Morgunblaðið - 06.12.1979, Síða 5

Morgunblaðið - 06.12.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 5 Jóla- konsert ’79 Ágóða varið til styrktar Sólheimum í Grímsnesi HLJÓMPLÖTUÚTGÁFAN h.f. og fleiri gangast fyrir hljómleikum, „Jólakonsert ‘79“, í Háskólabíói sunnu- daginn 9. desember n.k. og hefjast þeir kl. 22. Sams konar hljómleikar voru haldnir á s.l. ári undir heitinu „Jólakonsert ’78“. Ágóða af þeim hljómleikum, um 12 hundruð þúsund krónum, var veitt í stofnsjóð meðferð- arheimilis fyrir einhverf börn. Öllum ágóða af hljóm- leikunum í ár verður varið til styrktar barnaheimilinu Sólheimum í Grímsnesi. Fyrr um daginn, kl. 14, verður vistmönnum af hinum ýmsu stofn- unum í Reykjavík og nágrenni boðið á sérstakan konsert í Há- skólabíói. Á „Jólakonsert ’79“ koma fram margir listamenn og skemmti- kraftar, má þar nefna hljómsveit- irnar Brimkló og Brunaliðið, söngvarana Björgvin Halldórsson, Pálma Gunnarsson, Ragnhildi Gísladóttur og Bjarka Tryggva- son, HLH-flokkinn, Magnús og Jóhann, Halla og Ladda, Ómar Ragnarsson og Ruth Reginalds. Auk þess verður söngsveit og nokkrir aðstoðarhljóðfæraleikar- Sumar við sæinn — eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur BÓKAFORLAG Odds Björnsson- ar á Akureyri hefur gefið út nýja bók eftir Ingibjörgu Sigurðardótt- ur, Sumar við sæinn, og er það 21. bók Ingibjargar. Inga Hrönn, ung sveitastúlka, fer að vinna við síldarsöltun á Óðinsfirði. Þar kemst hún í kynni við norska sjómanninn Jörgen Eyvík og verður ástfangin. Þarna er einnig Kormákur bróðir bestu vinkonu hennar, en hann er drykkjumaður, sem fer til Norður- landa og lendir þar í fangelsi. Þar kynnist hann ungum fangelsis- presti, sem er enginn annar en Jörgen Eyvík. Örlögum þessa unga fólks lýsir Ingibjörg á sinn einlæga og heil- brigða hátt, og það er ástin sem sigrar að lokum. Sumir rithöfundar njóta marg- víslegrar viðurkenningar og verð- launa fyrir ritstörf sín. Aðrir njóta hylli almennings, og svo sannarlega er Ingibjörg vinsæll höfundur. Útlánaskýrslur almenn- ingsbókasafna víðs vegar um land sýna, að Ingibjörg Sigurðardóttir er í hópi mest lesnu rithöfunda íslands. Bókin er prentuð og bundin í Prentverki Odds Björnssonar hf. á Akureyri. (Fréttatilkynning frá forlag- inu.) Síldarvertíð lok.- ið í Þorlákshöfn Þorlákshöfn, 5. des. NÚ ER síldarvertíðinni lokið að þessu sinni. Landað var alls 5363 tonnum eða svipuðu magni og í fyrra en þá var landað hér 5404 tonnum. Einn bátur er þó að ennþá og mun landa hér sinni síðustu síld, sem verður flutt til Stokkseyrar og unnin þar. Hjá söltunarstöðinni Borgum hf. var saltað í 8200 tunnur en í fyrra í 10.200 tunnur. Hjá Glettingi hf. var saltað í 5638 tunnur en í fyrra 6434 tunnur. Þar var einnig verkuð súrsíld í 5338 tunnur en í fyrra í 946 tunnur. í frystihúsi Meitilsins hf. var fryst 210 tonn af síld. Fyrsta síldin barst hingað 21. október og síðasta síldin, sem verður unnin hér á staðnum, 1. desember. Fimm bátar eru með net og hefur afli þeirra verið tregur, svo og gæftir slæmar. Togararnir hafa verið með sæmilegan afla miðað við árstíma eða þetta 80—90 tonn eftir 10—12 daga veiðiferðir. Samfelld átta stunda vinna hefur verið hér í