Morgunblaðið - 06.12.1979, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979
27
Borgarstjórn samþykkir:
Byggingu B4Imu Borgarspítala hraðað
Á síðasta fundi borgarstjórnar
urðu nokkrar umræður um til-
lögu sem að Páll Gislason (S)
flutti í borgarstjórn, en hún
varðaði B-álmu Borgarspítalans.
Fyrstur tók til máls Páll Sig-
urðsson. Hann sagði: „Nú þegar
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar fyrir 1980 er í burðarliðunum
vil ég vekja athygli á samþykkt
heilbrigðisráðs þar sem áhersla er
lögð á nauðsyn þess að haldið sé
áfram byggingu B-álmu Borg-
arspítalans, en hún er ætluð til að
vera miðstöð fyrir sjúkraþjónustu
fyrir aldraða og þá sérstaklega til
að bæta úr hinni brýnu þörf fyrir
sjúkrarými fyrir aldraða." Síðan
rakti Páll nokkuð sögu þessarar
álmu og ræddi um að þörfin á
sjúkrarúmum fyrir langlegusjúkl-
inga væri orðin mjög brýn. Þá
sagði Páll að fjöldi þeirra öldruðu
sjúklinga sem ekki væri hægt að
komast hjá að leggja inn á spítala
færi ört vaxandi. Síðan sagði Páll:
„Við verðum að leggja megin
áherslu á að haldið verði áfram
með byggingu B-álmu Borgarspít-
alans. Eg veit að við eigum undir
högg að sækja með fé frá Alþingi
og ríkisstjórn, þegar kemur til
afgreiðslu fjárlaga, en ef við,
borgarfulltrúar erum sannfærðir
um framgang þessa verkefnis, þá
eigum við að geta sannfært þing-
menn og ríkisstjórn um að þetta
mál þoli ekki bið.“ Síðan bar Páll
upp eftirfarandi tillögu: Borgar-
stjórn Reykjavíkur samþykkir að
leggja megináherslu á að haldið
verði áfram og hraðað byggingu
B-álmu Borgarspítalans. Borgar
stjórn telur að nauðsyn á auknu
sjúkrarými fyrir aldraða sé svo
brýn, að þetta verkefni verði að
vera forgangsverkefni á sviði heil-
brigðismála á næsta ári.
Að máli Páls loknu tók til máls
Adda Bára Sigfúsdóttir (Abl).
Hún sagði að Borgarspítalinn ætti
að vera heilbrigðismiðstöð fyrir
borgarbúa og að þetta verkefni,
þ.e. B-álmuna ætti að taka fram
fyrir önnur ný verkefni. Hún
kvaðst hafa áhyggjur af því að
ekki fengist nægilegt fé til bygg-
ingarinnar hjá næsta Alþingi, en
hvatti til þess að tillagan yrði
samþykkt. Þá tók til máls Sigurð-
ur E. Guðmundsson (A). Hann tók
mjög í sama streng og Adda og
hvatti til að tillaga Páls yrði
samþykkt.
Fyrst að fá grænt ljós
hjá ríkinu
Næstur tók til máls Albert
Guðmundsson (S). Hann sagði að
ekki væri hægt að hefjast handa
við þessa byggingu fyrr en fjár-
framlag ríkisins væri tryggt.
Fyrst yrði að fá grænt ljós hjá
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
ríkinu. Albert sagðist sammála
tillögu Páls, svo framarlega sem
að hún gengi ekki á einn eða
annan hátt á aðrar byggingar-
framkvæmdir fyrir aldraða. Þá
vildi Albert ekki viðurkenna að
byggja þyrfti sérstakt sjúkrarými
fyrir aldraða, þeir ættu sama rétt
til sjúkrahússpláss og aðrir borg-
arar.
Adda Bára
Næstur tók til máls Kristján
Benediktsson (F). Hann kvaðst
sammála tillögu Páls, og taldi
brýnt að haldið yrði áfram bygg-
ingu B-álmunnar. Hins vegar
sagði Kristján að hinn fyrirhugaði
niðurskurður fjárlaga sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði á stefnu-
skrá sinni myndi trúlega koma
niður á B-álmunni. Hann sagði að
ef Sjálfstæðisflokkurinn kæmist
til valda að kosningum loknum
myndi niðurskurðurinn koma
niður þar sem síst skyldi. Þá
beindi Kristján þeirri fyrirspurn
til Birgis ísl. Gunnarssonar hvort
niðurskurður upp á 35 milljarða
kæmi ekki niður á heilbrigðisþjón-
ustunni í landinu.
Birgir ísl. Gunnarsson (S) svar-
aði fyrirspurn Kristjáns. Hann
sagði það rétt að eitt af stefnu-
mörkum Sjálfstæðisflokksins væri
að skera ríkisútgjöldin niður um
35 milljarða. Sjálfstæðismenn
hugsuðu sér að þetta yrði gert í
fjórum þáttum fjárlaga. Fyrst
bæri að telja niðurgreiðslur; þar
væri niðurskurður áætlaður 7
milljarðar. Þá væru það lækkuð
framlög til fjárfestingarmála um
5 milljarða. Síðan væru það ýmsir
framkvæmdaliðir um 10 milljarð-
ar og loks ýmis rekstrarsjóðsgjöld
í fjárlögum, um 12 milljarðar
króna. Þá sagðist Birgir reikna
með því að flestir þættir fjárlaga
fyndu fyrir þessum niðurskurði.
Að máli Birgis loknu var tillaga
Páls borin undir atkvæði og var
hún samþykkt með 15 samhljóða
atkvæðum.
Sigurður E. Albert Kristján Birgir ísl.
Páll
SHARP
„Linytron
litmyndaiampi
Hinn sérlega
hannaöí útbúnaöur í
geislamóttakaranum
notar svartar ióöréttar
Itnur sem gefa skýrari
og eöiilegri lit sem aldrei
virkar ,upplitaður“. Micro
móttakararnir eru sam-
settir úr sem fæstum hlut-
um til aö tryggja minnst
mögulegt viöhald, en eru
jafnframt orkusparandi og
þurfa minni hitun
Sjáandi myndstillir
Skýrieiki, litur og skarpleiki að-
laga sig aö birtu herbergisins
sjálfvirkt.
10 cm.
breiður
hljómmikill
hátalari
HL JOMDEILD
Hin nýja hönnun
SHARP
á hátalarakerfi á engan sinn
l&a, hvað varöar skýran tón.
Mynd og tal birtast á fjórum
sekúndum og þar með spar-
ast dýrmæt orka.
SHARP
tækin eru líka til með einfaldri