Morgunblaðið - 05.01.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980
5
Ljðsm.: Snorri Snorrason
Selfosskirkja.
jT
Bækur Olafs Hauks og
Ásu Sólveigar fyrir
dóm Norðurlandaráðs
BÆKURNAR Vatn á myllu
kölska eftir Ólaf Hauk Símonar-
son og Einkamál Stefaníu eftir
Ásu Sólveigu hafa verið lagðar
fram af hálfu íslands til verð-
launa i Bókmenntaverðlaunum
Norðurlandaráðs, en fundir ráðs-
ins og verðlaunaveitingar verða í
Reykjavik dagana 3. til 7. mars
næstkomandi.
Þá verða einnig veitt verðlaun
fyrir tónlistarsköpun, og af
íslands hálfu verða lögð fram verk
eftir þá Hallgrím Helgason og
Þorkel Sigurbjörnsson.
Verðlaunaupphæðin nemur nú
um það bil 5,5 milljónum íslenskra
króna, bæði í bókmenntum og
tónlist. Frá hverju Norðurland-
anna eru tilnefndir tveir lista-
menn í hvorri grein, samtals tíu
nöfn.
Elvar í 4.-5. sæti
UNGLINGASKÁKMÓTINU í
Hallsberg í Svíþjóð lauk í gær, en
þar var nýbakaður ungiinga-
meistari íslands, Elvar Guð-
mundsson, meðal keppenda.
I 9. og síðustu umferðinni í gær
vann Elvar Austurríkismanninn
Ruzicka. Hlaut Elvar 6 vinninga
af 9 mögulegum og varð í 4.—-5.
sæti af 36 keppéndum. Kvaðst
Elvar vera mjög ánægður með
útkomuna, þar sem mótið hefði
verið fjölmennt og sterkt. Hann
hlaut 250 sænskar krónur í verð-
laun. Skotinn McNab varð sigur-
vegari í mótinu, hlaut 7 xk vinning.
Öryggisráð SÞ:
Island vill sérstakan f und
um ástandið í Afghanistan
ÍSLAND er meðal 43 ríkja,
sem í fyrrakvöld afhentu for-
seta Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna bréf með ósk um að
boðaður yrði sérstakur fundur
í Öryggisráðinu til að ræða
ástandið i Afghanistan og
áhrif þess á heimsfriðinn.
Þeir 43 fastafulltrúar, sem
undirrituðu bréfið til forseta
ráðsins, eru fulltrúar ríkja í
öllum hlutum heims, segir í
frétt frá utanríkisráðuneytinu.
Athugasemd frá Sigurði Helgasyni
forstjóra Flugleiða:
Ekki tilgangurinn að hnýta
í undirstöðuatvinnuvegina
Það var ekki tilgangur minn að
hnýta á nokkurn hátt í undir-
stöðuatvinnuvegi þjóð HMM:115
TNR:1 JU:0,0arinar, sem eru alls
góðs maklegir og án þeirra verður
ekki búið í þessu landi.
Hafi ummæli mín gefið tilefni
til misskilnings biðst ég velvirð-
ingar á því.
Benda má á, að á s.l. ári greiddu
Flugleiðir 300 milljónir króna í
launaskatt sem sjávarútvegur og
landbúnaður eru undanþegnir.
Ennfremur bendi ég á frétta-
tilkynningu frá Verðlagsráði Sjáv-
arútvegsins hinn 11. desember s.l.
þar sem sagt er frá því að
ákvörðun um fiskverð verði vísað
til yfirnefndar, þar segir m.a. „í
þeim viðræðum hefur komið í ljós
að afkomuskilyrði fiskveiða og
fiskvinnslu eru svo slæm að engir
möguleikar eru til þess að sam-
komulag náist um nýtt fiskverð
nema til komi ráðstafanir af hálfu
hins opinbera".
Fyrir átta mánuðum síðan sótti
félagið til yfirvalda um tíma-
bundna undanþágu frá lend-
ingagjöldum en það erindi liggur
ennþá óafgreitt.
Virðingarfyllst,
Sigurður Helgason
Forstjóri
Völvur spá í árið 1980:
Náttúruhamfarir og meiri
verðbólga, sigur Carters
og dauði íranskeisara
VÖLVA hefur birt spá sína í
vikublaðinu Vikunni nú um
þessi áramót eins og undan-
farin ár, og kennir margra
grasa í spádómum hennar.
