Morgunblaðið - 08.12.1979, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
10
SPITALALIF
Nýr framhaldsmyndaþáttur hefur
göngu sína í sjónvarpinu en hann
er byggður á hinni frægu kvikmynd
M
*A*C?*
SPÍTALALÍF — nýr fram-
haldsmyndaflokkur hefur
göngu sína í sjónvarpinu
í kvöld. Þættirnir eru
byggöir á kvikmyndinni
MASH, sem náöi gífur-
legum vinsældum fyrir
nokkrum árum meö þá
Elliot Gould og Donald
Sutherland í aöalhlut-
verkum. Eins og titillinn
raunar ber meö sér fjalla
þættirnir um líf lækna og
hjúkrunarkvenna í Kór-
eustríöinu. Undirtitill
myndaflokksins er „Spít-
alalíf í Kóreustríöinu um
1950 — fyrir hundraö
árum“. Meö því vilja aö-
standendur leggja
áherslu á hve fjarlægt
Kóreustríöið sé nú og
eins aö þættirnir séu í
sjálfu sér ekki bara
bundnir viö Kóreustríöið
— heldur stríösrekstur
almennt.
„Þessi myndaflokkur
hefur veriö mjög vinsæll
erlendis. Við höfum
keypt 13 þætti og síðan
ræöst framhaldið af viö-
tökum fólks,“ sagöi Björn
Baldursson, dagskrar-
geröarmaöur hjá Sjón-
varpinu, í viötali viö Mbl.
„Eins og nafniö raunar
bendir til fjallar mynda-
flokkurinn um spítalalíf
— hreyfanlega spítala-
sveit í Kóreustríöinu.
Þetta fólk tekur hlutina
ekki of alvarlega. Þaö
hugsar mikiö um aö
komast á brott frá hinu
daglega lífi á spítalanum
— limlestum mannslík-
ömum og skemmta sér.
Þaö er logið til aö ná sér
út fríi, komast á brott frá
stríöinu meö hjúkku.
Þessir menn eiga í stöö-
ugum erjum viö yfirmenn
hersins — þaö er mikill
gálgahúmor í þessum
þáttum,“ sagi Björn
ennfremur.
Persónur í Spítalalífi
eru hinar sömu og voru í
kvikmyndinni á sínum
tíma. Þegar myndin var
sýnd hér naut hún geysi-
legra vinsælda, ekki síst
fyrir stórbrotin leik þeirra
félaga, Elliot Gould og
Donald Sutherland. Þeir
fóru á kostum í hlutverk-
um Hawkeye og Trapper,
læknanna samrýndu.
„Þættirnir eru svipaöir og
myndin en vægar fariö í
sakirnar í myndinni,"
sagöi Ellert Sigurbjörns-
spn, þýöandi þáttanna.
„Ég held aö þeir eigi eftir
aö ná vinsældum. Efni
fyrsta þáttar er í stuttu
máli, aö efnt er til happ-
drættis til stuðnings
þjóni læknanna í því
augnamiöi aö hjálpa
honum aö komast til
Bandaríkjanna til aö
mennta sig en hann er
Kóreumaður. Þaö sem
þátturinn snýst í kringum
er vinningurinn — hann
er ferö til Tokyo meö
einni hjúkkunni svo til
mikils er aö vinna," sagöi
Ellert ennfremur.
Alan Alda fer meö
hlutverk Hawkeye í
myndaflokknum og
Trapper, sem Gould lék,
er leikinn af Wayne Rog-
ers. Þessir tveir, lækn-
arnir, eru mjög samrýnd-
ir og koma mikiö viö
sögu en þeir voru meö
ólíklegustu uppátæki í
myndinni á sínum tíma.
Loretta Swit fer meö
hlutverk „Hot Lips“ í
myndaflokknum. í mynd-
inni á sínum tima kom
hún í sjúkrahúsiö sem
sómakær ung stúlka,
sem lítiö þýddi aö reyna
viö, en fór sem lífsreynd
léttlynd kona meö mikla
reynslu. Önnur stór hlut-
verk eru í höndum
McLean Stevensons og
Larry Linvilles. McLean
Stevenson þótti til mikils
aö vinna og undirbjó
hann leik sinn í mynda-
flokknum af mikilli kost-
gæfni. Hann fór á nám-
skeið hjá þekktum lækni
í Bandaríkjunum og var
síöan ákveöiö aö hann
yröi viðstaddur uppskurö
á gallblööru. Hann mætti
aö sjálfsögöu galvaskur
til uppskuröarins —
heilsaöi öllum innilega en
læknirinn haföi vart beitt
hnífnum á sjúklinginn
þegar steinleiö yfir kapp-
ann!
Handrit aö þáttunum
hafa ekki veriö samin
meö löngum fyrirvara.
Þættirnir hafa einfald-
lega komiö af sjálfu sér.
Þættirnir um Spítalalíf
— eöa MASH (Mobile
Army Surgical Hospital)
hafa hlotið fjölda viöur-
kenninga. Þeir hafa hlot-
iö hvorki meira né minna
en níu Emmiverölaun,
sem eru nokkurs konar
Óskarsverölaun sjón-
varpsmynda. Af vinsæld-
um þáttanna erlendis má
þaö marka, aö enn eru
þeir sýndir eftir aö hafa
birst á skjánum fyrir
tæpum sjö árum.
Loretta Swit — „hot
lips“. Hún kom til sög- Þeir eru ekki alltaf í hvítum sloppum, Trapper og
unnar sem ung og Hawkeye ræða við fólaga sína.
óspillt en ...
Þau leika í Spítalalífi — Alan Alda, Loretta Swit, McLean Stevenson, Larry
Linville og Wayne Rogers.