Morgunblaðið - 05.01.1980, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1980
9
Einar S. Einarsson forseti Skáksambands íslands og Norðurlanda:
Skákkvadning
Skáklistin skipar veglegan sess í
menningarlífi íslendinga og
ísland háan sess meðal skákþjóða.
Engin þjóð með innan við eina
milljón íbúa á alþjóðlegan meist-
ara í sínum röðum, hvað þá
stórmeistara, nema Islendingar,
sem eiga 2 stórmeistara og 4
alþjóðameistara, enda skákin hér
almenningseign.
Afreksmenn eru mikilsvirði á
sérhverju sviði. Út á við, þjóðinni
til vegsauka. Inn á við, til að laða
aðra að, sérstaklega ungu kynslóð-
ina, til hollra hugðarefna. Þrótt-
mikið unglingastarf Skáksam-
bandsins og taflfélaganna í land-
inu hefur skilað glæstum árangri,
svo sem dæmin sanna.
Að auðga andann og virkja
hugarorkuna yfir skáktafli er öll-
um hollt, ekki hvað síst nú á
tímum fjölmiðla og strumpa. Á
skáksviðinu ríkir engin orku-
kreppa, né fyrirfinnst þar kyn-
slóðabil.
Heilbrigði hugans og andlegt
jafnvægi verður ekki metið til fjár
og það kostar lítið að viðhalda því,
miðað við að hjálpa þeim sem það
missa. Skák er vel til þess fallin og
hinn félagslegi þáttur hennar hef-
ur ekki verið metinn sem skyldi.
Framsýni og fyrirhyggja eru
aðalsmerki góðra skákmanna og
sama má segja að eigi við um
ráðstöfunarmenn opinbers fjár.
Ekki bera þó fjárveitingar til
skákhreyfingarinnar með sér að
svo sé, því gætt hefur tilhneig-
ingar til að láta fjárstyrki til
hennar þorna upp í hrunadansi
verðbólgunnar, þrátt fyrir stór-
aukin umsvif og fórnfúst frí-
stundastarf áhugamanna.
Sama er að segja um samnor-
ræn skáksamskipti, sem mikill
áhugi er fyrir að geti þróast í þá
veru og orðið eins náin og að er
stefnt með háleitum markmiðum
Norðurlandaráðs um norræna
samvinnu. Á sama tíma og verið
er að leggja á ráðin um samnor-
rænan imbakassa, NORDSAT,
upp á a.m.k. 100 milljarða, til að
einangra mannskapinn enn meira,
fyrirfinnst vart króna til að efla
persónuleg tengsl og kynni milli
grannþjóðanna, svo sem á skák-
sviðinu.
Hjól menningarlífsins, þar með
talið skáklistarinnar, þurfa að
geta snúist, ekki síður en atvinnu-
lífsins. Félagssamtök mega ekki
gjalda þess að þau hafa engan við
að semja, og gert að fjármagna
þjóðholla starfsemi sína umfram
50% með betlistarfsemi. Þó hugs-
un sé til alls fyrst, eru peningarnir
þó afl þess sem gera skal.
Skáksamband íslands er sá
burðarás í skáklífi landsmanna,
sem mikils er krafist af, bæði hvað
innlent skákmótahald snertir
(skólaskák, deildakeppni, lands-
mót), og hvað erlend skáksam-
skipti varðar. Á þessu nýbyrjaða
ári er fjölmargt framundan, m.a.
Ólympíumót karla og kvenna,
Áttalandakeppni, auk árlegra
Heims- og Evrópumóta unglinga,
Norðurlandamóta grunn- og fram-
haldsskóla og margs fleira. Þá
stendur fyrir dyrum að halda hér
innan tíðar, í samvinnu við Tafl-
félag Reykjavíkur, IX. Alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótið, sem orðið
er mikið fyrirtæki og kostnaðar-
samt (20 millj.), en um leið
ómissandi þáttur í skáklífinu, eins
konar skáklistahátíð hér á landi á
2ja ára fresti.
Um leið og bornar eru fram
alúðarþakkir til allra velunnara
manntaflsins fyrir mikilsverðan
stuðning og annan velvilja skák-
hreyfingunni til handa á undan-
gengnum árum, er hér með heitið
enn á ný á hið opinbera, bæjar- og
sveitarstjórnir, stéttarfélög og
sýslusjóði, fyrirtæki og einstakl-
inga til liðsinnis við mikilvæga
starfsemi skákhreyfingarinnar í
landinu, ungum og öldnum til
heilla.
