Morgunblaðið - 05.01.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.01.1980, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980 12 umcKIPTI iiuðmr 11 VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndahl Noregur: Bætt afkoma iðnfyrirtækja AFKOMA norskra iðníyrirtækja var mun betri á árinu 1979 en á árinu á undan samkvæmt niðurstöðum könnunar sem norska iðnaðarráðuneytið lét framkvæma nú rétt fyrir áramótin. Inn í þessa könnun voru tekin fyrirtæki alls staðar að af landinu sem framleiddu mjög misjafna vöru. Forráðamenn 60% þeirra fyrirtækja sem spurðir voru svör- uðu því til að afkoman yrði ótvírætt betri á s.l. ári en því á undan. Aðeins um 25% forráða- mannanna svöruðu því til að afkoman yrði væntanlega eitthvað verri og 15% sögðu hana verða svipaða. Þá voru þessir sömu menn að því spurðir hverjar líkur þeir teldu á því að áframhald yrði á velgengni fyrirtækjanna. — 40% þeirra svöruðu því til að þeir byggjust við áframhaldandi vel- gengni og aðeins um 15% þeirra sem spurðir voru svöruðu því til að þeir ættu von á verri útkomu á þessu ári. í sambandi við þessar niður- stöður má geta þess að flest þau fyrirtæki sem vel gekk hjá eru í útflutningsiðnaði en fyrirtækin með slakari afkomuna eru flest í einhvers konar framleiðslu fyrir innanlandsmarkað. Þá kom fram í þessari könnun að búist er við að fjárfesting á þessu ári verði a.m.k. 33% meiri heldur en 1979. Eftirspurn eykst eftir rækjunni í NÝÚTKOMNU hefti Sjávar- frétta kemur fram. að eftirspurn eftir rækju hefur farið vaxandi að undanförnu á þeim mörkuðum þar sem íslendingar selja megin- hluta framleiðslu sinnar, þ.e. í Vestur-Þýzkalandi, Hollandi og Bretlandi. Fengist hefur nokkuð hærra verð fyrir rækjuna nú að undan- förnu, einkum á Norðurlöndum. Rækjuveiðarnar hafa gengið mjög misjafnlega. Beztur hefur aflinn verið á ísafjarðardjúpi og á Húna- flóa. Orkuverð í iðnaði IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur skipað fjögurra manna nefnd til að kanna, með hvaða hætti megi bæta starfsskilyrði iðnaðar og stuðla að hagkvæmari nýtingu orkulinda og orkukerfisins með samræmdari og þjóðhagslega rökrænni stefnu í verðlagningu orku til iðnaðar og annars at- vinnurekstrar í fiskvinnslu og landbúnaði. í nefndinni eru Kristmundur Halldórsson, Guðmundur Helga- son, Kristján Jónsson og Þórður Friðjónsson. Haukur Björnsson t.v. sem nú lætur af starfi framkvæmdastjóra Fll og Valur Valsson sem við tekur og mun nú leiða islenskan iðnað i óheftri samkeppni i fyrsta sinn á Evrópumóti i lok aðlögunar að EFTA. Framkvæmdastjóraskipti hjá FÍI: Ljósmynd Mbl. RAX. Islenzkur iðnaður í fyrsta skipti í óheftri samkeppni eftir tíu ára aðlögun í Fríverzlunarsamtökum Evrópu, EFTA Framkvæmdastjóraskipti urðu hjá Félagi íslenskra iðnrekenda um áramótin. Haukur Björns- son sem gegnt hefur starfinu s.l. tíu ár lét af embætti og tekur við starfi eins af framkvæmda- stjórum Karnabæjar, en við starfi Hauks tók Valur Valsson, sem verið hefur aðstoðarbanka- stjóri Iðnaðarbankans um nokk- urt skeið. Morgunblaðið ræddi við þá félaga fyrir skömmu og spurði þá m.a. hvernig hin nýju störf legðust í þá. — Haukur sagði að breytingin yrði sjálfsagt meiri hjá sér þar sem hann færi yfir til einkafyrirtækis og hæfi beinan rekstur, eftir að hafa starfað fyrir samtök iðnaðarins í tíu ár sem framkvæmdastjóri og þar á undan sem forstöðumaður hag- deildar Félags íslenskra iðnrek- enda. „Ég tel hins vegar að það sé tími til kominn fyrir mig að skipta