Morgunblaðið - 06.12.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979
stunda í lífi mínu, enda var þá
fjölskylda Dennu flutt til Reykja-
víkur á ný eftir kennslu- og toll-
varðarstarf úti á landi. Á stríðsár-
unum var líf fjölskyldu Dennu
erfitt, erlendur her í landinu og
vinna oft af skornum skammti.
Vilhelm andaðist á heimili sínu 1.
janúar 1941, að því er virtist í
blóma lífsins og stóð nú móðirin ein
eftir með dóttur sinni. En það var
fjarri þeim að bugast þótt missir
heimilisföðurins væri sár og því var
sú vinna sótt sem fékkst. Denna var
námfús og framagjörn og því
braust hún til frekara náms til
Ameríku, en hafði áður eignast son,
sem er starfandi dýralæknir hér á
Islandi.
Það var ekki lítið átak fyrir 16
ára stúlku að brjótast til náms á
erlendri grund, en hún var ákveðin
og lét ekkert aftra sér frá ákvörðun
sinni. Það var i Bandaríkjunum
sem hún haslaði sér völl og sóttist
allt nám bæði fljótt og vel. Þannig
að hver menntagráðan tók við af
annarri. Málanám og allt sem að
því laut varð hennar óskanám og
sökum hæfileika hennar og keppn-
isáhuga varð hún að lokum doktor í
samanburðarbókmenntum. Nú tóku
kennarastörfin við í samanburðar-
bókmenntum bæði við háskóla í
Bandaríkjunum og um hríð einnig
við Tunghai University í Taicung á
Taiwan (Formósu) uns hún aftur
gerðist háskólakennari í Bandaríkj-
unum (prófessor) eftir lát manns
síns sem fyrr segir. Til Bandaríkj-
anna bauð Denna móður sinni á
heimili sitt og manns hennar á
árunum 1948—1950 og dvaldist hún
hjá þeim nokkur ár, en kom síðan
heim aftur til íslands. En mikil og
innileg bréfaskipti átti hún við
dóttur sína, jafnvel oft í viku, öll
þau ár er hún lifði og Denna var
líka óspör á að skrifa heim til
hennar, mín og okkar allra og senda
gjafir meðan tök voru á á afmælum
og stórhátíðum. Hið einstaklega
innilega samband rofnaði því ekki
og var það bæði móður og dóttur
mikils virði, þar sem fjarlægðin
milli þeirra var svona mikil. Olöf
orti þá mikið af ljóðum til hennar,
sem einungis voru í handriti og því
vafalaust glötuð, en ljóð þau sem
hún sendi mér utanlands frá á ég í
handriti og svaraði þá gjarnan í
sömu mynt eftir mætti.
Og þannig leið tíminn fljótt, já
alltof fljótt.
Denna kom heim til íslands í
sumarleyfi sínu árið 1970 og gat þá
einnig verið hér heima með móður
sinni Ólöfu og móðursystur ásamt
okkur, mér og minni fjölskyldu á
afmælisdegi móður sinnar sem var
7. júní það ár, en þá varð Ólöf 75
ára. Þá hélt hún líka opinberan
fyrirlestur á vegum Háskóla
íslands í samanburðarbókmenntum
og vakti sá fyrirlestur og þessi
viðburður verðskuldaða athygli og
var afar fjölsóttur. En Dennu
auðnaðist líka að vera við dánarbeð
móður sinnar ásamt okkur, nokkr-
um vikum síðar. Það var henni
mikil reynsla að sjá fyrst móður
sína eftir mörg ár, fagnandi á
hátíðardegi sínum og síðar að vera
við andlátsbeð hennar og bálför í
Fossvogskirkju, en í þeim garði
hvílir aska hennar. Saman sáum við
Denna kerið með ösku Ólafar falla
niður í móður jörð. Lífi skáldkon-
unnar Ólafar, móður Dennu, var
lokið eftir gleðirík ár, viðburðarík
ár og reynsluár eins og flestir verða
að reyna á lífsleiðinni. Eftir stóð þá
og stendur enn móðursystir Dennu
og fóstra mín, ein eftirlifandi 5
systra, og nú nær 89 ára gömul, að
heimili sínu Hverfisgötu 28 hér í
borg. Minning Dennu er minning
um afburða námskonu gædda
mörgum þeim bestu eiginleikum er
mann prýða, hjálpfýsi, tryggð og
vináttu við ástvini sína og alla þá er
bágt áttu i lífinu, söng- og tónlist-
arhæfileika og einstaka eiginleika
til að gera öðrum lífið og samveru-
stundirnar ánægjulegar og ógleym-
anlegar, þar sem söngur og tónlist
réðu ríkjum, einkar innihaldsrík og
uppbyggjandi. Allt þetta er henni
nú þakkað að leiðarlokum. Á besta
aldursskeiði hefur hún nú verið
burtkölluð á vit ástvina sinna, sem
farnir eru héðan á undan henni
meira að starfa Guðs um geim.
