Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979 29 11 C| IéT heimsins besta ryksuga í| I ■ Stór orð, sem reynslan réttlætir. (■Ji I I li^^k FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX__________________ HÁTÚNI — SÍMI 24420 Minninp: Vilborg Guðbrands- dóttir frá Loftsölum Mig langar að minnast með nokkrum orðum móðursystur minnar, Vilborgar Guðbrands- dóttur, sem lézt 30. nóvember síðastliðinn og er í dag til grafar borin frá Skeiðflatarkirkju í Mýr- dal á æskuslóðum hennar. Hún var fædd í Loftsölum í Mýrdal 31. október 1903 og voru foreldrar hennar Guðbrandur Þorsteinsson vitavörður og kona hans, Elín Björnsdóttir. Var hún fjórða í röðinni af fimmtán börn- um þeirra hjóna er upp komust, tólf systrum og þremur bræðrum. Eftir lifa nú ellefu þeirra systk- ina. Vilborg ólst upp á Loftsölum í hinum stóra systkinahópi. Við, sem yngri erum, eigum erfitt með að ímynda okkur lífsbaráttuna í upphafi aldarinnar, hún hefur eflaust oft verið hörð, en með atorku og eljusemi sáu hjónin á Loftsölum sinni stóru fjölskyldu farborða. Auk búskapar og vita- vörzlu stundaði Guðbrandur sjó- róðra frá Dyrhólaey og var for- maður um langt skeið. Guðbrand- ur á Loftsölum var einstakt ljúf- menni, sem öllum vildi vel og Elín annáluð dugnaðar og gæðakona. Hefi ég fáa heyrt minnast foreldra sinna með meiri virðingu og þökk en systkinin frá Loftsölum. Vil- borg hélt alltaf tryggð við æsku- stöðvarnar og dvaldi á hverju sumri um tíma á Loftsölum, þar sem tvö af systkinunum búa enn. Árið 1935 hóf Vilborg störf á saumastofu Álafoss hf. og starfaði þar óslitið þar til fyrir nokkrum vikum, er hún varð að fara á sjúkrahús. Var vandvirkni hennar og samvizkusemi í störfum við brugðið. Um svipað leyti og Vil- borg hóf Sigurlín systir hennar störf hjá Álafossi og var þeim báðum veitt sérstök viðurkenning frá fyrirtækinu er þær höfðu unnið þar í 40 ár. Þær systur voru mjög samrýmdar og héldu heimili saman hátt á fjórða áratug. Heim- ili Villu og Línu í Stigahlíð 22 er afar hlýlegt og prýtt mörgum fallegum munum, sem þær hafa unnið, enda báðar miklar hann- yrðakonur. Þar hefur ætíð verið gestkvæmt og þangað gott að koma og ávallt veitt af mikilli rausn. Milli systranna frá Loftsölum hefur alltaf ríkt einstök sam- heldni. Sem dæmi má nefna, að í meira en þrjátíu ár hafa þær sem búsettar eru í Reykjavík haft með sér saumaklúbba hálfsmánaðar- lega. Þá hefur alltaf þótt sjálfsagt að börn og annað venzlafólk kæmi í kvöldkaffið og hefur þá oft verið fjölmenni og glatt á hjalla. í mörg ár hafa systurnar frá Loftsölum og þeirra skyldulið efnt til árlegrar ættarferðar um helgi á sumrum, oft í óbyggðir og er þá jafnan gist í tjöldum. Vilborg tók þátt í öllum þessum ferðum af lífi og sál og betri ferðafélaga var ekki hægt að hugsa sér, alltaf jafn ljúf og góð á hverju sem gekk. Þótt hún væri þrotin að heilsu og kröftum, lét hún sig ekki vanta í ferðina í Breiðafjarðareyjar síðastliðið sumar. Verður erfitt að hugsa sér ættarferðir án hennar. Hún hafði mikið yndi af ferðalög- um og ferðaðist talsvert bæði heima og erlendis. Ég minnist með ánægju Ameríkuferðar fyrir mörgum árum með henni og Línu, ásamt móður minni í heimsókn til systur þeirra og annarra ættingja þar. Vilborg giftist ekki né eignaðist börn, en hún lét sér ákaflega annt um börn og barnabörn systkina sinna. Erum við orðin mörg, sem höfum notið gjafmildi hennar og umhyggju á einn eða annan hátt. Og eftir að fjórða kynslóðin kom til sögunnar, stóð ekki á Villu langömmusystur að hlynna að þeim yngstu. Hún var sívinnandi og gat aldrei setið auðum höndum og marga flíkina saumaði hún og gaf gegnum árin, að ógleymdri allri fallegu handavinnunni henn- ar. Vilborg var fríð sýnum, há og grannvaxin og ljós yfirlitum. Framkoma hennar einkenndist af prúðmennsku og hógværð. Hún fylgdist vel með og hélt alltaf dagbækur, hafði sérstæða kímni- gáfu, og var oft orðheppin. Villa frænka krafðist lítils fyrir sjálfa sig, en veitti öðrum óspart af hjartahlýju sinni og góðvild. Eg og fjölskylda mín þökkum henni vináttu og tryggð bæði fyrr og síðar. Línu og systkinum send- um við innilegar samúðarkveðjur. Sigrún Valdimarsdóttir. Mikið úrval af „Peysuíotum“5 Combi-fatnaði og Tweed-fötum frá Adamson og Van Gils. ...hér er rétti sta&urínn! Bankastrætí7 A6alstræti4 SOGGETA I SÉRFLOKKI F.instakur mótor, cfnisgæði. mark- visst byggingarlag, afbragðs sog- stykki — j;í, hvcrt smáatriði stuðlar að soggetu í sérflokki. fullkominni orkunýtingu, fyllsta notagildi og dæmalausri endingu. GERIÐ SAMANBURÐ: Sjáið t.d. hvernig stærð. lögun og staðsetning nýja Nilfisk-risapokans tryggir óskert sogafl þótt í hann safnisf. GÆÐI BORGA SIG: Nilfisk er vönduð og tæknilega ósvikin. gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel. ár eftir ár. með lág- marks truflunum og tilkostnaði. Varanleg: til lengdar ódýrust. Afborgunarskilmálar. Traust þjónusta. Nú er sterka ryksugan ennþá sterkari. Nýr super-motor: áður óþekktur sogkraftur. Ny sogstilling: auðvelt að tempra kraftinn. Nyr ennþá stærri pappírspoki með hraðfestingu. Ný kraftaukandi keiluslanga með nýrri festingu. Nýr vagn sameinar kosti hjóla og sleða. Auðlosaður í stigum NÝ NILFISK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.