Morgunblaðið - 08.12.1979, Qupperneq 20
20
r
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
Jólakaffi
Hringsins
Komist í jólaskap og drekkiö eftirmiðdagskaffi hjá Hringskonum að
Hótel Borg á morgun, 9. desember kl. 3.
Hringskonur verða einnig með margskonar jólavarning, jólakort, platta félagsins og hið
vinsæla skyndihappdrætti, en meðal vinninga í því er ferð til Kaupmannahafnar.
Lokum
vegna flutninga
Frd og með mánudeginum 10.
desember verður verzlun okkar,
Austurstrœti 3, lokað.
Opnum eftir nokkra daga að
Bolholti 6.
Leðurverzlun Jóns
Brgnjólfssonar.
Guðmundur
G. Hagalín
Almenna bókafélagið
Austurstræti 18,
sími 19707
Skemmuvegur 36,
sími 73055
„Þeir vita það fyrir vestan“, fjallar um þau 23 ár sem umsvifamest
hafa orðið í ævi Guðmundar G. Hagalíns.
Fyrst dvaldist hann 3 ár í Noregi, lifði þar fjölbreytilegu lífi og feröaöist
víðsvegar um landiö til fyrirlestrahalds. Síðan var hann blaöamaður viö Alþýðublaöið
tæp 2 ár, unz hann fluttist til ísafjaröar 1929 og þar tók hann ríkulegan þátt í bæjarlífi og
stjórnmálum þau 15 ár sem hann átti þar heima.
Meginhluti bókarinnar er um ísafjarðarárin. ísafjöröur var þá sterkt vígi
Alþýöuflokksins og kallaður „rauði bærinn". Hagalín var þar einn af framámönnum
flokksins ásamt Vilmundi Jónssyni, Finni Jónssyni, Hannibal Valdimarssyni o.fl..
Á þessum árum skrifaði Hagalín auk þess ýmis af meiriháttar verkum sínum,
svo sem Kristrúnu í Hamravík, Sturlu í Vogum, Virka daga og Sögu Eldeyjar-Hjalta.
Bókin einkennist öðru fremur af lífsfjöri og kímni, og hvergi skortir á
hreinskilni.
Fundin ný
gerð DNA
Boston, Massachusetts, 7. desember. AP
VÍSINDAMENN við
Tækniháskólann í Massa-
chusetts (MIT) hafa upp-
götvað afbrigði af DNA-
kjarnasýrunni, frumeind-
inni sem allt líf byggir á.
Sérfræðingar sem unnu
að rannsóknum sögðu að
uppgötvunin ætti áreiðan-
lega eftir að breyta skiln-
ingi manna á DNA-kjarna-
sýrum og einnig væri upp-
götvunin mikilvæg fyrir
meðhöndlun krabbameins.
Hið nýja afbrigði er talsvert
frábrugðið DNA-gerðinni sem
nefnd hefur verið hin tvöfalda
hvirfingalína og James Watson og
Francis Crick uppgötvuðu fyrir 26
árum, en þeir hlutu Nóbelsverð-
laun fyrir þá uppgötvun. í upp-
götvun Watsons og Cricks snerist
hvirfingalínan til hægri en í nýju
uppgötvuninni snýst hún til
vinstri. Frumathuganir benda til
þess að hið nýja afbrigði sé sú
frumeind sem hvetji krabbamynd-
andi frumur til að framleiða
krabbamein.
Veður
víða um heim
Akureyri +13 heióskírt
Amsterdam 11 skýjaó
Aþena 20 heióskírt
Barcelona 15 lóttskýjaó
Berlín 10 rigning
BrUssel 14 heióskirt
Chicago 4 skýjaó
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 12 skýjað
Genf 8 heióskírf
Helsínki 3 heióskirt
Jerúsalem 13 heióskírt
Jóhannesarborg 21 heiöskírt
Kaupmannahöfn 7 heiðskírt
Las Palmas 22 heióskírt
Lissabon 16 skýjað
London 15 skýjaó
Los Angeles 29 heiðskírt
Madrid 17 heióskírt
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 14 léttskýjaó
Miami 28 rigning
Moskva 2 skýjað
New York 13 skýjað
Ósló 6 heiðskírt
París 14 heióskírt
Reykjavik +4 skýjaö
Rio de Janeiro 32 skýjað
Rómaborg 16 skýjaó
Stokkhólmur 6 skýjaó
Tel Aviv 19 heióskírt
Tókýó 15 skýjaó
Vancouver 10 skýjað
Vínarborg 11 skýjaó
Tveir námsmenn féllu
í innbyrðis
Vinarborg, Baghdad. 7. deaember. Reuter.
