Morgunblaðið - 08.12.1979, Síða 1

Morgunblaðið - 08.12.1979, Síða 1
272. tbl. 66. árg. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Carter útilokar nú hernaðaraðgerðir Washington, 7. desember. AP. Reuter. JIMMY Carter forseti útilokaði í kvöld hvers konar hernaðarað- gerðir gegn íran er gætu stofnað hinum 50 gislum í bandaríska sendiráðinu í Teheran í hættu. Carter sagði við hóp starfs- manna bandariska utanríkis- ráðuneytisins að loknum fundi með 100 ættingjum gíslanna: „Ég ætla að vera mjög hófsamur, mjög gætinn.“ Ummæli hans virðast boða breytingu á afstöðu stjórnar hans til deilunnar. Talsmenn stjórnar- innar hafa þráfaldlega neitað að útiloka hernaðaraðgerðir gegn Iran, ef ekki takist að bjarga gíslunum eftir venjulegum dipló- matískum leiðum. Jafnframt vitnaði talsmaður utanríkisráðuneytisins til stríðsglæparéttarhaldanna gegn leiðtogum nazista í Niirnberg og varaði Ayatollah Khomeini við því að hann yrði talinn ábyrgur ef einhver gíslanna yrði dæmdur fyrir njósnir. Hann fagnaði því varfærnislega að íranski utanríkisráðherrann Skæruliði myrti keisara-frænda Fyrsta vitnið gengur fram hjá líki ættingja fyrrverandi Iranskeisara. óþekktur maður skaut hann i höfuðið tvisvar sinnum á götu í Paris. París, 7. desember. Reuter. VOPNAÐUR maður skaut mann úr fjölskyldu fyrrverandi transkeisara til bana í París í dag og múhameðsk- ur dómari í tran sagði að einn skæruliða hans bæri ábyrgðina. Heimildir nátengdar fjölskyldu keisarans í New York hermdu að hinn látni væri Shahryar Chafik, 34 ára gamall sonur tvíburasystur keis- Khomeini-óvinir fá stuðning hersveita Tabriz, íran, 7. desember. Reuter. HERSVEITIR í fylkinu Azerbaijan í norðurhluta írans gengu í dag í lið með múhameðstrúarmönnum sem hafa lagt undir sig útvarpsstöðina og raunverulega tekið við stjórninni í fylkishöfuðborginni Tabriz nálægt sovézku landamærunum. Ólgan í Azerbaijan gæti reynzt alvarlegasta deilan sem stjórnin í Teheran hefur lent í við öfl úti á landsbyggðinni síðan byltingin var gerð í febrúar. Andlegur leiðtogi fylkisbúa, Ayatollah Kazem Shar- iat-Madari, átti í dag viðræður við fulltrúa byltingar- stjórnarinnar í hinni helgu borg Qom. Útvarpsstöðin var tekin í gær eftir skotárás stuðningsmanna Ayatollah Khomeinis á þátttak- endur í mótmælum gegn árás á heimili Ayatollah Shariat-Madari í Qom. I dag var útvarpað stuðningsyf- irlýsingum frá andófsmönnum í hernum, herlögreglunni, flughern- um, lögreglunni og frá múham- eðskum byltingarvörðum. Her- lögreglumenn eru á verði í út- varpsstöðinni ásamt vopnuðum mönnum úr MPRP, stærsta stjórnarandstöðuflokki Irans sem virðist ráða lögum og lofum í Tabriz. Stórar myndir af Ayatollah Shariat-Madari, öðrum áhrifamesta trúarleiðtoga írans, héngu á útvarpsmastri stöðvar- innar, en mynd af Khomeini var í tætlum. Ayatollah Shariat-Madari sagði að hann og Khomeini hefðu for- dæmt morð tveggja stuðnings- manna Shariat-Madari í árásinni nálægt heimili hans og að milli þeirra ríkti „mikil vinátta". Mehdi Bazargan fyrrverandi fórsætisráðherra og sonur Khom- einis tóku þátt í viðræðunum í Qom í dag. arans, Ashraf Pahlevi prinsessu. í íran sagði ayatollah Sadeq Khalkhali, sem fyrr í ár fyrirskipaði Fedayeen-skæruliðum að taka keisar- ann og fjölskyldu af lífi: „Ég tek á mig ábyrgðina á þessu tilræði." Hann sagði að skæruliðar hans mundu halda áfram að leita uppi „afbrotamenn" í Evrópu og Norður- Ameríku og að „því mundi haldið áfram þar til öll þessi skítugu peð þessa úrkynjaða kerfis hefðu verið hreinsuð." Chafik var að koma til aðseturs prinsessunnar nálægt Sigurboganum þegar árásarmaðurinn sem bar örygg- ishjálm á höfði hljóp hljóðlega aftan að honum og skaut hann í hálsinn. Þegar hann hneig niður skaut árásar- maðurinn banaskoti í höfuð honum. Síðan gekk morðinginn burt og hvarf í mannfjöldann. Leynilögreglumenn sögðu að Chafik ferðaðist á marokkósku vegabréfi og hefði komið til Parísar fyrir mánuði frá Bandaríkjunum þar sem hann ætti heima ásamt konu og börnum. Lög- reglan sagði að Chafik hefði ekki beðið um sérstaka lögregluvernd. En lögfræðingur sem kvaðst vera í þjón- ustu keisarans sagði að með lág- marksvernd “hefði þetta ekki þurft að koma fyrir". Ashraf prinsessa var ekki í íbúðinni þegar þetta gerðist og talsmaður keisarans vill ekki segja frá dvalar- stað hennar af öryggisástæðum. Hún er á dauðalista Khalkhaiis, ein af 300 alls. Uppreisn Kingston, St. Vincent, 7. des. Reuter. UPPREISN