Morgunblaðið - 02.12.1979, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979
57
Petri, sem er lögfræðingur, hef-
ur ekki tekið opinberlega þátt í
stjórnmálum áður.
Slysið í Harrisburg kjarn-
orkuverinu hefur vakið mikla
athygli í Svíþjóð og haft víðtæk
áhrif á allar umræður um notk-
un kjarnorku. Sósíaldemókratar
tóku þá ákvörðun að bíða eftir
skýrslu bandarísku rannsóknar-
nefndarinnar, áður en þeir
tækju afstöðu með eða móti
kjarnorku. Áður hafði flokkur-
inn verið fylgjandi notkun
kjarnorku og töldu að ekki þyrfti
þjóðaratkvæðagreiðslu um mál-
ið.
Samkvæmt orkulögunum frá
1973 var gert ráð fyrir allt að 12
kjarnorkuverum. Nú þegar eru 6
kjarnorkuver í notkun, en hin
eru á mismunandi byggingar-
stigum. Hefur staðsetning
kjarnorkuveranna vakið deilur
og þá sérstaklega Barsebáck,
sem er mjög nálægt borgunum
Malmö og Kaupmannahöfn.
Ibúum þessara borga væri því
hætta búin við slys, svipað því
sem varð í Harrisburg.
Stjórnskipuð nefnd lagði ný-
lega fram útreikninga um kostn-
aðinn við að hætta notkun
kjarnorku í Svíþjóð. Samkvæmt
niðurstöðum nefndarinnar er
heildarkostnaðurinn 70—75
milljarðar sænskra króna, ef
gert er ráð fyrir að kjarnorku-
verin verði lögð niður eitt af
öðru fram til ársins 1990. And-
stæðingar kjarnorku telja út-
reikningana byggða á röngum
forsendum og að stóran hluta
þessa kostnaðar verði hægt að
lækka með orkusparnaði og með
notkun annarra orkugjafa.
Vandinn við útreikninga sem
þessa er óvissan um annars
vegar orkuþörf landsins í fram-
tíðinni og hins vegar kostnaðinn
við notkun annarra orkugjafa.
Skoðanakannanir sýna, að
fjöldi þeirra eykst stöðugt, sem
eru óákveðnir í afstöðu sinni
gagnvart kjarnorku. Mismunur
á fjölda þeirra sem eru með og
móti er nánast enginn. Það sýndi
sig nú, eins og við fyrri kannan-
ir, að fleiri karlmenn eru með
kjarnorku en konur. Aðeins einn
fjórði hluti kvennanna var fylgj-
andi kjarnorku en um helmingur
karlmannanna.
Fyrir árslok þarf ríkisstjórnin
að leggja fyrir þing tillögur
sínar um, hvernig orða skuli
valkosti þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar. Er ágreiningur um hvort
„já-ið“ við kjarnorku þýði 12
kjarnorkuver eða jafnvel enn
fleiri. Eins hvort „nei-ið“ þýði
alls engin kjarnorkuver, eða
aðeins þau 6, sem nú þegar eru í
gangi.
Ýmsir eru á þeirri skoðun að
nauðsynlegt geti verið að hafa
valkostina fleiri en tvo.
Stokkhólmi, 19. nóvember 1979
Sigrún Gísladóttir.
Aðventu-
kvöld í Hall-
grímskirkju
í KVÖLD kl. 20.30 hefst Aðventu-
kvöld í Hallgrímskirkju með
vandaðri og f jölbreyttri dagskrá.
Ræðumaður kvöldsins er dr. Esra
Pétursson, læknir.
Kór Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar syngur, undir
stjórn Sigursveins Magnússonar,
og kona hans, Sigrún Gestsdóttir,
syngur einsöng, aríu úr Messíasi
eftir Hándel. Baldur Pálmason,
útvarpsfulltrúi, les ljóð og Anton-
io Corveiras, organisti kirkjunnar,
leikur einleik á orgel, verk eftir
franska tónskáldið Couperin. Auk
þessa verður almennur söngur,
sem kirkjukór Hallgrímskirkju
leiðir, og helgistund.
Það er góður siður að fagna
komu aðventunnar. Hún hefur
sinn sérstaka blæ, sem því miður
kafnar allt of oft í jólaumstanginu
öllu. Verið hjartanlega velkomin á
aðventukvöld í kvöld.
Frá Hllgrímskirkju
Nýkomið
Glæsilegar hátíðargjafir
Mikið úrval
af handskornum
þýskum kristal.
Frá Bing &
Gröndahl:
Jólaplattinn 1979 og
Mæðraplattinn 1979
Matar- og
kaffistell
ásamt ýmsum minni hlutum
frá hinu heimsþekkta
enska postulínsfyrirtæki
Wedgwood
Litið við í verslun okkar —
Gjafaúrvalið hefur aldrei verið
glæsilegra.
Postulíns- og kristalsdeildin
Verið velkomin til að líta við.
RAMMAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19
Kópavogsbúar
Jólavörurnar komnar
Nærfatnaöur, náttfatnaöur, sokkar á alla fjölskyld-
una.
Leikföng, gjafavörur, jólaskraut.
Alltaf eitthvaö nýtt daglega.
Verzlunin Áróra,
Þinghólsbraut 19,
N»s bílastsöi. Kópavofli.
PÍERRE RobERT
Beauty Care — Skin Care
NÝJU SNYRTIVÖRURNAR FRÁ
PIERRE ROBERT.
Andlistssnyrtivörur og fullkomlega ofnæmisprófuö
húökrem í hæsta gæöaflokki.
AKUREYRINGAR
Komlö og kynnist þessum frábæru snyrtivörum mánu-
daginn 3. og þriðjudaginn 4. des. kl. 1—6 í
Vörusölunni
Hafnarstræti 104
KOMIÐ, KYNNIST
OG SANNFÆRIST.
Ragnhildur Björnsson veröur stödd
þar, og leiöbeinir um val og notkun
Pierre Robert snyrtivara.
cMmeriókei »
Tunguhálsi 11. R. Sími 82700
SKYRTUR
BINDI
SOKKAR
HANZKAR
PEYSUR
NÁTTFÖT
SLOPPAR
SKÓR
SNYRTIVÖRUR
INNISKÓR
FÖT
FRAKKAR
HATTAR
HÚFUR
VANDAÐAR
nn
TREFLAR
G0ÐAR JÓLAGJAFIR FRÁ
HERRA DEILD