Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
31
Þegar kraftar þeirra hjóna tóku
að þverra og aldur færðist yfir
fóru þau til Lilju dóttur sinnar og
manns hennar, Árna Ingimundar-
sonar.
Hjá þeim hlutu þau umhyggju,
svo sem bezt var á kosið. Árið 1977
fóru þau Bóthildur og Ingimar að
eigin ósk á elliheimilið Arnardal,
Kirkjubraut 48. Húsið sem þau
byggðu og bjuggu í á blómaskeiði
ævinnar var þá aftur orðið dvalar-
staður þeirra. í febrúar 1978
fluttust þau á Dvalarheimilið
Höfða, glæsilegt, nýtt elliheimili
sem þá var byrjað að starfrækja.
Ingimar lést 8. ágúst 1978 hátt á
87. aldursári. Þar dvaldist svo
Bóthildur áfram, þar til fyrir 3
vikum. Þá veiktist hún og var flutt
á sjúkrahús Akraness. Þar andað-
ist hún 30. nóv. s.l. sem fyrr segir.
Utför hennar verður gerð frá
Akraneskirkju laugardaginn 8.
des. Bóthildur var mörgum góðum
kostum búin. Hún var fríð sínum,
vel vaxin og létt í hreyfingum.
Framkoma hennar var mjög að-
laðandi. Handlagin var hún, vel
verki farin, vinnuglöð og hafði
gott auga fyrir því sem betur
mátti fara hverju sinni.
Bóthildur hafði létta og þjála
lund og átti sérstaklega gott með
að umgangast fólk, jafnt unga sem
aldna. Aldrei hallmælti hún nein-
um, en færði jafnan það óæskilega
til betri vegar. Litlar kröfur gerði
hún fyrir sjálfa sig, var jafnan
góðgjörn og veitandi og þess nutu
margir, enda voru vinsældir henn-
ar í samræmi við það. Nú er
Bóthildur Jónsdóttir kvödd hinstu
kærleikskveðju frá ættingjum,
venslafólki og vinum. Hugurinn
var hlýr og hafði bætandi áhrif á
samferðarmennina. Slíkra er gott
að minnast. Eg sem þessar línur
rita vil sérstaklega þakka tengda-
móður minni órofa tryggð og
vináttu frá fyrstu kynnum til
síðasta dags.
Halldór Jörgensson.
Nýskipaður sendiherra
NÝSKIPAÐUR sendiherra Kýpur, hr. Tasos Chr. Panayides
afhenti nýlega forseta Islands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum
Magnúsi H. Magnússyni félgasmálaráðherra í fjarveru utanríkis-
ráðherra.
Síðdegis þá sendiherrann boð forsetahjónanna að Bessastöðum
ásamt fleiri gestum.
Sendiherrann hefur aðsetur í Londön.
+
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
GUÐMUNDUR MARTEINSSON,
rafmagnsverkfræöingur, .
veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 10. desember
1979 kl. 3 síödegis.
Gu&rún Marteinsson,
Katrín Guðmundsdóttir,
Guöni Oddsson
og börn.
t
Minningarathöfn veröur um föður okkar
JÖRUND BRYNJÓLFSSON,
í Fossvogskirkju laugardaginn 8. desember kl. 10.30.
Börnin.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug vegna andláts og
jaröarfarar
ÞORSTEINS SIGURJÓNSSONAR,
Melgeröi 28, Kópavogi
Jóna Þorsteinsdóttir,
Guöfinnur Þorsteinsson, Sigursteinn Þorsteinsson,
Sigríöur Þorsteinsdóttir, Siguröur Norðdal.
t
Viö gleymum ekki og þökkum innilega sýnda samúö og vináttu viö
andlát og jaröarför sonar okkar og bróöur,
ÓLAFS ALFREDSSONAR
Unnur Ólafsdóttir, Alfreö Eymundsson,
Axel Alfreösson,
Hermann Alfreösson,
Þórunn Alfreösdóttir.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og viröingu viö andlát og
jaröarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
INGILEIFAR SIGURÐARDÓTTUR,
Merkurgötu 2,
Hafnarfirði.
Kristinn Torfason, Sigurbjörg Vigfúsdóttir,
Sigurbjörn Torfason, Alda Finnbogadóttir,
Gísli Torfason, Birna Loftsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaöir,
FRIÐRIK GÍSLASON,
fyrrverandi kirkjuvöröur,
veröur jarösunginn frá Laugarneskirkju mánudaginn 10. desember
kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á Laugarneskirkju.
Sigríöur Ásmundsdóttir,
Bjartey Friöríksdóttir, Þorsteinn Guönason,
Jóhanna Friöriksdóttir, Siguröur Sigurösson,
Pólmi Friöriksson, Anný Ástráösdóttir,
börn og barnabörn.
frAsagnir af oulrænni reynslu unu
GUÐMUNDSOÖTnjR l SJÓLYST IGAROI
SKUGGSJÁ
Þetta er ómetanleg bók, — og
hverjum manni hollt að kynna
sér efni hennar. — Þaö er
mannlegt að hafa áhyggjur,
mörgum finnst það jafn eðli-
legt og að draga andann, — en
láttu ekki stjórnast af ótta!
Taktu sjálfur við stjórn á sjálf-
um þér, notfærðu þér þá hug-
rænu aðferð, sem hérerkennd,
— og geröu óttann útlægan úr
lífi þínu. Rétt hugarástandmun
létta mikilli byrði af líkama þin-
um og sál, þú munt njóta lífs-
ins betur, ef þú slakar á spennu
og varpar af þér streitu, með
þvi að hrinda af þér áhyggju-
farginu, sém þjakar þig. Farðu
að ráðum Harold Sherman og
einnig þú munt komast að raun
um, að unnt er AÐ SIGRA ÓTT-
ANN!
„Loksins bók, byggð á nútíma-
rannsóknaraðferðum, sem
fjallar um dauðann og það að
deyja.“
Hvað vitum við um dauðann?
Hver eru tengsl likama og sá/ar?
Hvað sér fólk á dauðastundinni?
Þessi bók hefur að geyma frá-
sagnir af Unu Guðmundsdótt-
ur í Sjólyst í Garði, fágætri
konu, sem búin var flestum
þeim kostum, sem mönnum
eru beztir gefnir. Una segir frá
sérstæðum draumum og dul-
sýnum, svipum og vitrunum,
dulheyrn og ýmsum öðrum fyr-
irbærum, m.a. því, er hún sá í
gegnum síma.
Lífsviðhorf Unu og dulargáfur
og ekki síður mikilvægt hjálp-
arstarf hennar, unnið af trú og
fórnfýsi, gleymist engum. sem
kynni hafði af henni. Allir sóttu
til hennar andlegan styrk og
aukið þrek.
Sýnir á dánarbeði svarar þess-
um spurningum og ótal mörg-
um öðrum og hún segir okkur
einnig, að „sýnir hinna deyj-
andi virðast ekki vera ofsjónir,
heldur augnabliksinnsýnir i
gegnum glugga eilífðarinnar“.
Þessi einstæða bók gefur þér
hugsanlega svar við hinni
áleitnu grundvallarspurningu ...
ER LÍF EFTIR ÞETTA LÍF?
-AÐ SIGRA ,
ÖIWslN
. OG FINNA LYKIL
LIFSHAMINGjUNNAR