Morgunblaðið - 08.12.1979, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
KR missir
heimaleikinn!
VEGNA atburða sem áttu sér
stað á úrvalsdeildarleik KR og
Vals, heíur aganefnd KKÍ mælst
til þess að stjórn KKÍ sjái um
næsta heimaleik KR sem er viður-
eign við ÍR i Hagaskólanum þann
14. desember. Þannig mun KR
tapa réttinum til þess að ráðstafa
leiknum, félagið sér af allri
innkomu og jafnvel gæti farið svo
að leikurinn yrði fluttur eitthvað
út fyrir Reykjavík.
Þetta er í fyrsta skiptið sem
slíkur dómur fellur á körfu-
knattleikslið hérlendis, en svona
verður að taka á málunum, en
varla þarf að minna á, að dómar-
ar að framangreindum leik urðu
fyrir vítaverðu aðkasti frá
áhangendum KR, auk Marvins
Jacksons, sem hefur nú verið
formlega dæmdur í eins leiks
bann. Hann verður fjarri góðu
gamni er KR mætir Njarðvík gg.
Valur — Brentwood i dag
VALUR mætir í dag kl. 15.00
ensku meisturunum Brentwood í
Laugardalshöllinni. Er þetta
'síðari leikur liðanna í Evrópu-
keppni meistaraliða. Fyrri leikn-
um lauk með stórsigri Vals-
manna og eru þeir alveg öruggir
áfram í næstu umferð. Valsmenn
bjóða í dag Sjálfsbjörg félagi
fatlaðra á leikinn í dag, svo og
öllum börnum 10 ára og yngri
sem eru í fylgd með fullorðnum.
Mætir Forest Liverpool?
• Fagna Vikingar á þennan hátt á sunnudagskvöldið? Ætli það sé ekki von flestra innlendra
handknattleiksáhugamanna.
Fær Heim skell?
EF NOTTINGHAM Forest lánast
að siá út West Ham í 8-liða
úrslitum ensku deildarbikar-
keppninnar, mætir liðið Liver-
pool i 4-liða úrslitum. Þessi lið
áttust við í úrslitunum fyrir
tveimur keppnistímabilum síðan
og sigraði Forest þá 1—0 í
aukaieik.
Grimsby eða Wolves leika
síðan gegn annað hvort Swindon
eða Arsenal.
Körfubolti um hekjina
TVEIR leikir fara fram i úrvals-
deildinni í körfuknattleik um
helgina.
Verður einn þeirra að
teljast stórleikur, en það er viður-
eign Njarðvíkur og KR í
Njarðvík. Hefst hann í dag
klukkan 14.00. KR-ingar leika án
Marvin Jackson sem tekur út
leikbann sitt og gæti það ráðið
úrslitum í leiknum.
Á morgun klukkan 19.00 leika
síðan ÍR og ÍS. ÍR verður að
vinna, möguleikar liðsins á þátt-
töku í toppbaráttunni eru þegar
orðnir litlir, en minnka enn ef
liðið tapar. Fyrir ÍS er um sætið í
úrvalsdeildinni að tefla.
SVO SEM skýrt var frá í Mbl. í
gær, leika Víkingur og sænska
liðið Heim síðari leik sinn í 2.
umferð Evrópukeppni bikarhafa
i handknattleik. Fer leikurinn
fram i Laugardalshöllinni á
sunnudaginn og hefst hann
klukkan 19.00. Sem kunnugt er,
sigraði Heim í fyrri leik liðanna
23—19. Náði Heim algerum
toppleik að mati sænskra fjöl-
miðla, einkum markvörðurinn
Claes Hellgren. Er almennt talið
vafasamt að kappinn eigi tvo
slíka lciki í röð og ef svo reynist
raunin, þá vænkast hagur
Víkinga að sjálfsögðu við það.
Heim er talið eitt sterkasta ef
ekki sterkasta félagslið Svía. Þó
að liðið sé nú aðeins í fimmta
150 klassísk íslenzk
skáldverk, ljóð og sögur eru í bókhlöðum
um allt land.
Snorri Sturluson eftir
Sigurð Nordal.
Sögur Svövu Jakobsdóttur.
Vettvangur dagsins eftir
Laxness, íslandsklukkan,
Sjálfstætt fólk.
Úr 40 Laxness bókum að
velja. Þér getið keypt eitt
bindi eða 40.
Síðueldar eftir Eldprest-
inn á Klaustri.
Ættir Þingeyinga öll þrjú
bindin.
Mesta úrval íslenzkra bókmennta
í Helgafelli.
*
Otrúlega lágt verd.
Helgafell
sætinu í Svíþjóð, er það vegna þess
að liðið byrjaði illa, en að undan-
förnu hefur það náð fyrri styrk-
leika og stefnir hraðbyri að toppi
sænsku deildarinnar. Hvaða
möguleika á Víkingur á því að slá
út Heim? Það verður að segjast
eins og er, að möguleikarnir eru
sannarlega miklir. Þjálfari Heim
lýsti því yfir fyrir fyrri leik
liðanna, að Heim yrði að vinna
með minnst 6—8 marka mun og
hann var mjög vonsvikinn þegar
lið hans sigraði með „aðeins" 4
marka mun.