Sigursælt nýár!
Þennan heimagerða bíl myndaði blm. Mbl., Anna
Nissels, í París á dögunum. Það fyrsta sem
áhorfanda gæti dottið í hug við þessa sýn er hvort
það geti ekki verið erfiðleikum bundið að leggja
honum, — ekki hvað síst í stórborg sem Parísar-
borg.
Byggmgatækniráð
tekið til starf a
Nýskipað byggingatækniráð hélt
sinn fyrsta fund 16. okt. en það
verður Tæknistofnun íslands til
ráðuneytis um allt er varðar
stöðlun á sviði byggingartækni
og mannvirkjagerðar. Meðal ann-
ars mun ráðið gera tiilögur um
ný stöðlunarverkefni og endur-
skoðun eldri staðla. Um helming-
ur útkominna íslenzkra staðla
fjallar um málefni á sviði bygg-
inga- og mannvirkjagerðar, segir
í TSÍ-fréttum.
Formaður byggingatækniráðs
er Gunnar S. Björnsson húsa-
smíðameistari, sem tilnefndur er
af Landssambandi iðnaðarmanna.
Aðrir ráðsmenn eru Ríkharður
Kristjánsson, verkfræðingur, til-
nefndur af Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins, Jón Bergs-
son, verkfræðingur, tilnefndur af
skipulagsstjóra ríkisins, Skúli
Guðmundsson, verkfræðingur, til-
nefndur af Innkaupastofnun ríkis-
ins, Gunnar Sigurðsson, tilnefnd-
ur af byggingafulltrúa Reykja-
víkurb., Halldór Jónsson, verk-
fræðingur, tilnefndur af Félagi ísl.
iðnrekanda, Björgvin R. Hjálm-
arsson, tæknifræðingur, tilnefnd-
ur af Húsnæðismáiastofnun ríkis-
ins, og Óttar P. Halldórsson,
prófessor, tilnefndur af Iðntækni-
stofnun íslands.
Öldungadeild
í Hveragerði
MÁNUDAGINN 7. janúar 1980 kl.
20 hefst starfræksla öldungadeild-
ar við Gagnfræðaskólann í Hvera-
gerði. Nemendur verða milli 40 og
50 talsins frá 16 ára til sextugs og
með mjög ólíka grunnmenntun
Sumir eru með gamalt barna- eða
fullnaðarpróf, aðrir jafnvel með
stúdentspróf, en sérstök inntöku-
skilyrði eru nánast engin. Deildin
starfar undir eftirliti Mennta-
skólans við Hamrahlíð og munu
nemendurnir gangast undir sömu
vorpróf og öldungarnir við
Hamrahlíðarskólann. Jafnframt
ávinna þeir sér sömu réttindi til
frekara framhaldsnáms og
Hamrahl.öldunar þar sem náms-
fyrirkomulagið er að öllu leyti
byggt á samræmdum námskrám
(áfangalýsingum) M.H., fjölbraut-
arskólanna og Tækniskóla íslands.
Það námsefni, sem er í boði er
hið sama og kennt er á fyrsta
námsári í M.H., fjölbrautarskól-
unum og í frumgreinadeild T.í. og
er sameiginlegt öllum námsviðum.
Námsáfangarnir eru í íslensku,
dönsku, ensku, þýsku, frönsku,
stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði,
líffræði, sögu, félagsfræði og jarð-
fræði. Háskólamenntaðir kennar-
ar annast kennsluna sem fer fram
á kvöldin kl. 19—22.30, nema á
laugardögum kl. 13—16.30 (ef þörf
krefur).
Öldungadeildin í Hveragerði er
hin fyrsta sinnar tegundar á
Suðurlandi og hefur margt full-
orðið fólk sýnt stofnun hennar
mikinn áhuga. Á kynningarfundi
hinn 16. des. sl. og eftir að hann
var haldinn hafa um 50 manns
leitað upplýsinga og um helming-
ur þeirra innritast, en mánudag-
inn 7. jan. n.k. kl. 20 verður
lokainnritun í námsáfanga,
stundaskrá lögð fram og tekið við
skólagjöldum (kr. 25—30 þús.
fyrir tímabilið jan.—maí). Nem-
endur ráða sjálfir námshraða
sínum, hversu marga námsáfanga
þeir innritast í. Námið hentar
þeim sem hyggjast taka stúd-
entspróf í áföngum eða fara í
Tækniskóla íslands þar sem það
samsvarar byrjunarnámi í þessum
skólum. En ekki síst er það hugsað
sem almenn fullorðinsfræðsla,
tækifæri þar sem fólki gefst kost-
ur á að bæta almenna undirstöðu-
menntun sína og víkka sjóndeild-
arhringinn í skemmtilegum fé-
lagsskap.
