Morgunblaðið - 06.12.1979, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979
París — Ekki eru það marg-
ar islenskar stúlkur, sem taka
þverflautuna sina og spila i
„Metró“, — brautargöngum
neðanjarðarlestanna — fyrir
fólk sem leið á um.
Guðrún Sigríður Birgisdóttir
er ein þeirra. Hún er 23 ára
Reykvíkingur og leggur stund
á flautuleik i Paris, en er auk
þess trúnaðarmaður Síne í
París.
Áður en hún brá sér til
Parisar, var hún i einkatimum
hjá Manuelu Wiesler. Einnig
var hún einn vetur við nám hjá
Per Öien við tónlistarháskól-
ann i Ósló. Hún er komin með
diplóma frá Ecoles Normale de
Musique de París, þar sem hún
er við nám nú. Flautukennar-
inn hennar er enginn annar en
F. Caratgé, sem sjálfur lærði
hjá Gaubert, og Myse, svo hún
er i góðum tengslum við flautu-
söguna.
Ég spurði Guðrúnu af hverju
París hefði orðið fyrir valinu.
— Ætli það séu ekki einhverj-
ir heimskonukomplexar, svarar
hún og deplar öðru auganu.
ÍSLENSKA STÚLKAN I „METRONUM"
Tónleikarnir hafnir.
Flautað í
kapp við
lestarnar
Hvernig er að vera náms-
maður í París?
— Skrykkjótt,en gaman að fá
yfirfærsluna sína — og hún
brosir um leið.
Hugsarðu þér að setjast að
heima að loknu námi, Guðrún?
— Það væri gaman að spila
heima, ef nokkur von er um
vinnu.
Spilarðu opinberlega í París?
— Já, í „Metró", og af og til
falla til konsertar.
Hefur fólk sem leið á um
„Metró“ tíma til að stoppa og
hlusta?
— Já, ef maður spilar vel.
Annars er þetta fólk góðir hlust-
endur, og svo finnst mér gaman
að spila fyrir Jón Jónsson á
götunni. Stundum kemur það
fyrir, að löggan kemur til að
reka okkur burt, því ég og vinur
minn Martial, sem ég spila
oftast með, höfum ekki leyfi. Þá
er ekki um annað að ræða en að
láta sig hverfa. Reglulega
skemmtileg, þegar fólkið bannar
löggunni að reka okkur burtu.
Er bannað að spila á Metró?
— Nei, en það eru bara 70
pláss veitt, og núna er þriggja
ára biðlisti. Enginn hefur rétt til
að spila nema hafa þetta leyfi og
verður því frá að hverfa er
löggan kemur.
Hvað er það besta og
skemmtilegasta við París?
— Skemmtilegasta og besta er
hvað París er góður skóli í
heildina.
Með þessum orðum kveð ég
Guðrúnu og óska henni góðs
gengis í Metró í framtíðinni.
— Anna Nissels
(k
Almenna
bókafélagið.
Austurstræti 18 — sími 19707. Skemmuvegi 36, Kópavogi — Simi 73055.
í ríki Vatnajökuls segir frá leiöangri höfundarins og Jóns
Eyþórssonar á Vatnajökul voriö 1936. í för með þeim
voru íslendingarnir Siguröur Þórarinsson, þá nemandi
Ahlmanns, ferðagarþurinn Jón frá Laug og tveir ungir
Svíar. Auk þess höfðu þeir meöferðis 4 Grænlands-
hunda, sem drógu sleða um jökulinn og vöktu hér
meðal almennings ennþá meiri athygli en mennirnir.
í fyrri hlutanum segír frá lífinu á jöklinum „í stríði og í
barningi, hvíld og leik“. Seinni helmingurinn er einkar
skemmtileg frásögn af ferð þeirra Jóns og Ahlmanns
um Skaftafellssýslu.
í ríki Vatnajökuls er sígilt rit okkur íslendingum, nærfærin
lýsing á umhverfi og fólki, furöuólíku því sem viö
þekkjum nú, þó að ekki sé langt um liðið.
Tónleikar í
Keflavíkur-
kirkju á
jólaföstu
Orgeltónleikar verða n.k. fimmtu-
dagskvöld 6. des. í Keflavíkur-
kirkju og hefjast kl. 20. Einleikari
er Antonio D. Corveiras. Corveiras
er organisti við Hallgrímskirkju í
Rvk., en kennir á píanó og orgel
við Tónlistarskóla Keflavíkur.
Hann hefur tvívegis áður haldið
tónleika í kirkjunni. Efnisskráin
verður fjölbreytt að vanda og má
þar nefna orgelverk eftir A. Cald-
ara, Murchhauser, Marcello,
Schumann, Brahms og Widor.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Á sunnudaginn 9. des. verður
aðventusamkoma í kirkjunni með
hljóðfæraleik og söng. Nemendur
úr tónlistarskóla Keflavíkur sjá
um fjölbreytta dagskrá. Hljóm-
leikarnir hefjast kl. 17.
Fólk er hvatt til þess að hlýða á
þessa hljómleika og eiga kyrrláta
stund í kirkjunni á jólaföstu.
(Fréttatilkynning)
Aðventukvöld í
Landakotskirkju
NÆSTKOMANDI sunnudags-
kvöld efnir Félag kaþólskra
leikmanna til aðventukvölds í
Kristskirkju í Landakoti, kl.
8.30 síðdegis.
Séra Ágúst K. Eyjólfsson
flytur ávarp, Ragnar Björns-
son leikur Gotneska svítu eftir
L. Boellmann, Nína Björk
Árnadóttir les ljóð, Kirkjukór
Langholtskirkju syngur, Edda
Björgvinsdóttir les úr mið-
aldakvæðum, Manuela Wiesler
leikur á flautu við undirleik
Ragnars Björnssonar, Aríu í D
eftir J.S. Bach og Ave María
eftir Bach/Gounod, Björgvin
Magnússon les jólaguðspjallið
og kirkjugestir syngja að lok-
um jólasálminn Hljóða nótt
eftir Matthías Jochumsson við
lag Fr. Grubers.
Að sjálfsögðu eru allir vel-
komnir á þetta aðventukvöld.
AUGLÝSINGA-
SÍMINN KR:
22480