Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979 23 Þjóðminjasafn jr Islands: Minjasafni Jóns Sigurðssonar forseta i Þjóðminjasafninu hef- ur nú aukist húsrými og er þvi unnt að sýna fleiri hluti úr eigu hans og Ingibjargar konu hans en áður var unnt. Er þetta gert í tilefni 100 ára ártiðar Jóns, og kynnti Þór Magnússon þjóð- minjavörður blaðamönnum þessa nýbreytni á fundi i gær. Þór Magnússon þjóðminja- vörður sagði upphaf Minjasafns Jóns Sigurðssonar vera það, að eftir lát þeirra hjóna, Jóns og Ingibjargar, keypti Tryggvi Gunnarsson á uppboði í Kaup- mannahöfn allmarga muni, sem þau létu eftir sig og gaf þá landinu með eftirfarandi bréfi til forseta sameinaðs Alþingis: Með brjefi þessu sendi jeg yður, herra forseti ins samein- aða þings skrá yfir muni þá er Jón Sigurðsson og kona hans ljetu eptir sig, og sem jeg ætlast til að landið eignist. Munirnir eru settir í herbergi það í alþingishúsinu, sem ákveðið var að þeir skyldu geymast í og bið jeg yður að hlutast til um að þeirra verði gætt framvegis. Virðingarfyllst Reykjavík 12 júlí 1881 Tryggvi Gunnarsson Bréfi þessu fylgdi prentuð skrá um munina. I bréfi Matthíasar Þórðarson- ar þjóðminjavarðar til sam- skotanefndar minnisvarða Jóns Sigurðssonar, dags. 19. sept. 1915 kemur fram, að áðurnefndir munir sem Tryggvi gaf landinu og fól Alþingi til varðveislu hafa þá lengst af síðan 1881, legið umhirðu litlir á Alþingishúsloft- inu. Munirnir höfðu þá aldrei verið til sýnis fyrir almenning nema þegar þjóðminjavörður fékk þá að láni á aldarafmæli Jóns 1911 og hélt á þeim sýningu í safnahúsinu í húsnæði sem Þjóðskjalasafnið léði í því skyni. Að sýningunni lokinni færðist Alþingi undan að taka við safn- inu aftur og skjalasafnið gat ekki séð af sýningarherberginu til frambúðar svo að hola varð safninu niður í yfirfullum geymslum Forngripasafnsins. — A sýningunni 1911 fékk þjóð- minjavörður að láni ýmsa muni úr búi Jóns Sigurðssonar, sem þá voru í eigu ættingja Jóns og annarra einstaklinga. Sumir þessara muna voru gefnir minja- Sýning á munum úr eigu Jóns Sigurðssonar í Þjóðminjasafninu hefur nú fengið aukið húsrými í tilefni 100. ártiðar hans, og kynnti Þór Magnússon þjóðminjavörður þessa nýjung á fundi með blaðamönnum i gær. Myndina tók Emilia Bj. Björnsdóttir. Sýning á munum Jóns Sigurðs- sonar í tilefni 100. ártíðar hans safninu að sýningu lokinni eða síðar. Árið 1916 var safni Jóns Sig- urðssonar komið fyrir í sérstöku sýningarherbergi í Alþingishús- inu og var til þess notaður afgangurinn af samskotafé til minnisvarðans, sem gerður var 1911. í Alþingishúsinu var safnið svo til 1952 er það var flutt í hús Þjóðminjasafnins við Suðurgötu þar sem það hefur mestallt verið haft stöðugt til sýningar í einu herbergi, stofu Jóns Sigurðsson- ar. Eftir að minjasafnið var flutt í Þjóðminjasafnið og falið umsjá ess hafa því enn áskotnast nokkrir munir að gjöf. í tilefni af 100 ára ártíð Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar konu hans hefur minjasafnið fengið einn eitt herbergi til Einar Laxnes afhendir Þór Magnússyni þjóðminjaverði eintak af bókinni um Jón Sigurðsson er Einar hefur tekið saman, en í minjasafninu um Jón er geymt allt það er tengist lifi hans og starfi þar með taldar bækur eftir hann og um hann. umráða í safninu svo að hafa megi til sýnis nokkru fleiri af gripum safnsins en verið hefur og öðrum komið betur fyrir en var. Er hér einkum um að ræða ýmsa smáhluti úr eigu þeirra hjóna, svo sem úr og skartgripi, kjólföt og pípuhatt Jóns og hluta af skautbúningi Ingibjargar, sem safnið hefur nú alveg nýver- ið eignast, bréf og ýmis skrifuð gögn, svo sem prentsmiðju handrit að Nýjum félagsritum, fæðingarvottorð og annað smá- legt af því tagi. Þá eru myndir af þeim hjónum á ýmsum aldri, ýmis gögn og myndir frá útför þeirra og samskotalistar o.fl. frá gerð minnisvarða Jóns. Sýning þessi verður opin á venjulegum sýningartíma safns- ins. Ýmsir munir, handrit, skjöl og fatnaður eru til sýnis i þjóðminjasafninu. Hrafnseyri: Reyna að ljúka bygg- ingum á næsta sumri — VIÐ höfum sett okkur það mark að ljúka byggingum á Hrafnseyri næsta sumar, en þar mun þá verða minjasafn og að- staða til funda- og guðsþjónustu- halds, í nýja húsinu ásamt eldra húsinu sem fyrir er, sagði Þór- hallur Ásgeirsson ráðuneytis- stjóri og formaður Hrafnseyrar- nefndar er Mbl. ræddi við hann í gær, en rikisstjórnin hefur ákveðið að veita nefndinni 10 milljón króna framlag i tilefni 100. ártíðar Jóns Sigurðssonar er var í gær. Þórhallur sagði að Hrafnseyrar- nefnd hefði fyrst verið skipuð árið 1945 og henni verið falið að vinna að uppbyggingum á Hrafnseyri í minningu um Jón Sigurðsson og hefði verið ráðist í að reisa þar hús, m.a. fyrir skóla og prestsbú- stað, en vegna mannfækkunar í sveitinni hefði ekki verið þörf fyrir skólann, þótt hann hefði hins vegar verið notaður að litlu leyti til kennslu í fyrra og aftur í vetur. Ekki hefði heldur verið þar þörf fyrir prestsetrið. í minjasafni um Jón Sigurðsson er ráðgert að menn geti komið og aflað sér þar fróðleiks um líf hans og störf og kvað Þórhallur þá hugmynd hafa verið setta fram að gefa mönnum kost á að dvelja að Hrafnseyri við fræðistörf eða önnur verkefni. Þórhallur Ásgeirsson sagði að mikið munaði um að fá fyrrgreint framlag ríkisins og væri nefndin þakklát fyrir þann stuðning. Nú væri húsið um það bil fokhelt, en innréttingavinna væri öll eftir og kostaði hún væntanlega talsvert fé. Væri nú unnið að frekari fjáröflun m.a. með því að selja minnispeninga Jóns Sigurðssonar og fást enn hjá Seðlabankanum bronspeningar sem kosta 10 þús- und krónur, en silfurpeningarnir eru uppseldir. Frá Hrafnseyri, en þar stefnir Hrafnseyrarnefnd að því að ljúka viðbótarbyggingum á næsta sumri og koma upp m.a. minjasafni um Jón Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.