29555
Glœsileg sérhæð
til sölu í Hlíöunum, 144 ferm. 30 ferm
bflskúr. Til sölu í sama húsi stór 3ja
herb. kjallaraíbúö.
Breióagerði
3ja herb. rishæö, 80 ferm.
Opið í dag frá 10—5.
Eignanaust
v/Stjörnubíó
Til sölu er 4ra herb.
einbýlishús
ca. 100 ferm. 40 ferm. bílskúr í Grundarfiröi. Skipti á
húsnæöi á Reykjavíkursvæöinu koma til greina. Uppl.
ísíma 76859 eftir kl. 17.00.
-29555-
Einbýlishús
Óskum eftir tilboði í 165 ferm. einbýlishús með íbúð í kjallara. Stór
bílskúr með herbergi og W.C. Stór garöur. Verð ca. 64—65 millj.
Opið í dag frá 10—5.
Eignanaust v/Stjörnubíó.
Opiö í dag 9—4
Hraunbær
Mjög góö 3ja herb. íbúö á 3.
hæð.
Krummahólar
3ja herb. ca. 90 fm. Þvottahús á
hæðinni. Bílskýli fylgir.
Fossvogur
Einstaklingsíbúö ca. 50 fm.
Fífuhvammsvegur, Kóp.
4ra herb. íbúð á 1. hæð. 40 fm
bftskúr fylgir.
Sléttahraun, Hafn.
3ja herb. íbúö á 1. hæö. 90 fm.
Bftskúrsréttur. Útborgun 19
millj.
Hjallavegur
3ja herb. risíbúð ca. 80 fm. Sér
inngangur. Sér hiti.
Barónsstígur
2ja herb. íbúð ca. 65 fm. Verð
13—14 millj.
Njálsgata
2ja herb. íbúð á jarðhæð. Sér
inngangur. Sér hiti. Útborgun
8,5—9 millj.
Kárastígur
2ja herb. íbúö á jarðhæð. Sér
inngangur. Sér hiti. Verð 15
millj.
Njálsgata
2ja herb. íbúð á 2. hæð. 80 fm.
Sér hiti. Sér inngangur.
Keflavík
3ja herb. íbúð ca. 90 fm. Laus
nú þegar. Verð 14 millj. Útborg-
un 8 millj.
Hverageröi, einbýlishús
136 fm einbýlishús. 4 svefnher-
bergi. Góð greiöslukjör.
ÓSKUM EFTIR ÖLLUM
STÆRÐUM EIGNA Á
SÖLUSKRÁ
Pétur Gunnlaugsson, lögfr.
Laugavegi 24,
simar 28370 og 28040.
Opið 1—4 í dag
Vesturberg
3ja herb. ca. 90 fm. íbúð á 3. hæð
í blokk. Þvottahús og búr innaf
eldhúsi. Góö eign. Verð 26 millj.,
útb. 19,5 millj.
Laugarnesvegur
Höfum í einkasölu 2ja herb.
samþykkta jarðhæö í tvíbýlishúsi.
Sér hiti. Sér inngangur, Laus nú
þegar. Verð 16,5 millj., útb. 10
millj.
Hraunbær
3ja herb. vönduð íbúö á 3. hæö
ca. 90 fm. Haröviðarinnréttingar.
Flísalagt bað. Útb. 20 millj.
Laugarnesvegur
Höfum í einkasölu 3ja herb. íbúð á
4. hæð um 87 fm. Manngengt ris
yfir íbúöinni sem hægt væri að
tengja viö ibúöina. Laus strax.
Verð 25—26 millj.
Vesturgata
Höfm í einkasölu 4ra herb. íbúð á
3. hæö um 117 fm. Sér hiti. Lyfta.
íbúðin er teppalögö. Laus nú
þegar. Gott útsýni. Ekkert
áhvftandi. Útb. 25 millj.
Fossvogur
Höfum í einkasölu 2ja herb.
íbúö á 1. hæð. Góð íbúð. Útb.
14,5—15 millj.
Fífusel
Höfum í einkasölu 4ra herb.
endaíbúö á 1. hæð um 109 ferm
auk herbergis og geymslu í
kjallara. Útb. 22—23 millj.
iiMNIHGiB
t nSTEIGNIB
AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆO
Slmi 24850 og 21970.
Heimaslmi 37272. . >