Morgunblaðið - 06.12.1979, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.12.1979, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 Æsufellsmálið: Úrskurðaður í gæzluvarðhald til 20. janúar nk. Engin aðstaða hérlendis til gæzlu á sjúkum föngum KVEÐINN var upp í sakadómi Reykjavíkur í gær gæzluvarðhaldsúrskurður yfir unga manninum, sem varð móður sinni að bana í íbúð í fjölbýlishúsinu Æsufelli 4 s.l. mánudag. Var maðurinn, Guðbrandur Magnússon, úrskurðaður í gæzluvarðhald allt til 30. janúar 1980 og jafnframt var honum gert að sæta geðrannsókn á tímabilinu. í gær fóru fram yfirheyrslur yfir Guðbrandi. Hallvarður Ein- varðsson rannsóknarlögreglu- stjóri tjáði Mbl. í gær að sýnt þætti að hann hefði þarna átt hlut að máli en vegna andlegs ástands síns hefði hann ekki gert sér grein fyrir gjörðum sínum. Fram kom að Guðbrandi fannst að einhver Fíkniefnamál: Dæmdur í 90 daga varðhald DÓMUR hefur verið kveðinn upp yfir ungum bandarískum körfuknatt- leiksmanni fyrir fíkni- efnameðhöndlun hérlend- is, aðallega LSD, en mál þess manns fékk mikla og að mörgu leyti óvenjulega umfjöllun á íþróttasíðum nokkurra dagblaða fyrir skömmu. Var maðurinn dæmdur í 90 daga varð- hald og gert að greiða málskostnað. Er ráð fyrir því gert að hann afpláni dóminn mjög fljótlega hér á Islandi. væri að veitast að sér, hefði hann talið sig vera að fremja verknað- inn í varnarskyni og hann mun ekki hafa gert sér grein fyrir því fyrr en allnokkru síðar að hann hefði ráðist á móður sína. í 69. grein réttarfarslaganna er kveðið svo á um að sjúkt fólk skuli ekki úrskurðað í gæzluvarðhald heldur skuli það úrskurðað til vistar á tilheyrandi sjúkrastofn- un. Hér á landi er hins vegar engin aðstaða fyrir hendi á sjúkrastofnunum til að vista sjúklinga sem sæta þurfa gæzlu og kvað Hallvarður Einvarðsson það alvarlegt áhyggjuefni að slík að- staða væri ekki fyrir hendi á Islandi. Guðbrandur verður því að dvelja í Síðumúlafangelsinu eins og hver annar gæzluvarðhalds- fangi. VSI segir upp samningum VINNUVEITENDASAMBAND íslands hefur sagt upp öllum þeim samningum sem stéttarfé- lög höfðu ekki sagt upp. Að sögn Þorsteins Pálssonar, fram- kvæmdastjóra VSÍ, var þetta gert til þess að öll félögin sætu við sama borð og allir samningar yrðu lausir á sama tíma. Langflest stéttarfélög landsins höfðu sjálf sagt upp samningum, en nokkur höfðu þó ekki hirt um það. Þessi félög voru á annan tug talsins. Vandséð hvern hlut Alþýðuflokkurinn getur átt í stjórnarmyndunar- tilraunum Framsóknar — segir Jón Baldvin Hannibalsson JÓN Baldvin Hannibalsson rit- stjóri Alþýðublaðsins segir í leiðara Alþýðublaðsins í gær, að bandamenn Framsóknar- flokks og Alþýðubandalags til ríkisstjórnar muni vera vand- fundnir að óbreyttum aðstæð- um. í leiðaranum segir Jón m.a.: „Formaður Framsóknarflokks- ins, Steingrímur Hermannsson, og fjölmargir frambjóðendur Framsóknar um land allt, gáfu í kosningabaráttunni ótvíræðar yfirlýsingar um að þeir stefndu að nýrri „vinstri" stjórn. Það sem Framsóknarflokkurinn á við með því, er ríkisstjórn með þáttöku Alþýðubandalagsins og undir forystu Framsóknar- flokksins. Sameiginlega hafa þessir flokkar hinsvegar aðeins 28 þingmenn og skortir því 4 þingsæti í starfhæfa meirihluta- stjórn. Þessir tveir flokkar verða því að leita sér bandamanna á þingi, en þeir munu vandfundnir að óbreyttum aðstæðum." Og síðar segir Jón: „Það er vandséð hvern hlut Alþýðuflokk- urinn getur átt í stjórnarmynd- unartilraunum Framsóknar- Ljósm.: Ól. K. M. Kúlutjald á Lækjartorgi Á vegum útimarkaðarins í Reykjavík hefur verið komið upp þessu kúlutjaldi á Lækjartorgi. Sagði Gestur Ólafsson einn forráðamanna Útimarkaðarins, að reyna ætti að hýrga upp á miðbæinn og ættu að vera á dagskrá skemmtiatriði og ' jólasveinar myndu koma fram oggleðja börnin, sem eru á ferli í miðbænum með því að gefa þeim gjafir. Ekki er fullráðið hvenær fyrst verður boðið upp á þessa skemmtun, en Gestur kvað unnið að undirbúningi og það yrði mjög fljótlega. 