TVEIR námsmenn frá írak
féllu og fleiri slösuðust
alvarlega er til átaka kom
milli námsnannahópa frá
Bretar hætta
stuðningi við
Pol Pot
London, 7. desember. AP.
TALSMAÐUR brezku
stjórnarinnar í utanríkis-
ntálum á þingi lýsti því yfir i
dag að stjórnin hefði ákveð-
ið að afturkalla stuðning
sinn við stjórn Pol Pots í
Kambódíu, þar sem stjórn
hans hefði ekki lengur raun-
veruleg völd í landinu. Hann
tók þó fram að Bretar
styddu ekki stjórn Heng
Samrins.
átökum
írak í Sofía í Búlgaríu á
mánudag og þriðjudag, að
því er búlgarska fréttastof-
an BTA skýrði frá í dag.
Koma þessar fregnir í kjölfar
frétta frá Baghdad um að sendi-
herra íraks í Sofíu hafi verið
kallaður heim, og í dag komu til
íraks 150 námsmenn frá Búlgaríu
en allir námsmenn Iraks þar hafa
verið kallaðir heim í kjölfar átak-
anna.
BTA sagði að til átakanna hefði
komið á ýmsum stofnunum sem
námsmenn frá írak stunduðu nám
við, og hefðu átökin verið af
„pólitískum toga“. Annar þeirra er
féllu var félagi í kommúnista-
flokki íraks, en í írak hefur
„glæpsamleg klíka kommúnista í
röðum námsmanna" verið sökuð
um átökin og afleiðingar þeirra.
Voru yfirvöld í Búlgaríu einnig
sögð viðriðin málið, en fréttastof-
an bar þær fregnir til baka.
í»etta geróist 8. desember
1974 — Grikkir greiða atkvæði
með stofnun lýðveldis og afnámi
konungdæmis.
1971 — Indverjar gersigra Pak-
istani í sókninni til Dacca.
1967 — 234 fórust með grískri
ferju nálægt eynni Melos.
1966 — Samkomulag Banda-
ríkjamanna og Rússa um bann við
kjarnavopnum í geimnum.
1962 — Uppreisnin í Brunei út
um þúfur eftir íhlutun Breta.
1956 — Allsherjarverkfall í
Ungverjalandi hefur í för með sér
herlög og fjöldahandtökur.
1941 — Bandaríkin og Bretland
segja Japan stríð á hendur.
1925 — „Mein Karnpf" eftir
Adolf Hitler kemur út.
1923 — Bandaríkin gera friðar-
samning við Þýzkaland.
1918 — Rússneskir bolsévíkar
taka völdin í Eistlandi.
1914 — Bretar sigra Þjóðverja í
orrustunni við Falklandseyjar.
1907 — Gústaf V verður konung-
ur Svía við lát Óskars II.
Afmæli: Hóratíus, rómverskt
skáld (65—8 f. Kr.) — Kristín
Svíadrottning (1626—1689) —
Björnstjerne Björnson, norskur
rithöfundur (1832—1910) — Jean
Sibelius, finnskt tónskáld (1865—
1957) — James Thurber, banda-
rískur rithöfundur (1904—1965) —
Eli Whitney, bandarískur faðir
spunavélarinnar (1765—1825) —
Maximillian Schell, austurrískur
leikari (1930— ).
Andlát: Herbert Spencer, heim-
spekingur, 1903 — Öskar II Svía-
konungur 1907 — Golda Meir,
stjórnmálaleiðtogi, 1978.
Innlent: íslenzka stjórnardeildin
verður sérstök deild í innanríkis-
ráðuneytinu 1848 — d. Gottskálk
bp Nikulásson 1520 — Getnaðar-
dagur Maríu lögtekinn 1364 — d.
Daði fróði Níelsson 1856 —
Stjórnmálasamband við Kína 1971
— Heimsókn Siscos aðstoðarráð-
herra 1974 — f. Pétur Benedikts-
son 1906.
Orð dagsins: Minni hvers manns
er einkabókmenntir hans — Ald-
ous Huxley, brezkur rithöfundur
(1894-1963).