Morgunblaðið - 08.12.1979, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
41
S •< í 5 ! ! I
r
l VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL 10— 11
FRÁ MANUDEGI
höfum séð í sjónvarpi og blöðum
af grátandi börnum sem hungur-
vofan hefur tálgað af allt hold,
myndir af lifandi beinagrindum
með augu sem einblína á þig. Gæti
það ekki gerst að jólagleðin hyrfi
á braut og einhver önnur tilfinn-
ing altæki huga þinn. Getum við
samvisku okkar vegna útilokað þá
staðreynd að meðbræður okkar
annars staðar í heiminum svelta í
hel á meðan við borðum okkur
meira en södd. Eigum við ekki að
baka nokkrum jólategundum
færra, minnka sælgætisinnkaupin
eða sleppa þeim algjörlega og hafa
jólasteikina ekki alveg þá bestu og
dýrustu sem völ er á. Yrðum við
ekki hamingjusöm ef þeir 10—20
gómsætu bitar sem við létum
okkur vanta yrðu til þess að
bjarga einhverjum meðbróður
okkar frá dauða og það á sjálfri
fæðingarhátíð frelsarans.
Jóhanna Axelsdóttir. qr.
• Vinna þetta
á íslandi?
Það er mikið rætt og ritað um
íslenzkan iðnað. Þetta er gott og
nauðsynlegt, því að ýmsar þarfir
kalla að, er fólkinu fjölgar. Mörg-
um virðist að ýmislegt, sem flutt
er inn frá ýmsum þjóðum, mætti
búa til hér á landi. Þarf ekki til
dæmis að flytja inn kex fyrir of
fjár? Satt er það að tollur og fleiri
aðilar fá sinn skatt af þessu og
öðru, sem flutt er inn.
Eitt af því, sem ýmsum vekur
furðu hér í Reykjavík, eru margar
og stórar leikfangaverzlanir. Það
er hægt að nefna staði þar sem
áður voru ýmsar verzlanir, en er
þær hættu, komu þar leikfanga-
verzlanir í gífurlega stóru hús-
næði, sem mörgum ógnar. Þjóðin
mun líka eyða í þessar vörur um
milljarð króna á ári.
Kannski er þetta íhaldsskoðun,
miðað við nútímann? Gætum við
ekki unnið þetta sjálf að einhverju
leyti?
Gestur.
• Skemmtilestur
Að undanförnu hefur Pétur
Pétursson útvarpsþulur verið að
skrifa greinar í Morgunblaðið,
skemmtilestur sem enginn ætti að
láta fram hjá sér fara. Það er
dauður maður sem ekki getur
hlegið að slíku efni. Auk þess er
stíllinn alveg frábær. Og ekki er
nú verið þarna að fara í mann-
greinarálit. Góðlátleg gamansem-
in gengur jafnt yfir háa sem lága.
Guði sé lof að eitthvað skuli þó
vera eftir af íslenskri kímni. Og
mætti gjarnan vera meira af slíku
efni í blöðunum.
Þökk sé Pétri Péturssyni.
Rituhólum 8, Reykjavík.
Auður Matthíasdóttir.
• Leggið ekki bílum
upp á gangstéttar
Eldri kona hringdi til Velvak-
anda og vildi beina þeim tilmæl-
um til bifreiðastjóra að þeir legðu
bílum sínum ékki upp á gangstétt-
ir.
„Það gerir okkur, sem eldri
erum og sjóndöpur, svo að segja
ókleift að komast um bæinn. Eg
tala nú ekki um þá sem eru blindir
og verða að þreyfa fyrir sér með
stöfum."
• Hreintjógúrt
Kona hringdi og kvartaði
undan því að ekki skyldi vera til
hreint jógúrt hér á landi. Vildi
hún koma þeirra spurningu á
framfæri við Mjólkursamsöluna
hvers vegna þeir seldu ekki jógúrt
án auka bragðefna.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á heimsmeistaramóti unglinga
í Skien í Noregi í ár kom þessi
staða upp í skák þeirra Douvens,
Hollandi, sem hafði hvítt og átti
leik, og Seirawans, Bandaríkjun-
um.
35. Bxg7! - Hxa3 (Ef'35.... Dxg7
þá auðvitað 36. Hh7) 36. Bb2 —
e5, 27. Hh7+ - Ke6, 38. Hh6+ og
svartur gafst upp. Þetta var eina
tapskák Seirawans á mótinu, en
hann sigraði og er því núverandi
heimsmeistari unglinga.
HÖGNI HREKKVÍSI
3KAL éÚhlA Vií<(5f2 HýHWIó A AO ífPlLA/...
• ■ AÐ N'A 'i "
Mikið úrval af spariskóm
fyrir dömur á öllum aldri.
Brúnt
Kr. 17.160.-
Svart E-breidd
Kr. 17.060.-
Tan og svart
Sími 21270
Póstsendum Laugavegi 60.
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson segir m. a. í Morg-
unblaðinu 6. desember síðastliðinn:
„Brugðið er upp myndum úr lífi fimm systkina, sem
með vaxtarverkjum táningsins álíta sig flugfær úr
hreiðri, nema sú yngsta, auðvitaö, hún er enn „aðeins
barn" og á því stað við pilsfald móður. En svo kemur
kettlingur inní myndina, lítil písl, sem, eins og systkinin
s’ 'if, er að hamast við að átta sig á því umhverfi sem
. i er borin í.
Myndskreytingar falla skemmtilega ve! að efni, eru
jáskafullar og mjög vel gerðar.
Prýðis bók fyrir unga íesendur."
Verð aðeins kr. 2990. HAGPREIMT HF.
Litla kisan