því menn staðna óneitan- lega í starfi séu þeir of lengi og ég hlakka til þeirra fjölþættu verkefna sem bíða mín hjá Karn- abæ, en þar tek ég við fram- kvæmdastjórn framleiðslusviðs- ins, þ.e. iðnaðarframleiðslunni," sagði Haukur. „Samtök iðnaðarins eru auð- vitað langt frá því að vera mér óþekkt fyrirbrigði þar sem ég hef starfað í Iðnaðarbankanum s.l. tíu ár og hef þar komist í kynni við flesta þá menn og fyrirtæki sem eiga aðild að Félagi ís- lenskra iðnrekenda, auk þess sem ég þurfti að fylgjast mjög náið með mörgum málum iðnaðarins vegna starfs míns,“ sagði Valur. Þá kom fram hjá þeim félög- um, að tímamótin eru að einu leyti mjög sérstæð. Þegar Hauk- ur tók við framkvæmdastjóra- stöðunni 1970 gekk ísland í EFTA og aðlögunartíminn, sem gefinn var, er einmitt á enda nú um áramótin. Valur tekur svo við þegar iðnaðurinn fer í fyrsta sinn inn í alveg óverndaða sam- keppni við iðnaðarframleiðendur í öðrum aðildarríkjum EFTA. Báðir voru Haukur og Valur sammála um að ekki hefði til tekist eins og til stóð í upphafi hvað varðar íslenskan iðnað með inngöngunni í EFTA, þó hefði margt færst til betri vegar. „Það sem aðallega stendur íslenskum iðnaði fyrir þrifum í þessari hörðu samkeppni nú eru þær miklu verndaraðgerðir sem iðn- aður í öðrum aðildarríkjum býr við, þar er í mörgum ríkjum nánast hver einasta vinnustund niðurgreidd af ríkisvaldinu. Það liggur því í augum uppi að erfitt er að keppa við slíka fram- leiðslu," sagði Valur. „Það má segja hvað varðar inngönguna í EFTA að hug- myndir þeirra sem svartsýnastir voru hafi ekki ræst, þ.e. að jafnvel fjölmörg fyrirtæki myndu rúlla og svo hins vegar, að vonir þeirra bjartsýnustu um mikinn útflutning ýmissa iðnað- arvara hafi brugðist. Iðnaðar- útflutningurinn er eins og flest- um er kunnugt mjög einhæfur ennþá og hann einskorðast alls ekki við fá ákveðin svæði. Má í því sambandi nefna fiskútflutn- ing sem hefur í gegnum árin verið mjög einhæfur," sagði Haukur. I dag eru starfandi tíu starfs- menn hjá Félagi íslenskra iðn- rekenda og sagði Valur að ekki stæðu til neinar aðrar breytingar á starfsliði, enda væri valinn maður í hverju rúmi. Þá má geta þess að mikið og gott samband er annars vegar milli félagsins og Útflutningsmiðstöðvar iðnaðar- ins, sem á árum áður var ein deild innan félagsins og hins vegar milli félagsins og Lands- sambands iðnaðarmanna, en all- ir eru þessir aðilar til húsa í Iðnaðarmannahúsinu við Hall- veigarstíg. W T f "í t i i Ú* mannvirkja. Stór hluti verkefna Verulegur samdrattur tram- scs*f undan í í niöurstöðum úr ársfjórð- ungslegri könnun á bygginga- starfsemi sem framkvæmd er á vegum Landssambands iðnað- armanna kcmur í ljós að fyrir- tæki með 22,1% af heildarmann- afla í byggingariðnaðinum, sem tóku þátt í könnuninni á 3. ársfjórðungi 1979, sjá fram á verulegan samdrátt. Könnunin leiddi m.a. í ljós ískyggilega þróun, sem virðist eiga sér stað með samdrætti á ibúðarhúsnæðismarkaðinum. í stað stórfellds samdráttar og at- vinnuleysis innan greinarinnar, sem menn óttuðust fyrr á árinu, hefur byggingaraðilum tekist að brúa verkefnaþörf sína með því að taka að sér verkefni, sem boðist hafa við atvinnuhúsnæði, opinber- ar byggingar eða annað. í könnun- inni kom ennfremur í ljós, að stór hluti þessara verkefna var viðhald byggingariðnaðinum Mikil óvissa er um verkefni á næstu mánuðum, enda er það í samræmi við ríkjandi ástand í efnahags- og stjórnmálum, en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.