Morgunblaðið - 06.12.1979, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979
Þykkvabæjarbjúgu
Þykkvabæjarbjúgu eru seld í eftirtöldum verzlunum:
Kaupfélagi Árnesinga, Selfossi.
Kjörbúöinni Hólagaröi, Lóuhólum 2—6, Reykjavík.
Kjötverzlun Tómasar Jónssonar, Laugavegi 2,
Reykjavík.
Matvælabúöinni, Efstasundi 99, Reykjavík.
Verzluninni Vogaver, Gnoöavog 44—46, Reykjavík.
Verzluninni Vöröufell, Þverbrekku 8, Kópavogi.
Afuröasala Fr. Friörikssonar, Þykkvabæ.
Á öðrum verzlunarstööum eru Þykkvabæjarbjúgu
ekki til sölu. Afuröasala Fr. Friðrikssonar
Þykkvabæ.
t ...... _ 1
Demantshringar
Draumaskart
KJARTAN ASMUNDSSON
Gullsmíðav. — Aðalstræti 8
í desember drögum við út vinninga að fjárhæð yfir
1 milljarð króna. Þá er hæsti vinningur 5 milljónir.
Þú færð 25 milljónir ef þú átt trompmiðann en 45
milljónir ef þú átt alla miðana.
Endurnýjaðu því tímanlega.
12. flokkur
9 @
18 —
36 —
1.224 —
7.065 —
26.028 —
5.000.000-
1.000.000,-
500.000-
100.000-
50.000-
25.000-
45.000.000.-
18.000.000-
18.000.000-
122.400.000-
353.250.000-
650.700.000-
34.380
54
1.207 350.000 -
75.000 - 4.050.000-
34.434
1.211.400.000-
ViðdrögumH.des.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Menntun í þágu atvinnuveganna
FURUMARKAÐUR
IVÖRUMARKAÐNUM
Rúllustatíf
kr. 10.700.-
Fatahengi Hornskápur
kr. 20.200.- frá kr. 113.500-
(322H
Furuvegghillur
4 stærðir frá kr. 4.800-
20° 60o
Veggfatahengi 2 stærðir
frá kr. 22.600.-
Blómagrindur — Blómasúlur — Furuborð —
Diskarekkar — Vegghankar — Skógrindur —
Vegg korktöflur — Veggskápar — Kryddhillur
— Kollar — Rúm — Skrifborð — Veggein-
ingar.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A Sími 86112.
Minning:
Frímann
Hólm
Hauksson
Orð eru ltils megnug þegar
æskufélagi fellur frá óvænt og
skyndilega. Okkur kunningja
Frímanns setti hljóða þegar þær
fregnir bárust, að hann hefði
látist í Danmörku þann 14. októ-
ber s.l. í einfeldni okkar vildum
við í fyrstu ekki trúa, efinn
gagntók okkur, og lái okkur hver
sem vill.
Við bjuggumst alltaf við
Frímanni aftur. í hugum okkar
hafði hann rétt brugðið sér frá og
var væntanlegur innan tíðar. Við
töldum víst við tækjum í höndina
á honum einhvern daginn til að
bjóða hann velkominn, og ekkert
okkar óraði fyrir að við hefðum
þegar kvatt hann í síðasta sinn.
Enginn veit hvenær lagt er uppí
síðustu ferð, og þegar vinur hefur
endað ferð sína svo fljótt, er erfitt
fyrir okkur hin sem eftir stöndum
að sannfæra okkur um að hann sé
ekki lengur á meðal okkar.
Skömmu eftir stúdentspróf, sem
Frímann lauk vorið 1974 frá M.R.
hélt hann til Danmerkur og stund-
aði þar nám í skipatæknifræði.
Því námi hefði hann lokið um mitt
næsta ár hefði honum enst aldur
til.
Skapferli Frímanns var þannig
varið, að honum var ekki gjarnt að
flíka tilfinningum sínum og lítið
gefið um gaspur eða látalæti.
Hann var dagfarsprúður og hægur
og skipti ekki skapi af minnsta
tilefni. Honum var lítið í mun að
láta á sér bera og hirti ekki um
vinsældir eða hylli á neinn máta.
Af þessum sökum hafa eflaust
margir haldið, sem samferða urðu
Frímanni, að hann væri dulur og
erfitt að kynnast honum. Það má
kannski til sanns vegar færa, en
við sem umgengumst hann mest,
vissum hins vegar vel hvern mann
hann hafði að geyma og að þar fór
ljúfur drengur og góður, sem við
eigum öll góðar minningar um.
í annað sinn á skömmum tíma
er höggvið skarð í fjölskyldu
Frímanns. Móðir hans Rósa María
og systkini, Kristján, Kristín og
Haukur, mega nú horfa á eftir
elsta syni og bróður en haustið
1977 dó faðir þeirra og eiginmaður
Rósu Maríu, haukur Hólm Krist-
jánsson loftskeytamaður, liðlega
fimmtugur að aldri. Það eru mis-
jafnar byrðar lagðar á herðar
hvers og eins í lífinu og ástvina-
missir er þungur kross að bera. En
það er hins vegar staðreynd að
erfiðleikar þroska mennina og
stækka, og þótt Rósa María og
börn hennar eigi um sárt að binda
sem stendur, mun harmur þeirra
nú, sjálfsagt verða til að styrkja
þau og efla þegar fram í sækir.
Að síðustu biðjum við Rósu
Maríu og börnum hennar guðs
blessunar og sendum þeim okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Við geymum öll minninguna um
góðan dreng.
Sæmundur og Steindóra,
Júlíus og Þóra,
Magnús, Óskar,
Stefán, Birna.