Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
21
Brandt og Schmidt
hlutu f ærri atkvæði
Berlín, 7. desember. AP.
FULLTRÚAR á flokksþingi
vestur-þýzka sósíaldemó-
krataflokksins (SPD) end-
urkusu Willy Brandt fyrr-
verandi kanzlara formann
og Helmuth Schmidt kanzl-
ara varaformann flokksins
í gær með færri atkvæðum
en á flokksþinginu fyrir
tveimur árum.
Brandt, sem hefur verið
formaður flokksins síðan
1964, hlaut 360 atkvæði af
401 greiddu atkvæði.
Schmidt, sem tók við af
Brandt sem kanzlari 1974,
hlaut 365 af 420 greiddum
atkvæðum.
en á flokksþinginu í Hamborg
1977. Schmidt hlaut 30 atkvæðum
færra en fyrir tveimur árum.
Flokksstarfsmenn segja að 24
fulltrúar hafi greitt atkvæði gegn
Fjárframlög til
höfuðs Khomeini
New York, 7. desember. AP. Reuter.
MÓÐIR Carters forseta sagði í dag að peningar streymdu til
hennar í stórum stíl eftir að hún lýsti því yfir í fyrri viku að hún
mundi leigja mann til að myrða ayatollah Khomeini trúarleiðtoga i
íran ef hún aðeins ætti milljón dollara á lausu.
Sagði Lillian Carter að hún væri lýst Khomeini stríð á hendur.
ennþá sömu skoðunar varðandi Hefur þessi ættbálkur ekki átt í
Khomeini. Hún sagði að forsetinn neinum útistöðum frá því að
hefði ekki lýst óánægju sinni með þáverandi höfðingi hans, Litli-
yfirlýsingar hennar og að hann froskur, undirritaði friðarsátt-
hygðist ekki breyta afstöðu henn- mála við Bandaríkjastjórn árið
ar. „Ég gaf þessar yfirlýsingar 1795.
eftir 15 klukkustunda baráttu," Önnur Indíánasamtök hyggjast
sagði hún. lýsa stríði á hendur landi Kho-
Sjóliðar sem voru meðal gísl- meinis.
anna sem sleppt var úr banda- Brotizt hefur út armbandstízka
ríska sendiráðinu eftir að þeir í Bandaríkjunum eftir að banda-
höfðu verið nokkra daga í haldi ríska sendiráðið í Teheran var
stefndu írönskum stjórnvöldum í hertekið. Á armböndunum er
dag fyrir rétt og kröfðust 60 áletrunin „Styrkur er í samtök-
milljóna dollara skaðabóta fyrir um“ og er nýja dellan tákn fyrir
að vera haldið í gíslingu. Vilja þeir þá samstöðu sem bandaríska þjóð-
að skaðabæturnar verði teknar af in sýndi í afstöðu sinni til sendi-
sjóðum í eigu írana er frystir hafa ráðsmálsins, að sögn fréttaskýr-
verið í bönkum í Bandaríkjunum. enda. Það var útvarpsstöðin
Indíánaættbálkur í miðvest- WMCA í New York sem kom
urríkjum Bandaríkjanna hefur armbandsfárinu af stað.
Lífstíðarfangclsi vegna
njósna fyrir Sovétríkin
Stokkhólmi, 7. desember. AP.
SVÍI sem starfaði hjá Sameinuðu
þjóðunum og var öryggisvörður
var í dag dæmdur í lífstíðarfang-
elsi fyrir umfangsmiklar njósnir
í þágu Sovétríkjanna.
Varð dómstóllinn við kröfum
ríkissaksóknara sem lýsti njósn-
um Stigs Berglings sem „mögu-
legu morði fyrir alla sænsku
þjóðina".
Bergling, sem er 42 ára, var
fundinn sekur um að hafa njósnað
Njósnar-
inn vill
eftirlaun
Hamborg, 7. desember. AP.
Kjarnorkufræðingur er
flúði til Austur-Þýzkalands
þegar njósnarar í þágu
þess lands voru eltir uppi í
Vestur-Þýzkalandi í byrjun
' ársins, hefur stefnt fyrrver-
andi atvinnurekendum sín-
um i Hamborg fyrir rétt og
krafizt að sér verði greidd-
ur lífeyrir, en fyrirtækið
hætti greiðslunum er
kjarnorkufræðingurinn
flúði.