Bogdan Kowlazik sagði á
blaðamannafundi í gær, að 4
marka tap þætti ekki mikið í
Evrópukeppni í handknattleik,
þess væru dæmi að 8—9 marka
sigrar hefðu ekki nægt liðum til að
komast áfram. „Möguleikar okkar
nú eru mun betri heldur en þegar
við lékum síðari leik okkar gegn
Ystad á síðasta keppnistimabili,
þá höfðum við aðeins sigrað með
eins marks mun á heimavelli,
þannig að Ystad stóð með pálm-
ann í höndunum,“ sagði Bogdan.
Hann bætti við: „Ég er bjartsýnn
á að við komumst áfram, en til
þess að svo megi verða, verðum við
að laga ýmislegt sem fór úrskeiðis,
t.d. verðum við að nýta betur
dauðafærin, en ég á eftir að sjá
markvörð þeirra leika annan eins
leik gegn okkur og hann gerði í
Gautaborg. Auk þess erum við
betur undir leik þennan búnir en
við vorum fyrir fyrri leikinn,
vitum hverju við göngum að.“
Páll Björgvinsson fyrirliði
Víkings taldi möruleika Víkings
góða. „Við getum sjálfum okkur
um kennt að tapa leiknum, við
stóðum eigi sjaldnar en sextán
sinnum í dauðafærum, en skutum
alltaf í markvörðinn. Það gerum
við ekki aftur og með betri
nýtingu í sókninni og sterkum
varnarleik geri ég mér miklar
vonir, við ætlum okkur áfram,“
sagði Páll.
Ólafur Jónsson hornamaðurinn
snjalli taldi að Víkingur hafi átt
einn af sínum lakari leikjum í
langan tíma. Á sama tíma hafi
Heim leikið toppleik. „Við leikum
varla tvo svona slæma leiki í röð
og Heim má vera gott lið ef það
nær tveimur toppleikjum í röð
gegn okkur, við vitum hvar við
stöndum núna og ætlum okkur að
leggja þá,“ sagði Ólafur.
Víst eiga Víkingar mikla mögu-
leika, minna má á hér fyrir
nokkrum árum þegar FH mætti
ungverska liðinu Honved. FH tap-
aði með 7 marka mun á útivelli, en
þegar skammt var til leiksloka í
heimaleik FH, hafði FH náð sjö
marka forystu. Reyndar sigraði
FH með „aðeins “ 5 marka mun og
Honved komst áfram. Þannig að
allt getur gerst og sitt hvað er
Honved eða Heim. Víkingar binda
miklar vonir við áhorfendur og
segja þá vera á við 2—3 mörk
þegar best lætur. Meðal 1100
áhorfenda að leik Víkings og Heim
í Gautaborg voru um 50 Islend-
ingar sem yfirgnæfðu sænsku
áhorfendurna gersamlega. Svíarn-
ir eru logandi hræddir, ef 2—3000
barkar öskra á þá eins og þessir 50
gerðu i Gautaborg, áhorfendur
gætu hæglega gert gæfumuninn
fyrir Víking.
Kraftakarlar
fara á kreik
Reykjavíkurmeistara-
mótið í kraftlyftingum fer
fram á laugardaginn og
hefst keppni í léttari
flokkunum klukkan 12.00.
Síðan keppa þyngri flokk-
arnir í kjölfarið. Allir
sterkustu kraftlyftinga-
menn landsins verða með-
al þátttakenda.
Elnkunnagjðfin
Liö KR: Pétur Hjálmarsson 1, Gísli
Felix Bjarnason 3, Siguröur Páll
Óskarsson 2, Ólafur Lárusson 2,
Björn Pétursson 1, Friörik Þor-
björnsson 3, Jóhannes Stefánsson 3,
Kristinn íngason 2, Konráö Jónsson
2, Haukur Ottesen 3, Ingi Steinn
Björgvinsson 2, Haukur Geirmunds-
son 2.
Lið HK: Einar Þorvaröarson 2, Nói
Björnsson 1, Bergsveinn Þórarinsson
1, Kristján Guðlaugsson 1, Gunnar
Eiríksson 1, Hilmar Sigurgíslason 2,
Karl Jóhannsson 2, Ragnar Ólafsson
2, Erling Sigurösson 2, Kristján Örn
Gunnarsson 2, Friðjón Jónsson 1,
Magnús Guðfinnsson 1,
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og
Guömundur Kolbeinsson 3.
Haukar: Ólafur Guöjónsson 1,
Gunnlaugur Gunnlaugsson 2, Sigur-
geir Marteinsson 1, Árni Her-
mannsson 2, Siguröur Aöalsteinsson
1, Höröur Harðason 1, Ingimar Har-
aldsson 2, Árni Sverrisson 2, Andrés
Kristjánsson 2, Þorgeir Haraldsson
1, Þórir Gíslason 3, Stefán Jónsson
3.
Valur: Brynjar Kvaran 4, Þorsteinn
Einarsson 1, Stefán Gunnarsson 1,
Jón H. Karlsson 2, Brynjar Haröar-
son 1, Þorbjörn Jensson 3, Þorbjörn
Guðmundsson 3, Steindór Gunn-
arsson 2, Bjarni Guömundsson 4,
Stefán Halldórsson 1, Gunnar
Lúövíksson 2, Björn Björnsson 2.
Dómarar: Karl Jóhannsson og Óli
Olsen 3.