frystihúsinu en að sjálfsögðu hefur síldin verið unnin þegar hún hefur borizt jafnt um helgar sem virka daga. — Ragnheiður. FEF með útimarkað, slaufusölu og jólamarkað FÖSTUDAG og laugardag 7. og 8. des. ætla félagsmenn að vera á útimarkaðinum á Lækjartorgi og selja jólakort, afmælisrit og platta félagsins, gefin út í tilefni af barnaári og 10 ára afmæli FEF. Ennfremur verða til sölu hinir kunnu treflar félagsins, svo og jólatrésfætur. Á laugardag verður hin árvissa slaufusala, en þá munu félags- menn bjóða merki félagsins, slauf- una, til sölu á götum borgarinnar og við verslunarmiðstöðvar. Ágóð- inn af þessari fjáröflun verður notaður til að reka endahnútinn á neyðarhúsnæði félagsins, sem það er að koma á laggirnar að Skelja- nesi 6. Á sunnudag 9. des. kl. 15:00 verður jólafagnaður fyrir félags- menn, börn þeirra og gesti í Átthagasal Hótels Sögu. Þar verð- ur margt til skemmtunar og má m.a. nefna að sr. Birgir Ásgeirs- son flytur hugvekju, Herdís Egils- dóttir kennari les úr bókum sínum, kaffiveitingar verða á boðstólum og jólasveinn kemur í heimsókn. (Fréttatilkynning) Kvenfélag Hafnarfjarðar- kirkju KVENFÉLAG Hafnarfjarðar- kirkju heldur sinn árlega jólafund fimmtudaginn 6. desember í Sjálf- stæðishúsinu kl. 8:30. Til skemmt- unar verður upplestur, happdrætti o.fl. Jólanefndin. Undirbúningsnefnd „Jólakonserts ‘79“. Talið frá vinstri: Pálmi Gunnarsson, Omar Valdimarsson, Magnús Kjartansson, Björgvin Halldórsson og Jón ólafsson. Á myndina vantar þá Ómar Einarsson og sr. Valgeir Ástráðsson. Ljósm.: Kristján. ar listamönnunum til aðstoðar. Kynnir á hljómleikunum verður Jónas R. Jónsson. Hljóðriti h.f. sér um hljómburðinn, Gísli Sveinn Loftsson sér um lýsinguna, Egill Eðvarðsson setti saman dag- skrána og sviðsmyndin er eftir Jón Þórisson. Allir listamennirnir og aðrir sem á einhvern hátt koma nærri hljómleikunum munu gefa vinnu sína í þágu málefnisins, nema hvað greiða verður leigu af Háskólabíói. Skemmtanaskattur hefur verið felldur niður af hljóm- leikunum og búist er við að söluskattur verði endurgreiddur eins og á síðastliðnu ári. Þar af leiðir að ágóðinn, ef fullt hús verður í Háskólabíói, ætti að geta orðið liðlega milljón. Eins og áður kom fram rennur ágóðinn til barnaheimilisins Sól- heima í Grímsnesi. Munu pen- ingarnir að öllum líkindum fara í að bæta vinnuaðstöðu vistmann- anna. Löggiltur endurskoðandi mun sjá um uppgjör tónleikanna. Jón Ólafsson forstjóri Hljóm- plötuútgáfunnar sagði á blaða- mannafundi að ef hljómleikarnir í ár gengju eins vel og í fyrra væri ætlunin að gera jólakonsertinn að árvissum viðburði og verja ágóð- anum á svipaðan hátt, þ.e.a.s. til mannúðarmálefnis sem illa er statt fjárhagslega. t H.l/ | H T -> w.1- .--vJÍP.' *y.H v/* * v'y !'**.'v ^ / . wm wmÉí mÉÉÉMmmám íéséI Á þessum tíma eru nákvœmleya þrjú ár liðin síðan Stevie Wonder gaf út plfítu og alltaf bíða menn jafn óþregjufuJlir eftir ncesta skrefi hans. Líkt og Stevie Wonder hefur lýst yfir speglar þessi nýja plata tímamót á hans ferli. Þetta tveggja plfítu albúm er heilsteypi verk uppfullt af nýjum hugmyndum. fjölbreytni og faUegri tónlist. ■‘A i vrfHwí; reJ • ■'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.