Meðal þess sem hún spáir að
muni gerast á árinu 1980 er
eftirfarandi:
Áframhaldandi efnahagsmál
og erfiðleikar í stjórn landsins,
og líklega alþingiskosningar áð-
ur en kjörtímabilið rennur út.
Mikið verður um slysfarir, og
margir munu farast í einu þess-
ara slysa. Fiskafli mun verða
góður, en Bandaríkjamarkaður
þrengjast og farið verður að
leita á ný mið. Albert Guð-
mundsson verður ekki forseti,
Ólafur Jóhannesson fer ekki í
framboð, en sest í helgan stein.
Fíkniefnamál verða mikið í
sviðsljósinu, og athyglin mun
aftur beinast að Guðmundar- og
Geirfinnsmálum vegna nýrra
upplýsinga. Flugleiðir munu
heldur hressast, en deilur munu
áfram standa við flugmenn fé-
lagsins og breytingar verða
gerðar á Atlantshafsfluginu.
Átök verða innan Sjálfstæðis-
flokksins og nokkur uppstokkun
og í því efni óvænt úrslit.
Fjaðrafok verður vegna nýrra
reglna um listamannalaun. Sé
litið til áratugarins í heild segir
völvan verða miklar breytingar
á flokkaskipan og kjördæma-
málum, ný stefna verði tekin upp
í orkumálum, náttúruhamfarir
verða talsverðar og jafnvægi
skapast í byggð landsins.
Af erlendum vettvangi spáir
hún ólgu á Norðurlöndunum,
slysi á Norðursjó, hryðjuverkum
á Norður-írlandi efnahagsbata á
Bretlandi, hjónabandsmál Karls
prins verða á dagskrá, íranskeis-
ari deyr og syni hans verður sýnt
banatilræði, stjórnartíð Kho-
meinis lýkur senn, leiðtogaskipti
verða í Sovétríkjunum, miklar
náttúruhamfarir í Suður-
Ameríku, Carter mun sigra
Kennedy sem forsetaefni Demó-
krataflokksins og fleira.
I Helgarpóstinum í gær spáir
völva einnig í árið 1980. Hún
segir meðal annars: Þjóðstjórn
verður ekki mynduð, heldur
meirihlutastjórn sem áður hefur
verið kunn af ýmsu misjöfnu.
Verðbólgan mun geysa áfram
með miklum hraða og fara yfir
100% á árinu. Til tíðinda mun
draga við Kröflu og Kötlugos
verður.
Af erlendum vettvangi spáir
hún einnig ýmsu krassandi,
einkum í ástamálum erlendra
manna cg kvenna. Koma þar til
dæmis við sögu Farah Dhiba
keisaraynja, Bianca Jagger, Karl
Bretaprins og Margaret That-
cher, og munu sum þeirra leita
til Islands í ástamálum sínum!
— Segir valva Helgarpóstsins að
Bianca muni lenda í ástarævin-
týri með afkastamesta íslenska
popptónlistarmanninum, Breta-
prins trúlofast stúlku austan af
Héraði og Farah Dhiba mun
endurnýja kynni sín af íslensk-
um námsmanni af Vestfjörðum,
giftast honum og flytja til ísa-
fjarðar!
DnnssHðn
Skemmtilegt,
hollt og ódýrt
tómstundagaman.
sTuninssonnn
Nú er upplagt tækifæri fyrir
fólk að bregða sér í danstíma
hjá Heiðari.
Kennsiustaðir:
Reykjavík:
Brautarholti 4,
Drafnarholti 3,
Félagsh. Fylkis
Árbæ)
Kópavogur:
Flamraborg 1,
Kársnesskóli
Seltjarnarnes:
Félagsheimiliö
Hafnarfjörður:
Gúttó
Mosfellssveit:
Hlégaröur
Innritun og upplýsingar
kl. 13—19.
Símar 20345, 24959,
74444, 38126,
39551.
Akranes
Innritun í Röst, sími 1716
mánud. 7. janúar kl. 12—5.
Ath.: Konubeat-tímana.