóg unniö frá minni hálfu til aö taka þaö. Þá fengum viö mánuö í forvinnu, ég, Stefán Baldursson leikstjóri og Þórunn S. Þorgríms- dóttir leikmyndateiknari. Leíkar- arnir voru mikiö meö í þessari vinnu, sem fór aðallega fram kringum borö í kjallaranum. Viö lásum mikiö ... efni sem teng- dist verkinu á einhvern hátt — skoðuðum myndir — fundum í sameiningu útfærsluleiö — ég bætti viö senum og sýndi þeim og viö fjölluðum um þær og yfirleitt gekk þetta vel vegna þess, aö allir voru áhugasamir og fannst þetta frjó og skemmtileg vlnna. Þetta var í vor. Nú — ég bætti svo fáeinum atriðum viö í sumar og svo var æft á fuliu í mánuö í haust. Ég var alltaf meö á æfingunum og viö „snurfussuö- um“ einstaka hluti alveg fram á síðustu stund. Þetta finnst mér góö vinnubrögö, en þau hljóta auövitaö aö vera vonlaus nema allir séu samtaka.“ Hvaö er framundan hjá þér, kemur næst leikrit eöa Ijóöabók? „Ég er með uppköst aö tveim- ur leikritum og þaö þriðja er svona aö byrja að ýta viö mér. Og Ijóöiö kom aftur til mín um daginn. Svo hefi ég nýlokiö viö þýöingu á Ijóöabók eftir dönsku skáldkonuna Vitu Andersen, „Tryghedsnarkomaner", eöa í klóm öryggisins, ofsalega góö bók, „fríkuö" og sönn um leið,“ segir Nína Björk og er hrifin af bókinni. Er tjáningarform leikrits og Ijóös mjög frábrugöiö? Viö hvort fellur þér betur aö kljást og hvort telur þú ná betur til fólks? „Bæöi formin eru dramatísk. Og knöpp, koma á óvart. Þetta er nú svona þaö sem ég held aö sé sameiginlegt meö þeim. í Ijóöi er ailtaf ein tiifinning ríkjandi, hvort sem Ijóöiö er stutt eöa heill flokkur. Leikrit geymir oftast fólk sem hefur í sér marga þætti, hver einstök manneskja, og í sumum leikritum eru margar persónur." Nína Björk Árnadóttir stund- aöi nám í leiklistarskóla Leikfé- lags Reykjavíkur á árunum 1961 —1964 og síöar dvaldi hún við framhaldsnám í Danmörku, um tveggja ára skeið 1973— 1975. Þar nam hún leikhúsfræöi viö Kauþmannahafnarháskóla, sótti m.a. tíma í „dramaturgi" hjá Henrik Lundgren, sem er leiklist- argagnrýnandi við „Information". Þá fylgdist hún meö störfum hjá „Det lille Teater" í Kaupmanna- höfn, sem er barnaleikhús og kvaöst hún hafa kynnst þar mjög skemmtilegum vinnubrögöum þegar hún tók þátt í uppfærslum á barnaleikritum. í framhaldi af þessu er ekki óeðlilegt aö spyrja Nínu Björk hvaöa kröfur henni finnist að gera eigi til gagnrýn- enda er fjalla um leiklist og svaraði hún á þessa leið:_____ Engin forskrift „Nú, þaö er auövitaö ekki hægt aö gefa forskrift eöa setja gagnrýnendur á bása. Ekki frek- ar en listaverkið. En gagnrýni getur verið listaverk út af fyrir sig. Viö getum bara nefnt Sigurð Nordal, Tómas Guömundsson, Magnús Ásgeirsson og Kristján Karlsson. í öllum þessum tilfell- um er um aö ræöa menn, sem eru líka skáld — og auk þess mjög rltleiknir. Maöur getur vissulega ekki ætlast til þess aö gagnrýnendur séu skáld, en maöur getur hins vegar vonaö og ætlast til — held ég — aö þeir séu vel skrifandi. Þeir, sem fást viö þessa iön núna, eru sæmi- lega skrifandi þegar best lætur, en oftast mjög bögulegir. í sambandi viö leiklistargagn- rýnendur finnst mér verst hvaö þeir vita lítiö um vinnubrögö í leikhúsunum. M.a. þess vegna hafa þeir ekki möguleika á aö skrifa um sýningarnar í heild. Mér dettur í hug aö gagnrýnend- ur gætu fylgst meö uppsetningu t.d. eins leikverks á ári. Sömu menn þyrftu þá ekki endilega aö skrifa um þaö verk. Svo finnst mér, aö blöðin ættu aö kosta þessa menn út úr landinu einu sinni á ári til aö fylgjast meö í leikhúsunum þar og láta þá svo skrifa um ferðina (þó ekki flug- ferðina!) og um leiksýningarnar sem þeir uppliföu. Mér finnst fólkið sem vinnur í leikhúsunum eiga rétt á þessu. í þessu sambandi er gott aö rifja upp pistil um þetta efni eftir Hermann Hesse: „Sennilega er hinn fæddi gagnrýnandi ennþá fágætari en hiö fædda skáld. Þá á ég viö gagnrýnanda, sem hefur ekki aðeins aö vegarnesti iöjusemi og lærdóm, áhuga og dugnað, né lætur hann leiöast af andlegri fylgispekt, hégómagirni eöa ill- kvittni, en hefur hlotiö náöargáfu, meöfædda skerpu hugans og hæfni til skýrgreiningar og lætur stjórnast af menningarlegri ábyrgðartilfinningu. Vitanlega getur viðkomandi haft ýmis persónueinkenni sem prýöa eöa skrumskæla þessa gáfu hans; hann er oft ýmist jákvæöur eöa meinfýsinn, and- lega slaþpur eöa hóglátur, rusta- fenginn eöa fáoröur, hann á ýmist til aö hlúa aö þessari gáfu sinni eöa sóa henni gegndarlítiö. En hann mun alltaf standa fram- ar handverksmönnunum í iön- inni, hinum skóluðu. Hann hefur hlotiö náöargáfu sköpunarinnar." Hvaö meö viötökurnar, ertu ánægö meö þær og aösókn? „Já, ég er mjög ánægð meö vitökurnar. Varö þaö strax eftir generalprufuna og svo frumsýn- inguna vegna þess, aö fólk, sem ég tek mark á, var hrifiö af sýningunni — og svo eru viötök- ur leikhúsgestanna líka alveg skínandi. Einn mjög næmur og fróöur leikhúsmaður kom á bak viö eftir generalprufuna meö stjörnur í augum og sagöi: Þetta er gott verk, en bætti svo viö: Svakalega á þetta eftir aö gera gagnrýnend- urna ringlaöa."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.