Morgunblaðið - 08.12.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
11
Aðventuhátíð í
Bústaðakirkju
Þrjátíu manns stunduðu
nám á tveimur önnum hjá
Félagsmálaskóla alþýðu
AF ástæðum, sem öllum ættu að
vera ljósar, var ákveðið að fresta
árlegu hátíðahaldi í Bústaða-
kirkju í tilefni jólaföstu um eina
viku. Leið því fyrsti sunnudagur í
aðventu eins og hver annar, hvað
kirkju og safnaðarlíf áhrærir, en
þeim mun meir er nú vandað til
hins annars sunnudags í aðventu.
Er þatleitast við að beina huga að
sönnum tilgangi jóla og eðlilegum
tengslum jólaundibúnings og
kirkjulegs lífs. Auk þessa er
vígsluafmæli Bústaðakirkju hinn
fyrsta sunnudag í aðventu, og er
kirkjan um þessar mundir átta
ára gömul.
Dagskrá aðventuhátíðarinnar
verður í stutu máli á þá leið, að
barnasamkoma verður um morg-
uninn kl. 11, og þar munu guð-
fræðinemarnir Kristinn Ágúst
Friðfinnssons og Ólafur Hall-
grímsson tala við börnin auk
starfsmanna safnaðarins. Kl. 2
síðdegis verður guðsþjónusta, þar
sem sóknarpresturinn predikar,
kirkjukórinn syngur og frú Ing-
veldur Hjaltested syngur einsöng.
Að messu lokinni býður Kvenfélag
Bústaðasóknar til veislu í safnað-
arsölum kirkjunnar, og eru þær
konur þekktar fyrir það að bera
bæði góðar kökur og brauð á borð,
auk þess sem snyrtimennska er
veglega virt og umhverfi allt
mótað í samræmi við tilefnið. Kl.
5 síðdegis eru tónleikar á vegum
Kammersveitar Reykjavíkur.
Hin hefðbundna aðventusam-
koma hefst síðan kl. 20.30, og er
ræðumaður kvöldsins Einar
Ágústsson, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra og væntanlegur sendi-
herra í Kaupmannahöfn. Er það
söfnuði gleðiefni að geta kvatt
sendiherrann í og árnað honum og
konu hans heilla í þýðingarmiklu
starfi á erlendri grund. Kirkjukór
Bústaðasóknar syngur undir
stjórn organistans, Guðna Þ. Guð-
mundssonar, en honum til aðstoð-
ar er strengjakvartett og gítar-
leikarinn Þórarinn Sigurbergsson.
Auk þess stíga þrír úr yngri
kynslóð kórfélaga fram og syngja
einsöng, en það eru frú Ingibjörg
Marteinsdóttir, Sólrún Bragadótt-
ir og Kjartan Ólafsson. Að lokum
er helgistund og kertin tendruð.
. Sunnudaginn allan verður til
sýnis líkan af lituðu gleri í kór-
glugga kirkjunnar. Er það lista-
maðurinn Leifur Breiðfjörð, sem
vinnur að þessu verkefni á vegum
safnaðar og arkitekts kirkjunnar,
Helga Hjálmarssonar. Er forráða-
mönnum safnaðarins mikið
kappsmál að fá að heyra álit
sóknarbarna á tillögum lista-
mannsins, og ætti að gefast gott
tækifæri til að skoða og bolla-
leggja á sunnudaginn kemur.
Liðin ár hafa leitt í ljós, hversu
margir kunna vel að meta þá
hátíð, sem Bústaðakirkja laðar
fram og hýsir við upphaf aðventu.
Skal enn ítrekað, að allir eru
velkomnir, og að hér gefst gott
tækifæri fyrir sannan jólaundir-
búning.
ólafur Skúlason
TVEIMUR fyrstu önnum í Fé-
lagsmálaskóla Alþýðu lauk
fyrir skömmu. Sú fyrri stóð yfir
7. —20. október en sú seinni
4. —17. nóvember. Námsgreinar
voru þessar: Ræðumennska.
fundarstörf, félagsstjórnun,
framsögn, hópefli, saga og
Sögusafn Verkalýðshreyfingar-
innar, starf og staða trúnað-
armanna á vinnustöðum, skipu-
lag og starfshættir A.S.Í.. út-
gáfustarf verkalýðsfélaga, fjöl-
þjóðasamtök verkalýðshreyf-
ingarinnar, helstu réttindi
launafólks, almannatryggingar,
stefnuskrá ASÍ, heilbrigði og
öryggi á vinnustöðum. Ennfrem-
ur var skipst á skoðunum við
forystumenn Verkalýðssamtak-
anna um málefni hreyfingarinn-
ar.
Á þessum báðum önnum komu
ýmsir gestir í heimsókn og
nemendur fóru í skoðunarferðir
um nágrenni Reykjavíkur.
Þrjátíu manns stunduðu nám
við Félagsmálaskóla alþýðu á
þessum tveimur önnum og
fimmtán leiðbeinendur komu og
störfuðu við skólann um lengri
eða skemmri tíma. Námsstjórar
voru þeir Karl Steinar Guðnason
og Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
Eftir áramót verður starfi
skólans haldið áfram og hefur
verið rætt um að þá verði einnig
3. önn.
Formaður skólastjórnar Fé-
lagsmálaskóla alþýðu er Stefán
Ögmundsson en stjórn skólans
er jafnframt stjórn Menningar-
og fræðslusambands alþýðu.
Kynna í dag
„Prout“-hug-
myndafræði
ÞJÓÐMÁLAHREYFING íslands
heldur kynningar— og umræðu-
fund um andleg vísindi og áhrif
þeirra í Ijósi „Prout“— hug-
myndafræðinnar í dag, laugar-
dag, kl. 14 að Aðalstræti 16.
I frétt frá Þjóðmálahreyfing-
unni segir að „tantrísk" hugleiðsla
sé ekki slökunaræfing heldur
vísindaleg aðferð til að þroska
einstaklinginn líkamlega og and-
lega.
AUGLÝSINGA-
TEIKNISTOFA
MYIMDAMÓTA
Aóalstræti 6 simi 25810
• Hægt að tengja við 2 aukahátalara.
• Tveir microphonar innbyggðir.
• Hægt að tengja beint viö magnara.
• Svona er hægt aö halda áfram að þylja upp en
sjón og heyrn er sögu ríkari.
• TVC ferðatækin bíöa eftir þér. Þau eru
ófeimin. ,
y JVC feröaútvarps- og kassettutækin eru löngu
% landsfræg fyrir mikil gæði, fallegt útlit og síöast
Y en ekki sízt mikla endingu. Meöal atriða má nefna:
'A. • 4—6 bylgjur, FM stereó.
y, • Ganga fyrir rafmagni, rafhlöðum + 9— 12w
Y/ fyrir bílinn.