Morgunblaðið - 02.12.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979
51
Út er kontin hjá Bókaklúbbi
Almenna Bókafélagsins bókin
Orrustan um Bretland eftir
breska sagnfræðinginn Leonard
Mosley í þýðingu Jóhanns S,
Hannessonar og Sigurðar Jó-
hannssonar. Þetta er þriðja bók-
in i ritsafni AB um siðari heims-
styrjöldina, en áður eru útkomn-
ar í sama flokki Aðdragandi
styrjaldar og Leifturstríð.
Orrustan um Bretland fjallar í
máli og myndum um framkvæmd
áætlunar Hitlers um töku Bret-
V
Orrustan um Bretland
— 3. bókin í ritsafni AB um síð-
ari heimsstyrjöldina komin út
lands, sem skyldi gerast með
ótakmörkuðum lofthernaði og
síðan innrás skriðdreka og fót-
gönguliðs.
Texti bókarinnar skiptist í sex
kafla sem heita:
Kreppir að Bretlandi, Sigur-
líkurnar fyrirfram, Dagur arnar-
ins, Arásin á Lundúnir, I deiglu
loftárásanna, Á útgönguversinu.
Myndaflokkar bókarinnar heita.
Hitler nartar í Ermasund, Komi
þeir bara!, Heljarmennið Chur-
chill, Stertimennið Göring,
Brottflutningur úr borgum, Beðið
eftir útkalli, Eldskírn, Herhvöt á
heimavígstöðvunum, Vængstýfðir
ernir Þýskalands.
„Bókin er rituð af áhorfanda
þessa tryllta leiks. Auk þess að
gefa glöggt yfirlit yfir gang styrj-
aldarinnar árið 1940 sýnir bókin
atburðina mjög oft frá sjónarmiði
þeirra sem stóðu í eldhríðinni á
báða bóga, hermanna og almenn-
ings,“ segir í tilkynningu um
bókina í Fréttabrefi ÁB.
Bókin er 208 bls. í stóru broti.
Setningu og filmuvinnu hefur
Prentstofa G. Benediktssonar
annast. Bókin er prentuð í Toledo
á Spáni.
Skraut-
gripa-
verzlun
30 ára
Skrautgripaverslun Jóns
Dalmannssonar hefur nú starfað
í 30 ár, en Jón Dalmannsson hóf
rekstur verslunar haustið 1949 i
sambandi við gullsmíðavinnu-
stofu sina, sem þá var á Grettis-
götu 6. Gullsmíðanám stundaði
hann 1918—22 hjá Jónatan
Jónssyni gullsmið í Reykjavik og
vann nær eingöngu að iðn sinni
þar til hann iést árið 1970.
Jón Dalmannsson hóf rekstur
eigin vinnustofu 1930 og lagði
jafnan áherslu á hefðbundinn og
þjóðlegan stíl. Eftir að hafa rekið
verslun við Grettisgötu í 5 ár
flutti hann atvinnurekstur sinn
að Skólavörðustíg 21a og hóf þá
að reka verslunina ásamt Sigurði
Tómassyni úrsmið. Nú síðustu ár
hefur fyrirtækið verið til húsa að
Frakkastíg 10 og rekið af dóttur
hans, Dóru Jónsdóttur gullsmið,
undir nafninu Gullkistan.
Ingiríður Danadrottning skoðar islenska skartgripi á sýningu í
Kaupmannahöfn, lengst til vinstri er Dóra Jónsdóttir Dalmanns-
sonar, en hún rekur nú fyrirtæki það, sem faðir hennar stofnaði.
Að sitja kyrr í sama staó,
mt aó vera að feróast
*
. -~ .• * - ^
Segir í vísunni og þú hefur sama háttinn á.
Þú ferðast um allan heiminn sitjandi í stofunni þinni og þá er
mikið atriði að sjá veröldina ekki í svart-hvítu, ekki í villandi
óeðlilegum litum, heldur í náttúrlegum litum, sem eru svo
eðlilegir að það er eins og þú værir sjálfur staddur á staðnum.
Myndgæði Philips litsjónvarpstækja eru einstök.
Þú vilt sjá hlutina í réttum litum og þér verður að ósk þinni
fyrir framan skerminn á Philips litsjónvarpstækinu.
Það er og verður Philips
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3, SÍMI 20455 - SÆTÚNI 8, SÍMI 15655