Morgunblaðið - 06.12.1979, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979
Valsmenn í ham
F'yrirliði Hauka Andrés Kristjánsson kominn i gegn um vörn Vals.
Stefán Gunnarsson og Steindór fylgjast spenntir með. Ljósm. Rax.
Liverpool
sigraði
LIVERPOOL tryggði sig í undan-
úrslitin i enska deildarbikarnum
er liðið sigraði Norwich 3—1 f
gærkvöldi. Fyrir Liverpool skor-
uðu Kenny Dalglish eitt og David
Johnson tvö. Kevin Reeves skor-
aði eina mark Norwich þremur
mínútum fyrir leikslok. Úrslit
annarra leikja urðu þessi:
West Ham - Nott. Forest 0-0
Arsenal - Swindon 1-1
Grimsby - Wolves 0-0
Það var Alan Sunderland sem
skoraði fyrir Arsenal sem var
heppið að ná jafntefli á móti 3.
deildar liðinu.
DANSKA 2. deildar liðið AB lék
Evrópubikarleik gegn Axel
Axelssyni og félögum hans hjá
Griin Weiss Dankersen fyrir
skömmu. Leikurinn fór fram i
Gladsaxehallen og verður eink-
um í minni hafður fyrir þær
sakir hve lítið var skorað í
leiknum. Leikurinn endaði 9—9,
staðan í hálfleik var 4—4.
Axel Axelsson var markhæstur
í liði Dankersen, en Jón Pétur
Jónsson kom minna við sögu.
( HandknalllBlKur
KR-HK
í kvöld
EINN leikur fer fram í 1. deild
íslandsmótsins i handknattleik i
kvöld. Það er viðureign KR og
HK, en leikurinn hefst í Laugar-
dalshöllinni klukkan 18.50.
KR-ingar virðast vera mjög að
ná sér á strik, sbr. sigur liðsins
gegn Fram um síðustu helgi. HK
hefur hins vegar enn ekki hlotið
stig i mótinu og átt i miklum
erfiðleikum. Reikna verður því
með sigri KR, en ekkert er þó
hægt að fullyrða frekar en fyrri
daginn.
Aðalfundur
KKR
AÐALFUNDUR KRR verður að
Hótel Loftleiðum i kvöld og hefst
kl. 20.00. Stjórnin.
^piiini'iiimi —fc
llppóttirl
ÞEIR riðu ekki feitum hesti frá
viðureign sinni við Val í gær-
kvöldi Haukarnir úr Hafnarfirði
þrátt fyrir að þeir léku á heima-
velli með hóp af áhorfendum sem
studdu lengst af vel við bakið á
þeim. Valsmenn sigruðu í leikn-
um með sex marka mun 26—20,
og hefði sá sigur vel getað orðið
stærri eftir gangi leiksins.
Valsmenn gerðu út um leikinn í
fyrri hálfleik, en þá var um tíma
niu marka munur á liðunum.
Varnarleikur Ilauka var afar
slakur og markvarsla í fyrri
hálfleik var ekki fyrir hendi. Þá
vörðu markverðirnir ekki eitt
einasta skot. Ekki eitt. Haukar
ætla ekki að leika eins vel í vetur
og reiknað hafði verið með.
Fyrstu 10 mínútur fyrri hálf-
leiksins voru jafnar. Andrés skor-
aði fyrsta rriark Hauka eftir að
Valsmenn höfðu misst boltann í
hraðaupphlaupi. Jón H. Karlsson
jafnar fyrir Val en Haukar ná
aftur forystunni með marki Árna
Sverrissonar. En upp úr því fór að
halla undan fæti hjá Haukum.
Þegar fyrri hálfleikur var hálfn-
aður var staðan orðin 9—3 fyrir
Val. Og áfram héldu þeir að hakka
Haukana í sig og náðu mest níu
marka forskoti á 24. mínútu leiks-
ins, 15—6. Þá var eins og að þeir
slökuðu aðeins á og Haukar ná að
minnka muninn niður í sex mörk
áður en góðir dómarar leiksins,
þeir Karl Jóhannsson og Oli 01-
sen, flautuðu til hálfleiks.
Haukar — Valur
20—26
Þrátt fyrir að lið Hauka reyndi
eftir mætti að bíta frá sér í síðari
hálfleiknum var aldrei neinn vafi
á hvort liðið var betra og hvorum
megin sigurinn myndi hafna.
Spurningin var aðeins hversu stór
hann yrði.
Á 40. mínútu leiksins var staðan
19—12, og þá fóru Valsmenn að
leyfa sér það að skjóta úr óyfir-
veguðum færum og vera kæru-
lausir um stund. Það gengur
yfirleitt ekki. Og Haukar tóku að
minnka muninn og náðu að koma
honum ofan í fjögur mörk 15—19.
