Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979 19 Reykhólar: Þéttsetin kirkja á aðventukvöldinu Miðhúsum, 7. desember. í GÆRKVÖLDI gekkst sóknar- presturinn hér séra Valdimar Hreiðarsson fyrir aðventukvöldi í Reykhólakirkju í samvinnu við Reykhólaskóla. Séra Valdimar flutti inngangsorð og börnin sungu Ó, Jesú bróðir besti. Þá las Gunnsteinn Haraldsson nemandi úr 4. bekk ritningarorð. Næsta atriði var að 4 börn stóðu í kórdyrum með kertaljós og á meðan sungu hin börnin Ó faðir gjör mig lítið ljós. Næst sungu stúlkur úr 7., 8. og 9. bekk Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen við lag efti'r Skúla Halldórsson, áður kynnti séra Valdimar skáldin og tengsl þeirra við Reykhóla. Stúlkurnar sem sungu voru: Inga Hrefna Jónsdóttir, Bryndís Kristjánsdóttir, Þórdís Gunnars- dóttir, Kristín Jóhannsdóttir, Birna Erlingsdóttir og Agnes Finnsdóttir. Þá sýndu börn úr 3. og 4. bekk leikþátt, en þau voru Margrét Ólafsdóttir, Hjördís Vil- hjálmsdóttir, Ágúst Ómarsson og Eyþór Jónason. Næst las Aðal- björg Pálsdóttir upp kvæði og síðan sungu börnin úr 1. og 2. bekk barnasálm. Þá las Dofri Her- mannsson upp kvæði og stúlkurn- ar úr 7. og 8. bekk sungu létta trúarlega söngva við gítarundirl- eik Ingu Hrefnu Jónsdóttur. Þá las Gunnsteinn Haraldsson bæn og allir kirkjugestir fóru með Faðir vor. Að lokum sungu börnin Ástar- faðir himinhæða, söngstjórn og orgelundirleik annaðist Ólína Jónsdóttir. Kirkjan var þéttsetin, en hún rúmar um 110 manns í sæti. Sveinn. Perusala Baldurs á Lækjartorgi í dag og næsta laugardag efnir Lionsklúbburinn Baldur til sölu á ljósaperum og hefst salan á Lækjartorgi uppúr klukkan 10. Rennur ágóði sölunnar til sundlaugarsjóðs Sjálfsbjargar, en auk perusölunnar selur klúbburinn i ár sett er samanstendur af ullartrefli og húfu, i sérstökum gjafaumbúðum sem ætlað er til jólagjafa handa vinum og kunningjum erlendis. Ljósm. Rax. Hjá skipasmíðastöðinni Þorgeir og Ellert á Akranesi er nú unnið að smiði þessa togara fyrir Tálkna hf. Ljósm. Júlíus Þórðarson Þorgeir og Ellert Akranesi: Unnið að stækkun stöðv- arhúss og skipalyftu Akranesi 7. desember MEÐFYLGJANDI mynd er af skipi sem er í smiðum hjá skipa- smíðastöðinni „Þorgeir og Ell- ert“ á Akranesi og er það ný- smiði nr. 34. Er það 400 lesta togari sem einnig er útbúinn á þann hátt að hægt er að stunda herpinótaveiðar á honum. Eigandi skipsins er Tálkni hf, hluthafar Bjarni Andrésson, Ár- sæll Egilsson o.fl. og verður skip- inu líklega hleypt af stokkunum um laust eftir næstu áramót. Verkefni stöðvarinnar nr. 35, verður togari, smíðaður fyrir feðg- ana: Hjálmar Gunnarsson og Gunnar Hjálmarsson í Grundar- firði. — Þorgeir & Ellert H.F., hefir áður smíðað tvö skip fyrir Hjálmar:, V/S. Siglunes og V/S. Haukabert. Nú um þessar mundir, er unnið að stækkun stöðvarhússins og skipalyftunnar hjá „Þorgeir & Ellert H/F.,“ og verður að því verki loknu, hægt að byggja og lagfæra stærri skip en nú gerist. Júlíus Leðurvöruverslun Jóns Brynjólfssonar vlð Austurstræti í Reykjavík verður nú um helgina flutt á nýjan stað í bænum, Bolholt 6. Verslunin hefur verið á sama stað i 76 ár og var i gær siðasti verslunardagurinn i gamla húsnseðinu og var þá þessi mynd tekin af þeim (f.v.) Ottarri Októssyni, Magnúsi M. Brynjólfssyni og Friðrik Eyfjörð. Ljósm. Emilía. ÁRGERÐlW(ö]> 22“ tækid er mikiö tæki í nettum umbúö- um. Eins og allir vita þá hafa Luxor verksmiöj- urnar lagt áherslu á aö fullkomna litgæöin í sjónvarpstækjunum. Eitt tekur viö af ööru og nú höfum við endur- bætt hljómburðinn. Tón- gæöin eru jöfn hvort Sjálfvirkur birtustillir. sem styrkurinn er hár eöa lár. Eyðir orku eins og 75 Wpera. MAL: CdB) 66x45x48 (B-H-D) 15 Þyngd 28.5 kg. Fáanleg í hnotu. 10 20000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.