Morgunblaðið - 05.01.1980, Page 33

Morgunblaðið - 05.01.1980, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980 33 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI upphafi dæmt til að mistakast og sáu það víst flestir menn nema Steingrímur sjálfur. Hin pólitíska blinda hans fyrirmunaði honum að sjá slíkt. Slík afstaða sýnist ekki lífvænleg til að ná árangri í aðsteðjandi efnahagsvanda. Og er alveg forkastanleg fyrir pólitískan flokksmann. Sá mikli efnahagsvandi er nú blasir við oss íslendingum verður ekki leystur nema til komi sam- eiginlegur þjóðarvilji allra lands- ins barna. Náist slík samstaða er vandinn auðleystur. Og það er von mín að sú hugarfarsbreyting geti einmitt orðið nú á þessu ári trésins 1980. Já, gamlir fordómar verða að víkja fyrir lífsnauðsyn heillar þjóðar, sem nú í bili er í miklum vanda stödd. Sundrungaröflin verða að bíða ósigur. Þrettánda öldin má ekki endurtaka sig hér, þá er voðinn vís. Listaskáldið góða, Jónas Hall- grímsson, kvað fyrir meira en 130 árum þetta fagra og raunsanna ljóð um framtíð íslands: „Veit þá engi að eyjan hvíta á sér enn von ef fólkið þorir. Guði að treysta, hlekki að hrista hlýða réttu, góðs að bíða. Fagur er dalur og fyllist skógi og frjálsir menn þegar aldir renna. Skáldið hnígur og margir í moldu með honum búa. En þessu trúið.“ borkell Hjaltason." • Færum Turninn „Það er krafa okkar meiri- hluta Reykvíkinga að Turninn á Lækjartorgi verði færður úr stað. Ég hefi hvað eftir annað bent á heppilegan stað. Fyrrverandi borgarstjóri svaraði mér og sagði að það yrði endanlegur staður fyrir Turninn þar sem hann stæði nú. Núverandi borgarstjóri svaraði mér ekki þegar ég hvatti hann til að ganga upp að Bernhöftstorfu og niður aftur og sjá hvernig Turninn þá lokar útsýni eftir Austurstræti. Háttvirtur borgarstjóri og borg- arráð, ég þarf ekki að minna ykkur á að þið eruð kjörnir af okkur kjósendum til þjónustu- starfa en ekkí sem ráðherrar yfir okkur. Sveinn Sveinsson, staddur að Ásum 14, Hveragerði.“ Þessir hringdu . . . • Góður ljóðalestur Gömul kona: „Mig langar að koma á fram- færi þakklæti til útvarpsins vegna frábærs lesturs á ljóðum Sigurðar Sigurðssonar frá Arnarholti, er Jónína H. Jónsdóttir las á kvöld- vöku í útvarpi. Fór lesturinn fram í síðustu kvöldvökunni fyrir jólin og var svo góður hjá þessari konu að hann náði alveg inn að hjarta- rótum. Þá vil ég einnig þakka útvarp- inu fyrir flutning á leikriti Henrik Ibsens og reyndar sjónvarpinu líka. Ég fylgdist með flutningi þess í báðum fjölmiðlunum og naut þeirra beggja. Og vegna þess hversu mikill aðdáandi Ibsens ég er mætti e.t.v. nefna hvort hægt væri að heyra bráðum verk hans Veislan á Sólhaugum, sem var flutt hér á árunum 1923 eða 1924.“ SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í júgó- slavnesku borgunum Bled og Portoroz í sumar kom þessi staða upp í skák stórmeistaranna Saho- vics, Júgóslavíu, og Kuzmins, Sov- étríkjunum, sem hafði svart og átti leik. 39... Rxd4! (39 ... Rxe3 var hægt að svara með 40. Db8! eða 40. Dxb2 og 39 ... Dxe3+ var afleikur vegna 40. Dxe3 — Rxe3, 41. Hel með hótuninni 42. Rfl) 40. Ddl (Ef 40. exd4 þá De2+, 41. Kg3 — He3+, 42. Dxe3 - Dxe3+, 43. Rf3 - Da3, eða 40. Dxb2 - Dxe3+, 41. Kg2 - Hg8+ o.s.frv. Rétt var hins vegar 40. Da3! og ef 40 ... Dh3 eða 40 ... De4 þá 41. a8=D!) Dxe3+ og hvítur gafst upp. HÖGNI HREKKVÍSI Fullt hús matar Hafiö þiö veitt því athygli aö ódýrasta, hollasta og næringamesta fæöan á matvælamarkaði í dag eru egg, þau eru seld á lægsta framleiösluverði. Eggin eru líka ódýr í eldamennsku, fjölbreytt til matargeröar, þola vel geymslu og úrgangslaus, enda einn algengasti matur á heimilum og veitingastöðum um víða veröld. Aðeins 1150.- kr. kg. Nauöungaruppboö sem auglýst var í 84., 89. og 93. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979 á Tunguheiði 14 — hluta — þinglýstri eign Magnúsar Jóhannssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 14. janúar 1980 kl. 13:00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauöungaruppboö sem auglýst var í 51., 54. og 57. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979 á Nýbýlavegi 94 — hluta — þinglýstri eign Benedikts Guðbrandssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 14. janúar 1980 kl. 16:30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauöungaruppboö sem auglýst var í 84., 89. og 93. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1979 á Tunguheiði 14 — hluta — þinglýstri eign Árna Höskuldssonar, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 14. janúar 1980 kl. 13:30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauöungaruppboö sem auglýst var í 75., 79. og 82. tölublaði Lögbirtingablaösins 1979 á Hjallabrekku 47 þing- lýstri eign Benjamíns Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 15. janúar 1980 kl. 13:00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð Eftir kröfu skattheimtu ríkissjóös í Kópavogi verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungaruppboöi, sem haldiö verður á bæjarfógetaskrifstofunni aö Auðbrekku 57, Kópavogi, þriðjudaginn 15. janúar 1980 kl. 14:00. Verður uppboði síðan framhaldið á öðrum stöðum, þar sem munir eru. 1. Crown hljómflutningstæki. 2. Beygjuvél, Roger Withney, kantpússivél frá Stálvirkjanum, Cehisa kantlímingarvél, Istobac bíllyfta, Hella Ijósstillitæki, 4 stk. Pfaff iönaöar- saumavélar. 3. 3. stk. Tjaldborgartjöld. Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu uppboöshaldara. Greiðsla fari fram viö hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.