Morgunblaðið - 02.12.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979
59
Petró litli
og asninn
Langeyra, asninn hans Pedró
litla, beið óþolinmóður eítir
honum. Hann var bundinn við
stallinn sinn og var alltaf að
líta i áttina til dyra til að vita,
hvort Pedró væri ekki að koma.
Pedró var vanur að koma með
sykurmola til hans á hverjum
degi og þeir skemmtu sér kon-
ungiega saman.
Pedró var glaðlegur, lítill
drengur. Hann hafði gaman af
að fara í smáferðalög með
Langeyra. Það gekk alltaf vel.
Loksins kom Pedró. Hann
tók til i hcsthúsinu og ieiddi
Langeyra síðan út á tún. Hann
var hálf súr á svipinn og
steingleymdi að gefa Langeyra
molana sína. Þá varð Langeyra
líka súr. Þegar Pedró settist á
bak og hottaði á hann eins og
sannur knapi, stóð Langeyra
sem fastast. Hann hreyfði sig
ekki úr sporunum. Og þegar
Pedró hótaði honum, að hann
skyldi sækja svipuna inn i
hesthús, settist Langeyra, svo
að Pedró rann af baki hans.
Þá mundi Pedró litli allt i
einu eftir því, að hann hafði
gleymt að gefa honum sykur-
molana. Hann flýtti sér að gefa
Langeyra þá, sem smjattaði á
þeim. Meðan asninn borðaði
sykurmolana, klappaði Pedró
honum og strauk honum bak
við löngu eyrun hans. Skapið
batnaði hjá báðum og áður en
langt um leið sat Pedró aftur á
baki hans á leið um fallegt
landslagið. Þeir voru aftur góð-
ir vinir að venju.
Kapphlaup
Hér er um að ræða einfaldan en ágætan leik. Þið klippið út „menn“
eins og sýnt er á myndinni og gerið gat rétt fyrir neðan hálsinn á
þeim. Siðan bindið þið annan enda á tvinna eða þunnan spotta við
stólfætur, en setjið „mennina“ upp á hinn endann. Síðan reynið þið að
hrista tvinnann, þannig að „mennirnir“ komist að stólnum sem allra
fyrst.
Verið ekki vond við kisu, þó hún reyni að stökkva á „mennina“ og
klófesta þá!
Fallegt jólaskraut úr prelum
Eflaust á mamma, amma eða
einhver frænka þín gamla perlu-
festi, sem hún er hætt að nota.
Annars er hægt að kaupa perlur
úr tré, plasti eða gleri í föndur-
verslunum og víðar.
Úr perlum er hægt að gera
margvíslegt jólaskraut, bæði til að
hengja á tré og greinar.
Þú getur annað hvort þrætt
grannan vír gegnum perlurnar eða
„saumað" þær saman með garni
og síðan fest í lykkju til að hengja
í.
Ef þú vilt nota skrautið t.d. á
borðskreytingu, getur þú fest því
við grenigrein með blómavír.
Reyndu að láta þér detta fleira í
hug en við teiknuðum hér. Ef þú
átt perlur í mismunandi stærðum,
getur þú gert enn fleira skemmti-
legt.
Glas með jólasnjó
Nú er kominn tími til að byrja á jólaföndrinu.
Og við byrjum á því, að láta jólasnjóinn koma. Við notum venjulegt
sultuglas með skrúfuðu loki. I lokið er hellt góðu lagi af bræddu
kertavaxi og síðan er jólaskrauti (úr plasti eða einhverju slíku — ekki úr
pappír), gæti verið jólasveinn, engill eða eitthvað álíka, komið fyrir í
vaxinu áður en það storknar of mikið.
Hvítt kerti er því næst „raspað" með hníf, svo að fáist litlar flögur.
Sultukrukkan er fyllt af vatni, „snjórinn" settur út í og lokið skrúfað á.
Þegar þú hvolfir glasinu og hristir — réttir það síðan við aftur —
fellur niður hvítur, fallegur jólasnjór yfir jólasveininn eða engilinn.
Fyrsti sunnudagur
í aðventu
Þú, borgin litla, Betlehem,
hve blessuð ró þín er.
Þú átt þinn hjúp og draumlaust djúp,
þig dáir stjarnaher.
Það skin á skugga vegum
hið skæra himinljós.
Guðs mildi son er mannkyns von.
Og máttur þinn og hrós.
(1. vers af fjórum e. P. Brooks. Þýð. Hugrún).
OiVK» fc> u APKKDo
"•»»«*■ 'j
■
N okkr ar
gátur
helst borða, þegar við er-
um alveg matarlaus?
4. Ég get hrópað og kall-
að, þó ég hafi hvorki
tungu né lungu. Ég tek
þátt í gleði og sorg, en er
samt tilfinningalaus. Hver
er ég?
1. Hvaða hús er það, sem
er hvorki úr steini, tré né
gleri?
2. Hvaða karl er það, sem
hefur hvorki eyru né
heila?
3. Hvað skyldi maður
•jn3|3(ni5in(iiii5[
t g uuiiaB3i
i>íuS 'Z suisitóius snjj i
ajjoAij 9 usnerj