Þá tóku Valsmenn aftur við sér og
breyttu stöðunni á skömmum
tíma í 23 mörk gegn 15 eða átta
mörk sér í hag. Síðustu 10 mínút-
urnar skiptust liðin svo á að skora,
en aldrei skapaðist nein veruleg
stemmning í leiknum vegna yfir-
burða Vals.
Valsmenn léku þennan leik vel.
Bestu menn liðsins voru Brynjar
Kvaran markvörður og Þorbjörn
Jensson sem átti sinn langbesta
leik í vetur. Var mjög sterkur
bæði í vörn og sókn. Virðist hann
vera að ná sér á strik eftir þau
meiðsli sem háð hafa honum í
upphafi keppnistímabils. Þá var
Bjarni Guðmundsson góður, afar
fljótur leikmaður sem hefur gott
auga fyrir því sem er að gerast á
vellinum. Valsliðið í heildina er
greinilega að ná sér verulega á
strik.
Lið Hauka er ekki sérlega sann-
færandi. Hvað veldur er ekki gott
að segja. Baráttan hjá liðinu
virðist í lágmarki. Varnarleikur
slakur og markvarsla var engin í
fyrri hálfleik, en stórlagaðist í
þeim síðari. Þórir Gíslason átti
nokkuð góðan leik að þessu sinni,
svo og Stefán Jónsson.
Aðrir leikmenn voru langt frá
sínu besta. Haukaliðið verður að
bíta betur frá sér en þetta, ætli
það sér fleiri stig í vetur.
í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1.
deild. íþróttahúsið Hafnarfirði.
Haukar—Valur 20—26 (10—16)
MÖRK HAUKA: Þórir Gíslason 8
(4 v), Stefán Jónsson 4, Andrés
Kristjánsson 3, Árni Sverrisson 2,
Árni Hermannsson 1, Hörður
Kristjánsson 1, Ingimar Haralds-
son 1.
MÖRK VALS: Þorbjörn Jensson 7,
Bjarni Guðmundsson 7, Þorbjörn
Guðmundsson 4 (2 v), Steindór
Gunnarsson 3, Jón H. Karlsson 2,
Stefán Gunnarsson, Björn
Björnsson 1 mark hvor. Og loks
Stefán Halldórsson 1 úr víti.
BROTTVÍSUN AF LEIKVELLI:
Björn Björnsson og Þorbjörn
Jensson báðir úr Val í 2 mín hvor.
MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST:
Hörður Harðarson skaut í stöng á
17. mínútu.
ÁHORFENDUR: 770. - þr.
Axel skoraði
þriójung markanna!
Skrílslæti í Höllinni
Skoraði Axel 3 mörk af níu, einn
þriðja. Leikurinn var sannarlega
hörkuspennandi og átökin í varn-
arleik beggja liða minntu á ragna-
rök. Fredricia KFUM var einnig í
sviðsljósinu í Evrópukeppninni,
lék á útivelli gegn CSKA frá
Búlgaríu. Austanmennirnir unnu
léttan sigur, 26—19, eftir að stað-
an í hálfleik hafði verið 11—8
CSKA í vil.
„ÞETTA getur ekki gengið svona
áfram. Öryggi okkar dómara er
ekki lengur tryggt vegna
skrílsláta — þæði leikmanna og
áhorfenda. Ég sýndi Marvin
Jackson rauða spjaldið vegna
orðbragðs sem ég ætla ekki að
hafa eftir. Og svona var hann
búinn að láta allan leikinn. Ég
mun að sjálfsögðu kæra hann og
svo erum við að hugsa um að
kæra KR vegna óláta áhorfenda,“
sagði Guðbrandur Sigurðsson
dómari eftir viðureign Vals og
KR í gærkvöldi. Valur sigraði
Geir Þorsteinsson KR í baráttu við
Ágústsson.
þá Jón Steingrimsson og Kristján
Mynd Mbl.: RAX
75—71 en það sem öðru fremur
setti svip sinn á leikinn voru
skrilslæti. Ekki bara áhorfenda,
heldur og leikmanna og forráða-
manna liða.
Það er nú svo komiö að banda-
rísku leikmennirnir í körfunni eru að
snúa íþróttinni í einn allsherjar sirk-
us. Jackson fékk rauða spjaldiö í
gærkvöldi. Hann reyndi að sparka til
Guðbrands eftir leikinn auk þess sem
hann haföi orðbragð, sem eins og
dómarinn sagði — ekki er hægt að
hafa eftir. I gærkvöldi var þaö
Jackson sem missti stjórn á skapi
sínu — sannleikurinn er að þetta er
næsta algengt í körfunni í dag. Þaö
fer bara eftir hvaöa bandaríski leik-
maður tapar hverju sinni. Þeir missa
iðulega stjórn á skapi sínu — þeir
eru að eyöileggja íþróttina. Þeim á
ekki að líðast þetta lengur — forusta
KKÍ hefur séö í gegnum fingur sér allt
of lengi. Þetta byrjaði með hnefa-
höggi Trukksins um árið. Síöan hefur
hver vitleysan rekið aðra. Og alltaf
eru bandarísku leikmennirnir í miöju
vitleysunnar.
