Morgunblaðið - 06.12.1979, Síða 11

Morgunblaðið - 06.12.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 Hans W:son Ahlmann: „í ríki Vatna- jökuls“ ALMENNA bókafélagið hefur gef- ið út bókina „f ríki Vatnajökuls — á hestbaki og skíðum“ eftir Hans W:son Ahlmann í þýðingu Hjartar Pálssonar. Bókin fjallar um sænsk-íslenzkan Vatnajökulsleið- angur 1936 en tveimur árum áður, 1934, hafði eldfjallið Grímsvötn- Svíagígur gosið og dreyft öskulagi yfir gervallan jökulinn. Auk Ahimanns, sem er landfræðingur að mennt, tóku þátt í leiðangrin- um Jón Eyþórsson, veðurfræðing- ur, Carl Mennerfelt, Sigurður Þór- arinsson og Jón frá Laug. Bókin fjallar að meginefni um þennan leiðangur. Hún lýsir í lif- andi máli ferð á jökul, samfélagi þeirra fjórmenninga í „stríði og barningi, hvíld og leik“. Þá er í bókinni einkar skemmtileg frásögn af ferð Jóns og Ahlmanns um Skaftafellssýslu Dr. Sigurður Þór- arinsson skrifar eftirmála. 11 V ef naður Barbro Gardberg í BÓKASAFNI og á göngum Norræna hússins eru sýnd óvenjuleg listaverk, gerð í vefn- að. Ég man ekki eftir að hafa séð hér í borg áður vefnað, sem gerður er á sama hátt og uppi- staða þessarar sýningar. Ekki kann ég að nefna slíkt á íslenskri tungu, en þeir í Finn- landi munu nefna slíkan vefnað „transparent - vefnað“. Ekki tek ég neina ábyrgð á þessari nafn- Mvndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON gift, en hún gefur í skyn, hvernig þessi verk eru unnin. Þessi verk minna svolítið á okkar eigin hluti frá fyrri tímum, en eru samt miklu litglaðari og hafa ósvikinn svip af sveita-list á Norðurlöndum. rosband och plockaband kallar vefarinn þessi verk sín, og 74 verk eru skráð í sýningarskrá enda er nokkuð þröngt á þingi þarna á göngun- um og í bókasafninu og allt rými notfært til hins ýtrasta. Eins og ég hef oft tekið fram hér í blaðinu, er kunnátta mín í vefnaðarfræðum ekki til fyrir- myndar, svo að ekki sé meira sagt. Ég hef ekki tæknilega kunnáttu til að dæma um, hvort hlutir eru afbragðs vel gerðir eða ekki. Samt fannst mér þarna koma fram mikið handverk og sérstakt. Barbro Gardberg hefur í mörgum verka sinna lagt mikla áherslu á mynstur og gerir því mjög góð skil með takmarkaðri litanotkun, sem gefur verkum hennar yfirbragð menningar og hreinleika. Þessir gegnsæju hlutir eru sérlega aðlaðandi, og ekki fer í verra er listakonunni dettur í hug að láta form leiða hugann að hesti eða fugli. Bendi ég í þessu sambandi á verk nr. 25, sem mér geðjaðist sérlega vel að. Fínleikinn í þessum verkum fer heldur ekki framhjá manni. Efnið, sem notað er, fellur með eindæmum að myndbyggingu og mynstri. Þetta eru að mínum dómi mjög fallegir hlutir, sem bera vott um næma tilfinningu listakonunnar fyrir listrænni sameiningu efnis og handverks. Ég hafði ekki síður ánægju af strimlunum, sem ég nefni hér rósabönd. Þau eru auðvitað af allt öðrum toga en hin gegnsæju verk, en hafa sín áhrif og gegna sannarlega sínu hlutverki á þessari sýningu. Ég er sannfærð- ur um, að þessi sýning á eftir að vekja verðskuldaða eftirtekt, og ég verð ekki einn á báti með að hafa ánægju af því, er þessi finnska listakona kemur í heim- sókn með Við skulum vona, að haldið verði áfram að sýna okkur ýmis- legt á göngum og í bókasafni Norræna hússins. Þessi hug- mynd er ágæt og gegnir þörfu hlutverki. Ég held, að ég hafi fagnað þessu framtaki áður hér í blaðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.