Morgunblaðið - 06.12.1979, Side 8

Morgunblaðið - 06.12.1979, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 w- vv. ,,, í íyrsta skipti i nánd við aðalbækistöðvar aíbrotaunglinganna. Einvígi krossins og hnffsblaðsins „Það er sagt að þannig sé það í útlandinu,“ hafa íslendingar sagt sin í milli um áraraðir. Kvikmyndin „Krossinn og hnifsblaðið" sem Samhjálp Hvítasunnumanna sýnir - í Tjarnabíói um þessar mundir segir einmitt frá atburðum sem gerðust i útlandinu og eru alls ókunnugir okkur ísiendingum, a.m.k. hinum almenna borgara. Ungur sveitaprestur, David Wilkerson, fær kollun til að fara til New York og hjálpa afbrotaunglingum til að snúa frá villu sins vegar. Honum gengur ekki allt of vel að ná til unglinganna þar sem illræmd- asti foringi þeirra, Nicky Cruz, leggur mikið hatur á prestinn. Nicky var svo illræmdur að smábörn voru ekki einu sinni óhult fyrir honum og er hann sást á götu í Harlem og Brooklyn-hverfunum í New York hiupu mæður til og tóku börnin sin inn. Enn í lok myndarinnar frels- ast Nicky ásamt mörgum öðrum unglingum á samkomu hjá Wilk- erson. Áhorfandinn sem sér hina snöggu breytingu á afbrota- manninum trúir e.t.v. ekki því að þetta hafi raunverulega gerst. En í dag er Nicky Cruz einn af eftirsóttustu prédikurum vorra daga. Hann lauk prestsnámi þremur árum eftir að hann frelsaðist. Spcnnandi heimildamynd Við upptöku myndarinnar „Krossinn og hnífsblaðið" var rr.ikið kapp lagt á að hafa atriðin sem líkust því er þau gerðust í raun og veru. Nicky og David voru sjálfir ráðgefendur við upp- tökuna. Þrátt fyrir það er hér ekki um þurra heimildamynd að ræða, heldur tekst leikstjóranum, Don Murrey, að skapa í senn spenn- andi kvikmynd um hatramma baráttu milli góðs og ills, og eins konar fræðslumynd um það hversu mikill óhugnaður getur fylgt neyslu vímuefnanna, áfengis og eiturlyfja. Atburða- rásin er mjög hröð og öllum smáatriðum er greinilega sleppt. Kvikmynd um hatramma baráttu góðs og ills á götum glæpahverfa New York Víti til varnaðar Kvikmyndahandritið er eftir David Wilkerson sjálfan, byggt á bók sem hann skrifaði og ber sama heiti og myndin. Bók þessi kom út hér á landi á s.l. ári. Erik Estrada leikur Nicky Cruz og er þetta fyrsta meiri- háttar hlutverk hans. Söngvar- inn frægi, Pat Boone, leikur Wilkerson. Pat tók þetta hlut- verk mjög nærri sér. David og hann eyddu miklum tíma í undirbúning og útkoman varð sú að erlendir kvikmyndagagnrýn- endur eru sammála um að leikur hans í „Krossinn og hnífsblaðið" sé það besta sem sést hefur til hans á hvíta tjaldinu. Lokaatriði myndarinnar, er Nicky og fleiri unglingar frelsast er hápunktur myndarinnar. David hefur skrifað bók um upptökuna og segir að Pat hafi liðið mjög illa áður en að upp- töku þessa atriðis kom. Hann eyddi miklum tíma í bæn og samtöl við David. Rétt áður en að upptökunni kom komu nokkr- ir leikaranna til Pats og sögðu að er þeir kæmu fram til að frelsast í leik sínum væri það í raun og veru enginn leikur af þeirra hálfu, þeir myndu koma fram með því hugarfari að nú væru þeir að biðja Guð um að frelsa þá. Þetta hafði mikil áhrif á Pat og útkoman varð stórkostlegt atriði og frábær leikur, bæði Pats og Eriks. Já, þannig gerast atburðirnir í útlandinu. Það sem á tjaldinu sést er okkur íslendingum víti til varnaðar. Allir unglingar og uppalendur ættu að sjá þessa mynd til að gera sér ljóst að hætian er fyrir hendi og að það þurfi að berjast gegn því að hún nái landfestu á Fróni. R.M.N. David Wilkerson (Pat Boone) verður fyrir árás heróinista. Nicky Cruz sendi stúlkuna til að drepa David en