En þaö er ekki bara aö bandarísku
leikmennirnir láti eins og trúðar á
vellinum. Þetta smitar út frá sér.
Forráöamenn liðs KR létu eins og
krakkar, höföu allt á hornum sér.
Leikmenn KR mótmæltu dómum sí
og æ. Beggja hlutur var þeim lítt til
sóma. Ekki að KR sé einhver undan-
tekning, aö þeir séu svona slæmir.
Þegar Valsmenn unnu nauman sigur
á ÍR um helgina þá var einn forráöa-
manna þeirra rekinn út í sal fyrir
grófan munnsöfnuö. Nú unnu Vals-
menn — þeir voru ánægöir. Þeir
héldu til búningsherbergja. KR-ingar
mótmæltu.
En þetta gengur allt of langt.
Þessir menn hafa allt á hornum sér.
Þetta smitar út til fjöldans, til áhorf-
enda, — óharðnaöra unglinga, sem
auðvelt er að æsa upp. Eftir leikinn
réöust þeir að dómurum með
skrílslátum. 50 króna peningum
rigndi yfir dómarana þar sem þeir
stóðu viö borð tímavarða. Og þeir
fengu sinn skerf í sig svo blæddi úr
höfði Guðbrands — skríllinn lét
skammaryrðum rigna yfir þá félaga.
Vegna þess aö þeirra liö tapaði og
þeir þurftu aö láta óánægju sína í
Ijós, eins og forráðamenn og leik-
menn.
Já, ófögur lýsing — en sönn því
miöur. Svo koma forráöamenn fé-
laga og segja — nú skulum við flytja
inn lakkskótrúða frá Ameríku vegna
þess aö dómararnir hér heima eru
svo lélegir. Það var réttilega orðað
hjá blaðamanni Vísis þegar hann
kallaði þetta hnefahögg í andlit
dómarastéttarinnar, móögun viö þá
menn sem starfa að þessum málum.
Nei, þaö sem gera þarf er einfalt —
leikmenn, íslenzkir og bandarískir,
forráðamenn liða — þessir menn
eiga að fara að sjá sóma sinn í því aö
haga sér eins og menn en ekki eins
og krakkar í sandkassaleik, ausandi
skít og svíviröingum.
Þessir menn veröa að gera sér
grein fyrir því aö þeir eru fyrirmynd,
því hvað ungur nemur gamall temur
— þaö sem þeir hafa fyrir óhörðnuð-
um unglingum er apað eftir. Körfu-
knattleiksíþróttin er aö sigla inn í
blindgötu, sem hún kemst ekki útúr
nema alvarlega sé tekið á þessu
máli. Það getur verið að þessir menn
vilji drama — þaö laði áhorfendur
aö, eins og raunar einn forráða-
mannanna sagöi viö undirritaðan
fyrir ekki löngu síöan. En þetta er
bara ekki einkamál forráöamanna og
leikmanna — þetta er miklu víötæk-
ara.
Og dómararnir eru ekki skaðvald-
arnir eins og forráöamenn ýmissa
félaga vilja vera láta. Þeir Guöbrand-
ur Sigurðsson og Þráinn Skúlason
dæmdu vel í gærkvöldi. Ungir og
upprennandi dómarar. En því miöur
lítur svo út sem þeir fái ekki aö
þroska hæfileika sína. Eöa eins og
Guöbrandur sagöi eftir leikinn:
„Maöur getur ekki staðið í þessu
svona lengur. Þaö er ekki bara aö
svívirðingum rigni yfir mann, nú er
öryggi manns í hættu.“
Valsmenn sigruöu 75—71 eftir að
hafa lengst af yfir. Þeir höfðu yfir í
leikhléi 41—29 en KR komst yfir um
miöjan stðari hálfleik, 59—53. Síöan
ekki söguna meir, Valsmenn náðu
forustu 61—60, síöan 69—62.
KR-ingar náöu aö jafna á síöustu
mínútunni, 71—71, en síöustu tvær
körfurnar voru Vals. Spennandi leik-
ur en ekki að sama skapi vei leikinn.
STIG VALS SKORLÐU: Tim Dwyer 21,
Þórir Matrnússon 18, Rikharður Hrafnkels-
son 9, Kristján Ágústsson 15, Torli Ma«n-
ússon 6 og Jón Steingrimsson 4.
STIG KR: Marvin Jackson 30, Jón Sigurfts-
son 15, Garðar Jóhannsson 16. Gunnar
Jóakimsson 4, Birgir Guðbjðrnsson 2, Geir
Þorsteinsson 2.
ÁHORFENDUR 730.
H.Halls.