Fyrirtækið, rafmagns-
veita Hamborgar, hefur
sagt að raunverulegur
vinnuveitandi kjarnorku-
fræðingsins, Johannes
Koppe, hafi verið leyniþjón-
usta Austur-Þýzkalands og
að hann hafi fyrirgert til-
kalli sinu til lífeyris með
því að njósna í þágu komm-
únista.
fyrir Rússa frá 1973. Játaði hann
við yfirheyrslur að hafa afhent
Rússum skjöl um sérstaklega mik-
ilvæg hernaðarleyndarmál, þar á
meðal um leynilegar varnarstöðv-
ar og upplýsingar um varnaráætl-
anir í stríði. Njósnir hans eru
sagðar hafa unnið óbætanlegt tjón
á sænskum vörnum og gagn-
njósnamálum. Bergling gegndi
mikilvægum stöðum hjá leyni-
þjónustu hersins og öryggislög-
reglunni í aðalstöðvum sænska
hersins í nokkur ár. Aðeins fjórir
hafa áður verið dæmdir í lífs-
tíðarfangelsi í Svíþjóð.
10% hækkun
á olíu spáð
Caracas, 7. desember, Reuter.
FULLTRÚI í stjórn ríkisolíufé-
lagsins í Venezuela, Humberto
Penaloza, sagði í sjónvarpsviðtali
í dag að aðildarríki Samtaka
olíusöluríkja (OPEC) mundu
hækka olíuverð sitt um að
minnsta kosti 10 af hundraði á
fundi sínum í Caracas eftir 10
daga.
Háværar kröfur eru uppi um
hækkað olíuverð og samkvæmt
heimildum í olíuiðnaðinum er
rætt um þann möguleika að
olíutunnan verði seld á 30 dollara
miðað við 22 nú.
W
ERLENT
Brandt, 16 hafi setið hjá og tvö
atkvæði hafi verið ógild. Alls
greiddu 38 fulltrúar atkvæði gegn
Schmidt og 17 sátu hjá.
Þótt vafi léki aldrei á úrslitun-
um fylgdust stjórnmálasérfræð-
ingar með atkvæðagreiðslunum til
að kanna hvort óánægju yrði vart
meðal óbreyttra flokksmanna.
Schmidt og Brandt eiga í höggi
við andstæðinga úr röðum vinstri
manna og ungra flokksmanna út
af ágreiningi í orkumálum og um
staðsetningu meðaldrægra banda-
rískra eldflauga í Vestur-Evrópu.
Um 80 af hundraði þingfulltrúa
greiddu atkvæði með stuðningi
Schmidts við staðsetningu eld-
flauganna og við tilboð um samn-
inga við Rússa um fækkun slíkra
vopna.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
þýða, að Vestur-Þjóðverjar munu
eindregið styðja ákvörðun um að
eldflaugunum verði komið fyrir á
fundi landvarnaráðherra NÁTO í
Brussel í næstu viku.
Amnesty á móti
framsali keisara
Columbus, Ohio, 7. desember. AP.
SAMTÖKIN Amnesty International eru andvíg því að Reza
Pahlevi Iranskeisari verði framseldur til írans þar sem hann yrði
dreginn þar fyrir rétt og líklega tekinn af lífi.
Ritari samtakanna sagði að afstaða samtakanna byggðist á
mannréttindastefnu þeirra. Þó svo að þess yrði krafizt að keisari
yrði framseldur í skiptum fyrir gíslana 50 í bandaríska sendiráðinu
í Teheran ætti ekki að framselja keisarann, sagði ritarinn. Það
væri engu að síður skoðun samtakanna að stjórn keisarans hefði á
sínum tíma verið „ógnarstjórn".
Sendifulltrúi írans í Líbanon sagði í dag að það væri mál
stjórnarinnar í Líbanon hvort íranskir sjálfboðaliðar berðust við
hlið Palestínuskæruliða í suðurhluta Libanons í viðureign PLO við
ísraela, en fregnir frá Teheran herma að þúsundir sjálfboðaliða
yrðu sendir til Líbanons ef stjórnvöld þar samþykktu það. Þessu
hefur hins vegar verið tekið fálega í Beirút og stjórnin lagst gegn
fyrirætlunum írana.
Kokkurinn gefur að smakka góögæti, matreitt í
nýja Philips teinagrillinu milli kl. 2—4 í dag.
JÓLAMAGASÍNIÐ ÁRSÖLUM
Einstök nýjung!
Philips
teinagrill
Þetta fallega tæki köllum við teinagrill. Með því er hægt að matreiða ilmandi
kebab (teinarétti) inni í borðstofu. Allt aö átta teinar geta verið í sambandi í einu
og þeir snúast einn hring á mínútu. Öflugt, infrarautt element eldar matinn
fljótt og vel. Philiþs teinagrill er
mjög auövelt aö hreinsa.
PHILIPS teinagrill er ný leið
til að njóta góðs matar.