brauzt út í dag á smáeyju í Grenadine-eyjaklasanum á Karíbahafi og 40 vopnaðir lög- reglumenn voru sendir frá grann- eyjunni St. Vincent til að bæla hana niður. Carter reynir að sannfæra Nordli Washington, 7. desember. AP. Reuter. JIMMY Carter forseti reyndi í dag að fá leiðtoga Noregs, Hollands og Danmerkur til að fallast á áætlanir sinar um staðsetningu meðal- drægra eldflauga í Vestur-Evrópu, hvatti til einingar í málinu og lagði áherzlu á áhrif þess á fækkun kjarnorkuvopna. Carter hitti hvorn í sínu lagi þá Odvar Nordli, forsætisráðherra Norðmanna. og Andreas van Agt, forsætisráðherra Belga. Utanríkis- ráðherra Dana, Kjeld Olesen, ræddi við Cyrus Vance utanrikisráðherra og Zbigniew Brzezinski. ráðunaut Carters í þjóðaröryggismálum. Carter sagði á fundinum með van Agt, að með endurnýjun eldflaug- anna yrði stigið „stórt skref i átt til aukins hergagnaeftirlits og fækk- unar bæði venjulegra vopna og kjarnorkuvopna“. Við Nordli sagði hann, að þeir væru algerlega sammála um tvennt: að máttur og eining sannfærði hugsanlegan mótherja um staðfast- an ásetning um að verja Vestur- Evrópu og stöðugt ætti að vinna að fækkun venjulegra vopna og kjarn- orkuvopna og efla það starf. Nordli sagði að sögn Óslóar- fréttaritara Mbl. að hann hefði lagt áherzlu á áhuga Norðmanna á að NATO hæfi viðræður við Rússa um að draga úr vígbúnaði og gert grein fyrir ólíkum hugmynda Norðmanna í þessu efni. Hann kvaðst ánægður með jákvæða afstöðu Bandaríkja- Sadeq Ghotbzadeh gaf í skyn í dag að nokkrir gíslar yrðu látnir lausir en ítrekaði kröfuna um að þeim yrði öllum sleppt. Ghotbzadeh gaf í skyn að nokkrir gíslar yrðu teknir af lífi um leið og hann tilkynnti að nokkrir þeirra yrðu látnir lausir, en aðrir leiddir fyrir rétt sem njósnarar. Stúdentarnir í sendiráðinu höfnuðu yfirlýsingu Ghotbzadeh og sögðu að enginn yrb\ látinn laus fyrr en fyrrum Iranskeisari yrði framseldur. Stuðningsmenn Khomeinis hrópuðu „Allah akbar“ (guð er mikill) af þúsundum húsþaka í Teheran eftir að Khomeini hafði hvatt þá til að sameinast og „troða Bandaríkjamönnum í svaðið“. Kurt Waldheim, framkvæmda- stjóri SÞ, sagði að réttarhöld gegn gíslunum mundu brjóta í bága við alþjóðalög og samninga og álykt- un Öryggisráðsins á þriðjudag. manna og kvað þá ósk sameiginlega að viðhalda öflugu bandalagi og draga jafnframt úr vígbúnaði. Hann kvaðst sannfærður um að Banda- ríkjamenn mundu beita sér fyrir þessu á ráðherrafundi NATÓ í Briissel um eldflaugarnar í næstu viku. I Brussel sagði talsmaður NATO að það hefði verið áfall fyrir bandalagið að hollenzka þingið sam- þykkti í nótt með eins atkvæðis mun að hafna staðsetningu eldflauganna í Hollandi. Hann kvaðst hafa áhyggjur af áhrifum samþykktar- innar á Belgíu, eins fimm landa sem NATO vonar að fá til að leyfa staðsetningu eldflauganna. Búizt er við að hollenzka stjórnin geti fallið eftir ráðherrafundinn í Brússel í næstu viku. Arftaki Lynch gagnrýn- ir IRA Dyflinni, 7. desember. Reuter. STJÓRNARFLOKKURINN Fianna Fail í írska lýðveldinu kaus i dag auðmanninn Char- les Haughey forsætisráðherra í stað Jack Lynch. sem lætur formlega af störfum á þriðju- daginn og hét hann því að vinna að friðsamlegri samein- ingu lýðveldisins og Norður- írlands. Haughey fordæmdi í fyrstu yfirlýsingu sinni Provisional- arm írska lýðveldishersins (IRA), og alla starfsemi hans. Ummælin miða að því að draga að einhverju leyti úr þeim ótta sumra mótmælenda á Norður-írlandi og í Bretlandi að hann kunni að gera róttæk- ar breytingar á stefnu írsku stjórnarinnar gagnvart Norð- ur-írlandi. Hann sagði, að verið gæti að nokkur önnur áherzia yrði lögð á sumar hliðar stefnunnar, en í aðalatriðum yrði haldið áfram sömu stefnu sem er lin að dómi harðlínumanna í lýðveldishern- um. Lynch forsætisráðherra rak Haughey þegar hann var fjár- málaráðherra og hann var leiddur fyrir rétt og sýknaður 1970 af ákærum um að hafa verið viðriðinn meint samsæri um ólöglegan innflutning vopna til Irlands í því skyni að dreifa þeim meðal kaþólskra á Norður-írlandi. Hann sagði í dag að hann teldi að nú heyrði þetta mál sögunni til. Þegar hann var að því spurður hvers vegna hann hefði aldrei áður fordæmt IRA opinberlega sagði hann að þetta væri í fyrsta sinn sem hann hefði verið spurður um málið sem forsætisráðherra. „Eg tel friðsamlega sameiningu írsku þjóðarinnar fremsta for- gangsmál mitt,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.