Móðursystir hennar, Jórunn Jóns-
dóttir, ég og mín fjölskylda eigum
nú um sárt að binda svo og aðrir
aðstandendur. En umhyggju henn-
ar, tryggð og vináttu munum við
geyma í hjörtum okkar sem dýran
fjársjóð alla ævi í von um bjarta og
ástríka endurfundi bak við móðuna
miklu. Að lokum skal hér þessum
fátæklegu orðum mínum lokið með
síðasta erindi úr kvæði Ólafar
móður Dennu er hún orti um Dennu
31
er hún var barn og birtist í ijóðabók
hennar „Engill rninn" útgefinni
1946 og ber titil bókarinnar. Betri
grafskrift er ekki hægt að fá frá
móður sinni. Erindið er svona:
-l>á krýp ég niAur klökk og hljoö
við hvita rúmstokkinn.
Hún sefur ennþá sæl ok rjóð
með sigurbros á kinn
Hve forsjón sú var göfug. góð.
sem gaf mér engil minn.4*
Þorsteinn Sveinsson
Felagsmalastofnun Reykjavikurlíiorgar
'Í> Vonarstræti 4 simi 25500
Félagsstarf aldraðra
Félagsstarf fyrir aldraöa á vegum
Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar
hefst aö Lönguhlíö 3, föstudaginn 7. des-
ember n.k., kl. 13:00 og að Furugerði 1, 11.
desember n.k., kl. 13:00.
Fyrst um sinn verður starfinu háttaö sem hér
greinir:
Langahlíð 3.
Á mánudögum verður ýmis konar handa-
vinna. Á föstudögum verður opið hús, spilað
á spil o.fl.
Furugerði 1.
Á þriðjudögum verður opið hús, spilað á spil,
o.fl. Á fimmtudögum verður ýmis konar
handavinna.
í tengslum við þessa starfsemi verður
jafnframt tekin upp ýmis konar þjónusta við
aldraða, fótaðgerðir, hárgreiðsla, aðstoð við
að fara í bað, bókaútlán o.fl.
Félagsstarfið er opiö öllum öldruðum, jafnt
þeim sem búa í viðkomandi húsum sem utan
þeirra.
Allar upplýsingar gefnar á staðnum og í síma
86960.
Tvær ómótstæðilegar með
WILLIE NELSON
Hin þýöa rödd Willie Nelson, hefur aldrei notiö sín betur en á þessum tveim
frábæru plötum, enda eru þær öllum tónlistarunnendum ómissandi.
Stardust
Á plötunni „Stardust" syngur Willie
Nelson á sinn óviðjafnanlega hátt, nokk-
ur fallegustu lög allra tíma. M.a. perlur
eins og All of Me —- Blue Skies — Sunny
Side of the Street — Georgia On My
Mind — Unchained Melody — o.fl.
Verð kr. 8.750.-
Pretty Paper
Glæný jólaplata. Willie Nelson glæðir nokkur sígild jólalög nýju lífi meö
flutningi sínum á þessari einstöku jólaplötu, sem tvímælalaust er
ein besta jólaplata er litið hefur dagsins Ijós.
Meöal þeirra laga sem er aö finna á Pretty Paper
er m.a. White Christmas — Jingle Bells — Rudolf
the Red Nosed Reindeer — Santa Claus is
Coming to Town —■ Frosty the Snowman —
Oh Little Town of Betlehem.
Verð kr. 8.750.-
( KARNABÆR
Laugavegi 66 — Glæsibæ — Austurstræti 22
Heildsöludreifing
sUiAorhf
•imar 85742 — 85055