Morgunblaðið - 02.12.1979, Side 24
5 6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979
Sigrún Gísladóttir skrifar
Stokkhólmsbréf
Kosningar
á íslandi
Victoria prinsessa ásamt litla bróður sínum Carl
Philip.
í leiðurum beggja stærstu
morgunblaðanna í Stokkhólmi
hefur verið skrifað um komandi
kosningar á íslandi. I því sam-
bandi er þess getið að kosningar
fari fram á öllum Norðurlöndun-
um á einu og sama árinu. Kosið
var í Finnlandi í marz, í Noregi
og Svíþjóð í september, kosn-
ingar eru nýafstaðnar í Dan-
mörku og nú er röðin komin að
íslandi. Svenska Dagbladet telur
að það sem Island þurfi sé
stjórn, sem með langtíma að-
gerðum geti komið efnahagsmál-
um landsins á réttan kjöl. Margt
bendi til þess að sá hægri vindur
sem farið hafi yfir hin Norður-
löndin muni einnig ná til
íslands. Bæði blöðin geta um
fyrra stjórnarsamstarf Sjálf-
stæðis- og Alþýðuflokks, og telja
líklegt að slík samvinna geti
gefið íslandi þá stjórn sem
landið nú þarfnast.
Victoria
mun erfa krúnuna
Ákvörðunin um að breyta lög-
unum frá 1810 um erfðir krún-
unnar, þannig að kvenleggurinn
hafi sama rétt til erfða, var
endanlega tekin í þinginu nú á
dögunum. Hinn 1. janúar 1980
verður Victoria krónprinsessa og
litli bróðir hennar Carl Philip
„bara“ prins.
Breytingu sem þessa á stjórn-
arskránni þarf að samþykkja á
tveimur þingum. í apríl ’78 voru
fyrst greidd atkvæði um tillög-
una, og í bæði skiptin sátu
sósíaldemókratar hjá við at-
kvæðagreiðsluna. Þeir eru, sem
kunnugt er, mótfallnir konungs-
stjórn. í umræðum um tillöguna
kvaðst einn sósíaldemókrati
telja hana ólýðræðislega, þar eð
tillagan styrkti stöðu konungs-
veldisins. Fylgjendur tillögunn-
ar bentu á, að erfðaréttur ein-
ungis í karllegg, bryti í bága við
lögin um jafnrétti kynjanna.
Carl Gustaf konungur og Sil-
via drottning voru í opinberri
heimsókn í Austurríki, þegar
tillagan var samþykkt. Carl
Gustaf hafði áður lýst yfir þeirri
persónulegu skoðun sinni að
hann kysi fremur að taka eftir
Dönum, Englendingum og Holl-
endingum, en þar ganga erfðir
því aðeins í kvenlegg ef ekki
fyrirfinnst prins. Drottningar
hafa áður ríkt í Svíþjoð, en það
voru þær Margareta á 14. öld,
Kristina á 17. og Ulrika Eleo-
nora á 18. öld. Á nýársnótt
verður Victoria krónprinsessa,
en það er í fyrsta lagi árið 2002
sem hún getur tekið við, en þá
verður hún orðin 25 ára.
Stjórnmálin
Eftir harða kosningabaráttu
og erfiða stjórnarmyndun hefur
verið fremur rólegt á stjórn-
málasviðinu.
Formaður þjóðarflokksins,
Ola Ullsten, fyrrverandi forsæt-
isráðherra og núverandi utan-
ríkisráðherra, sætti harðri gagn-
rýni eigin flokksmanna fyrir
það, hvernig flokkurinn stóð að
kosningabaráttunni og stjórn-
myndunarviðræðunum. Gagn-
rýnin beindist ekki að honum
einum, heldur og þeim ráðgjöf-
um sem hann hafði valið með
sér. Töldu ýmsir að hann hefði
gert rangt í því að taka að sér
utanríkismálin. Það hefði hentað
betur stefnu flokksins og skoð-
unum að hann hefði orðið félags-
málaráðherra.
Samkvæmt niðurstöðum
fyrstu skoðanakönnunar eftir
kosningar, hafa litlar breytingar
orðið á fylgi flokkanna, nema
hvað fylgi Hægri flokksins
(Móderata) heldur áfram að
aukast og þá mest á kostnað
Þjóðarflokksins (Folkpartiet).
Thorbjörn Fálldin forsætis-
ráðherra vakti nýlega, í ræðu,
athygli á því, að ríkissjóður
tekur síaukinn hluta þjóðar-
tekna í formi skatta. Ef haldið
yrði sömu stefnu og hingað til
þýddi það, að allar atvinnutekjur
þegnanna færu til hins opinbera.
„Þá yrðum við að byrja að dreifa
matarmiðum til fólksins," sagði
Fálldin. í dag fara með skatt-
lagningu 63% af þjóðartekjum í
ríkissjóð. Ef þróun síðustu tíu
ára heldur áfram mun ríkið taka
100% af þjóðartekjum árið 1991!
Nú liggur fyrir þinginu nýtt
stjórnarfrumvarp um lækkun
skatta. Vinstri flokkarnir eru
mótfallnir frumvarpinu, sem
þeir telja muni aðallega bæta
kjör hátekjufólks. Það mun því
reyna á hinn nauma þingmeiri-
hluta stjórnarinnar, þegar at-
kvæði verða greidd um frum-
varpið. Frumvarpið felur í sér
breytingar á skattstiganum og
lækkun hæstu skappþrepa,
þannig að af 100 krónum haldi
launþeginn eftir 20 kr. í stað 13
kr. áður. Tekjumissinn hyggst
ríkissjóður bæta sér upp með
hærri sköttum á áfengi, tóbaki,
bensíni og olíu. Forsvarsmenn
launþegasamtakanna eru svart-
sýnir á komandi kjarasamninga,
en enn er ekki vitað hvaða áhrif
skattafrumvarpið mun hafa á þá
samninga.
Framtíð
kjarnorkuveranna
Hinn 23. marz 1980 mun aftur
verða kosið í Svíþjóð. Þá mun
þjóðin greiða atkvæði um
framtíð kjarnorkuveranna í
landinu. Ákveðið hefur verið að
útlendingar, sem hafa verið bú-
settir í landinu lengur en tvö ár,
hafi kosningarétt.
Sá sem ber ábyrgð á undirbún-
ingi þjóðaratkvæðagreiðslunnar
er hinn nýi orkumálaráðherra,
Carl-Axel Petri. Vegna ósam-
komulags stjórnarflokkanna í
orkumálum tóku þeir þá ákvörð-
un að tilnefna óflokksbundinn
orkumálaráðherra. Carl-Axel
Jcdamarkaðurinn í lgallara
Iðnaðarmannahússins Hallveigarstíg 1
Opnum á morgun mánudag 3. des. kl. 1
Hvar á að kjósa?
í hvaða kjördeild?
Sjálfstæöisflokkurinn gefur
Reykvíkingum upplýsingar
um kjörstaði og kjördeildir
í síma (5 línur)
82900