Morgunblaðið - 05.01.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980
7
Afkoma manns
og þjóöar
Engum dylst, aö
síðasta áriö höfum við
íslendingar veriö aö
stefna niður á viö:
Oft hefur heimsins
gálaust glys
gjört mér ama úr kæti.
Hæg er leið til
helvítis
hailar undan fæti,
sagöi Bólu-Hjálmar á
sínum tíma. Og víst er um
þaö, að svo viröist nú
sem ýmsa stjórnmála-
menn skorti þrek til þess
að snúast gegn vandan-
um. Þeir hugsa sór, aö
þaö sé áhættuminna að
láta enn undan síga,
hopa fyrir þrýstingnum
og freista þess aö kenna
öðrum um eftir á, þegar
illa hefur tekizt til.
Kjarni málsins er að
sjálfsögöu sá, aö þjóöar-
tekjurnar hafa rýrnað
undir vinstri stjórn og
þær halda áfram að rýrna
á þessu ári á hvern ein-
stakan. Af þeim sökum
kemur minna til skipta og
;ð
Mhwrju !*»\> /ni Mi'
Athugasemd vic
leiðara Þjóðvilj
ans þ. 29. des. sl. ; ;
•" Sjálfstgfl ntal a tillögum Framsóknarflokksins
1 15till9%kjaraskerðmg
Ph á tveimur árum a.m.k.
Einar karl
"‘loVr.tum'.ní Haraldsson
iS!rfnUan.*, iitiosum svarar
V“i'IrS'Z"»iÍ’ Guðmundl G.
XSZFZZ, Þórarinssynl
. "K .SS, orofjorNinu.
lífskjörin halda áfram aö
versna. í stórum dráttum
helst í hendur afkoma
manns og þjóöar. Menn
geta ekki vænzt þess, aö
þeir geti allir samtímis
bætt kjör sín, ef þau
versna, þegar á heildina
er litið.
Þaö er eftirtektarvert,
hvernig talsmenn Verka-
mannasambands íslands
tala núna. Ekki eru nema
tæp tvö ár síðan þeir
skáru upp herör til þess
að mótmæla efnahagsað-
geröum, sem fyrst og
fremst bitnuöu á þeim,
sem hæst höföu launin,
en hinir lægst launuöu
héldu sínum hlut í stórum
dráttum. Þá tók Guð-
mundur J. Guðmundsson
höndum saman við full-
trúa verkfræðinga, flug-
manna og lækna og
krafðist þess, að verö-
bætur launa yröu reikn-
aðar í prósentum en ekki
krónutölu. Þá var við völd
ríkisstjórn Geirs Hall-
grímssonar, sem honum
þótti mikilvægara að
koma höggi á en að
standa fast á málstað
verkamannsins við höfn-
ina.
Þrætubókarlist
vinstri manna
Steingrímur Her-
mannsson var ekki fyrr
búinn að gefast upp við
myndun nýrrar vinstri
stjórnar en hann lýsti því
yfir, að hann héldi helzt,
að þvílík stjórn væri í
burðarliðnum. Síðan rifj-
aði hann upp, hvað ýmsir
forystumenn Framsókn-
arflokksins hefðu sagt
fyrir 30 eða 40 árum og
reyndi að bera sig saman
við þá eins og hann væri
þjóðmálaskörungur.
Steingrími og ýmsum
öðrum forkólfum vinstri
manna hefur þannig þótt
gaman aö því að látast
vilja starfa saman, af því
að þeir eigi svo margt
sameiginlegt, — af því aö
stefna þeirra sé svo lík.
Þó geymir sagan naum-
ast nokkurt dæmi þess,
aö þeir hafi náð sam-
stöðu í meiriháttar mál-
um, — nema á síðasta ári
í sambandi við skeröingu
kaupmáttarins og krukk-
ið í kjarasamningana. Á
þeim punkti sameinuöust
þeir allir þrír Framsókn-
arflokkur, Alþýðuflokkur
og Alþýðubandalag.
í Þjóðviljanum í gær
eru dæmigerð skrif fyrir
þrætubókarlist vinstri
manna. Kjaraskerðingin
á síðasta ári var sem
næst 1% á mánuði. Samt
þykjast þeir báðir, Einar
Karl Haraldsson ritstjóri
Þjóðviljans og Guðmund-
ur G. Þórarinsson þing-
maður Framsóknar-
flokksins, undir engum
kringumstæðum geta
hugsað sér, að kjör hinna
lægst launuðu verði skert
hið allra minnstal En þeir
brigzla hvor öörum um
að vilja það og gengur
ritstjórinn svo langt að
segja, að nú sé það ein-
lægur ásetningur Fram-
sóknarflokksins aö
skeröa kjörin um ekki
minna en 15—19% á
næstu tveim árum (til
viðbótar kjaraskerðing-
unni í fyrra).
Þegar skrif manna eins
og Einars Karls og Guð-
mundar eru lesin og jafn-
framt hafðar í huga allar
þessar tilraunir til þess
aö koma á vinstri stjórn
fer ekki hjá því, að rifjist
upp fyrir mönnum gamall
bókartitill og þó nokkuð
breyttur: Ástir mislyndra
hjóna.
Hressingarleikfimi karla
Kennsla hefst aftur mánudaginn 7. janúar í leikfimisal Laugarnesskólans kl. 21.45.
Fjölbreyttar æfingar. Veriö meö frá byrjun.
Innritun og upplýsingar í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari
Hjartans þakkir öllum sem hafa sýnt mér og
mínum kisum hlýhug og vinsemd meö alls-
konar matarsendingum og mörg peninga-
áheit.
Kærar kveöjur.
Gudrún Á. Símonar.
rn^—^^^^mmmmmm^mm^mm^mmm
Hjartans þakkir til allra þeirra vina og vandamanna,
er heiöruöu okkur á gullbrúðkaupsdegi okkar þann
22. 12. 1979.
Sérstakar þakkir viljum viö færa börnum okkar
tengdabörnum og barnabörnum ásamt fjölskyldum
þeirra.
Gleöilegt nýtt ár.
Guóbjörg Jónsdóttir Þorvaldur Gudjónsson
Sólvallargötu 26, Keflavík
ma^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Lærið bridge — betri bridge
Námskeið fyrir byrjendur
Námskeiö fyrir spilahópa og aöra, sem vilja skerpa
kunnáttuna.
Almennt spila- og kynningarkvöld ífélagsheimili Fáks
mánudaginn 7. janúar kl. 20.30 til 23.30.
Lærið bridge, sími 19847, Ásinn, Bridgeskóli Páls
Bergssonar.
r
“N
Hef opnað
lögmannsskrifstofu
að Klapparstíg 40,
Reykjavík
Viötalstími 9—10 og 15—17. Sími 28188
GÍSLI BALDUR GARÐARSSON
HÉRAÐSDÓMSLÖGMAÐUR
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 56. og 59. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1979 á Holtagerði 56 — hluta
— þinglýstri eign Konráös Guðmundssonar, fer
fram á eigninni sjálfri mánudaginn 14. janúar 1980
kl. 17:30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Garðabær
Blaöberar óskast til aö bera út Morgunblaöiö
í eftirtalin hverfi: hluta af Sunnuflöt og
Markarflöt, og Hráunsholt (Ásar).
Upplýsingar gefur umboösmaöur Morgun-
blaösins í Garðabæ, sími 44146.