endir ferðar hennar varð sá að hún losnaði undan valdi eitursins. Lyf gegn hundaæði? Wæshington — 4. desember — AP KONA, sem fyrir þremur vikum var bitin af leðurblöku og sýndi augljós byrjunar- einkenni hundaæðis, var í dag útskrifuð af sjúkrahúsi Georgetown — haskóla. Hundaæði í mönnum hefur hingað íil verið talið ólækn- andi og án undantekningar banvænt þegar fyrstu ein- kenni hafa á annað borð náð að koma í Ijós. Læknar gera sér nú vonir um að tekist hafi að lækna umrædda konu, en henni var gefið lyfið Interfer- on. Að vísu segjast læknarnir ekki geta skorið úr því fyrir víst hvort leðurblakan hafi raunverulega smitað konuna af hundaæði, eða hvort byrj- unareinkennin hafa verið af öðrum orsökum. Interferon er próteinlyf, sem reynst hefur gagnlegt í viðureign við margskonar vírussjúkdóma. 29277 EIGNAVAL Sólvallagata 3ja herb. Góö íbúö á 1. hæð, nýjar innréttingar, ný teppi, laus næstu daga. Holtsgata 2ja herb. Góð íbúö á 1. hæö. Verö 20 millj. Barónsstígur 3ja herb. Rúmgóö íbúö á 3. hæð. Verð 23-24 millj. íbúðir í smíðum 2ja herb. m/bílskúr í sex íbúöa húsi viö Nýbýlaveg. Aðeins 2 íbúöum óráöstafaö. Verö 20,5 millj. Beöiö eftir láni húsnæöismálastjórnar. íbúöirn- ar eru til afhendingar í júní á næsta ári. Traustur byggingar- aöili. Teikningar á skrifstofunni. Hverfisgata — 3ja herb. íbúö á jaröhæö meö sér- inngangi og sérhita. íbúöin er til afhendingar tilbúin undir tré- verk og málningu eftir ca. 2 mánuöi. Verö aöeins 19,6 millj. Beöiö eftir láni húsnæöismála- stjórnar. Teikningar á skrif- stofunni. Eignir óskast a. 3ja herb. íbúö meö aukaher- bergi í kjallara. b. 3ja herb. góöa íbúö, má vera hvar sem er í borginni. c. 3ja herb. úrvals íbúö í nágrenni miöborgarinnar. d. sérhæö æskileg í Vestur- borginni. e. raöhús á einni hæð meö bílskúr í Fossvogi. Skipti á raöhúsi á pöllum í sama hverfi koma til greina. EIGNAVAL ./< Miðbæjarmarkaðurinn Aðalstræti 9 sími: 29277 (3 línur) Grétar Haraldsson hrl. Slgurjón Arl Slgurjónsaon s. 71551 Bjarni Jónsson s. 20134. Ingolfsstrasti 18 s. 27150 I Við Austurbrún ■ Vorum aö fá í sölu eina af ■ þessum vinsælu íbúðum ca. I 60 ferm. Góö útb. nauðsyn- ■ leg. I í Vesturbæ * Úrvals 6 herb. endaíbúð. 4 j svefnh. Sér hiti. Bílskúr. I Ódýrar eignir I Ca. 40 ferm. 2ja herb. ris. | Útb. 6 millj. Laust. I Ca. 40 ferm. húsnæöi í ■ Vesturbæ. | Einstaklingsíbúö eöa skrif- ■ stofa. | Raðhús | m/ bílskúr i Ca. fokhelt á Seltjarnarnesi. j Einbýlishús j 6 herb. auk bílskúra. j Höfum fjársterkan j kaupanda að sérhæð. Tilbú- 1 inn aö kaupa strax. Mjög I mikil útb. Benedikt Halldórsson sölustj. Hjalti Steinþórsson hdl. Gústaf Þór Tryggvason hdl ÞURFIÐ ÞER HIBYL/ ★ Efra-Breiöholt 2ja herb. falleg íbúö á 2. hæö. Sérstaklega vandaðar innrétt- ingar. Bílskýll. ★ Kjarrhólmi 3ja herb. mjög falleg íbúö á 1. hæö. Þvottaherb. í íbúöinni. ★ Hjallabraut Hf. 3ja herb. góö íbúö á 2. hæö. Laus 1. febr. ★ Smáíbúðahverfi 4ra herb. sérhæö. Laus strax. ★ Kapla- skjólsvegur 5 herb. íbúö á tveimur hæðum. Tvær samliggjandi stofur. Fal- legt útsýni. ★ Raöhús Mosfellssveit Húsiö er kjallari, tvær hæðir og bílskúr. Ekki alveg fullfrágeng- iö. Austurbrún 2ja herb. falleg íbúö í lyftuhúsi. Framnesvegur Ný 3ja herb. íbúð á 2. hæö, bílskúr. HÍBÝLI & SKIP Garðastræti 38. Sími 26277 Gísli Ólafsson 20178 Málflutningsskrifstofá Jón Ólafsson hrl. Skúli Pálsson hrl. 29555 Höfum í einkasölu mjög vandaöa 3ja—4ra herb. íbúð viö Stórageröi ásamt bílskúr. íbúöin er í mjög góöu standi. Laus mjög fljótlega. Bein sala. Eignanaust v/ Stjörnubíó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.