430 þús. kr. sekt fyrir leyfislausar loðnuveiðar veiðarnar fyrir þessi tíma- mörk og voru dæmi þess að loðnuskip væri lagt af stað með 1000 tonna afla til lands á miðnætti þegar veiðarnar máttu hefjast. Alls voru 18 skipstjórar kærðir fyrir leyf- islausar veiðar. Góð færð á vegum víðast hvar á landinu GÓÐ FÆRÐ er nú á vegum víðast hvar um landið, samkvæmt upplýsingum Sigurðar Haukssonar vegaeft- irlitsmanns. Á suður- og Vesturlandi er prýðileg færð á flestum vegum. Talsverð lausamjöll er og gæti færð spillst ef hvessti verulega. Aðeins Brattabrekka er ófær og Fróðárheiði er ófær litlum bílum. Fjallvegir á Norðurlandi eru flestir færir og er hægt að aka frá Reykjavík norður um land allt til Raufarhafnar og fært er frá Reykjavík um Suðurland og til Austfjarða. Vegir tii Siglufjarðar og Ólafsfjarðar eru aðeins færir stórum bílum og jeppum. Á Aust- fjörðum er prýðilegt færi en aðeins stórir bílar og jeppar kom- ast til Seyðisfjarðar og Borgar- fjarðar eystri. Sömuleiðis er veg- urinn um Möðrudalsöræfi aðeins fær stærri bílum. Á Vestfjörðum er ófært á háls- um í Barðastrandarsýslu en fært er frá Patreksfirði til Bíldudals. Dynjandisheiði, Hrafnseyrarheiði og Breiðadalsheiði eru ófærar en að öðru leyti er færð góð. T.d. er fært milli Flateyrar og Þingeyrar og frá ísafirði út til Bolungarvíkur og inn í Djúp. /r Landsbanki Islands byggir í Mjóddinni BYGGINGARNEFND Reykjavíkur hefur samþykkt umsókn Landsbanka íslands um lóð í Mjóddinni til byggingar bankahúss. Stærð hússins er ætluð sam- kvæmt umsókn 1015,2 fermetra kjallari, 685,4 fermetr- ar á fyrstu hæð, 985 fermetrar á annarri hæð og 189,2 fermetrar á rishæð. EMBÆTTI ríkissaksókn- ara hefur heimilað dóm- sátt í málum allmargra loðnuskipstjóra, sem gerst höfðu sekir um leyfislaus- ar veiðar í byrjun loðnu- vertíðarinnar 20. ágúst s.l. Mál skipstjóranna hafa ver- ið send til dómsyfirvalda í heimahéruðum þeirra. Þegar hafa verið afgreidd á Akureyri mál skipstjóra, sem gerst höfðu sekir um leyfislausar veiðar, og var þeim gert að greiða 430 þúsund krónur í sekt. Má telja líklegt að önnur mál verði afgreidd á líkan hátt. Ekki var heimilt að hefja loðnuveiðar fyrr en á miðnætti 20. ágúst. Nokkur skip hófu manna. Alþýðuflokkurinn rauf ríkisstjórnina vegna algers ágreinings í öllum grundvallar- atriðum efnahagsmála við Al- þýðubandalagið. Reynslan af síðasta stjórnarsamstarfi sýndi að Alþýðubandalagið var, að óbreyttri stefnu, óstjórnhæfur flokkur. Kosningaúrslitin hafa í engu breytt þessum staðreynd- um.“ Helgi Bergs bankastjóri Landsbankans sagði í samtali við Mbl. að í þessu húsi væri fyrirhuguð bankamiðstöð fyrir allt Breiðholtshverfið, sér- staklega í tengslum við verzl- unarmiðstöðina sem rísa mun á þessu sama svæði í Mjódd- inni. Landsbankinn rekur enga bankastarfsemi í Breið- holti í dag. Helgi sagði að úr því sem komið væri gætu þeir ekki hafist handa við bygginguna fyrr en í vor, það hefði orðið nokkur dráttur á afgreiðslu byggingarnefndar. Helgi sagði ennfremur að hann ætti ekki von á því að þetta húsnæði yrði að fullu nýtt þegar í upphafi, heldur hefði skipulag svæðisins vald- ið því að svo stórt hús yrði byggt. — „Það líða samt ör- ugglega ekki mörg ár þar til full þörf verður fyrir allt þetta húsrými," sagði Helgi að síðustu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.