Morgunblaðið - 06.12.1979, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979
22
Góð sala hjá Framnesi I
Þingeyri, 5. desember.
TOGARI okkar Þingeyringa
Framnes I. seldi i siðustu viku
afla í Bretlandi. Aflaverðmætið
var um 53 þúsund sterlingspund,
eða sem næst 45 milljónir króna.
Byggingarframkvæmdir við
nýtt sláturhús ganga samkvæmt
áætlun og verður það væntanlega
fokhelt fyrir áramót, en í bígerð er
að taka um % hluta þess í notkun
á næsta ári.
Veður hefur verið ágætt undan-
farna daga og færðin um fjörðinn
er mjög góð, enda hefur snjóað
óvenjulega lítið í vetur.
Félagslíf hefur verið mjög
líflegt í vetur, kvenfélagið sprellfj-
örugt, bridgefélagið Gosi hefur
haldið nokkur spilakvöld og
Lionsklúbburinn hefur starfað vel.
— Hulda.
Vitni vantar að ákeyrslu
FIMMTUDAGINN 29. nóv-
ember s.l. var ekið utan í
bifreiðina R-61967, sem er
rauðbrúnsanseruð af Datsun
120-gerð, þar sem hún stóð á
bifreiðastæði við Hagkaup í
Flóamarkaður
Ananda marga
ANANDA-marga-hreyfingin
heldur flóamarkað, kökubasar og
jólamarkað næstkomandi laugar-
dag 8. desember í Lindarbæ.
Verður markaðurinn opnaður kl.
15. Þá er öll fimmtudagskvöld
kynning á starfsemi hreyfingar-
innar í Aðalstræti 16.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMOTA
Adalstræti 6 simi 25810
Skeifunni á tímabilinu kl.
15—16. Vinstri framhurð var
skemmd. Stór brúnn bíll var á
stæði við hliðina og bakkaði út
úr stæðinu og er jafnvel talið
að hann hafi rekist utan í
bílinn. Þeir, sem upplýsingar
geta veitt um þetta mál eru
beðnir að hafa samband við
rannsóknadeild lögreglunnar í
síma 10200.
Leiðrétting
í LOÐNUSKÝRSLUNNI, sem
birtist í Mbl. í vikunni var ekki
rétt farið með afla Súlunnar EA.
Skipið fékk 11.002 lestir á vertíð-
inni en ekki 10.002 eins og sagði í
blaðinu. Ætlunin var alls ekki að
taka þúsund tonn af skipverjum á
Súlunni, en prentvillupúkinn er
víða á ferð og í þessu tilviki er við
hann einan að sakast.
Grafik og bækur í Listmunahúsinu
í LISTMUNAHÚSINU,
Lækjargötu 2, hefur verið
opnuð sýning á grafiskum
verkum eftir fjórar konur, en
þær eru: Ingunn G. Eydal,
Jóhanna Bogadóttir, Jónína
Lára Einarsdóttir og Lísa K.
Guðjónsdóttir. Öll verkin eru
til sölu.
Með sýningunni hefur ver-
ið opnaður bókamarkaður á
vegum bókabúðar Braga, og
verða þar seldir meira en eitt
þúsund titlar af eldri bókum
á góðu verði, og er um að
ræða bækur bæði fyrir börn
og fullorðna.
Sýningin og markaðurinn
verða opin á venjulegum
verzlunartíma fram til jóla.
Hámarks
öryggi
Sterkar og léttar í ásetningu
ERLAU snjókeðjurnar eru framleiddar
úr sérhertu galvaniseruðu stáli.
ERLAU keðjurnar eru sérlega léttar
í ásetningu, sitja þétt og kyrfilega og
henta öllum tegundum hjólbarða.
Hægt er að setja þær á ökutæki sem
þegar er fast í snjó. Mynstur þeirra tryggir
hámarks rásfestu.ekki sístgegn hliðarrennsli.
Hentugar umbúðir
ERLAU keðjurnar eru seldar í sterkum
og handhægum plasttöskum með leið-
beiningum um ásetningu og viðhald.
Æfingadekk
Til þess að þú getir öðlast leikni í
ásetningu á ERLAU áður en í alvöruna er
komið, verða æfingadekk til staðar á
eftirtöldum stöðum: bensínsölum ESSO
Ægissíðu og Ártúnshöfða og á Akureyri.
lágmarks
fyrírhöfn!
Sölustaðir: Bensínstöðvar ESSO í Reykjavík
og víða um land.
Teikningar, sögur
og ljóð i jóla-
lesbók barnanna
Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu hafa
umsjónarmenn Barna- og fjölskyldusíðunnar farið þess
á leit við lesendur, að þeir sendi sem fyrst teikningar,
sögur, Ijóð og annað frumsamið efni, sem tengt er
jólum og nýári. Verður valið úr því efni sem berst og
það birt á aðventunni, jólunum og í upphafi nýs árs.
Er það von umsjónarmanna, að börn og fullorðnir
bregðist skjótt við og sendi frumsamið efni hið
skjótasta og má það bæði vera til skemmtunar og
fróðleiks, t.d. gátur, leikir, ljóð, frásögur o.fl.
Sendið efnið til Barna- og fjölskyldusíðunnar,
Morgunblaðið,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.