Morgunblaðið - 06.12.1979, Side 10

Morgunblaðið - 06.12.1979, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 10 CTA EGILL VILHJÁLMSSON H.F. ÁRA: Fyrirtækið Egill Viihjálmsson hefur nýlokið við bygííinKU ofan á húsið við Laugavejj. Alls hefur verið byggt yfir 235 langferðabíla auk fjölda húsa á minni bíla og þá sérstaklega jeppa. Árið 1941 voru settir saman 108 Dodge bílar, sem ríkið hafði keypt, en þeir urðu innlyksa í stríðsbyrjun í Englandi. Samsetningarvinnan aflaði fyrirtækinu mikils álit.s vegna góðs skipulags og vandvirkni. Fyrstu starfsár- in voru starfsmenn þrír auk eiganda, en nú eru þeir um 80. Greidd vinnulaun námu árið 1930 rúmum 32 þúsund krónum, 1953 voru þau rúm- ar 4 milljónir króna og árið 1978 voru vinnulaun alls yfir 190 milljónir. Starfsgreinar fyrirtækisins í dag eru þess- ar: Bílaviðgerðir, bílamálun, renniverkstæði, smurstöð, glerskurður og slíping, bílayfirbyggingar, bílainn- flutningur og varahlutasala. Hefur fyrirtækið nú umboð fyrir American Motors Corp. sem framleiða jeppa og Concord fólksbíla er áður hétu Rambler. í janúar 1935 tók Egill Vilhjálmsson fyrsta nemann í bifvélavirkjun og hafa nú 182 iðnnemar lokið prófi hjá fyrirtækinu í bifvélavirkjun, rennismíði, bifreiðayfirbygg- ingum og bifreiðamálun. Margir starfsmanna hafa verið hjá fyrirtækinu ára- tugum saman og hefur þeim er starfað hafa 30 ár verið fært að gjöf úr og hafa 18 starfsmenn fengið slíka við- urkenningu og 6 menn hljóta hana á þessum tímamótum. Egill Vilhjálmsson var for- stjóri fyrirtækisins frá upp- hafi og til dauðadags 1967, en forráðamenn þess nú eru Sigurður Egilsson og Matthí- as Guðmundsson. Viniiulaimiii liaia hækkað úr 32 þúsundiun í 190 miUjómr FYRIRTÆKIÐ Egill Vilhjálmsson hí. í Reykjavík er 50 ára um þessar mundir en Egill Vilhjálmsson stofnaði það hinn 1. nóvember 1929. Var aðsetur þess fyrst að Grettisgötu 16—18, en fluttist síðan að Laugavegi 118 þar sem byggt hafði ver- ið yfir starfsemina. Er þar nú nýlokið við að byggja ofan á hornhúsið og er það komið í það form sem upphaflega var ætlað. Árið 1932 var farið að byggja yfir langferðabíla á verkstæði Egils Vilhjálms- sonar og ári síðar byggt yfir fyrsta strætisvagninn, en Egill Vilhjálmsson var einn stofnenda SVR og eigandi þar til Reykjavíkurborg keypti félagið árið 1943. I frétt frá fyrirtækinu kemur m.a. eftirfarandi fram um starfsemina þessi ár: Árið 1915, Egill Vilhjálmsson undir stýri á RE 2. Einn af fyrstu langferðabilum er byggt var yfir. Á iðnsýningu 1952 voru sýnd likön af vögnum og jeppum sem Vilhjálmssonar smiðaði. fyrirtæki Egils

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.